Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Side 52
52 Fólk 28.–30. september 2012 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
28.–30. september
Föstudagur28
sep
Laugardagur29
sep
Sunnudagur30
sep
Þýskt uppistand
Uppistandarinn Freddie Rutz hefur
komið fram um allan heim sem grínisti,
töframaður og dansari og flytur atriði sín
bæði á ensku, þýsku og frönsku. Nú mun
hann halda fyrsta uppistand á þýsku
á Íslandi en íslenski grínistinn Rökkvi
Vésteinsson kemur fram með Rutz.
Uppistandið er hluti af Iceland Comedy
Festival 2012.
Kareoke Sportbar 20.00
Á sama tíma að ári
Á föstudag fer fram frum-
sýning á þessu vinsæla
gamanleikriti. Margrét
Guðmundsdóttir og
Bessi Bjarnason áttu
ógleymanlegan leik
þegar verkið var sýnt
í Þjóðleikhúsinu árið 1978.
Tveimur áratugum síðar, árið 1996, léku
þau Tinna Gunnlaugsdóttir og Sigurður
Sigurjónsson sama leikinn. Nú eru það
svo Guðjón Davíð Karlsson og Nína Dögg
Filippusdóttir sem takast á við þessi
skemmtilegu hlutverk.
Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu 20.00
Kira Kira í Kaldalóni
Útgáfutónleikar Kira Kira vegna plötunn-
ar Feathermagnetik verða haldnir á
laugardaginn og eru hluti af kvikmynda-
hátíðinni RIFF. Þar mun hljómsveitin leika
ásamt Skúla Sverrissyni bassaleikara,
Úlfi Hanssyni og Pétri Hallgrímssyni
kjöltustálgítarleikara við animasjónir
Söru Gunnarsdóttur. Úlfur kemur einnig
fram á tónleikunum með eigin tónlist
ásamt stórri hljómsveit, en Arnljótur
Sigurðsson sér um sjónrænt undirspil.
Miðaverðið er 1.990 krónur.
Kaldalón í Hörpu 21.00
Plánetur Holst í
Eldborg
Ungsveit Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands
flytur Pláneturnar
eftir Gustav Holst en
þar er sjö reikistjörnum
lýst í áhrifamiklu tónmáli, allt frá upp-
hafsþættinum Stríðsboðanum Mars til
lokaþáttarins, Hins dulræna Neptúnusar,
þar sem raddir Stúlknakórs Reykjavíkur
óma eins og úr órafjarlægð. Tónlistin
hefur hljómað í mörgum kvikmyndum og
verið innblástur fyrir fjölda tónskálda.
Holst var áhugasamur um stjörnufræði
og þannig fæddist hugmynd að verki sem
byggði á reikistjörnunum sjö.
Eldborg í Hörpu 14.00
Trúðleikur í Gaflarahúsinu
Frystiklefinn, litla leikhúsið á Rifi á
Snæfellsnesi, í samvinnu við
Gaflaraleikhúsið, sýnir á
höfuðborgarsvæðinu
hinn sprellfjöruga
og hjartnæma
gamanleik Trúðleik
eftir Hallgrím Helga
Helgason sem sló í
gegn í sumar. Leikarar eru
Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson.
Aðeins verða nokkrar sýningar. Miðaverð
er 2.500 krónur.
Gaflaraleikhúsið 14.00
G
estir voru prúðbúnir á setn-
ingu Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík
á fimmtudagskvöldið. Há-
tíðin var formlega sett og
kynnir var Ari Eldjárn sem sló á létta
strengi.
Í kjölfar setningarinnar var svo
sýnd opnunarmynd hátíðarinnar,
Drottningin af Montreuil/Queen of
Montreuil, eftir Sólveigu Anspach.
Að sýningu lokinni stefndu gest-
ir til opnunarhófs á Slippbarnum,
Reykjavík Marina og stóð gleðin
langt fram á nótt við gleði og glaum.
@..hofundarmerking:<B>-KG<P>
Frumsýningarpartí
Johnny Naz
E
rpur Eyvindarson
forsýndi á miðviku-
dagskvöldið fyrsta
þáttinn í splunku-
nýrri þáttaröð um Johnny
Naz. Partíið fór fram á
Úrillu górillunni í Austur-
stræti þar sem skálað
var fyrir nýjum þætti.
Erkitýpa Johnny Naz
ávarpaði gesti staðarins í
gegnum Skype.
Vel mætt á
forsýningu
Starfslið
Skjás eins
mætti og
fagnaði.
Með fögrum fljóðum Erpur fagnaði ásamt góðum vinkonum.
Félagar Árni Sveinsson
leikstjóri og félagar
mættu að sjálfsögðu.
Lét sig ekki vanta
Sölvi Tryggvason lét
sig ekki vanta í partíið.
MYNDIR PRessPHotos.bIz
n Ávarpaði gesti frá Ibiza í gegnum Skype
Prúðbúnir gestir á
kvikmyndahátíð
n Ari Eldjárn sló á létta strengi n Gleðin stóð langt fram á nótt
Reynslubankinn Margrét María Páls-
dóttir, Ari Kristinsson og Þorsteinn J.
Í góðu skapi Helgi Björnsson brosti
sínu blíðasta.
skál! Hrafn Gunnlaugsson og Ottó
Tynes.
borgarstjórinn Jón
Gnarr sem Obi-Wan Ken-
obi og S. Björn Blöndal.
MYNDIR: PRessPHotos
Leikstjórinn og leikarinn Benedikt
Erlingsson lét sig ekki vanta.
sló í gegn Grínistinn Ari Eldjárn kom fólki
til að hlæja.