Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Síða 2
2 Fréttir 28.–30. september 2012 Helgarblað Unglingarnir dópa minna 3 Verulega hef-ur dregið úr áfengis-, vímuefna- og tóbaksneyslu efstu þriggja bekkja grunnskóla undan- farin 15 ár. Í ítarlegri úttekt Rannsókn- ar og greiningar, sem ber heitið Ungt fólk 2012 – Menntun, menn- ing, íþróttir, tómstundir, hagir og líðan nemenda í 8., 9. og 10. bekk grunn- skóla, kemur fram að neyslan sé að- eins brot af því sem var fyrir fáeinum árum.„Minnkunin í vímuefnaneyslu er afgerandi mest og jöfnust á Ís- landi,“ sagði Jón Sigfússon, fram- kvæmdastjóri Rannsóknar og grein- ingar, í DV á mánudag. Berst gegn eineltinu 2 Snjólaug Ósk Björnsdóttir, 15 ára, vill fá að vera eins og hún er – í friði. Hún birti á dögunum mynd af sér á Facebook þar sem hún biðlaði til fólks að hætta að leggja sig í ein- elti. Þó hún væri „feit og ljót“ gæti hún ekkert gert í því. Snjólaug sagði sögu sína í DV á miðvikudag. Í mörg ár hefur hún þurft að þola níðglós- ur skólafélaga sinna um útlit sitt og persónu. Eineltið byrjaði fljótlega eftir að hún flutti með fjölskyldu sinni frá Húsavík til Egilsstaða. Hún segir það ömurlega tilfinningu að þurfa stanslaust að sitja undir því að mega ekki vera hún sjálf. Blekking Björgólfs 1 Fyrrver-andi hlut- hafi í Landsbank- anum krefst þess að 17 fyrrverandi eigendur og starfs- menn Landsbank- ans og viðskiptafélagar þeirra beri vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna skaðabótamáls sem 350 fyrr- verandi hluthafar íhuga nú að höfða gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni, aðaleiganda bankans. Hluthafinn sem um ræðir er Vilhjálmur Bjarna- son, lektor við Háskóla Íslands. Frá þessu var greint í DV á mánudag. Beiðni Vilhjálms byggir á því að Björgólfur hafi beitt blekkingum til að leyna raunverulegu eignarhaldi sínu í Landsbankanum fyrir hrun. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni Uppsagnir í Straumsvík Þrettán starfsmönnum Rio Tinto Alcan í Straumsvík var sagt upp á á þriðjudag, en alls verður stöðu- gildum fækkað um 27. Einn þeirra sem sagt var upp hafði unnið hjá fyrirtækinu í 35 ár. Gylfi Ingvarsson, trúnaðar- maður starfsmanna, segir ástæðu uppsagnanna vera niðurskurð hjá fyrirtækinu. „Þetta er niðurskurð- ur hjá fyrirtækinu út af tapi bæði hérna hjá fyrirtækinu og hjá sam- steypunni. Það var rétt að þessum uppsögnum staðið en menn hefðu viljað sjá aðra nálgun í því. Það var ekki farið eftir starfsaldri, heldur völdu stjórnendur þá starfsmenn sem voru látnir hætta.“ Ólafur Teitur Guðnason, upp- lýsingafulltrúi Alcan, segir hafa verið nauðsynlegt að grípa til niðurskurðaraðgerða vegna mikils taprekstrar fyrirtækisins undan- farið. „Það er erfitt að þurfa að standa í svona aðgerðum og er ekki gert nema að mjög vel athug- uðu máli. Við höfum sem betur fer komist í gegnum fjögur ár frá hruni án þess að þurfa að grípa til svona aðgerða, en þar sem tapið var komið yfir 20 milljónir á dag í ágúst, þá var ekki um annað að ræða en að skoða alla möguleika.“ Ólafur Teitur segir að ekki standi til að fækka fólki frekar á næstunni. Villtur Svisslendingur Svisslendingur nokkur hafði sam- band við Neyðarlínuna á fimmtu- dag þegar hann taldi sig vera villtan á Kili. Eftir að maðurinn hafði samband við Neyðarlínuna afboðuðu björgunarsveitir leit að manninum sem sagðist hafa fundið bíl sinn og hugðist aka til byggða. Höfðu þá allar björgunar- sveitir á Suðurlandi hafið leit að tveimur mönnum sem voru sagð- ir villtir á Kili. Reyndist maðurinn vera á einn á ferð því ferðafélagi hans fór ekki með honum á Kjöl. É g vona að sú stjórn sem verð- ur kosin muni standa sig vel,“ segir Ásgerður Jóna Flosadótt- ir, nýr meðlimur Neytenda- samtakanna. Ársþing samtak- anna fer fram um helgina. Þingið, sem haldið er á tveggja ára fresti, er yfirleitt átakalítið en fyrirséð er að nú verði breyting á. Síðustu tvo dagana áður en frestur til að ganga í samtök- in, og öðlast þannig þátttökurétt á ársþinginu rann út, gengu á bilinu 50 og 60 nýir meðlimir í samtökin. Alls eru 146 manns skráðir á þing- ið en á meðal þeirra sem gengu í samtökin á síðustu stundu eru auk Ásgerðar Jónu, verkalýðsforkólfur- inn Vilhjálmur Birgisson, stjórnmála- maðurinn Guðmundur Franklín Jónsson og baráttu- og útvarpsmað- urinn Eiríkur Stefánsson. Hjá Neytendasamtökunum fékkst staðfest að óvenju margar nýskrán- ingar í samtökin hafi verið á fimmtu- dag og föstudag í síðustu viku. Áhugi á neytendamálum Samkvæmt heimildum DV fara Ás- gerður Jóna Flosadóttir, kennd við Fjölskylduhjálp Íslands, og útvarps- og baráttumaðurinn Eiríkur Stef- ánsson fyrir hópi þeirra sem gekk í samtökin á síðasta degi. DV hefur rætt við einstaklinga sem fengu sím- töl þar sem þeir voru beðnir um að taka þátt. Í samtali við DV hafnar Ás- gerður Jóna því alfarið og segir ein- faldlega að neytendamál séu henni afar hjartfólgin. „Ástæðan fyrir því að ég skrái mig er að mig langar að sjá hvað fer fram þarna og hver árangur síðastliðins árs hefur verið.“ Hún seg- ist ekki kannast við neina smölun og segir fólk úr ólíkum áttum hafi skráð sig. „Ætli þetta séu ekki bara nokkrir hópar. Ég vil helst túlka það þannig.“ Samkvæmt heimildum DV er þó staðreynd að hópur fólks vilji láta til sín taka á þinginu. „Þetta er ekk- ert annað en óvinveitt yfirtaka,“ sagði einstaklingur sem fékk símtal þar sem hann var beðinn að slást í för og safna fleirum. Hann lýsti þessu sem yfirvofandi hallarbyltingu. Nokkur ólga er innan núverandi stjórnar vegna hræringanna. Hluti stjórnarmanna vill breytingar Jóhannes Gunnarsson, formað- ur Neytendasamtakanna síðan árið 1984, að tveimur árum undanskild- um, fagnar í samtali við DV auknum áhuga á neytendamálum. „Ég vænti þess að þetta fólk gangi af heilum hug í Neytendasamtökin,“ segir hann. Samkvæmt heimildum DV ríkir al- menn sátt um Jóhannes sem formann á meðal 20 manna stjórnar samtak- anna. Heimildir blaðsins herma að hann hafi nokkuð marga ótvíræða stuðningsmenn í stjórninni, líklega hátt í helming stjórnarmeðlima. Hinn helmingurinn væri hins vegar til í að sjá breytingar. Enda þótt Jóhannes sé margreyndur og nokkuð óumdeildur vill hluti stjórnarinnar formann sem lætur meira til sín taka og sé ótengdari stjórnsýslunni, eins og það var orðað í eyru blaðamanns. Jóhannes njóti þó virðingar fyrir sitt framlag til neyt- endamála. Þess má geta að í vor var Jóhannes endurkjörinn sem formaður til tveggja ára án mótframboðs. Á þinginu, sem haldið er annað hvert ár, er ekki kos- ið um formann heldur aðeins um það hverjir myndi stjórn. Hefð er fyr- ir því að lagður sé fram listi með nöfn- um sem alla jafna er samþykktur án mótbára. Á laugardag kann annað að verða uppi á teningunum. Tekið skal fram að stjórnarseta í samtökunum er ólaunuð en í starfinu felst nokkur vinna. Aðeins staða for- manns er launuð en auk hans eru sex starfsmenn á skrifstofu samtakanna. Verðtryggingin spilar inn í Þegar DV náði tali af Eiríki Stefáns- syni vildi hann ekkert um það segja hvort hann hafi tekið þátt í smöl- un fyrir þingið. Hann sagðist hafa áhuga á „neytendamálum og verð- tryggingu“, eins og hann orðaði það en vildi ekkert gefa upp um það hvort hann myndi sækjast eftir því að komast í stjórn. „Allir þeir 140 sem mæta eru gjaldgengir í stjórn,“ sagði hann en vildi að öðu leyti lítið tjá sig. Hann sagði þó aðspurður að hon- um fyndist Neytendasamtökin ekki hafa staðið sig þegar kemur að verð- tryggingunni. Heimildir DV herma að það sé einmitt mál tengt verðtryggingunni sem knýr hópinn áfram. Kveikjuna að málinu megi rekja til þess að Neyt- endasamtökin hafi hafnað því að leggja til hálfa milljón króna vegna málsóknar sem Hagsmunasamtök heimilanna undirbúa vegna verð- tryggingar húsnæðislána. Hópurinn vilji að samtökin beiti sér með öflug- um hætti gegn verðtryggingunni. Jóhannes Gunnarsson sagði í samtali við DV að reglur samtakanna séu skýrar þegar kemur að þátttöku í dómsmálum. Skilyrði væri að sam- tökin væru með frá upphafi og að ef af málinu yrði og málskostnað- ur yrði greiddur fengju samtökin sitt til baka. Það hafi ekki staðið til og því hafi verið samþykkt að samtök- in yrðu ekki með í málsókninni. „Við höfum heldur aldrei styrkt félaga- samtök vegna málaferla.“ n „Ég vænti þess að þetta fólk gangi af heilum hug í Neytenda- samtökin Hallarbylting? Þau eru á meðal þeirra sem skráðu sig í samtökin síðastliðinn föstudag. Vilhjálmur Birgisson Guðmundur Franklín Jónsson Eiríkur Stefánsson n Hópur baráttufólks vill hallarbyltingu í Neytendasamtökunum „EkkErt annað En óvinvEitt yfirtaka“ Formaður síðan 1984 Jóhannes Gunnars son fagnar auknum áhuga á neyt- endamálum. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Ásgerður Jóna Flosadóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.