Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Side 2
2 Fréttir 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
Ný heilsubúð í Smáralind
- Mikið úrval - frábær gæði
- betri verð
www.hollandandbarrett.is
Lukkuleg
hjón sóttu
milljónirnar
Það voru lukkuleg hjón á besta
aldri sem komu til Íslenskrar
getspár með vinningsmiða upp
á rúmar 28 milljónir. Að vonum
voru þau í skýjunum með vinn
inginn að því er segir í tilkynn
ingu frá Íslenskri getspá.
Miðinn var keyptur í Aðal
braut í Grindavík og er annar af
tveimur vinningsmiðum sem
fyrsti vinningur kom á síðasta
laugardag. Þau segja vinninginn
koma sér einstaklega vel fyrir
jólin og bara lífið sjálft þar sem
þau hafa búið við lök lífskjör,
en hjónin eru bæði öryrkjar og
hafa þurft að berjast í bökkum.
Konan hefur spilað í tvö ár með
sömu tölurnar og hún taldi það
einungis tímaspursmál hvenær
stóri vinningurinn kæmi. Þau
geta því andað léttar og notið
frelsisins sem fylgir vinningnum.
Í tilkynningunni óskar Ís
lensk getspá vinningshöfunum
innilega til hamingju með vinn
inginn.
Búseti skuldar
nærri 2 milljarða
Skuldir húsnæðissamvinnu
félagsins Búseta á Norðurlandi
námu 7,3 milljörðum króna í lok
síðasta árs. Eignir félagsins voru
hins vegar samtals um 5,5 millj
arðar króna og var bókfært eigið
því því neikvætt um tæpa tvo
milljarða króna. Frá þessu greindi
héraðsfréttamiðillinn Vikudagur
á Akureyri á fimmtudag.
Í samtali við Vikudag segir
Benedikt Sigurðarson, fram
kvæmdastjóri Búseta, að unnið
hafi verið að endurskipulagningu
á skuldum félagsins. „Það ligg
ur fyrir samkomulag um skuldir
félagsins við okkar lánardrottna,
Íbúðalánasjóð og Íslandsbanka.
Á þessari stundu er ekki hægt að
greina nákvæmlega frá þessum
samningum, það verður vonandi
hægt að gera á næstu vikum.“
Afskriftakóngur
byggir glæsihús
3 Gylfi Ómar Héðinsson
múrarameistari er
að byggja sér nærri
500 fermetra glæsi
höll í Kópavogi um
þessar mundir. Eins
og kunnugt er á
hann Byggingarfé
lag Gunnars og Gylfa, BYGG, ásamt
Gunnari Þorlákssyni, byggingameist
ara. DV hefur áður greint frá því að
félög tengd þeim Gylfa og Gunnari
hafi fengið um 100 milljarða króna
afskrifaða vegna lána sem tekin
voru hjá stóru viðskiptabönkunum
þremur fyrir hrun. Samkvæmt veð
bandayfirliti er ekkert áhvílandi á
húsinu. Gylfi vildi ekki tjá sig um nýja
húsið í samtali við DV.
Flutti hundruð
milljóna úr landi
2 Jón Þorsteinn Jónsson, fyrr
verandi stjórnarfor
maður Byrs og einn
af erfingjum versl
anakeðjunnar Nóa
túns á sínum tíma,
hefur flutt mörg
hundruð milljónir króna í erlendum
gjaldeyri frá Íslandi á þessu ári og
því síðasta. DV greindi frá málinu
síðastliðinn mánudag. Í tilfelli hans
hafa fjármagnsflutningarnir yfirleitt
farið fram í evrum. Flutningurinn
á fjármagninu fer gegn gjaldeyris
höftunum sem sett voru hér á landi
í kjölfar íslenska efnahagshrunsins.
Jón Þorsteinn hóf nýverið afplánun
fangelsisdóms á Kvíabryggju vegna
Exetermálsins.
Spánarför fyrir
dóttur Sigurðar
1 Séra Sigurður Helgi Guð
mundsson, þá
verandi fram
kvæmdastjóri Eirar,
lét hjúkrunarheimil
ið greiða fyrir utan
landsferð dóttur
sinnar Vilborgar og
fjölskyldu hennar í ágúst 2011. Reikn
ingurinn nam 200 þúsund krón
um. Vilborg fór þá með Icelandair til
Alicante á Spáni og var þar í tvær vikur
ásamt eiginmanni sínum og börnum.
Þetta kom fram í miðvikudagsblaði
DV. Ferðalagið stóð yfir frá 10. ágúst til
þess 24. Í samtali við DV sagði Magn
ús L. Sveinsson, stjórnarformaður
Eirar, að rannsókn á greiðslunni væri
komin til Ríkisendurskoðunar.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Búa í einbýlishúsi
með gufubaði
n Jón Þorsteinn og Ragnar Z. Guðjónsson búa út af fyrir sig á Kvíabryggju
J
ón Þorsteinn Jónsson og Ragnar
Z. Guðjónsson, sem nýverið
hófu afplánun á Kvíabryggju
á Snæfellsnesi, búa í einbýlis
húsi með gufubaði á fangelsi
slóðinni. Húsið, sem er 180 fermetr
ar, var upphaflega byggt sem heimili
fyrir forstöðumann Kvíabryggju en
því var breytt í vistarverur fyrir fanga
fyrir nokkrum árum. Í húsinu er full
búið eldhús, sem íbúar hússins hafa
aðgang að, auk þess sem þeir hafa að
gang að internetinu og farsímum sín
um allan sólarhringinn. Þrjú einstakl
ingsherbergi eru í húsinu og deila þeir
Jón Þorsteinn og Ragnar Z. því með
öðrum fanga, Jóni Sverri Bragasyni,
sem dæmdur var fyrir barnaníð gegn
einhverfum dreng árið 2010.
Afplána 14 til 16 mánuði
Þeir Jón Þorsteinn og Ragnar Z.
voru í sumar dæmdir í fjögurra ára
fangelsi fyrir umboðssvik í Exeter
Holdingsmálinu svokallaða. Um
boðssvikadómurinn byggir á því að
þeir Jón Þorsteinn og Ragnar Z. hafi,
sem stjórnarformaður og forstjóri
Byrs, misnotað aðstöðu sína þegar
þeir létu sparisjóðinn lána einka
hlutafélaginu Exeter Holdings millj
arða króna til uppkaupa á verðlitl
um stofnfjárbréfum í Byr sem meðal
annars voru í eigu þeirra sjálfra. Millj
arðurinn rann frá Byr til MP Banka
sem hafði lánað þeim fyrir kaupum á
stofnfjárbréfunum en bankinn hafði
hótað að hemja innheimtuaðgerðir
gegn þeim ef lánin yrðu ekki greidd.
Af þessum fjórum árum er lík
legt að þeir þurfi að afplána um
tvö ár. Líklegt má telja að þeir þurfi
að dvelja á Kvíabryggju í fjórtán til
sextán mánuði áður en þeir fara
á Vernd í Reykjavík, í átta til tíu
mánuði. Á Vernd geta þeir stundað
launavinnu á daginn og unnið að því
að gerast þátttakendur í samfélaginu
á nýjan leik eftir betrunarvistina.
DV flutti á mánudaginn frétt af því
að Jón Þorsteinn Jónsson hefði á síð
asta ári og þessu staðið í stórfelldum
fjármagnsflutningum með erlendan
gjaldeyri frá Íslandi. Flutningarnir
voru látnir líta út sem um eðlileg
lánaviðskipti hefði verið að ræða.
Þetta var gert vegna gjaldeyrishafta
laganna sem verið hafa í gildi á Ís
landi frá hruninu 2008.
Ólíkar aðstæður
Á Kvíabryggju eru vistaðir 23 fangar
en hinir 20 fangarnir búa í stóru húsi
sem er staðsett um 200 metra frá ein
býlishúsinu. Þeir fangar búa í einstak
lingsherbergjum og hafa ekki aðgang
að sömu aðstöðu: fullbúnu eld
húsi, internetinu allan sólarhringinn
eða farsímum sínum – klukkan ell
efu að kvöldi er slökkt á internetinu
í stóra húsinu og klukkan níu þurfa
fangarnir að afhenda farsímana sína
yfir nóttina. Aðbúnaður þeirra þriggja
manna sem búa í einbýlishúsinu er
því nokkuð betri en aðbúnaður hinna
tuttugu fanganna.
Sú staðreynd að þeir Jón Þor
steinn og Ragnar Z. búa í þessu
húsi þýðir að þeir geta í reynd verið
nokkuð út af fyrir sig, kjósi þeir svo,
meðal annars geta þeir eldað og etið
þar í einrúmi. Þá er gufubaðið, sem
upphaflega var byggt fyrir forstöðu
mann fangelsisins og tekur fjóra til
sex baðgesti í einu, ekki ætlað öðrum
föngum en þeim sem búa í húsinu
hverju sinni.
Þar að auki er enginn fangavörður
sem gætir íbúanna þriggja, sem búa
í einbýlishúsinu, yfir nóttina, líkt og
í tilfelli hinna tuttugu – einn fanga
vörður gætir fanganna tuttugu á nótt
unni. Einungis ein öryggismyndavél
er við einn aðalinnganginn af þremur
á húsinu. Því er ljóst að föngunum á
Kvíabryggju þykir keppikefli að fá að
búa í einbýlishúsinu þar sem aðbún
aðurinn þar er betri.
,,Ætlað betri mönnum“
Heimildarmaður DV, sem þekkir
vel til á Kvíabryggju, segir að í hús
inu fái yfirleitt að búa menn sem
eru „betri menn“: „Þetta er ætlað
svona betri mönnum. Þetta er bara
klíka hverjir eru vistaðir hverju sinni
þarna upp frá . Forstöðumaðurinn
ræður þessu,“ segir heimildarmað
ur DV. Heimildarmaður DV vildi ekki
fara nánar út í það hvað hann ætti
við með betri mönnum en ýjaði að
því að stéttaskipting og bakgrunnur
manna gæti einnig skipti máli innan
veggja fangelsa, opinna eða lokaðra.
Af einhverjum ástæðum, sem
eru DV ókunnar, fengu þeir Jón Þor
steinn og Ragnar Z. að flytja beint
inn í áðurnefnt einbýlishús, jafnvel
þó að fyrir á Kvíabryggju hafi verið
aðrir fangar sem horfðu löngunar
augum á það aukna frelsi og þá
bættu aðstöðu sem búseta í því hefði
falið í sér fyrir þá. n
„Þetta er
ætlað
svona betri
mönnum.
Betri aðstaða Þeir Jón Þorsteinn og
Ragnar Z. þurfa ekki að búa í stóra húsinu á
myndinnni með hinum föngunum tuttugu.
Þeir búa út af fyrir sig í einbýlishúsi með
fullbúnu eldhúsi og gufubaði.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is