Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Side 42
Áhrif matar
á sálartetrið
Axlasítt hár í tísku
n Hártískan í haust er í anda níunda áratugarins
N
icole Kidman hefur klippt
hár sitt í styttur og í axlasídd
eins og sjá mátti á for-
síðu V-Magazine sem kom
út nýverið. Nicole fylgir hér eft-
ir tískufyrirmyndum á borð við
ofurfyrirsætuna, Nataliu Vodi-
anova, plötusnúðnum og tísku-
drottningunni Alexu Chung, fata-
hönnuðinum og leikkonunni Chloe
Sevigny og nýstirninu Arizona
Muse.
Upphaflegu fyrirmyndirnar eru
hins vegar að finna í tískustraum-
um áttunda og níunda áratugar síð-
ustu aldar með þeim Kim Basinger í
Nine And A Half Weeks og goðsögn-
inni Debbie Harry.
42 Lífsstíll 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
Matur sem gerir
okkur leið
Kartöfluflögur og franskar kartöflur
Matvælin innihalda mjög mikið af hita-
einingum og eru einnig
stútfull af mettuðum
fitusýrum og natrí-
um, sem hefur verið
tengt við of háan
blóðþrýsting. Það er
erfitt fyrir líkamann
að melta mettuðu
fitusýrurnar sem leiðir til
óþæginda og þreytu eftir neyslu fæðunnar.
Hamborgarar
Hamborgari inniheldur að meðaltali 500 til
900 hitaeiningar. Það er um það bil helm-
ingur af ráðlögðum
dagskammti. Ham-
borgarar innihalda
mikið af mettaðri
fitu og transfitu-
sýrum sem auka
kólesterólmagn
í blóðinu og þar
með eykst hætta á
hjartasjúkdómum. Öll
kolvetnin hækka blóðsykurinn og þú getur
fundið fyrir þróttleysi og drunga.
Gosdrykkir
Í venjulegri gosdós eru
um það bil 10 teskeið-
ar af sykri og um það
bil 40 milligrömm af
koffíni sem er næstum
því helmingi meira
en í kaffibolla. Þó svo
að sykurinn gefi þér tímabundna orku þá
hækkar hann einnig insúlínmagn í blóðinu.
Rannsóknir sýna að þeir sem neyta mikið
af sykri missi á endanum eiginleikann til að
framleiða endorfín á náttúrulegan hátt sem
hefur síðan verið tengt við þunglyndi.
Pylsur og önnur unnin matvæli
Unnin matvæli eru að jafnaði óhollur
matarkostur því í þeim er
mikið af fitu og natríum.
Einnig er mikið af
rotvarnarefnum sem
eru talin geta valdið
krabbameini en auk
þess hafa þau verið
talin orsaka mígreni og
spennuhöfuðverk.
Kex og smákökur
Þrátt fyrir að þessi matvæli séu stútfull af
sykri og veita þér orku þá
hafa þau einnig þau
áhrif að orkan er afar
skammvinn og blóð-
sykurinn hríðfellur
eftir smá stund. Eftir
neyslu á svo miklum
sykri líður okkur oft illa
og við köllum á meiri sykur.
Þetta verður því að vítahring.
Matur sem gerir
okkur glöð
Möndlur
Auk þess sem við fáum
orku úr möndlunum
þá er sagt að þær séu
kynörvandi fyrir konur.
Þær eru stútfullar af
E-vítamíni, kynörvandi
hormóni og magnesíumi sem hjálpar líkam-
anum að breyta sykri í orku.
Lárpera
Hjá hinum fornu Majum
var talið að lárpera væri
góð fyrir heilsuna auk
þess sem hún hefði
kynörvandi áhrif. Hún
er sögð vera einn af
hollustu ávöxtunum
á jörðinni þar sem hún
inniheldur 25 nauðsynleg
næringarefni eins og E-vítamín, fólínsýru,
kopar og járn. Einnig er mikið magn af
trefjum í lárperunni sem er mjög gott fyrir
meltingarveginn.
Bananar
Í ávextinum má finn
kalíum sem er nátt-
úrulegt þvagræsilyf
og einnig orkugjafi
sem hjálpar vöðvum
að dragast saman. Í
greininni er því haldið fram
að slíkt hafi áhrif á styrkleika fullnægingar.
Súkkulaði
Því hefur oft verið haldið
fram að súkkulaði sé
gott fyrir heilsuna
og þá sér í lagi dökkt
súkkulaði. Í þessari
grein segir að súkkulaði
sé einnig kóngurinn þegar kemur að
matvælum sem hafa áhrif á kynhvötina.
Því er meðal annars haldið fram að efnið
fenýletýlamín, örvi gleðistöðvar í heilanum
og auki tilfinningar á borð við aðlöðun og
kynferðislega spennu.
Hvítlaukur
Þrátt fyrir lyktina þá
er hvítlaukur alhliða
heilsufæði. Neysla
hans hjálpar líkaman-
um við að losa allicin
en það er virkt efni sem
eykur blóðflæði. Einnig eru
í honum trefjar sem viðhalda tilfinningunni
að maður sé saddur og veitir orku.
n Möndlur, bananar og súkkulaði er á meðal þess sem við ættum að borða til að vera glöð
Þ
að er samband á milli þess
sem við borðum og andlegr-
ar heilsu okkar en bresk og
frönsk rannsókn sýnir fram
á þetta. Niðurstöður henn-
ar benda til að þeir sem borða meira
af unnum matvælum séu í meiri
hættu á að verða þunglyndir á með-
an þeir sem borða meira af lítið unn-
um matvælum eru orkumeiri. Ef þér
er jafn annt um andlega heilsu þína
og þá líkamlegu gætu þessi mat-
væli komið að gagni en á síðunni
essence.com er fjallað um hvaða
matvæli eru góð eða slæm fyrir and-
lega heilsu okkar, auk þess sem þau
geta haft annars konar áhrif.
Hamingja Það er ýmislegt
sem við getum gert til að
auka andlega vellíðan og
rétt mataræði er eitt af því.
Mynd PHotos.coM
chloe sevigny nicole Kidmannatalia Vodianova Arizona Muse
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Síðasta sýningarhelgi
Erum að taka á
móti verkum
á næsta uppboð
Hortus Conclusus
Ragnhildur Þóra
Ágústsdóttir
Sýningin stendur til 2. september
Inside Iceland
Olíumálverk
Valerie
Boyce
Sýningin stendur
til 2. september
Vefuppboð
Ástþór
Magnússon
Myndlist
Silfur og skartgripir
Hljómplötur