Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 18
18 Fréttir 28.–30. september 2012 Helgarblað í samræmi við það sem er eðlilegt og maður ætlaði. Ég var fyrir löngu, á meðan ég var enn barn, farinn að hugsa um rómantíska hluti sem hægt væri að framkvæma með konunni sinni. Vandamálið er bara að ég fylgdi ekki planinu eftir.“ Söfnunaráráttan Einu sinni sagði Sigmundur Davíð að eiginkonan héldi því fram að hann ætti engin áhugamál önnur en þau sem snúa að vinnunni. Sem stjórn- málamaður yrði hann hins vegar að reyna að koma sér upp fleiri áhuga- málum. „Ljósmyndun er smá tilraun í þá áttina. Það er að vísu ekki alveg nýtt áhugamál en ég hætti að sinna því þegar ég fór í stjórnmálin. Áður voru þetta aðallega myndir tengd- ar skipulagsmálum en núna myndar maður aðallega barnið. Mér finnst ég aldrei hafa tekið nógu margar mynd- ir af henni.“ Þar að auki segist hann vera mikill safnari. „Konunni minni finnst þessi söfnunarárátta fullmikið af því góða en ég hef tilhneigingu til að hirða hluti og geyma allt sem mér finnst sögulegt og sérstakt. Það er því ým- islegt sem hefur hrúgast upp og fleir- um en Önnu Sigurlaugu hefur fund- ist nóg um. Ég var að vinna á RÚV þegar flutt var af Laugaveginum upp í Efstaleiti og eins og oft í flutningum rann æði á menn að henda og jafnvel því sem mér þótti söguleg verðmæti. Ég tók mig til og reyndi að bjarga þessum minjum og hrúgaði í eina 50 kassa. Sumir þeirra eru í geymslu en aðrir eru faldir í húsi Ríkisútvarps- ins þar sem ég mun vísa á þá þegar menn hafa komið sér upp aðstöðu til að geyma þetta.“ Ástríðan fyrir skipulagsmálum Þau hjónin deila hins vegar áhuga sínum á skipulagsmálum og göml- um húsum. Áður en Sigmundur Davíð hóf feril sinn sem stjórnmála- maður gerði hann tilraun til þess að hafa áhrif á skipulagsmál í borginni, tók sæti í Skipulagsráði Reykjavíkur- borgar og talaði fyrir þeim menn- ingar- og umhverfisverðmætum sem felast í varðveislu og endurnýjun eldri húsa og borgarhverfa. Það var árið 2008 sem hann kom inn í Skipulagsráð og þótt sætinu hefði verið úthlutað af Framsóknar- flokknum kom hann inn sem óháður sérfræðingur en ekki flokksmaður og sagði: „Ég hef aldrei tekið þátt í póli- tík en þar sem ég hef tjáð mig talsvert um skipulagsmál fannst mér ekki annað hægt en að þiggja þetta tæki- færi til að taka þátt í að móta stefn- una í þessum málaflokki.“ Það var líka árið 2008 sem Anna Sigurlaug bauðst til að endurbyggja Laugaveg 4 og 6 í upprunalegri mynd á eigin kostnað, svo framarlega sem húsin yrðu áfram í miðbænum, til dæmis í Hljómskálagarðinum. Sendi hún borgarfulltrúum bréf um málið þar sem hún rakti forsendurnar fyr- ir þessari ákvörðun sinni og hafði þá þegar látið teikna húsin fyrir sig í því sem næst upprunalegri mynd ásamt tengihúsum sem yrði lögð að gömlu húsunum. Ljóst væri að kostnaður- inn við endurgerð yrði talsvert meiri en hugsanlegt söluverð, einkum ef húsin yrðu flutt í burtu. Sagðist hún fela Landsbankanum að senda borg- aryfirvöldum staðfestingu á að hún hefði fjárhagslega burði til að taka að sér verkefnið. „Ég vænti þess þar af leiðandi ekki að borgin sjái sér hag í að kaupa þau að viðgerð lok- inni þótt á kostnaðarverði væru. Það er hins vegar sjálfsagt að semja um slíkt fyrirkomulag óski borgin þess. Aðalatriðið er að þessi sögulegu hús, tvö af örfáum húsum sem eftir eru af Reykjavíkurþorpinu, verði ekki eyðilögð.“ Formaðurinn og hundurinn Sunnudagurinn 18. janúar mark- aði tímamót í lífi Sigmundar Davíðs. Það var spenna í loftinu á flokksþingi Framsóknarmanna, fimm tókust á um formannssætið og þegar úrslitin lágu fyrir var Höskuldur Þórhallsson kynntur sem nýr formaður Fram- sóknarflokksins. En Adam var ekki lengi í paradís og Höskuldur ekki lengi í sigurvímu. Hann var hylltur af salnum og var í þann mund að stíga í pontu þegar hlé var gert á fundin- um, formaður kjörstjórnar hafði víxl- að úrslitunum og hinn raunverulegi sigurvegari kosninganna var nýliðinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Í fréttum um málið sagðist Sig- mundur Davíð hafa orðið mjög ánægður þegar Höskuldur var kynntur sem sigurvegari kosning- anna. „Það var eiginlega léttara að heyra fyrri niðurstöðuna en þá síðari þegar það helltist yfir mann ábyrgð- in.“ Tæpur mánuður var síðan hann gekk í flokkinn og nú var hann orðinn formaður. „Líklega þarf maður að fara að finna sér eitthvað nýtt til að geta kúplað sig frá pólitíkinni. Nú stendur til að við eignumst hund á heimilinu. Það er þannig tilkomið að ég lofaði konunni því að við myndum fá hund ef ég yrði formaður Fram- sóknarflokksins enda taldi ég litlar líkur á því að ég þyrfti að standa við það en það verður ekki hjá því komist núna,“ sagði Sigmundur Davíð þegar úrslitin lágu fyrir. „Ótrúlegt en satt“ Áður en Sigmundur Davíð var kjör- inn formaður hafði hann aldrei gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, reyndar hafði hann lengi verið harð- ákveðinn í að skipta sér ekki af póli- tík þótt hann væri mikill áhugamað- ur og hafi lýst því yfir fimm ára gamall að hann ætlaði sér að verða forsætis- ráðherra. Hins vegar varð mikil upp- stokkun í forystu flokksins á þessum tíma, enda vilji til að styrkja tengslin við hugmyndafræði grasrótarinnar eftir efnahagshrunið á Íslandi. „Mér hefur fundist mjög ríkjandi í flokksfélögunum vilji til þess að taka á móti þeim sem vilja láta gott af sér leiða. Jafnvel að því marki að þeir sem koma nýir inn í flokkinn séu teknir fram yfir þá sem hafa starfað innan flokksins. Ég myndi segja að ég væri kannski besta dæmið um þetta. Eins og ég segi þá geng ég í flokk tveim- ur vikum fyrir flokksþing. Ég ferðast um landið og hitti flokksmenn í tvær vikur. Á flokksþinginu ræddu menn málin og ótrúlegt en satt þá treystu menn þessum manni sem hafði á engan hátt tekið þátt í stjórnmálum áður, fyrir þessu hlutverki,“ sagði Sig- mundur Davíð í nýlegu viðtali við DV. Á þessum tíma gaf hann út að hann gegndi ekki launaðri stjórn- arsetu og væri í launalausu leyfi frá skipulagsráði Reykjavíkur. Hann hefði verið að vinna að ritun kennslu- bókar og gerð heimildarmynd- ar um skipulagshagfræði en vegna stjórnmálaþátttöku sinnar væri óvíst hvenær því verkefni lyki og hvort hann fengi greitt fyrir það. Hann sagðist ekki hafa fengið fjárhagslegan stuðning fyrir framboðið og að félag sem hann ætti helmingshlut í, Menn- ing ehf., væri ekki starfandi. Hann hefði sem sagt engar tekjur. Umdeild ummæli Eftir að hann fór í pólitík vilja allir tala við hann þegar hann fer út á meðal fólks, segja vinir hans. Á ferli sínum sem stjórnmála- maður hefur Sigmundur Davíð vak- ið athygli fyrir eitt og annað. Fyrst og fremst fyrir að verja vinstri ríkis- stjórnina falli og gera með því mögu- legt að mynda starfshæfa ríkisstjórn áður en boðað var til kosninga árið 2009. Fljótlega eftir þingkosningarnar steig hann fram og sagðist geta redd- að Íslendingum risaláni frá Noregi. Seinna kom á daginn að það var einn þingmaður á norska Stórþinginu sem vildi skoða lánveitingar til Íslendinga en ekki norsk stjórnvöld. Jens Stol- tenberg, þáverandi forsætisráðherra Noregs, sagði hreinlega nei við lán- inu sem átti að hljóða upp á 2.200 milljarða króna. Enda hefur Sigmundur Davíð ver- ið gagnrýndur fyrir ýmis ummæli sem þykja villandi eða eru röng. Eins og það þegar hann sagði að ríkis- stjórnin hefði unnið þjóðinni meira tjón eftir hrun en það tjón sem varð við hrunið sjálft. Reyndar færði hann engin rök fyrir þessari full- yrðingu en þegar hagtölur og aðrar vísbendingar um stöðu þjóðarbús- ins voru skoðaðar kom í ljós að hún átti ekki við nein rök að styðjast. DV tók því saman lista yfir um- mæli Sigmundar Davíðs sem þóttu villandi og staðsetti þau á lygamæli. Þar var hann til að mynda sagður hafa logið því til að kanadísk stjórn- völd vildu hefja myntsamstarf við Íslendinga, en í ljós kom að ekkert slíkt samkomulag hafði verið rætt, nema í samtali Sigmundar Dav- íðs við ónafngreindan blaðamann. Og því að búferlaflutningarnir eftir hrun væru sambærilegir fólksflutn- ingunum til Vesturheims. Þessum ummælum var hafnað í skýrslu sem var unnin af prófessor við Háskóla Íslands sem sagði slíkan samanburð fjarri sanni. Gamall og góður vinur hans og samherji segir þó að helsti kostur og galli Sigmundar Davíðs sé að hann kynni sér málin alltaf vel og vandlega áður en hann myndar sér afstöðu en það geti tekið tíma. Hins vegar hafi hann ekki alltaf notið sammælis, honum séu gerðar upp skoðanir og hans sterka réttlætiskennd hafi ekki alltaf komist til skila. Hann hafi ver- ið dæmdur fyrirfram, kannski vegna auðæfa sinna og stöðu, og kannski vegna þess að flokkurinn hafi átt undir högg að sækja á síðustu árum. Baráttan við holdið En það er fátt sem hefur vakið eins mikla athygli og megrunarkúrinn sem Sigmundur Davíð kallaði ís- lenska kúrinn. Sigmundur Dav- íð fitnaði nefnilega þegar hann tók sæti á Alþingi og fór að borða í mötu- neytinu þar og honum fannst leiðin- legt að feitasti leikarinn léki hann alltaf í Skaupinu. „Ég veit alveg að ég er í smá holdum en hann er greini- lega í einhverri afneitun,“ sagði leik- arinn og hló. Sigmundur Davíð sló líka á létta strengi og sagði Össur Skarphéðins- son hafa varað sig við mötuneytinu. „Þar væri hreint út sagt alltof góð- ur og lystugur matur og hann hefði brennt sig illa á því. Ég hefði átt að taka varnaðarorðum hans,“ sagði Sigmundur Davíð og bætti því við hann hefði verið fljótur að bæta á sig í þessu góða fæði „... og ekki var ég sérlega grannur fyrir,“ sagði hann. Íslenski kúrinn gekk út á að borða aðeins íslenskar afurðir en hann sagði meltingarlækni hafa ráðlagt sér þetta því íslenskur matur væri sá hollasti í heimi. Árangurinn lét ekki á sér standa, Sigmundur Davíð varð „... hressari og orkumeiri en áður,“ og léttist um fleiri kíló. Hann leyfði þjóðinni að fylgjast með gangi mála. „Kominn undir 100 kíló í fyrsta skipti frá því ég var 12 ára … nei, það er líklega ekki alveg það langt síðan en alla vega lengra en ég man og í millitíðinni hafa verið ófáar tilraunir sem skiluðu ekki sama árangri og íslenski kúrinn,“ sagði Sigmundur um megrunina en hann byrjar daginn yfirleitt á skyri eða léttri AB-mjólk með bláberjum og krækiberjum úr frystinum. Í eina skiptið sem vitað er með vissu að Sigmundur hafi svindlað á „íslenska kúrnum“ er þegar hann var staddur í Finnlandi en þá fékk hann matareitrun. Átökin Nú takast þeir aftur á, þeir Sigmund- ur Davíð og Höskuldur, en báðir sækjast eftir fyrsta sæti í Norðaust- urkjördæmi. Höskuldur var fyrstur, Sigmundur Davíð kom á eftir og Höskuldur varð sár og sagðist ekk- ert hafa vitað af fyrirætlunum Sig- mundar Davíðs. Sigmundur Davíð sagði það rangt, Höskuldur hefði víst vitað hvað stæði til og undir það tók framkvæmdastjóri flokksins. Hösk- uldur svaraði því þá og sagðist hafa verið langfyrstur, hann hefði tilkynnt um stefnu sína um miðjan septem- ber á bæjarmálafundi Framsóknar á Akureyri. Það staðfesti bæjarfulltrúi flokksins þar. Málið þykir allt hið vandræðaleg- asta, flokksmenn komu flestir af fjöll- um og í frétt DV kom fram að Sig- mundur Davíð hefði ekki rætt sín mál innan flokksins. Meira að segja detox-drottningin sem nýlega gekk til liðs við flokkinn, Jónína Bene- diktsdóttir, steig fram og sagðist ósátt við þá félaga. „Ég hefði gert þetta öðruvísi,“ sagði hún. „Ég hefði gert þetta þannig að fólk væri ekki að eiga samskipti í gegnum fjölmiðla. Þetta er mjög slæmt en vonandi bara lærir fólk af þessu. Svona hagar maður sér ekki. Kannski hef ég meiri reynslu af fjölmiðlum en þessir strákar.“ Slök staða í Reykjavík Vigdís Hauksdóttir steig einnig fram og sagðist hvorki vera flokka- né kjör- dæmaflakkari. Þar skaut hún föst- um skotum á Sigmund Davíð sem fór fram í Reykjavík árið 2009. Þá var hann gagnrýndur fyrir þá ákvörðun og sagðist finna fyrir þrýstingi frá grasrót flokksins um að hann byði sig fram á landsbyggðinni. Hann varði ákvörðun sína með því að segja að það æskilegast fyrir flokkinn að hann byði sig fram í Reykjavík, „því hér er mikið endurnýjunar- og upp- byggingarferli í gangi,“ sagði hann. Í gegnum tíðina hefur Framsókn átt erfiðara uppdráttar í Reykjavík en á landsbyggðinni. Af þeim sökum hafa formenn flokksins gjarnan boð- ið fram í Reykjavík í viðleitni sinni til að styrkja flokkinn þar. Það er þó ljóst að í því felst áhætta eins og sjá má af örlögum Jóns Sig- urðssonar, sem leiddi flokkinn árið 2007 og fór fram í Reykjavík. Hann komst ekki á þing og sagði af sér for- mennsku í kjölfarið. Árið 2009 tókst Framsóknarflokknum hins vegar að ná inn tveimur mönnum í Reykjavík en Vigdís Hauksdóttir fór inn ásamt Sigmundi Davíð. Spekúlantar hafa sagt það veik- leikamerki hjá Sigmundi Davíð að rjúfa hefðina og flýja í öruggara kjör- dæmi – og ómaklegt af formanni að fara gegn eigin þingmanni. Eins er ljóst að uppbyggingarstarf- inu í Reykjavík er langt í frá lokið ef marka má niðurstöður úr Capacent- könnun á fylgi stjórnmálaflokka. Þar kom fram að Framsókn gæti misst þingmann í Reykjavík norður, þótt flokkurinn haldi væntanlega sama þingmannafjölda. En samkvæmt því væri Sigmundur Davíð úti. Þá er einnig vert að hafa í huga að í sveitarstjórnarkosningunum árið 2010 átti flokkurinn erfitt uppdráttar og náði ekki manni í borgarstjórn. n Ástin Hjónin kynntust í áramótapartíi, smullu vel saman og hafa verið saman síðan. Þau deila meðal annars áhuga sínum á skipulags- málum en Anna Sigurlaug á stundum erfitt með söfnunaráráttu hans. Nýja húsið Þegar von var á erfingja fluttu hjónin sig um set og komu sér fyrir á æskuslóðum Sigmundar Davíðs í Breiðholtinu. Á gleðistundu Átökunum um auðæfin er löngu lokið og sárin hafa gróið um heilt. Hér sjást foreldrar Sigmundar Davíðs og Önnu Sigurlaugar gleðjast með þeim á brúðkaupsdaginn. Föðurhlutverkið breytti öllu Eftir að hann varð pabbi öðlaðist Sigmundur Davíð nýja sýn á lífið og varð enn ákveðnari í því að láta gott af sér leiða. „Kominn undir 100 kíló í fyrsta skipti frá því ég var 12 ára … nei, það er líklega ekki alveg það langt síðan en alla- vega lengra en ég man og í millitíðinni hafa verið ófáar tilraunir sem skil- uðu ekki sama árangri og íslenski kúrinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.