Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 27
Viðtal 27Helgarblað 28.–30. september 2012 þegar systurnar voru orðnar stálpað­ ar og kom lífi sínu á réttan kjöl. Hann er nú nýlátinn. „Mamma og pabbi voru bara gott og skynsamt venjulegt fólk. Þó að pabbi hafi verið í óreglu um tíma hætti hann að drekka 1976. Í kring­ um mig er bara venjulegt fólk. Einu sinni þegar stelpurnar mína voru litlar þá sagðist sú eldri ætla að verða annaðhvort barnalæknir eða tannlæknir. Við vorum mjög stolt af því hvað hún væri metnaðarfull en þegar við spurðum þá yngri þá sagð­ ist hún bara ætla að verða venjuleg kona eins og mamma. Við fengum áfall yfir metnaðarleysinu í barninu og héldum að uppeldið hefði mis­ tekist. En síðan hef ég oft hugsað til þess og þótt vænt um þetta því ég er bara venjuleg kona og það er ekkert svo slæmt. Í pólitíkinni er ég venjuleg kona að vinna fyrir venju­ legt fólk.“ Fór til útlanda í miðri prófkjörsbaráttu Áður en Oddný gekk í Samfylking­ una gegndi hún stöðu bæjarstjóra í heimabæ sínum, Garðinum, í þrjú ár. Hún var á þverpólitískum lista sem bar sigur úr býtum í sveitar­ stjórnarkosningunum árið 2006. „Síðan kom hrunið og menn fóru að leita að nýjum kandídötum til að bjóða sig fram og þá var mikið þrýst á mig. Fyrst sagði ég bara: Nei, nei, það kemur ekki til greina, en eftir því sem fleiri hringdu og komu í heim­ sókn þá fór mér að líka betur við þá hugmynd.“ Hún er alin upp af jafnaðar­ mönnum og segir jafnaðarmennsk­ una sér í blóð borna. Það hafi því aldrei komið til greina að ganga í annan flokk. Hún tók prófkjörsbaráttunni þó frekar létt enda áttu þau hjónin pantaða utanlandsferð á þeim tíma sem hún stóð sem hæst. „Ég skrif­ aði bara greinar frá útlöndum og fór á nokkra fundi þegar ég kom heim. Ég hugsaði einfaldlega að ef ég næði ekki kjöri þá næði ég bara ekki kjöri. En ég endaði í 2. sæti,“ segir hún brosandi og er augljóslega þakklát fyrir það traust sem henni var sýnt. Ekki meiri læti í nýjum þingmönnum Töluverð endurnýjun varð í röðum þingmanna í flestum flokkum eft­ ir hrun og þykir Oddnýju það leitt hvað nýir þingmenn hafa fengið á sig miklar ákúrur. „Menn segja að þeir kunni ekki að haga sér í þingsal og eldri þingmenn hafa sagt: Já, þessi endurnýjun sem ykkur fannst svona mikilvæg, sjáiði hvernig hún hefur nú tekist. Ekkert nema leiðindi í þingsal og aldrei sést ann­ að eins,“ segir Oddný í hæðnistón til að leggja áherslu mál sitt. „Mér hefur fundist þessi umræða svo ósanngjörn því ef þú horfir á þá sem eru með mestu lætin þá eru það í grunninn þeir sem hafa þing­ reynslu. Ég kem hér inn, kona með ágætis bakgrunn og reynslu, bæði úr skóla lífsins og öðrum skólum, á sextugsaldri og það er talað um mig eins og ég sé með öllu reynslulaus.“ Hún viðurkennir að vissulega hafi nýir þingmenn ekki mikla reynslu af starfinu sem fer fram í þingsalnum eða í þingnefndum en þeir komi hins vegar flestir inn í þingið með mikla reynslu sem nýt­ ist þar. „Það eru einstaka nýir þing­ menn sem hafa verið háværir í þingsal og stóryrtir en það eru líka margir eldri þingmenn sem gera slíkt hið sama.“ Oddnýju finnst þar af leiðandi ósanngjarnt að setja alla nýja þingmenn undir sama hatt. Trúir að fólk muni velja Samfylkinguna Þegar Oddný er spurð út í hvort það ríki einhver óróleiki innan þing­ flokks Samfylkingarinnar verður hún sposk á svip. „Við skiptumst á skoðunum og menn hækka róm­ inn á fundum en við höfum hingað til borið gæfu til þess að ganga sam­ hent út. Umræðan er alltaf af hinu góða en svo höfum við getað kom­ ið okkur saman um niðurstöðu sem við höfum farið eftir. Við höfum haft það fram yfir samstarfsflokkinn þar sem hafa verið meiri deilur út á við. Ég vona að við höldum þessu út kjörtímabilið.“ Oddný hefur fulla trú á flokkn­ um sínum og þeirri hugmynda­ fræði sem hann stendur fyrir, en samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup myndi tæplega 21 prósent kjósa Samfylkinguna yrði gengið til kosn­ inga nú. Þá hefur stuðningur við ríkisstjórnina verið að aukast síð­ ustu mánuði. Hún hefur engar áhyggjur af því að flokkurinn fái skell í kosningunum í vor. „Ég bara trúi því ekki. Við höfum auðvitað þurft að gera ýmsa óvinsæla hluti, en fólk sér árangur erfiðisins. Kjör allra skertust við hrunið en við höf­ um varið kjör þeirra sem hafa haft minnst umleikis og þeir sem hafa getað borið byrðarnar hafa fengið meira á sig. En allir hafa orðið fyrir kjaraskerðingu og það var óumflýj­ anlegt. Í niðurskurðaraðgerðum höfum við varið velferðarkerfið, menntakerfið og lögregluna um­ fram annað og í tekjuöflunarleið­ um hugað að almannhagsmunum frekar en sérhagsmunum. Þegar fólk lítur til baka og horfir á þenn­ an árangur þá trúi ég ekki öðru en að við fáum að njóta þess í kosn­ ingunum.“ Hún bendir á að Sjálfstæðis­ flokkurinn lofi skattalækkunum og meiri niðurskurði ef hann komist til valda og hún trúir ekki að þjóð­ in muni kjósa það yfir sig. „Ég ef­ ast ekki um að fólk velur frekar þá blönduðu leið og þær áherslur sem jafnaðarmenn hafa lagt upp með undanfarin fjögur ár. Ég trúi því ekki að fólk fari að velja ójöfnuð, niður­ skurð og skattalækkanir,“ segir Odd­ ný sem talar af mikilli sannfæringu. „Okkur var treyst fyrir tiltektinni og ég hef trú á því að okkur verði treyst til að halda áfram að byggja hér upp réttlátt samfélag í anda jafnaðarmanna. Ég á ekki von á öðru.“ n „Ef ég hefði mátt ráða hefði ég látið ráð- herraskiptin fara fram um áramótin „Ég hugsaði með mér að þegar ég yrði amma þá ætlaði ég að verða besta amma í heimi. Mig vantaði svo mömmu. Fer sátt Oddný Harðardóttir segist ekki upplifa höfnunartilfinningu þrátt fyrir að þurfa að afhenda Katrínu Júlíusdóttur lyklana að fjármálaráðu- neytinu 1. október næstkomandi. mynd jg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.