Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Blaðsíða 52
Daníel þorði
ekki að leika
52 Fólk 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
16.–18. nóvember
Föstudagur16
nóv
Laugardagur17
nóv
Sunnudagur18
nóv
Rokk í 55 ár
Á þessum aukatónleikum Rokk í 55 ár
verður gamla góða rokkið heiðrað þegar
13 rokksöngvarar stíga á svið. Fram koma
meðal annarra; Þorsteinn Eggertsson,
Bertha Biering, Stefán Jónsson, Mjöll
Hólm, Garðar Guðmundsson, Anna Vil
hjálmsdóttir og Helena Eyjólfsdóttir.
Salurinn 20.00
Jólahátíð í Viðeyjarstofu á
aðventunni
Það verður mikil veisla í eynni fögru fram
að jólum þar sem Sigríður Thorlacius og
Guðmundur Óskar skemmta gestum og
leika undir borðhaldi. Boðið verður upp á
fjögurra rétta matseðil og er veislan í boði
fyrir hópa og einstaklinga.
Viðeyjarstofa 19.00
Skemmtikvöld í Gamla Bíó
Sambandsmiðlun heldur spennandi
skemmtikvöld þar sem hin sívinsælu
Helga Braga og Ari Eldjárn halda uppi
fjörinu með sprenghlægilegu uppistandi.
Daníel Geir Moritz, sem var valinn fyndn
asti maður Íslands árið 2011, verður kynnir
kvöldsins. Auk þess verður boðið upp á
ferskt sushi frá suZushii og Vífilfell sér um
veigar í byrjun kvölds.
Gamla Bíó 20.00
Skonrokk í Silfurbergi
Flutt verður klassískt gullaldarrokk
sem allir sannir rokkunnendur verða að
upplifa, aftur og aftur. Bestu rokk
söngvarar þjóðarinnar leggja fram krafta
sína ásamt magnaðri hljómsveit. Magni,
Eyþór Ingi, Páll Rósinkranz, Pétur Guð
munds og Biggi Haralds flytja rjómann af
bestu rokklögum allra tíma.
Silfurberg í Hörpu 20.00
Wadada Leo Smith
Þessi fremsti djasstrompetleikari
samtímans hefur einnig getið sér gott
orð sem tónskáld og hlotið fjölda viður
kenninga á yfir fimmtíu ára ferli. Heim
sókn Wadada Leo Smith er skipulögð
í samvinnu Jazzhátíðar Reykjavíkur og
sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík.
Kaldalón í Hörpu 20.00
n Fyndnasti maður Íslands þreytir frumraun í leikhúsi
M
ig hafði langað í Stúdentaleik-
húsið frá því ég byrjaði í
Kennaraháskólanum árið
2005, en hafði aldrei þorað
því,“ segir Daníel Geir Moritz, fyndn-
asti maður Íslands árið 2011. Hann
þreytir frumraun sína á leiksviði með
Stúdentaleikhúsinu á föstudagskvöld
í verkinu Nashyrningar sem verður
frumsýnt í Norðurpólnum. „Leikur-
um finnst oft skrýtið þegar ég segist
ekki þora í leikhúsið því margir þora
ekki að vera með uppistand, en ég hef
verið eitthvað feiminn við þetta. Þetta
listform er eitthvað svo allt öðruvísi.“
Daníel steig sín fyrstu skref í uppi-
standi í keppninni um fyndnasta
mann Íslands árið 2007 og gekk þá
ágætlega, að eigin sögn. „Árið 2009
ákvað ég að hella mér út í þetta og er
búinn að vera í þessu síðan. Ég hef til
dæmis ekki þurft að vinna venjulega
vinnu síðan í apríl á þessu ári.“
Sagði feimninni stríð á hendur
Þegar Daníel, sem er menntaður
leik- og grunnskólakennari og er á
öðru ári í meistaranámi í ritlist við
Háskóla Íslands, frétti að Árni Krist-
jánsson myndi leikstýra verkinu,
ákvað hann að segja feimninni stríð
á hendur og slá til. „Ég sé ekki eft-
ir því. Þetta er snilldarhópur sem
er búinn að vinna mikið að þessari
sýningu. Það er mikið í lagt en þetta
gæti auðvitað ekki gengið ef það væri
ekki svona góður mórall í hópnum.“
Hann segir að vissulega sé það klisja,
en þannig sé það bara í leikhúsinu.
Mórallinn skipti miklu máli. Daníel er
líka mjög ánægður með það hvernig
leikstjórinn hefur virkjað leikhópinn
til að koma með hugmyndir sem gætu
bætt sýninguna.
„Gríðarlega spenntur“
Nashyrningar er heimspekilegt
absúrd leikverk eftir franska leik-
skáldið Eugéne Ionesco og fjallar
um lítinn bæ þar sem bæjarbúar fara
skyndilega að breytast í nashyrn-
inga. „Þetta verk er svo stórkostlegt og
möguleikarnir endalausir. Og það er
mjög opið til túlkunar hvað það þýðir
að breytast í nashyrninga. Okkar nálg-
un á það hefur verið þessi hjarðhegð-
un og sú tilhneiging að gera eitthvað
bara af því allir aðrir eru að gera það.“
Daníel leikur hlutverk rökfræðings
í sýningunni sem reynir að útskýra
allt út frá rökfræðilegu sjónarhorni.
„Bilið á milli uppistandarans og rök-
fræðingsins er ekki mikið og ég held
að það hafi spilað inn í að ég hafi ver-
ið valinn í þetta hlutverk,“ segir hann
hlæjandi.
Daníel er mjög spenntur fyr-
ir frumsýningunni en generalprufa
fór fram á miðvikudaginn og gekk
hún mjög vel. „Ég er alveg gríðarlega
spenntur að sjá hvernig þetta mun
lifna allt við.“n
Feiminn við leik-
sviðið Daníel Geir
var valinn fyndnasti
maður Íslands í
fyrra en hefur alltaf
verið hræddur við
leikhúsið.
Gestir tóku litla sopa
n Huldar Breiðfjörð fagnaði með gestum
Ú
t er komin ljóða- og athuga-
semda bókin Litlir sopar, eftir
Huldar Breiðfjörð. Af því til-
efni tók Huldar Breiðfjörð á
móti vinum og vandamönnum í Ey-
mundsson í Austurstræti á fimmtu-
dag og þar voru að sjálfsögðu teknir
litlir sopar honum til heiðurs.
Fögnuðu með vini
Bjargey, Hallgrím
ur, Sigrún og Vera
fögnuðu með Huldari.
Félagar
Magnús Orri
og félagi.
Tóku litla
sopa Huldar
Breiðfjörð og
Teitur Atlason.