Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Síða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Síða 53
Fólk 53Helgarblað 28.–30. september 2012 A fmælisdeginum varði ég mikið til á minni tíu tíma spítalavakt en þar sem eig- inkonan er gengin 40 vikur vék afmælisspenningurinn fyrir barneignaspenningi,“ segir Sigurð- ur Harðarson, Siggi pönk, sem varð 45 ára á miðvikudaginn. Sigurð- ur er sonur hjónanna Harðar Sig- urgrímssonar og Önnu Guðrún- ar Bjarnardóttur. Hann er yngstur fimm systkina og ólst upp í Holti í Stokkseyrarhreppi. Hanner menntaður í búfræði frá Bændaskólanum á Hvanneyri en ákvað síðar að verða hjúkr- unarfræðingur í stað þess að verða bóndi. Eftir níu ár á Slysa- og bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi flutti hann með eiginkonu sinni til Englands og starfar nú á vöknunardeild héraðsspítalans í East Sussex, Brighton. Eiginkona hans er Manon Laméris sem hann kynntist fyrir tíu árum er hún átti tveggja daga millilendingu á Íslandi á leið sinni frá Hollandi til Bandaríkjanna. Auk þess á hann 16 ára dóttur, Hjördísi Björgu Viðjudóttur, sem ætlar að heimsækja þau til Englands þegar litli bróðir hennar fæðist. Aðspurður um þá tilfinningu að vera orðinn 45 ára segist hann ekki hafa persónulega skilgreiningu á því hvað sé að verða fullorðinn. „Kannski vegna þess að ég man vel hversu vitlaus ég var fyrir 25 árum og reikna með að geta horft til baka eftir 20 ár í viðbót og munað hversu mikið barn ég er í dag.“ Siggi er söngvari í hljóm- sveitinni Forgarði helvítis sem er með hálfkláraða breiðskífu í smíð- um og var einnig í pönksveitin Dys sem fékk hægt andlát þrátt fyrir ít- rekaðar endurlífgunartilraunir. Auk þess vinnur hann með raftónlist- armanninum Jóhanni Eiríkssyni í hljómsveitinni Gjöll. „Fjórða breið- skífa okkar er í vinnslu og mun koma út hjá þýsku Ant-Zen útgáf- unni eins og hinar þrjár plöturnar. Annars fer mikið af mínum sköp- unarkrafti í útgáfu anarkistarita og rekstur anarkistabókasafnsins í Reykjavíkurakademíunni,“ segir afmælisbarnið og anarkistinn að lokum. N ýtt Líf fagnar 35 ára afmæli í ár og heldur upp á áfangann með pompi og prakt í kvöld, föstudagskvöld, á Slippbarn- um. Þóra Tómasdóttir, ritstjóri blaðsins, segir núverandi ritstjórn um leið fagna ársafmæli sínu. Á því ári sem hún hefur haldið um stjórnartaumana hefur blaðið oft- sinnis verið á allra vörum. Í einu tölublaði Nýs Lífs voru birt kyn- ferðisleg bréf Jóns Baldvins til ung- lingsstúlku og seldist það upp á nokkrum klukkustundum. Forsíðu- mynd af Þóru Arnórsdóttur vakti mikla athygli og birtist í stærstu fréttamiðlum heims. Þá var umdeilt septembertölublað Nýs Lífs með Bjarna Benediktsson á forsíðunni. „Bjarni Ben er maður sem all- ir hafa skoðun á. Við vildum setja hann fram á okkar hátt,“ segir Þóra í samtali við DV. Sterkar kvenfyrirmyndir „Það er ár síðan ég tók við blaðinu og við höfum leynt og ljóst verið að taka það í gegn og breyta eftir okkar höfði. Við höfum einnig tek- ið á stórum málum og þá höfum við komið fréttaskýringum í blað- ið. Við höfum haft margar sterkar kvenfyrirmyndir á forsíðu blaðsins á árinu, hina kynleiðréttu Hrafn- hildi Guðmundsdóttur, Sigríði Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, var umdeild og sömuleiðis Þorgerður Katrín.“ Blöskrar heimskuvæðingin Þóra er stolt af áfanganum, fáir ís- lenskir fjölmiðlar hafa náð því að lifa í 35 ár. „Blaðið er á mikilli sigl- ingu og við höfum fengið meðbyr til að gera á því breytingar. Núna felst stefna blaðsins helst í fjöl- breytni og vönduðum efnistökum. Mér blöskrar stundum á hversu lágu plani lífsstíls- og kvennaaf- þreying er í stærstu fjölmiðlum landsins, þar ríkir heimskuvæðing með ofuráherslu á holdafar. Nýtt Líf er annar valkostur. Það fjall- ar um tísku, útlit, hár og förðun í bland við þyngri mál en ger- ir sér grein fyrir því að konur eru allavega vaxnar og á öllum aldri. Umfjöllun um tísku og útlit er fyr- ir allar konur á öllum aldri og við viljum ekki stuðla að óheilbrigðri útlitsdýrkun.“ Sonurinn væntanlegur Nýtt Líf 35 ára Siggi pönk, 45 ára þann 26. september Þóru blöskrar heimskuvæðing annarra miðla F ramsóknarmennirnir Sig- mundur Davíð Gunn- laugsson, Ásmundur Ein- ar Daðason, Gunnar Bragi Sveinsson lyftu sér upp ásamt fríðu föruneyti á Íslenska barnum síðastliðið þriðjudags- kvöld, samkvæmt heimildum DV. Hópurinn var þó ansi seint á ferðinni og við lá að þeir kæmust ekki inn á staðinn. Dyravörður benti þeim kurteislega á að búið að væri að loka þegar þá bar að garði eftir miðnætti. Einn úr hópn- um tók það ekki gilt og sagði eitt- hvað á þá leið: „Það er ekki búið að loka fyrir okkur,“ og í kjölfarið smeygði hópurinn sér inn á stað- inn fram hjá dyraverðinum sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Fyrir rétt rúmu ári tilkynnti Sig- mundur Davíð, formaður Fram- sóknarflokksins, það formlega á heimasíðu sinni að hann ætlaði að byrja af alvöru á megrunarkúr sem hann kallaði íslenska kúrinn. Fól kúrinn í sér að borða eingöngu ís- lenskan mat. Sagðist formaðurinn hafa hitt meltingarlækni sem tjáði honum að íslenskur matur væri sá hollasti í heimi. Þá benti Sigmund- ur Davíð á að eingöngu helming- ur þeirrar fæðu sem neytt væri á Íslandi væri framleidd hér, þannig að ef maður borðaði bara íslensk- an mat þá borðaði maður í raun helmingi minna en áður. „Með því að auka svo neyslu á íslenska matnum um 50% endar maður í 75% af fyrri neyslu,“ benti hann spekingslega á. Íslenski barinn er þekktur fyrir að bjóða upp á íslenskar afurðir af ýmsu tagi og þar á meðal íslensk- an mjöð. Það er spurning hvort Sigmundur Davíð sé enn á um- ræddum kúr og hvort ákefðin við að komast inn á Íslenskan barinn hafi tengst einlægum áhuga hans á íslenskri fæðu. Samkvæmt heimildum létu framsóknarmennirnir þó íslenska matar- og drykkjumenningu sér ekki nægja því eftir að hafa staldrað við á Íslenska barnum í skamma stund var förinni heitið á The English pub þar sem gleðinni var haldið áfram. Framsóknarmenn á Íslenska barnum n Rúmt ár síðan Sigmundur Davíð fór á íslenska kúrinn„Það er ekki búið að loka fyrir okkur n Ásdís Rán ánægð með Gussa B altasar Kormákur er á forsíðu Grapewine. Hann er mynd- aður þar sem hann gengur hægt upp úr sjónum með bera bringu. Myndinni mætti líkja við þá frægu senu kvikmyndanna þegar Bo Derek baðar sig aðdáun á ströndu í myndinni 10. Á sama tíma situr leikarinn Gunn- ar Jónsson, Gussi, fyrir á forsíðu sunnudagsmoggans. Segist alltaf hafa dreymt um að sitja fyrir í svipuðum stellingum og Ásdís Rán í Playboy. Á septemberhefti Nýs Lífs sat for- maður Sjálfstæðisflokksins fyrir á for- síðu. Að vísu í öllum fötunum, enginn vindur í hárinu. Mögulega er vottur af glossi á vörum. Viðbrögð karla við myndunum hafa verið á ýmsa vegu. „Viðbjóðslegt. Ég myndi kæra þetta ef annar hvor þeirra væri opinmynntur,“ segir Trausti Salvar Kristjánsson og gerir að gamni sínu um forsíður Grapewine og Morgunblaðsins á Facebook. „Djöfull er verið að hlutgera þá,“ segir Svavar Knútur tónlistarmaður. Ásdís Rán er hins vegar afar ánægð með forsíðumynd Morgun- blaðsins. „Ég þakka Gussa fyrir að minna svona fallega á myndirn- ar mínar í Morgunblaðinu í gær, al- gjör snilld! Þó hann hafi ekki sömu „natural born“ hæfileika eins og ég þá fær hann 10 stig fyrir að reyna,“ segir Ásdís Rán á Facebook-síðu sinni. Karlar fæKKa fötum Fáklæddur Gssi stælir myndir af Ásdísi Rán úr Playboy. SkjáSkot aF morgunBlaðinu ánægð með gussa Fær 10 stig fyrir að reyna, segir Framsóknarmenn lyftu sér upp Sigmundur Davíð formaður, Gunnar Bragi þingflokksformaður og Ásmund- ur Einar lyftu sér upp á Íslenska barnum í góðra vina hópi. nýtt líf er annar valkostur Blaðið hefur gengið í gegnum breytingar á afmælisárinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.