Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Page 54
„Ég er svo
meðfærilegur“
Borgarstjóri biðst afsökunar
n Vill að atriði með Georg Bjarnfreðarsyni á hjóli verði klippt út
J
ón Gnarr bað hjólreiðamenn
opinberlega afsökunar á þeirri
listrænu framsetningu sem
fram kom í þáttaröðinni Næt-
urvaktinni. Ástæða afsökunar-
beiðninnar var sú að í þáttunum
var Jón í hlutverki hins sérstaka Ge-
orgs Bjarnfreðarsonar og til þess
að undirstrika andfélagslega stöðu
Georgs í þáttunum var hann látinn
koma til vinnu sinnar á reiðhjóli.
Þetta kom fram í setningarræðu
borgarstjórans við ráðstefnuna
Hjólum til framtíðar 2012 – rann-
sóknir og reynsla, sem fram fór
þann 21. september.
Í kjölfar afsökunarbeiðninnar
þakkaði borgarstjóri fyrir að hafa
fengið þessa ábendingu frá hjól-
reiðamönnum um þá ímyndarvinnu
sem íslenskur afþreyingariðnaður
hefur unnið með hjólreiðar. Hann
sagðist jafnframt ætla að beita sér
fyrir því að öll myndbrot þar sem
Georg á hjóli kemur fyrir, verði
klippt út úr þáttunum. Fjallað eru
um þetta á vef Vísis.
Ráðstefnan sem haldin var í
annað sinn hér á landi var sam-
vinnuverkefni fjölmargra aðila
en það voru Hjólafærni á Íslandi
og Landssamtök hjólreiðamanna
sem skipulögðu hana í samvinnu
við Reykjavíkurborg, Vegagerðina,
Landlæknisembættið, Háskóla Ís-
lands, Háskólann í Reykjavík, Ferða-
málastofu og fleiri.
gunnhildur@dv.is
54 Fólk 28.–30. september 2012 Helgarblað
n Egill Helgason lét undan þrýstingi RÚV n Lék óða Godzillu í bókaborg
N
ý auglýsing markaðsdeildar
RÚV þar sem fjölmiðlamaður-
inn þjóðþekkti Egill Helgason
er í aðalhlutverki hefur vakið
mikla athygli. Í auglýsingunni fer Egill
um stafla bóka eins og Godzilla í bóka-
borg. „Ég átti ekki hugmyndina að
þessu, kynningardeildin á heiðurinn
af hugmyndavinnunni og ég lék bara
með,“ segir Egill um nýju auglýsinga-
herferðina og hvernig hún kom til. „Ég
reyni bara alltaf að hlýða því sem mér
er sagt og fór bara í myndverið og lét
bara öllum illum látum,“ bætir hann
við og hlær.
Blíður og góður
Egill býr sig undir kosningavetur og
bókajól og þáttur hans verður fjölskip-
aðri en áður. „Ég verð með sex gagn-
rýnendur sem skiptast á að rýna í bæk-
ur vetrarins,“ segir hann.
„Ég er bara blíður og góður, það er
engin innibyrgð reiði í mér,“ segir hann
og lofar því að vel verði tekið á móti
fólki í þáttunum.
Beint úr blogginu í þingheim
Hann óttast fremur að viðmælendur
hans í Silfri Egils láti öllum illum látum.
„Ég vona bara að fólk gangi ekki af göfl-
unum,“ segir Egill hugsi um komandi
kosningavetur.
„Ég hef alltaf litið svo á að það verði
að vera einhver skammtur af þrasi í
þáttunum en mikilvægara finnst mér
að huga að efni með einhverju inntaki.
Ég held að við þurfum til dæmis upp-
byggilega umræðu í kringum stjórn-
lagakosningarnar. Það er eins og þing-
mennskan laði að sér æsingamenn og
upphlaupsfólk.Þetta er viss þróun og
stundum finnst mér eins og menn labbi
beint úr blogginu yfir í þingheim.
Við þurfum hins vegar kannski fólk
sem sér víðar yfir, maður saknar þess að
fólk búi ekki yfir rósemd hugans,“ segir
hann. n kristjana@dv.is
Kilju-Kong Egill
Godzilla, eða Kilju Kong,
fer um bókaborg.
„Ég fór bara í
myndverið og
lét bara öllum illum
látum
Hugmyndavinnan Kynningardeild RÚV kom með hugmyndina að nýju herferðinni.
Georg Bjarnfreðarson
Hinn andfélagslegi Georg ferð-
ast um á hjóli í Næturvaktinni.
Keypti
menn.is
Rithöfundurinn og ritstjórinn
Helgi Jean Claessen hefur fest
kaup á vefnum menn.is, sem til-
heyrt hefur Pressunni. Helgi hef-
ur ritstýrt vefnum um árabil og
hyggst nú aðskilja hann frá Press-
unni. Það var Séð og heyrt sem
greindi frá þessu. Hann segist ætla
færa síðuna á annað stig og gera
hana meira „alvöru“. Aðstoðar-
ritstjóri verður Hjálmar Örn Jó-
hannsson. Þeir ætla svo að fá til
liðs við sig gott fólk til að halda
úti síðunni og segir Helgi að jafn-
vel megi búast við því að óvæntir
gestir birtist þar reglulega.
Nýtt par
Leikarinn Damon Younger og
Katrín Johnson dansari eru nýtt
par samkvæmt nýjasta tölublaði
Séð og heyrt. Damon og Katrín
mættu saman á fögnuð Jóns
Gunnars Geirdal í Sjóminjasafn-
inu á Granda og virtust afar sæl
saman.
Hneykslaður
á fjölmiðlum
Heitar umræður sköpuðust á
fésbókarsíðu Andrésar Jóns-
sonar almannatengils eftir að
hann birti færslu á veggnum
hjá sér um brotthvarf Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráð-
herra úr stjórnmálum: „Stop
the presses! Jóhanna er hætt!“
skrifaði almanntengillinn. Þor-
finnur Ómarsson fjölmiðla-
maður var með þeim fyrstu
sem tjáðu sig við færsluna og
fullyrti að Jóhanna hefði löngu
verið búin að að taka þessa
ákvörðun og tilkynna sínum
nánustu. Hann sagðist hafa
frétt það til Brussel fyrir tveim-
ur mánuðum og hneykslaðist
á því að enginn fjölmiðill hefði
sagt frá málinu fyrr. Kolbeinn
Óttarsson Proppé, blaðamað-
ur á Fréttablaðinu, benti í hins
vegar á að Jóhanna hefði ekk-
ert viljað gefa upp opinber-
lega hingað til og því hefði ver-
ið erfitt að segja fréttir þvert
á það. Karpið á milli þeirra
tveggja hélt áfram í nokkrum
tugum athugasemda, þar sem
þeir sökuðu hvor annan reglu-
lega um að vera í fýlu.