Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 34
34 28.–30. september 2012 Helgarblað m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g „Falleg lesning og rík af húmor.“ Reglur Hússins Jodie Picoult „Eins og bland í poka. Nema bara bestu molarnir.“ Hljómskálinn Ýmsir flytjendur Þ egar maður fer af stað með verkefni vonast maður til þess að þau heppnist vel; að þau verði að einhverju sem maður getur verið stoltur af. Djúpið er gott dæmi um það hvað getur gerst þegar flinkir aðilar koma saman og sagan er góð,“ segir Ólafur Darri Ólafsson leikari. Feiminn en með athyglissýki Ólafur Darri útskrifaðist frá Leiklist­ arskóla Íslands árið 1998. Lítið fór fyr­ ir honum eftir útskrift en í dag þekkja flestir þennan stóra, mikla, dimm­ raddaða mann sem venjulega geng­ ur undir nafninu Darri. Sjálfur seg­ ist hann ekki sækjast í athyglina sem fylgt geti bransanum; honum þyki jafnvel óþægilegt að vera þekktur. „Í hjarta mínu er ég einfari. Mér finnst í rauninni erfitt að vera innan um fólk og vil alls ekki vera miðja al­ heimsins. Samt sem áður sæki ég í það. Þetta er ekki óalgengt með leik­ ara. Við erum oft feimið fólk með athyglissýki. Mér finnst til dæmis erfitt að halda ræður og svoleiðis. Alveg hrikalega erfitt. Mér finnst erfitt að vera ég opinberlega. En ekkert mál að vera í karakter.“ Svaf í sófanum í MR Ólafur Darri fæddist í Bandaríkjun­ um. Faðir hans, Ólafur Steingríms­ son læknir, var þá í sérnámi en fjöl­ skyldan bjó í Connecticut. Móðir hans, Björk Finnbogadóttir, er komin á eftirlaun en hún starfaði áður sem hjúkrunarfræðingur. Ólafur Darri er næstyngstur í hópi fjögurra systkina. Hann man lítið eftir dvölinni ytra enda flutti fjölskyldan heim þegar hann var þriggja að verða fjögurra ára. „Ég hef bara heyrt sögurnar frá mömmu og pabba. Við erum samt alltaf í ágætis tengslum við Ameríku. Tvíburasystir mömmu býr í Los Ang­ eles og systir mín hefur búið í Flórída í rúm tíu ár,“ segir Ólafur Darri sem er með bandarískan ríkisborgararétt þar sem hann fæddist í landinu. Föðurbróðir hans er leikarinn Bjarni Steingrímsson en aðrir í ætt­ inni hafa ekki lagt leiklistina fyrir sig. Leiklistaráhugi Ólafs Darra fór að láta á sér kræla í MR. „Bekkjar­ systur mínar drógu mig á samlestur hjá Herranótt. Það vantaði fleiri stráka. Ég lét slag standa og fannst þetta svona rosalega skemmtilegt. Við vinirnir í Ölduselsskóla fluttum Urð og grjót eftir Tómas Guðmunds­ son, þegar við vorum líklega átta ára, svo leiklistin blundaði alltaf í mér en að verða leikari var eitthvað sem ég hugsaði aldrei um. Ég var hins vegar mikið í félags­ málum. Var formaður nemendaráðs í Ölduselsskóla og svo mikið í félags­ lífinu í MR. Kannski tók það full mik­ inn tíma frá náminu. Það voru margir góðir morgnar sem maður svaf í sóf­ anum í Casa Nova í MR. Góður svefn er samt góður svefn og ég reyni að sjá aldrei eftir svoleiðis.“ Langstærstur á fermingardaginn Hann segir fjölskylduna nána og að hann spili til að mynda reglulega bridds við foreldra sína. „Ég er ein­ hverskonar miðjubarn, sem skýr­ ir kannski þessa athyglissýki. Mér þykir afskaplega vænt um öll syst­ kini mín og er í góðu systkinasam­ bandi við þau. Við hittumst bara ekki eins oft og ég myndi vilja enda er eitt þeirra í Hollandi, annað í Amer­ íku og það þriðja í Þorlákshöfn,“ seg­ ir hann og bætir aðspurður við að hann hafi ekki verið erfiður ungling­ ur. „Ég varð fljótlega mjög hávaxinn og var langstærstur allra á fermingar­ daginn. Ég var dæmigerður ungling­ ur með unglingaveiki, óöruggur og vissi ekki hvernig ég átti að klippa mig eða vera. Þarna voru strípur og Duran Duran „inni“ þannig að þetta gat alveg verið erfiður tími. Ég var samt aldrei í neinu veseni. Ég var líka með svo yndislegu fólki í skóla. Oft lít ég til baka og finnst þessi tími hafa verið fullur af dásam­ legu sakleysi. Ég get ímyndað mér að það sé svo miklu erfiðara að vera unglingur í dag, tæknin auðveldar okkur lífið og flækir það í senn.“ Spurning um dagsform Hann segir feimnina hafa sett strik í reikninginn þegar hann hugðist sækja um í Leiklistarskólann. Vin­ ur bað hann að koma með sér og sem betur fer lét hann að lokum slag standa eftir smá fortölur frá góðum vinum. „Ég var dreginn þarna inn af vini mínum og eins dæmigert og það nú er þá komst ég inn en ekki hann. Það var erfitt og hefur örugglega ver­ ið áfall fyrir hann þótt það hái hon­ um engan veginn í dag enda búinn að „brillera“ í lífinu. Að komast inn í leiklistarskóla og að komast áfram í leiklistinni hef­ ur mikið með dagsform að gera. Þú Ólafur Darri Ólafsson er án efa einn vinsælasti leikari landsins í dag. Sjálfur segir hann hlutverk Loð- fílsins í Fangavaktinni hafa gert hann frægan á einni nóttu. Samt sem áður sækist hann ekki í athyglina; segist feiminn einfari sem líði illa innan um margt fólk. Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við Ólaf Darra um ferilinn, frægðina, freistingar Hollywood og ástina sem hann fann í Ostabúðinni. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Viðtal „Þetta breyttist á einni nóttu. Allt í einu var ég frægur Ólafur Darri fílar ekki frægðina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.