Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Side 23
Takk samt
fyrir
Hún hjálpaði
mér
Magnús Kristinsson svarar ekki spurningum DV. – DVSnjólaug Ósk Björnsdóttir segir grunnskólakennara sinn hafa bjargað sér. – DV
Baráttan við börnin
Spurningin
„Já, hann kom í ágúst.“
Þórir Bogason
29 ára tónlistarmaður
„Já, fyrir mér er þetta vetur.“
Maxim Deruga
26 ára í atvinnuleit
„Nei, en haustið er svo sannar-
lega komið.“
Davíð R. Gunnarsson
30 ára nemi
„Já.“
Anný Björk
15 ára nemi
„Já, hann er kominn.“
Jasmin Rexhepi
28 ára kvikmyndagerðarmaður
Er veturinn
kominn?
1 Bræðurnir Ormsson gjaldþrota Verslunin verður rekin áfram á nýrri
kennitölu.
2 Nýtti kaupréttinn á Bergi og seldi svo Magnús Kristinsson
nýtti sér kauprétt í Bergi-Hugin
nokkru áður en hann seldi hlutaféð til
Síldarvinnslunnar.
3 „Í rauninni er hún að segja: Látið mig vera, ég er eins og
ég er“ Móðir Snjólaugar Óskar sem
steig fram og sagðist vera búin að fá
nóg af einelti.
4 Doktor Dauði úrskurðaður látinn Nasistinn Aribert Heim, al-
ræmdur stríðsglæpamaður, var úrskurð-
aður látinn af dómstól í Þýskalandi.
5 Höskuldur hjólar í Hrólf og vill að hann íhugi afsögn
Höskuldur Þór Þórhallsson fer fram
á að framkvæmdastjóri Framsóknar
íhugi afsögn.
6 Myrti konuna sína þegar hann komst að því að hún væri
transkona Breskur kaupsýslumaður
barði og kæfði rússneska eiginkonu
sína.
7 „Gróflega vegið að mannorði mínu“
Róbert Wessman er ósáttur við
umfjöllun Morgunblaðsins.
Mest lesið á DV.is
Hin réttu andlit
S
kömmu eftir Ránið (sem sum
ir kalla hrun), ákvað Alþingi
að efna til þjóðfundar og eitt af
því sem þjóðfundurinn ákvað,
var að þjóðin þyrfti nýja stjórnarskrá.
Í téðri samþykkt Alþingis tóku þátt
menn einsog Bjarni Ben, þessi með
gullskeiðina og vafningana. Þá var með
í liðinu Sigmundur Davíð Oddsson,
formaður glæpafélags Framsóknar. En
hann er sonur manns sem nýverið var
dæmdur til að viðurkenna, að það sem
hann kallaði meiðyrði er ekkert annað
en sannleikur.
Núna koma himpigimpi Framsókn
ar og Sjálfstæðisflokks úr skápnum
og segjast ætla að svara spurningunni
neitandi, þegar þeim verður boðið að
samþykkja nýja stjórnarskrá. Meira að
segja gáfaðasti framsóknarmaður allra
tíma, Vigdís Haugsdóttir, segir að það
sé óþarfi að þiggja nýja stjórnarskrá,
þar eð sú gamla sé fullkomlega boðleg
þjóð sem leyfir stjórnmálamönnum að
stela, ljúga og svíkja. Að vísu vill Vigdís
þessi ekki hafa gamlingja á þingi, en
það er nú önnur saga. Hin réttu and
lit blasa nú við; siðblindingjarnir eru
hættir við að vera góðu gæjarnir. Þeir
vilja bara hafa þetta einsog það var fyr
ir Ránið.
Geir Haarde gerði samning við
Skýrr, svona einkavinavæðingarsamn
ing, sem átti að kosta ríkissjóð hundr
að milljónir en hefur nú þegar kost
að 4 milljarða. Við köllum þetta bara
týpíska spillingu, á meðan við bíðum
þess að íslenska mafían fái dóm.
En núna vill fólk trúa á réttlæti og
hafna innantómu þvaðri um ágæti
peningaaflanna. Siðblindan má aldrei
aftur ná tökum á okkar ágæta samfé
lagi. Við verðum að útiloka glæpaklík
urnar sem vilja ná hér völdum. Já, ég er
að tala um þá menn sem eru skaðleg
ir samfélaginu; menn sem vilja aldrei
skipta neinu jafnt ... nema ábyrgð
samfélagsins þegar kemur að því að
greiða fyrir spillinguna. Aðferð mafí
unnar er fyrirséð, alltaf eins, nefni
lega að ráðast á einstaklinginn og gera
hann ótrúverðugan. Aðferðin lýsir því
vel hverskonar ómerkingar þetta eru.
Og frakkalaf hvítflibbanna er enn
þá að koma uppúr drullunni. Siðleys
ið og spillingin sem fór á stall í Valhöll
á meðan Davíð Oddsson og Kjartan
Gunnarsson féllust þar í faðma, er enn
þann dag í dag að skila okkur skelf
ingu. Og áfram munu hinir siðblindu
reyna að spilla öllum góðum verkum;
öllu sem getur tryggt okkur betra sam
félag, þar sem komið verður í veg fyrir
spillingarsmit í stjórnsýslunni.
Auðvitað verða alltaf til beturvitar
sem þykjast geta skákað færustu sér
fræðingum. Þetta sannast enn og aftur
í umræðunni sem á sér stað í dag. Nú
hafa allt í einu allir heimskir stjórn
málamenn vit á stjórnarskrá. Vafn
ingamenn og synir þjófa, þykjast í dag
hafa meira vit en hópur sérfræðinga.
En staðreynd dagsins er þó sú, að
nýja stjórnarskráin okkar, er samin af
færasta fólki sem hugsanlega var hægt
að fá til starfsins og það sem meira er,
þessi stjórnarskrá sækir allt það besta í
stjórnarskrár þeirra lýðræðisríkja sem
við viljum helst fá að líkjast. Af þess
um sökum ætti okkur að vera ljóst, að
fylgispekt við siðleysingja er ávísun á
fávisku.
Af siðleysi fá sumir fró,
þeir sagðir eru blindir
en heimskingjarnir hafa þó
heldur fleiri syndir.
Þ
ið vitið það kannski ekki en
Svarthöfði er fjölskyldumaður.
Börnin eignaðist hann með
hefðardömu í fjarlægri framtíð
fyrir langa löngu. Sökum anna í vinnu
var Svarthöfða ekki stætt á að vera við
staddur fæðingu barna sinna en fékk
fréttir af henni síðar. Þær voru miður
fallegar. Barnsmóðir Svarthöfða lést
við barnsburð og eftir stóð Svarthöfði
með tvíbura, son og dóttur.
Svarthöfða var engan veginn stætt
á að hugsa um börnin sem voru send
í fóstur. Svartnættið lagðist yfir og var
sorginni drekkt í vinnu fyrir hið mikla
stórveldi sem Svarthöfði hafði yfirum
sjón með. Meðal stærri verkefna var
bygging höfuðstöðva veldisins sem
voru manngert tungl sem bjó yfir þeim
eiginleikum að geta þurrkað út heilu
pláneturnar. Það báru langflestir ótta
blendna virðingu fyrir Svarthöfða og
þorðu fáir að setja sig upp á móti hon
um. Um þetta leyti virtist Svarthöfði
hafa náð ró en hann vissi ávallt af til
vist barna sinna, sem vissu þó ekki af
honum.
En það virðist enginn geta flúið
örlögin sín. Börnin sóttu til föður
síns, enda áberandi persóna í vetrar
brautinni. Þau gengu til liðs við óvini
Svarthöfða, uppreisnarseggi sem vildu
losna undan kerfinu sem hafði fært
þeim svo mikið. Sonurinn hafði leit
að á náðir gamalla lærimeistara föður
síns og réri að því öllum árum að steypa
Svarthöfða af stóli. Svarthöfði ákvað
að nálgast týnda soninn og fá hann í
lið með sér. Sonurinn þakkaði fyrir sig
með því að reyna að drepa sinn eigin
föður. Það gekk nú ekki betur en svo að
Svarthöfði hjó af honum höndina í refs
ingarskyni og tjáði honum að hann væri
faðir hans, enda kominn tími til. Dreng
urinn hafði kysst systur sína (Svarthöfði
gefur syninum þó það að hann vissi
ekki að hún væri systir hans), en hætt
við frekari blóðskömm.
Eftir baráttu við börnin varð
Svarthöfða þó ljóst að hann hafði ekki
þrek til að leiða íbúa vetrarbrautar
innar að eilífu. Árin farin að segja til
sín og líkaminn orðinn þreyttur og
stirður, engan veginn í sama formi og
áður fyrr, þrátt fyrir miklar framfar
ir í læknavísindunum sem höfðu áður
komið honum til góðs. Svarthöfði fórn
aði sér að lokum til að vernda það sem
hann unni mest.
Svarthöfði skilur því vel ákvörðun
Jóhönnu Sigurðardóttir um að láta af
formennsku í Samfylkingunni, enda
arftakarnir í flokknum orðnir hungrað
ir eftir frama.
Hundarnir viðraðir Það var fallegt veður á Selfossi á þriðjudag þegar ljósmyndari átti leið um bæinn. Margir viðruðu sig og sumir tóku hundana með sér. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Svarthöfði
Umræða 23Helgarblað 28.–30. september 2012
Ég er í
góðum gír
Gunnar Nelson mætir reynsluboltanum Johnson á laugardag. – DV
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson