Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Qupperneq 38
Þ eir sem ástunda fjallgöngur og lengri útivistarferðir kom- ast fljótt að því að allt önnur lögmál gilda þar en í þéttbýl- inu. Fólk þarf að yfirvinna ákveðn- ar hindranir varðandi það að gera þarfir sínar. Á Esjunni og Hvannadals- hnjúk eru nefni- lega engin salerni. Sjálfur er ég mjög háður því að gera þarfir mínar einn og í friði. Þetta er eitt viðkvæmasta einkamál hvers og eins. Það er þó sjálfsagðara hjá karlmönnum en konum að kasta af sér vatni á almannafæri. Hjá konum er aðgerðin flóknari. Þar þurfa að opinbera mun stærra hluta af viðkvæmum líkamssvæð- um við þá einföldu aðgerð að kasta af sér vatni. Karlar eru með þannig útbúnað að einungis örlitið brot líkamans er berað við þvaglát. E in mesta martröð mín í gegn- um tíðina hefur verið sú að verða brátt í brók í fjallgöngu. Á tæplega tveimur árum hef ég farið í rúmlega 600 fjallgöng- ur. Einungis þrisvar hef ég þurft að svara kalli náttúrunnar með þeim hætti að þurfa beinlínis að hafa hægðir. Ennþá man ég hve vand- ræðalegt það var í hlíðum Úlfars- fells á sólríkum vetrardegi þegar kallið kom. Ég hafði látið ofan í mig dálítið af kæstum hákarli og skötu kvöldið áður. Grandalaus hélt ég á fjallið án þess að reyna að kreista úr mér áður. Á versta stað hófst síðan útvíkkun með tilheyrandi herkjum. Það var að- eins tvennt í spilunum. Annað- hvort myndi ég gera í buxurn- ar eða hafa hægðir á staðnum. Þennan dag voru tugir göngu- manna á Úlfarsfelli. Það var nokk- uð ljóst að hvergi myndi ég finna öruggan stað. Með lagni tókst mér þó að komast í hvarf þannig að í sjónlínu voru ekki nema um 10 manns. Í ofboði krafsaði ég holu í snjóinn og síðan var látið gossa. Auðvitað var ég ekki með klósett- pappír eða annan pappír með mér. það var því ekki annað að gera en að fórna nærbuxunum. Löngu seinna sagði vinnufélagi minn, sem er mikill útivistarmað- ur, að aðstæður sem þessar væru algengar. Þetta væri kallað fórnar- brók. Í marga mánuði skammaðist ég mín fyrir atvikið. Síðan hefur hispurs- leysið tekið yfir og mér er nokkuð sama. Í annað sinn sem svipað tilvik kom upp var ég á göngu með siðprúðum félaga sem má ekki vamm sitt vita. Þrýstingur óx og ég varð að grípa til aðgerða. Ég skaust á bak við klett og gerði það sem þurfti. Þegar ég kom til baka horfði félaginn á mig með svip sem ég nenni ekki að skil- greina: „Varstu að skíta, maður?“ spurði hann. E ftir að ég náði að yfirstíga hömlurnar hef ég rætt við fróða menn um hægðir á fjöll- um. Þekktur stjórnmálamað- ur sagði mér frá því þegar hann gerði í buxurnar á einu hæsta fjalli heims. Annar lýsti því þegar mara- þonhlauparar lenda í sömu að- stæðum og skjótast inn í runna til að sinna þörfum sínum. Þá sagði hann vera dæmi um að kappsam- ir hlauparar gerðu í buxurnar. Skömm mín hefur vikið fyrir þeirri staðreynd að ég er ekki einn um að lenda í þessum aðstæðum. n Hver er þinn stíll? Á vefsíðu tímaritsins Style- athome eru myndir af tíu fjöl- breyttum stofum sem eru hver annarri fallegri. Stofan skipar afar mikilvægan sess hjá okkur flest- um. Það er sama hvort við slöppum af eftir efiðan dag í vinnu eða bjóð- um vinum heim í mat og drykk; oft- ast er það stofan sem verður fyrir valinu. Setustofa þarfnast ekki heim- ilistækja og því fer útlit rýmisins al- gjörlega eftir þeim hlutum sem þar eru valdir. Hér eru fjórar stofur sem okkur finnast fallegastar. 38 Lífsstíll 28.–30. september 2012 Helgarblað Reynir Traustason Baráttan við holdið Fórnarbrók Dramatík í Hollywood Svart/hvít setu- stofa sem minnir á gamaldags Hollywood- glamúr. Litrík og listræn Þessi skemmtilega stofa afsannar þá kenningu að litlum rým- um fari best litleysi og munsturlaus efni. Innanhússarkitektinn Lindsay Mens Craig á heiðurinn af þessari stofu. Fjórar glæsilegar stofur Stofa djarfa piparsveinsins Hér er ekkert til sparað. Orð eins og hefðbundin og karlmannleg koma upp í hugann. Það verður líklega ekki karlmannlegra en gylltur byssulampi Phillipe Starck. Stelpuglamúr Þessi glæsilega stofa er ævintýri út af fyrir sig. Stíll eigand- ans fær svo sannarlega að njóta sín. N iðurstöður nýrrar ástr- alskrar rannsóknar sem birtust í Chemosensory Perception sýna fram á að slæmt lyktarskyn get- ur verið eitt einkenni siðblindu. 79 einstaklingar með hreint sakavott- orð tóku þátt í rannsókninni og vís- indamenn komust að þeirri niður- stöðu að þeir sem sýndu einkenni siðblindu á einhvern hátt áttu í erf- iðleikum bæði með að þekkja lykt og greina á milli mismunandi lykt- ar. Í yfirlýsingu frá höfundi rann- sóknarinnar segir: „Niðurstöður okk- ar styðja þær kenningar að lítil virkni í framheila geti verið einkennandi fyr- ir siðblinda einstaklinga sem eru þó ekki glæpamenn.“ Skortur á virkni í framheila Siðblinda er vítt hugtak sem notað er yfir ýmiss konar persónuleikatruflan- ir sem einkennast af tilfinningadoða, stjórnunaráráttu, ásókn í æsing og andfélagslegri hegðun. Heiðvirðir borgarar sem og harðsvíraðir glæpa- menn geta sýnt þessi einkenni. Eldri rannsóknir hafa sýnt fram á að einstaklingar sem sýna þessi ein- kenni hafa litla virkni í framheila sem er það svæði heilans sem stýrir áætl- anagerð, skyndiákvörðunum og getu til að fara eftir reglum samfélagsins. Skortur á virkni á þessu svæði í fram- heila veldur einnig því að lyktarskynið virkar ekki sem skyldi. „Mælingar á lyktarskyni geta hugs- anlega komið sér vel í að greina sið- blindu í ljósi þess að einstaklingar eiga erfiðara með að stýra niður- stöðunum með því að breyta hegð- un sinni,“ bentu vísindamenn á þegar niðurstöðurnar voru kunngjörðar. Ýmislegt fleira koma í ljós við rann- sóknina, til dæmis hvernig lykt getur haft áhrif á getu okkar til ýmissa verka og jafnvel dregið úr mígreniköstum. Kleinuhringir og kynhvöt Lykt af nýbakaðri graskersböku, lavender, kanil og nýbökuðum kleinu- hringjum getur örvað kynhvötina hjá körlum, samkvæmt vísindamönnum. Ef karlmenn þefa af einhverju fram- antöldu eykst blóðflæðið til getnað- arlimsins um allt að 40 prósent. Epli og mígreni 50 einstaklingar sem þjáðust af svæsnum mígreniköstum sögðu að eftir að þeir fóru að lykta reglulega af grænum eplum hefði það dregið úr köstunum til muna. Jasmína og viðbragðsflýtir Vísindamenn komust einnig að því að lykt af jasmínu getur aukið við- bragðsflýti einstaklinga og snerpu, til að mynda við að grípa eitthvað sem dettur. Í ljós kom hins vegar að lykt af grilluðu kjöti getur dregið úr við- bragðsflýti. Kaffi og tímaskyn Lykt af nýmöluðu kaffi virðist bæta tímaskyn ef marka má niðurstöður eldri rannsóknar. Tuttugu einstak- lingar tóku þátt í rannsókninni, sem fór fram í klukkulausu her- bergi, og tímaskyn þeirra allra virt- ist verða nákvæmara eftir að hafa þefað af kaffinu. n Siðblindir hafa verra lyktarskyn n Lykt af kleinuhringjum örvar kynhvöt n Kaffi getur bætt tímaskynið Bætir tíma- skyn Margir kunna að fagna þeirri staðreynd að kaffi bætir tímaskyn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.