Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Blaðsíða 50
50 Fólk 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað „Þið haldið að Þið Þekkið hana“ n Selena Gomez hlaut heiðursverðlaun Glamour-tímaritsins n Fjöldi merkra kvenna heiðraður G lamour-tímaritið í Banda- ríkjunum hefur valið konur ársins 2012. Atburðurinn vekur ávallt athygli og vand- að er til valsins. Í ár voru verðlaunaðar Selena Gomez, Annie Leibovits ljósmyndari, Zaha Hadid arkitekt, Lena Dunham handrits- höfundur, Sharmeen Obaid-Chin- oy baráttukona, gullverðlaunahafar Ólympíuleikanna, Ethel og Rory Kennedy, Jenna Lyons stílisti með meiru, Erin Merryn, sem steig fram og sagði frá grófu kynferðisofbeldi sem hún var beitt, og Ruth Bader Ginsborg hæstaréttadómari, sem hefur barist alla tíð í karlaveldi. Selena lifði á 190 krónum á dag Mesta athygli vakti að Selena Gomez hlaut heiðursverð- launin. „Þið haldið að þið þekkið hana, en það gerið þið ekki,“ sagði ritstjórinn í ræðu um verð- launin. Selena er yngsti sendiherra Sam- einuðu þjóðanna og hefur helgað sig hjálparstarfi síðustu misseri. Hún ferðaðist til Gana á árinu með foreldrum sínum og ræddi um reynslu sína. „Ferðin breytti lífi mínu um alla framtíð. Þarna léku börn sér með plastflöskur sem þau höfðu fest saman með gúmmí- teygjum svo úr varð bolti. Þau voru svo hamingjusöm í leik. Ég held að í lífi okkar hér, þá væntum við of mikils, það þarf svo mikið til að hafa ofan af fyrir okkur. Og þessi börn þrá menntun. Ég hataði heimavinnuna, þau þrá hana. Það er undursamlegt.“ Selena vakti einnig athygli á árinu þegar hún tók þátt í heimsátaki um fátækt og lifði á 190 krónum á dag. „Það var virkilega góð lífsreynsla,“ sagði Selena sem hefur þroskast hratt síðustu ár og vex sem fyrir- mynd ungs fólks í Bandaríkjunum. Merkar listakonur heiðraðar Ljósmyndarinn Annie Leibovits fékk verðlaun fyrir framlag sitt til lista. „Það eru nokkur atriði sem teljast til vegsauka í Hollywood, eitt þeirra er að vera myndaður af Annie Leibovitz,“ var sagt um verðlaun hennar. Önnur merk listakona var í sviðsljósinu þetta kvöld, hún er kölluð „The Z“ og Lady Gaga arkitektúrheimsins. Hún er Zaha Hadid, 62 ára arkitekt sem fyrst kvenna vann til Pritzker arkitektúr-verðlaunanna. (Nokkurs konar nóbelsverð- laun arkitektúrheimsins). Það kom fáum á óvart að Lena Dunham var á með- al verðlaunahafa, en hún sló í gegn á heimsvísu fyrir þætti sína Girls hjá HBO-sjónvarps- þáttastöðinni. Gegn sýruárásum á konur Sharmeen Obaid-Chinoy var einnig valin kona ársins. Hún er 34 ára baráttukona sem hefur barist fyrir réttindum kvenna. Sér í lagi hefur hún vakið athygli á sýruárás- um á konur í Mið-Austur löndum. „Það tekur eina sekúndu að eyði- leggja líf konu,“ segir hún. „Þú þarft leyfi til að kaupa byssu en á mörgum stöðum er hægt að kaupa sýru hjá kaupmanninum á horn- inu og skvetta því í andlit konu. Frá þeirri stundu er hún lifandi dauð.“ Sharmeen hefur bent á þá óhugn- anlegu staðreynd að 1.200 konur verða fyrir sýruárásum víða um heim á hverju ári. Leyndi meðgöngu og barðist Hæstaréttardómarinn Ruth Bader Ginsborg er kona ársins að mati Glamour. Hún var ein níu kvenna sem útskrifuðust sem lögfræðingar frá Harvard-háskóla fyrir um fimmtíu árum. Henni var neitað um starf sem lögfræðingur vegna þess að hún var kona. Þegar hún varð lögfræðiprófessor nokkrum árum seinna, neyddist hún til að leyna meðgöngu sinni fyrir vinnu- félögunum til þess að halda velli á vinnustaðnum. Hún barðist alla tíð fyrir sömu launum fyrir sömu vinnu og hefur breytt miklu fyrir framgang kvenna í lögfræðistétt í Bandaríkjunum. Selena Gomez Heiðursverðlaunahafinn í ár var Selena Gomez. Chelsea Clinton Chelsea var gestur á athöfninni og mætti í þessum fallega mynstraða kjól frá Mary Katrantzou. Jenna Lyons Einn verðlaunahafa, Jenna Lyons, mætti kvenleg í herralegum fötum. Hvít skyrta og fallega sniðnar síðbuxur og að sjálfsögðu slaufa. Fylgihlutir eru í aðalhlutverki, gleraugun, eyrnalokkar í yfirstærð og fallegir skór njóta sín vel. Solange Knowles Systir Beyoncé er mikil tískudrottning og var svöl að vanda í kjól frá Derek Lam. Allyson Felix Allyson Felix, sem fékk ólympíugull fyrir sund, klæddist hafmeyju- kjól frá Veru Wang. Julianna Margulies Aðal- stjarna þáttanna The Good Wife klæddist Chado Ralph Rucci-kjól og var einkar glæsileg. Lena Dunham Einn verðlaunahafa, Lena Dunham, mætti í dökkbláum kjól frá Roksanda Ilincic og frábærum hælaskóm. Þeir voru hins vegar svo óþægilegir að hún fann sig knúna til að fara úr þeim þegar hún tók á móti verðlaunum sínum. Annie Leibovitz Það verður varla nokkur frægur án þess að hann sé myndaður af Annie. Hún var verðlaunuð fyrir framlag sitt. Sharmeen Obaid-Chinoy Baráttukona heiðruð. Hér er hún m eð fórnarlambi sýruárásar. 1.200 konur verða fy rir slíkri árás á hverju ári. Ruth Bader Ginsborg Ruth er hæsta-réttardómari og hefur háð harða baráttu til að fá að starfa við það sem hún vildi. Sem ung kona leyndi hún meðgöngu sinni til að halda velli á meðal vinnufélaganna. „The Z“ Önnur merk listakona var í sviðs-ljósinu þetta kvöld, hún er kölluð „The Z“ og Lady Gaga arkitektúrheimsins. Hún heitir Zaha Hadid.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.