Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 40
40 Lífsstíll 28.–30. september 2012 Helgarblað n Hjálpar fólki að fínpússa sinn stíl F yrir utan þetta klassíska, eins og sítt hár, sem er alltaf í gangi í hári, líkt og gallabuxur og hvít skyrta í fatnaði, verð- ur mikið um stutt hár. Það er alltaf stór hópur stelpna sem vilja hafa sitt síða hár og eru alls ekkert brjálæðislega æstar í það að breyta til en svo koma trend sem aðrar grípa á lofti. Og núna eru það stuttu klipp- ingarnar,“ segir hárgreiðslumeistar- inn Ásgeir Hjartarson þegar hann er inntur eftir hártískunni í haust og vetur. Áhrif frá Hollywood Samkvæmt Ásgeiri hafði það mik- il áhrif þegar Hollywood-stjarnan Miley Cyrus klippti sig stutt á dögun- um. „Fyrir vikið eru fleiri stelpur sem vilja losa sig úr þessu fasta formi og vilja gera eitthvað nýtt, algjöra breytingu. Sumar klippa hárið stutt og aðrar fá sér áberandi topp. Svo er búið að vera heitt að raka aðra hliðina og mér finnst það alveg kúl áfram. Þannig er hægt að poppa upp klippingarnar. Þær sem eru með sítt geta haldið því eða litað smá bút í öðrum lit. Þá er hægt að fela það en nýta sér breytinguna þegar maður kíkir eitthvert út,“ segir Ásgeir. Hann segir að þverir og þungir toppar og 50‘s hárgreiðslur komi sterkt inn auk þess sem fléttur haldi áfram að vera vinsælar. „Þær virð- ast halda sínum velli og einnig verð- ur mikið um greiðslur; há tögl og háa snúða. Þar kemur Kim Kardashian sterk inn. Það er alveg ótrúlegt að þótt fólk segist hata þetta lið þá vefst það ekkert fyrir því að apa hárgreiðsl- una eftir því,“ segir Ásgeir hlæjandi. Ekkert „extreme makeover“ Varðandi strákatískuna segir hann mikilvægt fyrir strákana að vera vel snyrta. „Það eru eiginlega tvö trend í gangi hjá strákunum. Þessi rakaði fílingur er enn við lýði. Hann verð- ur kannski ýktari ef eitthvað, meira í móhíkanastíl. Það er fyrir töffarana. Svo er mikið um þessa Mad Men- tísku. Þessi 1930 fílingur sem er til- valinn fyrir þá sem eru með gott hár. Þeir sem eru aðeins farnir að þynn- ast og verða að klippa sig stutt eiga að vera vel snyrtir. Það þýðir ekkert að safna druslum.“ Ásgeir hefur um árabil verið einn fremsti hárgreiðslumeistari landins og hefur einnig unnið sem stílisti. Hann er nú farinn að stjórna þættin- um Rokk og rúllur á sjónvarpi mbl. is en þar hjálpar hann ungu fólki að finna sinn stíl. „Ég er alls ekki að breyta þeim eitthvað gífurlega; þetta er ekkert „extreme makeover“. Ég vil ekki að þau missi sinn karakter heldur reyni að finna út hver þeirra stíll er og fín- pússa hann. Aðallega er ég að hugsa um hárið enda er ég fyrst og fremst hárgreiðslumaður en þótt ég sé ekki lærður stílisti hef ég stílíserað heilu gámana og tek því fatnaðinn líka fyr- ir. Það væri auðveldast í heimi að fara bara inn í verslun eins og Karen Millen og skella manneskjunni í kjól og háa hæla. Það væri auðvelda leiðin. Ég vil hins vegar finna dress sem fólk gæti hugsað sér að kaupa og líður vel í.“ Ásgeir hlær þegar hann er spurð- ur hvort hann sé hinn nýi Kalli Berndsen. „Nei, ég er ekki næsti Kalli Berndsen og mér leiðist samanburð- urinn. Í fyrsta lagi er ég ekki gay en þeir fá yfirleitt meiri athygli en aðrir. Ég er bara ég. Við Kalli erum náttúru- lega að gera svipaða hluti þannig að það er kannski eðlilegt að fólk spyrji. Ég tel mig hafa öðruvísi stíl og öðru- vísi kúnnahóp. Ég stíla meira inn á yngra fólk og er rokkaðri og pönk- aðri á meðan það ríkir meiri glamúr yfir Kalla. Svo er ég með tvo stráka í þættinum sem hann er ekki með, að mér vitandi.“ n indiana@dv.is Flottur toppur Ásgeir segir áberandi toppa vinsæla í haust og vetur. Klassík Ásgeir segir ákveðin hóp kvenna vilja ýta undir kvenleikann með síðu hári. Fiftís Falleg greiðsla. Edda er andlit Bastyan tískuhúss Fyrirsætan Edda Óskarsdóttur er í herferð fyrir breska fata- merkið Bastyan. Bastyan fram- leiðir hágæða fatnað og er eitt af helstu sígildu tískumerkjum Breta. Myndir af Eddu prýða heima- síðu Bastyan og auglýsinga- herferðir þeirra fyrir haust- og vetrartískuna í ár. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Edda starfar fyrir Bastyan. Hún hefur verið að gera það gott ytra. Flutti til London í byrjun árs á vegum Eskimo Models og hefur fengið nokkur mjög góð tæki- færi. Var til að mynda eitt and- lita Miss Selfridge og tók þátt í tískuvikunni í London. Hér- lendis hefur Edda verið andlit sumar línu Ellu. Mosi hjálpar börnunum Mosi er sparibaukur, hannað- ur af Tulipop og er nú seldur á langflestum sölustöðum Tulipop og í MP banka. Baukurinn kostar 5.500 krónur og allur ágóðinn rennur til UNICEF. Tilvalin skírnar- eða afmæl- isgjöf eða bara til þess að hafa fallega hönnun uppi á hillu. Smashbox fæst nú á Íslandi: Skapað, prófað og ljósmyndað Nú fást hér á landi snyrtirvörur frá Smashbox. Snyrtivörurnar eru hannaðar með það að markmiði að þær endist vel og dugi í raun- aðstæðum. Skapað, prófað og ljós- myndað er meðal einkunnarorða fyrirtækisins. Mikið af leiðbeining- um fylgir vörum fyrirtækisins. Aftan á augnskuggaboxum eru uppskrift- ir að útliti og leiðbeiningar og oft fylgja með snyrtivörum nauðsyn- legir fylgihlutir. Með augnblýöntum er til að mynda áfastur yddari, með augnbrúnapenna gel og bursti og með kinnalit fylgir lítill spegill. 1 Mattur farði Berið mattan farða á andlitið. Matte flush frá Smashbox gefur mjúka en matta áferð. 2 Mjúkir brúnir og glitrandi litir Berið vatnsheldan augnlínupenna í fíkjulit í kringum augu rétt undir augnhár. Mýkið línuna með augnlínupensli. Blandið saman tveimur litum, Aristocrat og Obsidian og berið á augnlokið að ytri brún augans. 3 Ljósbleikt við brúnt Hér er borinn á liturinn Hotshot. Falleg mynstur, ull og leður n Missoni á Íslandi M issoni-tískuhús hefur stutt rannsóknir á brjóstakrabbameini í mörg ár. Tískuhúsið er þekkt fyrir flíkur úr vandaðri ull og leðri og einkennandi mynstur. Fyrirtækið sem var stofnað árið 1953 hefur haldið velli áratug- um saman og konur innan Mis- soni-fjölskyldunnar haldið um valdataumana. Í haust var kynnt samstarf sænsku verslanakeðjunnar Lindex og tískuhússins Missoni. 10 pró- sent söluandvirðis línunnar fara til baráttu Krabbameinsfé- lags Íslands gegn brjóstakrabba- meini. Línan sem fæst öll í verslun Lindex hér á landi samanstend- ur af kventískufatnaði, undir- fatnaði, skarti og fylgihlutum auk barnafatnaðar. Athygli vekja fal- legar litasamsetningar prjónafatn- aðarins og leðurbuxur og töskur í svörtu og vínrauðu. Einkennandi mynstur Peysa: 9.995 kr. Skart Armband: 1.995 kr. Leður og ull Leðurhanskar: 7.995 kr. Hlýr, bleikur litur Veski: 19.995 kr. Styðja við rannsóknir Missoni-fjölskyldan hefur í árafjöld stutt við rannsóknir á brjóstakrabbameini. Ekki næsti kalli Ásgeir Hjartarson Hefur lengi verið viðloðandi tískuheiminn og veit hvað hann syngur eins og sést í þætti hans Rokk og rúllur. BErndsEn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.