Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Side 17
Auðæfin, ástin og átökin
Fréttir 17Helgarblað 28.–30. september 2012
hann að hann hefði hafið nám í Ox-
ford árið 2002. Eins og kom fram var
hann alls fimm ár í Oxford en hann
útskrifaðist úr Háskóla Íslands árið
2005. Hann hafði að mestu lokið
náminu áður en hann fór út þó hann
hafi ekki klárað ritgerð og útskrifast
fyrr en árið 2005.
Árið 2004 voru til dæmis sagðar
fréttir af því að hann væri á leið úr
Kastljósinu og hefði tekið stefnuna
á Oxford með styrk frá breska utan-
ríkisráðuneytinu í vasanum og ætl-
aði að dvelja þar næstu tvö til þrjú
árin. „Síðast þegar ég var þarna við
nám bjó ég á heimavist og geri ráð
fyrir að gera það aftur. Þetta er ekki
eins og það var. Nú er búið að opna
heimavistirnar fyrir stúlkum,“ sagði
hann og bætti því við að hann hlakk-
aði mikið til, skólinn væri góður
og þar væri mikið af skemmtilegu
fólki. Benti hann einnig á að þar sem
breskir skólar væru ekki jafn dýrir og
bandarískir væru margir kanar við
skólann. „Oftar en ekki eru það syn-
ir og dætur bandarískra auðkýfinga.
Þá eru þarna prinsar og prinsessur
frá Afríku og kóngafólk úr ýmsum
áttum. Svo ekki sé minnst á alla Kín-
verjana,“ sagði hann.
Ástin
Önnu Sigurlaugu kynntist Sigmund-
ur Davíð árið 2002. Um þeirra fyrstu
kynni hefur hann sagt: „Við hittumst
í áramótaboði, smullum vel saman
og höfum verið saman síðan.“
Þá bætti hann því við hálf-
skömmustulegur að það stæði til að
biðja hennar. „Við förum ekki í fjöl-
skylduboð án þess að frænkurn-
ar bendi okkur á þá staðreynd að
við séum enn barnlaus. Við sjáum
hvað framtíðin ber í skauti sér,“ sagði
hann.
Það var svo þann 10. október 2010
að hann gekk að eiga Önnu Sigur-
laugu Pálsdóttir í fallegri athöfn í
Dómkirkjunni. Hamingjan skein úr
andliti brúðhjónanna og aðstand-
enda þeirra og dagurinn virtist full-
kominn í hlýrri haustsólinni og logn-
inu í miðborginni.
Þau hjónin stóðu í stórræðum á
fleiri vígstöðum en þegar þeim varð
ljóst að hún bæri barn undir belti
ákváðu þau að selja einbýlishúsið
sem þau áttu á Lokastígnum, stækka
við sig og færa sig um set. Fjölskyld-
an kom sér fyrir á æskuslóðum Sig-
mundar Davíðs í Breiðholtinu og
festi kaup á 270 fermetra einbýlis-
húsi í Ystaselinu, í næsta nágreni
við Ástþór Magnússon. „Við vorum
í frekar óbarnvænu húsi,“ sagði Sig-
mundur Davíð.
Húsið er sagt látlaust, þar er
enginn heitur pottur og þar er
enginn íburður, í mesta lagi kamína.
Enda eru þau hjónin sögð lifa ansi
hófsömu lífi og margir sem hefðu
minna á milli handanna myndu
leyfa sér meira en þau gera. Það er
ekki í þeirra karakter að eyða í pen-
ingum í óþarfa, það er ekki þeirra
stíll.
Reyndar ekur Sigmundur Davíð
um á Toyota-Land Cruiser en það er
víst þeirra mesti munaður.
Föðurhlutverkið
Í byrjun árs varð hann faðir þegar
kona hans ól honum dóttur. Sú stutta
fékk nafnið Sigríður Elín og hafði
mikil áhrif á Sigmund Davíð eins og
kom fram í viðtali við DV um föður-
hlutverkið, ástina og lífið.
Fyrstu vikurnar í hennar lífi var
hann nánast svefnlaus og var víst
sjálfum kennt um. „Mér er kennt um
þetta – að þetta séu genin úr mér. Ég
á nefnilega til að vaka og vinna á næt-
urnar. Það er kannski full snemmt að
segja til um hvort þetta verði svona
hjá henni áfram. Að mestu leyti
gengur þetta vel. Hún er dugleg að
drekka mjólkina sína og skila henni
aftur.“
Hann hafði helst áhyggjur af því
að verða linur í pólitíkinni. „Ég ótt-
aðist að þegar ég myndi eignast barn
yrði mér sama um allt annað – að
drifkrafturinn myndi hverfa hvað
varðar aðra hluti – en að verða pabbi
hafði þveröfug áhrif. Nú er mér enn
meira í mun að breyta hlutunum og
láta gott af mér leiða svo barnið mitt
og öll önnur börn geti búið við betri
aðstæður í framtíðinni,“ sagði hann.
„Ég hélt kannski að ég yrði of mjúk-
ur eftir þessa reynslu og vissulega
hefur dóttirin haft þau áhrif. Manni
finnst ekki beint passa að fara frá því
að halda á nýfæddu barni yfir á þing
að rífast við menn um hörðu málin.“
Annars hefur hann látið hafa
það eftir sér að hlutverk hans innan
veggja heimilisins sé ansi takmark-
að. „Ég get engan veginn bjargað
mér út úr þessu. Ég er lítið heima og
hef því lítinn tíma til að sinna heimil-
inu eða eldamennsku. Það eru svona
ákveðnir hlutir sem ég sé um, eins og
að hella upp á kaffi, en þessum hlut-
um er ég stöðugt að vinna í að fjölga.“
Vinur hans segir að Sigmund-
ur Davíð sé íhaldssamur hvað varð-
ar hefðbundin gildi en framsækinn
að öðru leyti. Þó mætti hann kannski
gefa fjölskyldunni meiri tíma. Engu
að síður séu þau hjónin afar náin
og Sigmundi Davíð sé afar umhug-
að um að gera vel við sitt fólk. Hann
sé að þessu leyti mjög hlýr maður.
„Ég vil að minnsta kosti vera róm-
antískur og gera eitthvað óvænt og
skemmtilegt þótt reyndin sé ekki
„ Konunni minni finnst þessi söfn-
unarárátta fullmikið af því góða
Leiðtoginn Sigmundur Davíð
hafði eingöngu verið skráður í
Framsóknarflokkinn þegar hann
varð formaður hans. Hans helsti
keppinautur var Höskuldur
Þórhallsson en nú takast
þeir aftur á en þeir sækjast
báðir eftir oddvitasæti í sama
kjördæminu.
„Við hittumst í ára-
mótaboði, smull-
um vel saman og höfum
verið saman síðan.
t