Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Síða 44
P
rófessor Nosang Myung og
teymi hans hjá University of
California, Riverside (UCR)
hefur hannað svokallað raf-
rænt „nef“ sem nemur bakt-
eríur, efnavopn, gasleka og óæskileg
efni í andrúmsloftinu. Nef af svip-
uðu tagi hafa verið hönnuð áður og
má þar nefna rafnef sem finnur lykt
af krabbameinsfrumum.
Myung hannaði frumgerð af
nefinu en UCR hefur nú sótt um
einkaleyfi og ætlar að framleiða nýja
útgáfu sem verður á stærð við debet-
kort. Tækið kæmi þá í nokkrum út-
færslum. Fjölrása nemi á stærð við
debetkort gæti fundið allt að átta
óæskileg efni í loftinu en einnar rás-
ar nemi væri á stærð við nögl og gæti
þá fundið einhverja ákveðna tegund.
Augljóslega gæti tæki sem þetta
bjargað fjölda mannslífa þar sem eit-
urefni eru notuð í iðnaðarframleiðslu
á degi hverjum út um allan heim.
„Þetta er mjög mikilvægt skref,“ sagði
Myung um nefið. „Frumgerðin sýn-
ir augljóslega að rannsóknir okkar
hér við háskólann munu eiga erindi
við iðnað,“ en nefið er byggt á nano-
skynjurum sem Myung hefur unnið
að síðustu átta ár. Þeir eru byggðir
úr kolefnis-túpum sem eru 100.000
sinnum fíngerðari en mannshár.
Stefnt er að því að framleiða þrjár
mismunandi útgáfur af nefinu. Tæki
sem hægt væri að halda á og mæla
efni til dæmis á vinnustað, minni út-
gáfu sem væri hægt að nota til mæla
gæði lofts og síðast en ekki síst kubb
sem hægt væri að setja í snjallsíma
til þess að mæla hugsanlega skaðleg
efni í loftinu.
Nú er verið að leita að fjárfestum
til koma tækjunum í framleiðslu og
síðan á markað.
44 Lífsstíll 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
N
ýleg tilraun vísindamanna frá
háskólunum í Oxford, Genf
og Berkeley hljómar eins
og upphafið að Hollywood-
mynd en þeim hefur tekist
með nokkuð einföldum búnaði að
lesa hugsanir fólks nógu nákvæmt til
að finna út upplýsingar eins og bú-
setu og bankaupplýsingar. Vísinda-
mennirnir hönnuðu nokkuð einfald-
an höfuðbúnað sem kostar nokkur
hundruð dali en segja þeir niðurstöð-
urnar benda til að styttra sé í en áður
var haldið að fólk geti misnotað tækni
af þessum toga.
Lesa heilabylgjur
Tilraunin var framkvæmd þannig
að nemendur í tölvuvísindum voru
fengnir til að taka þátt í könnun tengdri
öryggi en þeir vissu ekki að með bún-
aðinum væri verið að lesa upplýs-
ingar beint úr höfði þeirra. Hver nem-
andi sat með hinn svokallaða „Emotiv
brain-computer interface“ búnað á
höfðinu fyrir framan tölvu. Á tölvu-
skjánum var svo sýnd röð mynda svo
sem af kortum, bönkum, PIN-númer-
um og þar fram eftir götunum.
Síðan var fylgst með svokölluð-
um P300-heilabylgjum þátttakenda
sem eru viðbrögð heilans þegar hann
skráir ákveðið áreiti sem nothæft eða
merkilegt. Rannsakendur komust
svo að því að þeir gátu lesið úr þess-
um annars óreglulegu gögnum sem
skráð voru. Í sumum tilfellum gátu
rannsakendur síðan notað þess-
ar upplýsingar til að finna út hvaða
banka þátttakendur notuðu, hvar
þeir bjuggu og jafnvel nánari ban-
kaupplýsingar. Þetta var ekki alltaf
reyndin en þeir gátu séð mynstur í 10–
40 prósentum upplýsinga frá hverjum
notanda.
Hætta á árásum
„Einfaldleiki tilraunarinnar sem við
framkvæmdum bendir til þess að
mögulegt sé að gera mun flóknari
árásir á heilann,“ segir meðal annars
í grein vísindamannanna um rann-
sóknina sem birt var á ráðstefnunni
Usenix Security í Bellevue í Was-
hington-fylki fyrir skömmu. „Til
dæmis gæti óupplýstur tölvunotandi
auðveldlega tekið þátt í hugarleikj-
um sem eru dulbúin yfirheyrsla og
hann þannig verið fenginn til að vera
samvinnuþýðari. Það sem meira er,
þá fleytir tækninni sífellt fram, tækin
verða betri og því aukast líkurnar á ár-
angursríkari árásum.“
Annað sem hópurinn bendir á er
að hugsanlega væri hægt að koma
fyrir sjóræningjahugbúnaði í tækjum
sem þessum og því sé hætta á að slík-
um upplýsingum yrði stolið þó þeim
sé safnað í öðrum tilgangi.
asgeir@dv.is
Heilalestur
Verður hann partur
af glæpastarfsemi
framtíðarinnar?
Búnaðurinn
Kostar aðeins nokkur
hundruð dali.
Hannaði rafnef
n Greinir aðskotaefni í andrúmsloftinu
Geta „hakkað“ heilann
n Nýr búnaður les heilabylgjur n Getur komist að PIN-númerum
Nosang Myung
Hugsanlegt er að
snjallsímar geti
greint aðskotaefni í
andrúmslofti.
KÆRU VIÐSKIPTAVINIR
DRESSMANN Á LAUGAVEGINUM.
Nú senn líður að lokun verslunarinnar.
Síðasti söludagurinn verður
25 ágúst.
Dressmann á Íslandi vill þakka ykkur
kærlega fyrir viðskiptin á liðnum árum
og í leiðinni bjóða ykkur velkomin til
okkar í Dressmann í Kringlunni og
Smáralind þar sem við munum starfa
áfram af fullum krafti.
Með kærri kveðju.
Fyrir hönd Dressmann á íslandi.
Jóhann Ingi Davíðsson
Kristrún Zakaríasdóttir