Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Side 4
Eiður og félagar
stEfna í gjaldþrot
Á rúmar 1.800 milljónir
n Sjávarsýn Bjarna tapaði lítillega í fyrra
B
jarni Ármannsson, fjárfestir og
fyrrverandi bankastjóri Glitnis,
á rúmlega 1.800 milljónir króna
inni í eignarhaldsfélagi sínu
Sjávarsýn. Félagið á eignir upp á rúm
lega 2.700 milljónir króna en skuld
ar tæplega 900 milljónir króna. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins
sem skilað var til ríkisskattstjóra þann
18. september síðastliðinn.
Félagið tapaði tæplega 4 millj
ónum króna í fyrra. Stærstu eignir
Sjávarsýnar eru skuldabréf og aðrar
langtímakröfur, samkvæmt ársreikn
ingnum, en þessar eignir félagsins
jukust um rúmlega 750 milljónir á
milli ára. Af ársreikningnum að dæma
er ekki að sjá að Bjarni hafi tekið arð
út úr félaginu á síðasta ári. Tekið skal
fram að ársreikningurinn er óendur
skoðaður.
Bjarni Ármannsson hætti sem
kunnugt er sem forstjóri Glitnis í
lok apríl 2007 og seldi þá hlutabréf í
bankanum á yfirverði fyrir um 7 millj
arða króna – verðið sem Bjarni seldi á
var hærra en markaðsgengi bréfanna.
Eftir hrun bankans endurgreiddi
Bjarni þrotabúi hans yfirverðið sem
hann hafði fengið fyrir bréfin. Bjarni
hefur verið yfirheyrður hjá embætti
sérstaks saksóknara vegna viðskipta
Glitnis fyrir hrunið. Hann sinnir ýmis
konar fjárfestingum í dag, bæði hér á
landi og erlendis. DV greindi frá því
ágúst að Bjarni væri fluttur til Kaup
mannahafnar.
ingi@dv.is
4 Fréttir 28.–30. september 2012 Helgarblað
E
ignarhaldsfélagið Knatt
spyrnu akademía Íslands
stefnir í gjaldþrot komi ekki
til aukið hlutafé inn í rekstur
þess. Eigið fé félagsins er
neikvætt um rúmlega 308 milljónir
króna – félagið á einungis rúmlega
69 milljóna króna eignir en skuld
ar tæplega 379 milljónir. Þetta kem
ur fram í ársreikningi Knattspyrnu
akademíu Íslands fyrir árið 2011 sem
skilað var til ríkisskattstjóra þann 14.
september síðastliðinn.
Knattspyrnuakademía Íslands
er eignarhaldsfélag í eigu Arnórs
Guðjohnsen, sonar hans Eiðs Smára,
Guðna Bergssonar, Ásgeirs Sigur
vinssonar og Loga Ólafssonar. Félag
ið gerði samstarfssamning við Kópa
vogsbæ árið 2005 sem fólst í því að
akademían byggði íþróttaaðstöðu í
Vallakór í Kópavogi og leigði bæn
um síðan afnot af henni. Meðal þess
sem gert var ráð fyrir að eigendur
Knattspyrnuakademíunnar myndu
byggja á svæðinu var íþróttahús,
sundlaug, fjölnota knattspyrnu og
sýningarhús þar sem átti að vera
keppnisaðstaða fyrir knattspyrnu
auk þriggja fótboltavalla utandyra.
Bærinn ætlaði að leigja íþróttaað
stöðuna til 25 ára samkvæmt upp
runalega samkomulaginu. Forsvars
menn Kópavogsbæjar töldu að
hagstæðara væri fyrir bæinn að gera
slíkan samning við Knattspyrnu
akademíuna frekar en að byggja
íþróttamannvirkin sjálfir og eiga þau
til framtíðar.
Kópavogsbær kaupir
Efnahagshrunið árið 2008 setti
strik í reikninginn og eigendur
Knattspyrnuakademíunnar stóðu
frammi fyrir því að lenda í greiðslu
erfiðleikum við viðskiptabanka sinn,
Landsbankann, út af fjárfestingunni
og uppbyggingu á svæðinu. Heildar
skuldir eignarhaldsfélagsins Knatt
spyrnuakademíu Íslands ehf. námu
1.700 milljónum króna í árslok 2009
og var eigið fé félagsins neikvætt um
135 milljónir króna. Tap hafði orðið á
rekstrinum á árinu upp á tæpar 100
milljónir króna og lá fyrir að félag
ið myndi eiga í erfiðleikum með að
standa í skilum.
Viðskiptablaðið greindi svo
frá því í apríl 2010 að Kópavogs
bær þyrfti að greiða 1.600 millj
ónir króna fyrir íþróttaaðstöðuna
í Vallakór þar sem kreppti að hjá
eigendum Knattspyrnuakademí
unnar. Heildarskuldbindingar bæj
arins vegna íþróttamannvirkjanna
fóru með þessu frá því að vera á bil
inu 700 til 800 milljónir króna upp í
á þriðja milljarð króna. Þá hefur DV
greint frá því að eigendur akadem
íunnar hafi verið í sjálfsskuldará
byrgðum vegna lánanna sem félagið
tók og því hafi það verið þeim mik
ið hagsmunamál að losna undan
skuldunum við Landsbankann.
Seldu til Kópavogsbæjar á
1.650 milljónir
Í ársreikningi Knattspyrnuakadem
íunnar fyrir árið 2010 kemur reynd
ar fram að söluverð mannvirkjanna
til Kópavogsbæjar hafi numið 1.650
milljónum króna en ekki 1.600, líkt
og fram hefur komið í umræðunni
um málið hingað til.
Þá kemur fram að félagið hafi á
árinu 2010, eftir að gengið var frá
sölunni á mannvirkjunum til Kópa
vogsbæjar, greitt upp lán fyrir nærri
1.300 milljónir króna. Bæði var um
að ræða skammtíma og langtíma
lán. Eigendur félagsins hafa því reynt
hvað þeir geta að greiða skuldir þess.
Eftir standa hins vegar skuldir
upp á tæplega 380 milljónir króna
sem vandséð er að félagið geti greitt
þar sem eignastaða þess er ekki góð.
Félagið getur þó grynnkað á skuld
um sínum með tæplega 68 millj
óna bankainnistæðu. Líklega munu
kröfuhafar félagsins þurfa að af
skrifa eftirstöðvar skuldanna, komi
ekki til hlutafjáraukningar hjá fé
laginu það er að segja. n
„Eigið fé félags-
ins er neikvætt
um rúmlega 308 milljónir
króna.
n Kópavogur greiddi 1.650 milljónir króna fyrir mannvirkin
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Frá undirritun til greiðsluerfiðleika Eigendur
Knattspyrnuakademíunnar undirrituðu samstarfs-
samning við Kópavogsbæ árið 2005. Þeir sjást hér
ásamt Gunnari Birgissyni, þáverandi bæjarstjóra
Kópavogsbæjar. Félagið stefnir nú í gjaldþrot.
Ormsson
gjaldþrota
Fyrirtækið Bræðurnir Ormsson
ehf. hefur verið tekið til gjald
þrotaskipta. Nafni félagsins var
breytt í Rekstur 90 ehf. áður en
félagið var tekið til gjaldþrota
skipta en það var gert 20. sept
ember síðastliðinn. Gefin hef
ur verið út innköllun á kröfur í
bú félagsins. Raftækjaverslanir
undir sama nafni eru hins vegar
enn í rekstri en 11. september
var var nýtt félag stofnað undir
nafninu Ormsson verslunarinn
ar ehf. Það félag er í eigu Stór
hyls ehf., sem svo aftur er í eigu
Magnúsar J. Magnússonar.
Í stofngögnum félagsins í
fyrirtækjaskrá kemur fram að
eigendur Ormsson, Andrés B.
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
verslananna, og Einar Þór
Magnússon, hafi samþykkt að
nýja félagið beri nafnið Orms
son. Búast má því við því að
verslunin verði áfram rekin
undir sömu formerkjum og áður
og haldi áfram sölu á heimilis
tækjum og innréttingum.
Fyrirtækið á sér langa sögu,
en það hefur starfað undir
nokkrum nöfnum síðan 1922
en ávallt selt raftæki og heimil
istæki. Það rekur fjórar versl
anir á Íslandi; tvær í Reykja
vík, þá þriðju í Reykjanesbæ og
fjórðu á Akureyri. Á vef fyrirtæk
isins kemur fram að það hef
ur meira og minna verið í eigu
fjölskyldunnar sem stofnaði það
fyrir 80 árum.
Tap Ormsson ehf. nam 26,63
milljónum króna fyrir árið 2010,
en ársreikningur fyrir árið 2011
liggur ekki fyrir. Skuldir í lok árs
2010 voru samtals 914,69 millj
ónir króna en þær lækkuðu á
milli ára úr 1.409,63 milljónum.
Athygli vekur í ársreikningn
um að viðskiptavild er langverð
mætasta eign fyrirtækisins.
Viðskiptavildin var í ársreikn
ingnum metin á 298,96 millj
ónir króna, sem er 75 prósent af
öllum fastafjármunum félagsins.
Þá vekur einnig athygli að félag
ið, Rekstur 90, er skráð fyrir íbúð
við Flatahraun í Hafnarfirði sem
Landsbankinn á 100 milljóna
króna veðrétt í.
Seldu á 1.650 milljónir Félag Eiðs
Smára og viðskiptafélaga hans stendur
höllum fæti þrátt fyrir 1.650 milljóna við-
skipti við Kópavogsbæ árið 2010.
Stendur vel Félag Bjarna, Sjávar-
sýn, stendur vel og er með eigið fé
upp á rúmlega 1.800 milljónir króna.