Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Blaðsíða 38
Nýjar áherslur
38 Lífsstíll 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
Gervihúð sem grær og nemur snertingu
n „Þetta er nú eiginlega tímamótaskref“
V
ísindamönnum við Stanford-
háskóla hefur nú tekist að búa
til gervihúð – efni sem nemur
snertingu og getur gróið aftur,
verði það fyrir skaða. „Þetta er nú
eiginlega tímamótaskref,“ segir efna-
fræðingurinn John Boland, sem var
ekki hluti af teyminu sem hannaði
gervihúðina, við miðilinn Live Sci-
ence. „Þetta er í fyrsta sinn sem ein-
hverjum tekst að skapa efni sem get-
ur gert við sig bæði með rafmagni
sem og á vélrænan máta.“
Gervihúðin var búin til með
fjölliðu, plastkenndu efni sem inni-
heldur nikkelatóm. Fjölliðan – eða
gerviefnið – samanstendur af móle-
kúlum sem geta tengst aftur eftir að
samband þeirra hefur rofnað. Þetta
veldur því að efnið getur tengst aftur,
ef það er skorið í sundur. Nikkel veld-
ur því að efnið nemur snertingu, því
það leiðir rafmagn. Sé snúið upp á
gervihúðina, eða hún kreist, breikkar
bilið á milli nikkelatómanna og flæði
rafmagnsins í gegnum það breytist.
Það nemur því snertingu.
Í tilkynningu um efnið á vef Stan-
ford-háskóla er greint frá því að hægt
sé að skera efnið í tvennt ítrekað og
það mun ætíð sameinast aftur ásamt
því að endurheimta fyrri styrk og
sveigjanleika. Flæði rafmagns í gegn-
um það verður aftur samt. Það tekur
um fimmtán sekúndur að gróa, sé
það skorið í tvennt og skornu endun-
um otað saman aftur. n
simon@dv.is
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
M
argir hafa spurt mig hvern-
ig þeir eigi að fara að því
að hefja heilsuátak. Svarið
er ekki einfalt. Í vikunni
hitti ég tæplega sextugan leigu-
bílstjóra sem árum saman hefur
horft á fjallið sitt, Helgafell í
Hafnarfirði, en aldrei haft sig í
að ganga. „En nú ætla ég að fara
í næstu viku,“ sagði hann með
alvöruþunga og hét
því að hverfa úr
draumheimi
fjallgöngu-
mannsins yfir
í raunveruleik-
ann. Ég hef ekki
hugmynd um hvort
leigubílstjórinn fer í næstu viku.
En ég vona það svo sannarlega.
Kveikjan að því að ég fór að
ganga á fjöll var samstarfsmaður
minn sem hafði verið feitur en
tók á því með fjallgöngu. Hann
messaði um nauðsyn þess að
miðaldra fólk borð-
aði hollan mat
og gengi á fjöll.
Sjálfur hafði
hann náð frá-
bærum árangri
í klifri sínu.
Framtak hans
hafði enda vakið þjóðarathygli.
Ég fylgdist með honum af aðdá-
un, auðmýkt og dálítilli öfund.
Sjálfur var ég í þá daga alltof
feitur og reykti í ofanálag. Ég var
lifandi uppskrift að hjartaáfalli.
Árangur hans varð mér hvatning
til að hætta að horfa á fjöll og taka
fyrsta skrefið.
Reynsla mín af heilsurækt var
þónokkur. Varla var til sá vestræni
megrunarkúr sem ég hafði ekki
reynt á eigin skinni og maga. Ég
hafði enda verið eins
og flóð og fjara
og sveiflaðist í
þyngd um 20 til
40 kíló. Ég þurfti
að eiga þrefald-
an lager af föt-
um. Buxnastærð-
irnar sem ég átti voru
á bilinu 34 til 44. Ég var í víta-
hring en sá þó alltaf ljósið með
reglubundnu millibili. Eitt sinn
var ég í heilsuræktarátaki með
Guðna Ágústssyni í Sporthúsinu.
Þá náði ég að léttast um 30 kíló í
nokkurra mánaða átaki. Það fór
í hundana einn sunnudaginn
þegar ég ætlaði í ræktina en snéri
við á bílastæðinu og fór heim í
sófann. Síðan hef ég ekki komið í
heilsuræktarstöð.
Það eru komin tæp tvö ár frá
því hvatning samstarfsmannsins
varð til þess að ég fór á fjöll. Að
baki eru yfir 600 fjallgöngur.
Stundum hef ég ætlað að hætta
við göngu en beitt sjálfan mig
hörku og haldið áfram. Þökk sé
samstarfsmanninum.
Í dag er staðan reyndar sú að
fyrirmyndin mín er ekki á fjöll-
um. Í upphafi ársins gaf hún fyrir-
heit um 100 fjall-
göngur. En það
fór fremur illa
og efndir urðu
litlar. Fyrir-
myndin heldur
sig á jafnsléttu
þessa dagana.
Sjálfur veit ég af áhættunni. Ef
einbeitingin hverfur og viljinn
dvín er víst að jafnsléttan verður
hlutskipti mitt. Og þá er stutt í að
flóðið taki við af fjörunni. Inni í
mér bærist offitusjúklingur sem
þráir að brjótast út. En ég leyfi
það ekki fyrr en í fulla hnefana. Í
næstu viku mun ég spyrjast fyrir
um leigubílstjórann sem horfði
á fjallið. Vonandi náði hann að
leggja bílnum og reima á sig
fjallaskóna.
Leigubílstjóri
horfir á fjall
n Royal Extreme selt í Topshop n Vinnur að nýrri línu fyrir Andersen og Lauth
R
oyal Extreme er nú fáanlegt
í verslunum Topshop og
E Label á Laugavegi. Una
Hlín Kristjánsdóttir fata-
hönnuður sagði frá þessu
nýverið. Um er að ræða leðurjakka
og leðurbuxur, sokka og sokkabux-
ur, silkikjóla og silkisamfestinga og
fatnað úr jersey-efni. „Þetta eru vin-
sælustu vörur línunnar,“ segir hún í
stuttu spjalli við blaðamann DV.
Nýjar áherslur
Una Hlín hefur nóg fyrir stafni
þessa dagana. Hún tók við sem yf-
irhönnuður hjá Andersen og Lauth
fyrir nokkrum mánuðum og hefur
unnið hörðum höndum að nýrri
línu. Hún segist vilja bera virðingu
fyrir sögu merkisins en á sama tíma
vilji hún gera áherslubreytingar í
sínum anda. Fyrstu ljósmyndir af
nýrri línu birti hún á Facebook-síðu
sinni og segir ekki langt þangað til
hún geti að fullu tjáð sig um nýjar
áherslur. „Ég verð með áherslu-
breytingar en ber virðingu fyrir
sögu merkisins,“ segir hún og lofar
að aðdáendur merkisins verði ekki
sviknir og að auki voni hún að hún
geti aflað nýrra með nýjum áhersl-
um en Una Hlín er til dæmis þekkt
fyrir notkun sína á silki, leðri og
kögri auk þess sem hún er óhrædd
við að nota liti og mynstur. n
kristjana@dv.is
Silki Í Top Shop munu
fást flíkur frá merki Unu
Hlínar, Royal Extreme.
Þar á meðal kjólar í
þessum anda.
Leður og litir
Una Hlín notast
mikið við leður og
er óhrædd við að
nota liti.
Yfirhönnuður
Andersen & Lauth
Una Hlín hefur tekið við
hönnun á línu Andersen
og Lauth og nýverið
birti hún þessa mynd af
afrakstri síðustu vikna.
Gervihúð Efnið sameinast aftur sé það
skorið í sundur, en það er úr plastkenndri
fjölliðu. Mynd:Stanford-háskóli