Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Blaðsíða 32
32 28.–30. september 2012 Helgarblað Fjöldamorð í Queen Street ára Bradley Stewart Wagner, fyrrverandi yfirmaður í lögreglunni í Kaliforníu, var dæmdur fyrir að nýta sér aðstöðu sína gagnvart ólöglegum kvenkyns innflytjendum. Ein þeirra lét yfirvöld vita að Wagner hefði neytt hana til kynlífs og í kjölfarið stigu fleiri konur fram með sömu sögu. Hann hótaði þeim að þær yrðu sendar úr landi annars. Wagner játaði og var lengd refsingar því stytt úr 11 í 4 ár en árið 2010 reyndi hann að fá dómnum hnekkt á grundvelli þess að hann hefði verið undir áhrifum eiturlyfja þegar hann játaði. 62 n Gekk berserksgang á skrifstofu ástralska póstsins í Melbourne „Það er kom- inn tími til að deyja. Það er engin önnur leið fær. Q ueen Street-fjöldamorðið átti sér stað 8. desember 1987 á skrifstofum ástralska pósts- ins við Queen Street í Mel- bourne í Ástralíu. Níu manns lágu í valnum, þar á meðal ódæðis- maðurinn, og fimm særðust. Tuttugu mínútur yfir fjög- ur síðdegis gekk Frank Vitkovic inn í bygginguna. Í fórum sín- um hafði hann M1 – hálfsjálfvirk- an hríðskotariffil – í brúnum bréf- boka. Frank fór upp á fimmtu hæð byggingarinnar þar sem vinur hans, Con Margelis, vann. Con var kallaður fram í afgreiðslu þar sem hann spjall- aði lítillega við Frank. Skyndilega dró Frank fram riffilinn, Con fleygði sér í var á bak við afgreiðsluborðið, Frank hóf skothríð og fyrsta fórnarlambið, Judith Morris, féll í valinn. Í kjölfarið tókst einhverjum að kveikja á viðvörunarkerfinu og Con tókst að fela sig inni á kvennasalerni á hæðinni. Frank tók lyftuna upp á tólftu hæð þar sem hann skaut og særði einn karlmann og eina konu. Síð- an beindi hann byssunni að ónefndri konu sem sat þar við skrifborð sitt, en hún slapp með skrekkinn því ein- hverra hluta vegna miðaði hann af ásetningi vinstra megin við hana og skaut til bana Julie McBean og Nancy Avignone. Á þessari hæð skaut Frank einnig til bana Warren Spencer. Fleiri fórnarlömb Frank Vitkovic fór niður á elleftu hæð og skaut af handahófi. Mich- ael McGuire var skotinn til bana af dauðafæri og síðan tókst Frank að króa af nokkra starfsmenn sem voru við skrifborð sín, sumir voru í felum undir borðunum. Þar banaði Frank Marianne Van Ewyk, Catherine Dowling og Rod ney Brown og þrír starfsmenn að auki særðust. Þá gripu tveir starfsmenn, Donald McElroy og Tony Gioia, til sinna ráða en þá þegar hafði Don- ald verið skotinn einu sinni. Þeir réð- ust gegn Frank og meðan þeir héldu honum tókst Frank Carmody, sem hafði fengið mörg skot í sig, að snúa riffilinn úr höndum hans. Frank Vitkovic fór út um op- inn glugga, sennilega í von um að geta gengið eftir syllum utan á byggingunni, en Tony Gioia náði taki á ökkla hans og reyndi að hefta flótt- ann. Frank tókst að sparka sig lausan en tókst ekki betur til en svo að hann hrapaði til bana niður á gangstéttina. Síðar fengu Tony og Frank næstæðstu viðurkenningu Ástralíu fyrir hugrekki – Hugrekkisstjörnuna. Fékk byssuleyfi skömmu fyrir morðin Við leit í herbergi Franks fann lögreglan úrklippur um ann- að fjöldamorð – Clifton Hill- fjöldamorðið – og hafði undirstrik- að ýmislegt í úrklippunum. Frank hafði skilið eftir orðsendingu í her- berginu og taldi lögreglan að ætlun hans hefði ávallt verið að skjóta fólk á skrifstofum ástralska póstsins. Frank hafði fengið byssuleyfi nokkrum vikum áður en hann gekk berserksgang og hafði nánast breytt M1-rifflinum í skamm byssu. Í orðsendingu sem hann skrifaði til foreldra sinna sagði: „Í dag er dagur- inn. Reiðin í höfði mér er orðin mér ofviða. Ég verð að losa mig við of- beldið sem þar býr. Það er kominn tími til að deyja. Það er engin önnur leið fær.“ Foreldrar hans höfðu ekki fundið orðsendinguna þegar Frank lét til skarar skríða við Queen Street. Vitnaði í Rambo Í dagbók Franks Vitkovic voru skila- boð þar sem hann bað fjölskyldu sína að fyrirgefa sér vegna þess sem hann hugðist gera og sjálfsmorðs- orðsending. Til systur sinnar skrifaði Frank meðal annars: „Það er kominn tími til fyrir mig að deyja. Lífið er ekki þess virði að lifa því.“ Í eldri dagbókarfærslum reifaði Frank kynlífsvandamál sín sem hann rakti til atviks úr bernsku þegar hann átta ára var neyddur til að afklæð- ast í búningsherbergi skóla og vinir hans gerðu gys að óumskornu typpi hans: „Þaðan í frá varð nekt óhreint orð í huga mínum. […] Frá tólf ára aldri vissi ég að eðlilegt kynlíf yrði ekki mögulegt fyrir mig og ég forð- aðist stúlkur með öllu þar til ég varð 19 ára.“ Í annarri færslu sagði hann: „Ég er öðruvísi, á því leikur enginn vafi.“ Og innan við mánuði áður en hann fór yfir um skrifaði hann: „Eins og Rambo sagði í [kvikmyndinni] First Blood, þegar þú hefur viðurkennt vandamálið, þá hverfur það.“ n Gekk berserksgang Myrti átta manns og hrapaði til bana er hann reyndi að flýja vettvang. Frank Vitkovic Hóf öllum að óvörum skothríð á skrifstofum ástralska póstsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.