Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 22
U mræðan um kjördæmaskipti formanns Framsóknarflokks­ ins, Sigmundar Davíðs Gunn­ laugssonar, yfir í Norðaustur­ kjördæmi hefur verið hávær í samfélaginu síðastliðna viku. Þrátt fyrir að Sigmundur Davíð neiti því að hann hafi skipt um kjördæmi vegna hræðslu um að komast ekki inn á þing sem fyrsti maður á lista flokksins í Reykjavík er erfitt að sjá aðra ástæðu fyrir ákvörðun hans en sérhyggju. Svo virðist sem ákvörðun Sigmund­ ar Davíðs veki sérstaka furðu í ljósi þess að hann tekur eiginhagsmuni sína fram yfir heildarhagsmuni flokksins. Í stað­ inn fyrir að taka slaginn um baráttusæti í Reykjavík, líkt og sannur leiðtogi sem tæki velferð flokksins fram yfir sína eigin til að berja hann betur saman, flýr hann í öryggi landsbyggðarkjördæmisins þar sem fylgi Framsóknar er mest. Hann er eins og skipstjóri sökkvandi skips sem stekkur sjálfur fyrstur í einn af fáum björgunarbátum sem eru um borð. Sigmundur Davíð rétt komst inn á þing í síðustu alþingiskosningum þegar hann var eini þingmaður flokksins í Reykjavík norður. Framsóknarflokkur­ inn beið afhroð í síðustu borgarstjórnar­ kosningum í Reykjavík árið 2010 þegar flokkurinn fékk aðeins 2,7 prósent at­ kvæða og þar með engan frambjóðanda kjörinn. Sú niðurstaða gæti verið vís­ bending um það sem koma skal í þing­ kosningunum á næsta ári. Einungis nokkrum sinnum í lýðveldis sögunni hafa formenn fjór­ flokkanna verið utan þings og hefur það ævin lega verið til vandræða fyrir þá: Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæð­ isflokksins, komst til dæmis ekki á þing í kosningunum 1983 og missti formanns­ stólinn sama ár til Þorsteins Pálssonar. Sigmundur Davíð vill örugglega koma í veg fyrir að lenda í sams konar stöðu og Geir eftir aðeins fjögur ár sem formaður Framsóknar. En þessi ákvörðun Sigmundar Davíðs ætti ekki að koma mikið á óvart þegar litið er á sögu Framsóknarflokks­ ins á síðustu árum. Sigmundur Davíð hefur sjálfur ekki verið framsóknarmað­ ur nema í þrjú ár, einum mánuði leng­ ur en hann hefur verið formaður, eftir að hann ákvað að ljá þeim flokki krafta sína frekar en einhverjum öðrum. Þá er einnig lýsandi að sá sem hefur boð­ ist til að taka sæti Sigmundar í Reykja­ vík, Frosti Sigurjónsson, hefur ekki áður komið að starfi flokksins en ætlar þó að stökkva beint í fyrsta sæti á lista hans. Þá sendi Framsóknarflokkurinn frá sér sérstaka fréttatilkynningu í apríl um að Jónína Benediktsdóttir athafnakona væri gengin í flokkinn og hygðist bjóða sig fram fyrir hann. Jónína hefur hingað til ekki verið þekkt fyrir áhuga og afskipti af stjórnmálum. Í ljósi þessa er ekki úr vegi að spyrja hvað það er eiginlega sem Framsóknar­ flokkurinn er og stendur fyrir, annað en hentistefnu. Ég veit það ekki. Formaður flokksins er nýsleginn framsóknar­ maður og margir þeirra sem hyggjast bjóða sig fram fyrir hann sömuleið­ is. Hinir stóru flokkarnir þrír hafa allir einhvern hugmyndafræðilegan kjarna sem auðvelt er að átta sig á og fólk veit nokkurn veginn fyrir hvað þessir flokkar standa. Hvaða gullgrafari sem er getur ekki stokkið til æðstu metorða í þess­ um flokkum nánast á einni nóttu. Gildi stéttabaráttu, samvinnu og samhyggju sem Framsóknarflokkurinn var sagður stofnaður á í upphafi 20. aldarinnar eiga ekki við um flokkinn lengur. Flokkurinn er orðinn kjarnalaus, hugmyndafræði­ lega gjaldþrota með hentistefnuna eina að vopni. Framsókn er óræð, marghöfða kynjaskepna sem getur verið allt og ekk­ ert, allt eftir því hvernig vindar blása hverju sinni. Framsóknarflokkurinn hefur öðrum flokkum fremur síðustu áratugina dreg­ ið að sér menn sem vilja komast hratt og örugglega til valda og álna. Ýmis dæmi úr sögu Framsóknarflokksins sýna hversu ábatasamt það getur verið að vera áhrifamaður innan hans: Gunn­ laugur Sigmundsson, faðir formanns­ ins, komst í verulegar álnir þegar hann notaði pólitískt skipaða stöðu sína hjá Þróunarstofnun Íslands til að eignast Kögun fyrir lítið og selja svo aftur með miklum hagnaði; Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson komust yfir Búnaðar­ bankann og hlut ríkisins í Vátrygginga­ félagi Íslands vegna tengsla sinna inn í Framsókn; fjölskyldufyrirtæki Hall­ dórs Ásgrímssonar, Skinney­Þinganes, hagnaðist um milljarða króna vegna viðskipta með hlutabréf í VÍS; Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki og einn valdamesti maðurinn á bak við tjöldin í Framsókn, bjó til mikinn hagn­ að fyrir fyrirtækið með viðskiptum með hlutabréf í Búnaðarbankanum og VÍS. Svo mætti lengi telja. Ein uppskrift að því að verða milljónamæringur á Ís­ landi á síðustu áratugum hefur verið að komast til æðstu metorða í Framsóknar­ flokknum og ná svo eignum ríkisins til sín og sinna í skjóli flokksins. Veit fólk þetta ekki? Ef svo er af hverju kýs fólk þá ennþá þennan óræða og gerspillta hentistefnuflokk þegar ljóst er að hagsmunir almennings fara ekki saman við hagsmuni þeirra sem stýrt hafa flokknum? Þeir hafa síðast­ liðna áratugi fyrst og fremst hugsað um eiginhagsmuni en ekki hagsmuni al­ mennings, þvert á eigin boðaða hug­ myndafræði. Ég hef því spurt mig að því á síðustu árum, og spyr mig enn: Af hverju er Framsóknarflokkurinn enn­ þá til? Rétt eins og ég tel á huldu fyrir hvað flokkurinn stendur sé ég ekkert skýrt svar við þessari spurningu. Nýj­ ustu hræringarn­ ar í æðstu röðum flokksins kalla enn frekar eftir svörum við þessum spurningum. Sandkorn Jón Ásgeir og Ólafur n Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður þykir vera af­ burðamaður hvað rekstur varðar. Hann hefur verið með aðstöðu hjá 365 miðl­ um þar sem hann hefur lagt nótt við dag í hag­ ræðingarskyni til þess að eiginkona hans, Ingibjörg Pálmadóttir, missi ekki yfir­ ráðin. Afar náið samstarf er með Jóni Ásgeiri og Ara Edwald forstjóra. Einnig hef­ ur vakið athygli hve miklir kærleikar eru með honum og Ólafi Stephensen, ritstjóra Fréttablaðsins. Hermt er að Jón Ásgeir hafi góð tök á öllu innandyra. Björgvin í fallhættu n Björgvin G. Sigurðsson, leið­ togi Samfylkingar í Suður­ kjördæmi, þarf að berjast fyrir pólitísku lífi sínu í vetur. Hann hefur lýst yfir vilja sínum til að halda leið­ togasætinu en það eru blikur á lofti. Sumpart þykir Björgvin vera hold­ gervingur hrunsins. Þá bíður hans erfið glíma við Oddnýju Harðardóttur, fyrr­ verandi fjármálaráðherra, sem sækist eftir því að leiða lista Samfylkingar. Líkurnar eru óneitanlega henni í hag. Kristinn eftirsóttur n Hermt er að flokksmenn Dögunar finni talsverðan meðbyr á för sinni í frægri rokkrútu Lýðs Árnasonar um landið. Leitað er frambjóð­ enda í hinum ýmsu kjör­ dæmum. Á meðal þeirra sem þykja sýna einkenni áhuga er Sigurjón Þórðarson sem var á þingi fyrir Frjáls­ lynda flokkinn. Óljóst er með áhuga annarra á fram­ boði Sigurjóns. Aftur á móti eru raddir uppi um að fá Kristinn H. Gunnarsson til að leiða listann. Klókur styrkja- maður n Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður er á með­ al klókustu og lífseigustu stjórnmálamanna. Kapp­ inn á Íslandsmet í styrkj­ um en hann hefur þegið tugi milljóna, meðal annars frá Baugi. Upp komst um hluta styrkjanna sem varð til þess að landsfund­ ur Sjálfstæðis­ flokkksins lýsti vantrausti á þingmanninn. Hann fór þó hvergi og sækist nú eftir öðru sæti á lista í Reykjavík sem þýðir oddvitasæti í Reykjavík suður. Þarna treystir hann á að fljóta upp á milli í slags­ málum Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur og Illuga Gunnarssonar. Þetta er alveg ótrú- legur munnsöfnuður Stórkost- legt Einar Bárðarson er hneykslaður á viðbrögðum sem The Charlies hafa fengið. - DV Illugi Gunnarsson um föðurhlutverkið. – DV Sérhyggjuflokkurinn E f allt væri með felldu, stæði Styrmir Gunnarsson, fyrrver­ andi ritstjóri Morgunblaðsins, framarlega í flokki þeirra, sem mæla fyrir samþykkt nýrrar stjórnarskrár í þjóðaratkvæðagreiðsl­ unni 20. október. Það stafar af því, að þrjú lykilákvæði í frumvarpi Stjórn­ lagaráðs til nýrrar stjórnarskrár – ákvæðin um auðlindir í þjóðareigu, jafnt vægi atkvæða og beint lýðræði – eru í nánu samræmi við vel grundað­ ar skoðanir Styrmis eins og hann hefur lýst þeim á löngum blaðamannsferli. n Frumvarp Stjórnlagaráðs kveður á um auðlindir í þjóðareigu og fullt gjald fyrir afnot af auðlindunum. Þetta var um langt árabil eitt helzta baráttumál Styrmis Gunnarssonar á Morgunblaðsárum hans. n Frumvarp Stjórnlagaráðs kveður einnig á um jafnt vægi atkvæða í fullu samræmi við margar forustugreinar Morgunblaðsins um kjördæmamál, til dæmis 27. október 1993. n Frumvarp Stjórnlagaráðs kveður á um beint lýðræði, það er rétt þjóðarinnar til að skjóta málum til þjóðaratkvæðis, en Styrmir Gunnarsson mælir nú eindregið fyrir því sjónarmiði í opinberri umræðu. n Ætla verður einnig, að blaðamaðurinn og ritstjórinn hljóti að fagna ákvæðum frumvarpsins um upplýsingafrelsi, frelsi fjölmiðla og vernd blaðamanna, heimildar- manna og uppljóstrara. Með því að greiða frumvarpi Stjórn­ lagaráðs atkvæði sitt 20. október myndi Styrmir Gunnarsson slá fleiri keilur í einu kasti en honum hefur nokkurn tímann áður gefizt kostur á í kjörklef­ anum. Atkvæði hans greitt Sjálfstæðis­ flokknum í Alþingiskosningum hefur aldrei nokkurn tímann getað gefið hon­ um von um að ná öllum þrem helztu baráttumálum sínum í gegn á einu bretti og frelsi fjölmiðla í kaupbæti. Genginn úr skaftinu En nú bregður svo við, að Styrmir Gunnarsson er genginn úr skaftinu. Hann talar í útvarpsviðtali um „svo­ kallað Stjórnlagaráð“. Hann virðir ekki nafngiftina, sem Alþingi gaf Stjórn­ lagaráði samkvæmt þingsályktun. Hann kallar þjóðaratkvæðagreiðsluna 20. október „skoðanakönnun“. Hann virðir ekki samþykkt Alþingis á „Þings­ ályktun um ráðgefandi þjóðaratkvæða­ greiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga“. Ætla mætti, að fyrrverandi ritstjóra dagblaðs þætti ástæða til að virða sam­ þykktir og lög frá Alþingi. Þjóðfundurinn lagði grunninn Styrmir Gunnarsson sýnir því aðalat­ riði málsins engan áhuga heldur eða skilning, að grunnurinn að frumvarpi Stjórnlagaráðs var lagður á þjóðfund­ inum 2010, þar sem komu saman 950 manns af landinu öllu, frá 18 ára til 91 árs að aldri, valin af handahófi úr þjóðskrá, og var kynjaskipting nánast jöfn. Úrtakið var valið þannig, að tryggt væri, að niðurstöður þjóðfundarins spegluðu vilja þjóðarinnar. Skoðan­ ir Styrmis Gunnarssonar á auðlindum í þjóðareigu, jöfnu vægi atkvæða og beinu lýðræði njóta víðtæks stuðnings meðal þjóðarinnar eins og þjóðfund­ urinn og einróma samþykkt Stjórn­ lagaráðs vitnuðu um. Ætla má, að Styrmir Gunnarsson hafi með ötulum málflutningi á síðum Morgunblaðsins árum saman átt ríkan þátt í, að þjóðin komst að sömu niðurstöðu og hann í þessum þremur lykilmálum. Dauðafæri Hvers vegna snýr Styrmir Gunnarsson nú baki við þremur helztu baráttu­ málum sínum? – nú þegar samþykkt þeirra í stjórnarskrá lýðveldisins er í sjónmáli. Hvers vegna vanvirðir hann samþykktir Alþingis? – og gerir lítið úr þeim, sem var falið af þingi og þjóð að þoka málinu áfram í Stjórnlaga­ ráði. Hann hefur ekki lagt fram nein efnisleg rök gegn frumvarpinu, heldur fjargviðrast hann út af ferlinu eins og það skipti engu máli, að meiri hluti Al­ þingis ákvað feril málsins. Nú fær það annan hljóm, sem Morgunblaðið sagði um kommúnista á kaldastríðsárunum – að þeir myndu selja ömmu sína fyr­ ir flokkinn. Hvað sem því líður geri ég fastlega ráð fyrir, að góðir sjálfstæðis­ menn muni þúsundum saman greiða frumvarpi Stjórnlagaráðs atkvæði sitt 20. október, enda gefst þeim þá eins og öðrum færi á að slá fleiri keilur í einu kasti en nokkurn tímann áður í sögu landsins. Slíkt tækifæri ættu menn ekki að láta ganga sér úr greipum. Leiðari Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Kjallari Þorvaldur Gylfason Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 22 28.–30. september 2012 Helgarblað „Hann kallar þjóðaratkvæða- greiðsluna 20. október „skoðanakönnun“ Römm er sú taug
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.