Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Síða 42
42 Lífsstíll 28.–30. september 2012 Helgarblað
STOFNAÐ 1987
Úrva l e ins takra má lverka og l i s tmuna e f t i r í s l enska l i s tamenn | S k ipho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
einstakt
eitthvað alveg
M
á
lv
e
rk
:
Ó
lö
f
B
jö
rg
Svona
bætum
við okkur
Það er hægt að bæta sjálfan sig á svo
margan hátt og með örlítilli sjálfs-
skoðun finnum við öll eitthvað sem
betur má fara. Á vef MindBodyGreen
eru tekin saman nokkrir ávanar sem
auðvelt er að venja sig af:
n Ekki vera vondur eða særandi – vertu
góður
n Ekki dæma – taktu öllu og öllum með
opnum hug
n Ekki bera saman – vertu móttækilegur
og opinn
n Ekki sýna vanvirðingu – sýndu fólki,
aðstæðum og hlutum virðingu
n Ekki vera langrækinn – fyrirgefðu fólki,
aðstæðum og sjálfum þér
n Ekki vera sjálfselskur – vertu um-
hyggjusamur gagnvart öðrum, lífið er
ekki einmenningsspil
n Ekki vera vanþakklátur - vertu sáttur
við það sem þú ert og það sem þú hefur,
því það er alltaf nóg
n Ekki skorast undan ábyrgð á lífsgæð-
um þínum – taktu ábyrgð á hugsunum
þínu, tilfinningum, líkama og athöfnum
n Ekki missa kímnigáfuna – vertu
fyndinn, hlæðu oft og mikið og einnig
að sjálfum þér
n Ekki alltaf gera ráð fyrir hinu versta –
vertu jákvæður, vongóður og gerðu ráð
fyrir hinu besta
n Ekki vera nískur – vert örlátur á allt, sér
í lagi tíma, ást og peninga
n Ekki missa ekki áhugann – vertu forvit-
inn og skapandi
n Ekki hætta að hlusta – hlustaðu og
heyrðu bæði það sem er sagt og það
sem ekki er sagt
n Ekki festast í sama farinu – vertu opinn
fyrir breytingum og nýjum sjónarhorn-
um
n Ekki ofmetnast og halda að þú vitir allt
– vertu nemandi alla ævi, hættu aldrei
að þroskast og auktu þekkingu þína
með auðmýkt
Þ
að er mikilvægt að stoppa
öðru hvoru og hugsa um líf
sitt, hugsanir og framkomu
og spyrja sjálfan sig af hverju
við gerum það sem við ger-
um. Flest okkar fara í gegnum líf-
ið á sjálfstýringunni og við stöldr-
um sjaldnast við til að líta á líf okkar
gagnrýnum augum og endurmeta líf
okkar og hvernig við lifum því. Lífið
kennir okkur fjölmargar lexíur og hér
eru 10 þeirra:
1 Það eina sem við getum stólað á er að allt breytist
Þetta þýðir að sama hversu mikið
við reynum að koma í veg fyrir og
forðast breytingar munu þær verða,
þar sem breytingar eru eini fasti
punkturinn í lífinu.
2 Ekkert varir að
eilífu Þess
vegna verðum
við að læra að
sleppa takinu,
hvort sem um
er að ræða hluti,
staði eða manneskjur.
Þegar kemur að því að kveðja skaltu
gera það af virðingu og með reisn.
3 Við dæmum aðra út frá okkar eigin göllum Það sem
okkur mislíkar í fari annarra er það
sem okkur mislíkar í eigin fari. Það
er kannski erfitt að viðurkenna en
svona er þetta. Fólki finnst yfirleitt
mikið til sín sjálfs koma og lítur á
sjálft sig sem fullkomið á meðan
aðrir eru það ekki.
4 Við getum ekki neytt aðra til að elska okkur Við stjórn-
um því ekki hvenær ástin bankar
upp á. Vinum þínum, ástvinum
og fjölskyldu þykir vænt um þig
af því þau kjósa það og ekki af því
að þú vilt það. Það sama á við um
væntumþykju þína gagnvart öðrum.
Ástina á að finna og njóta og aldrei
að þvinga henni upp á aðra.
5 Framkoma annarra er þeirra vandamál, hvern
ig við bregðumst við er okkar
Þegar þú ert ánægð/ur og sátt/ur
með eigið líf þá kemur þú fram við
aðra af ást, hlýju og
virðingu. Sama
hvernig aðrir
koma fram við
þig þá verð-
ur þín eigin
vellíðan alltaf
til þess að þú
heldur yfirvegun og
ró og smitar gleði þinni og hamingju
yfir á aðra.
6 Það eflist sem við streitumst á móti Því meira sem
við reynum að berjast á móti
ákveðnum hlutum, svo sem að-
stæðum, atburðum, fólk og hug-
myndum, því meira virðast þessir
hlutir eflast og verða þrautseigari í
daglegu lífi okkar. Lærðu að beina
athyglinni að því sem þú vilt berj-
ast fyrir frekar en því sem þú berst
gegn og vittu til, líf þitt mun breyt-
ast.
7 Hugsanir okkar skapa veruleika okkar Við erum
stödd á þessum stað í lífinu vegna
þeirra hugsana sem hafa farið í
gegnum huga okkar. Ef hugsanir
okkar eru hreinar og tærar, jákvæð-
ar og uppbyggandi, búum við til
jákvætt og uppbyggjandi álit á okk-
ur sjálfum, á lífinu og gjörðir okk-
ar endurspegla þessar hugsanir og
skoðanir.
8 Sá tími mun koma að þú þarft að
sleppa takinu
Þegar kemur að
þeim tíma þegar
þú þarft að
sleppa takinu á
ákveðnum hlut-
um, hugmyndum
eða fólki, ekki streit-
ast á móti. Leyfðu þér að upplifa,
vaxa, þroskast og þróast. Leyfðu þér
að upplifa hamingju.
9 Við sjáum meira eftir því sem við gerðum ekki en
því sem við gerðum Í hvert sinn
sem þig langar að gera eitthvað en
þorir því ekki hafðu þá í huga rann-
sókn sem gerð var fyrir skömmu
í Bandaríkjunum. Þar voru tekin
saman ráð sem 1.200 eldri borgarar
gáfu nýstúdentum. Þar kom í ljós að
það sem eldri borgararnir sáu mest
eftir var að hafa ekki haft þor til að
gera það sem þá langaði til að gera.
Minni eftirsjá fylgdi því sem þeir
höfðu gert.
10 Þú getur ekki stjórnað öðrum Það er svo skrýtið að
því nánari sem maður verður öðr-
um finnum við meiri þörf fyrir að
stjórna þeim og lífi þeirra. Við átt-
um okkur ekki á því að það eina
sem við stjórnum er viðhorf okkar
gagnvart þeim og þeirra hegðun.
Engu öðru.
n Ekkert varir að eilífu og þú getur ekki stjórnað öðrum en sjálfum þér
10 dýrmætar lífslexíur
Hamingja Við þurfum að
staldra við og huga að því
hvernig við lifum lífinu.