Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Side 10
10 Fréttir 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
Léleg mæting þingmanna:
Áhugalausir
um eigin
siðareglur
Mikil fjarvera fjölda þingmanna
undanfarið hefur valið talsverðum
erfiðleikum í störfum þingsins.
Í síðustu viku gekk erfiðlega að
manna atkvæðagreiðslur um þing-
mál og dæmi um að það hafi rétt
náðst, með herkjum, að tryggja
lágmarksfjölda þingmanna til að
greiða atkvæði en minnst 32 þarf
til. Hafa ber í huga að þingmenn á
Alþingi Íslendinga eru 63.
DV hefur heimildir fyrir því að
fjarveru stórs hluta þingmanna
undanfarið megi rekja til þess að
þeir hafi verið uppteknir við að
tryggja eigin framtíð og endurkjör
í íslenskum stjórnmálum í ýmist
prófkjörs- eða forvalsprófkjörs-
baráttu. Þingmenn eru því margir
á ferðalagi um kjördæmi sitt
meðan þingstörf þeirra sitja á
hakanum.
Þingmaður sem DV ræddi við
kvaðst hreinlega hneykslaður
á kollegum sínum. „Þeir eru í
vinnutímanum um allar trissur að
reyna að stuðla að eigin endur-
kjöri á fullum launum.“
Hann bendir á að þetta gæfi
þar að auki þingmönnum sem
berðust um sæti á lista flokka
ósanngjarnt forskot á mótfram-
bjóðendur sem ekki gætu leyft sér
að ferðast um í baráttunni á full-
um launum.
Sjaldan hefur mætingin verið
jafn döpur og í síðustu viku þegar
ákveðið var, á fyrirframgefnum
nefndarfundartíma í þinginu, að
slá öllum þeim fundum saman í
einn stóran fund um siðareglur
þingmanna.
Ekki fór betur en svo að á fund-
inn vantaði 40 af 63 þingmönnum.
DV bar málið undir Helga Bern-
ódusson, skrifstofustjóra Alþingis.
Helgi segir í skriflegu svari til DV
að það sé grundvallarmisskilning-
ur að vinnustaður alþingis manna
sé bara Alþingishúsið.
„Hann er líka meðal kjósenda,
í kjördæmi og nánast um allt land.
Þannig er það líka í öllum þjóð-
þingum þar sem ég þekki til,“ segir
Helgi.
„Vissulega eiga þingmenn að
sækja þingfundi; það segja þing-
sköp. En það getur enginn ætlast
til þess að allir þingmenn (og ráð-
herrar) sitji prúðir í fasi frá upp-
hafi þingfunda til loka þeirra.
Þeir verða að forgangsraða. Og
það stendur yfirleitt ekki upp á
þá þegar mikilvægustu atkvæða-
greiðslurnar fara fram.“
Um lélega mætingu á nefndar-
fundi segir Helgi það vissulega
bagalegt þegar þingmenn sæki
þá ekki en þeir geti gripið til vara-
manna eða staðgengla ef þarf.
„Að því er varðar fund um
siðareglur þingmanna þá var þar
engin skyldumæting; það var
hvers og eins þingmanns að meta
hvort hann teldi gagn að því að
mæta þar, en reglurnar munu
auðvitað koma til afgreiðslu á
þingi og í nefnd þegar þar að
kemur.“
BREGÐA FÆTI FYRIR
RAMMAÁÆTLUNINA
n Fjórir Samfylkingarþingmenn draga lappir n Sundrung innan flokksins „Hann er á góðum
degi alveg grænn,
en maður veit aldrei alveg
hvar maður hefur hann. F
jórir þingmenn Samfylkingar-
innar hafa ekki lýst yfir ein-
dregnum stuðningi við
rammaáætlun ríkisstjórnar-
innar um vernd og orkunýt-
ingu landsvæða. Samkvæmt heim-
ildum DV eru þetta þeir Árni Páll
Árnason, Björgvin G. Sigurðsson,
Kristján Möller og Sigmundur Ern-
ir Rúnarsson en aðrir þingmenn
stjórnar flokkanna styðja tillöguna
óbreytta. Græna netið, félag jafnað-
armanna um náttúruna, umhverfið
og framtíðina, sendi út ályktun í vik-
unni þar sem skorað er á þingmenn
Samfylkingarinnar að gefa upp af-
stöðu sína til málsins. Þar kemur fram
að vissir þingmenn hafi haft uppi orð
um fyrirvara, hjásetu og jafnvel mót-
atkvæði.
Þingmenn þegja
Stefnt er að því að rætt verði um mál-
ið á þinginu í næstu viku. „Ég hef
kallað eftir því á vettvangi míns eigin
flokks að menn geri upp hug sinn en
það hafa ekki allir greint frá afstöðu
sinni,“ segir Mörður Árnason, fram-
sögumaður tillögunnar. „Við erum
ekki alveg búin að ganga frá þessu
en ég tel líklegast að við mælum fyrir
samþykkt tillögunnar óbreyttrar.
Ég er nokkuð viss um meirihluta í
málinu en ég veit ekki nákvæmlega
hvernig hann verður,“ segir Mörður.
„Rammaáætlunin er ekki kom-
in út úr þingnefnd svo ég viti,“ segir
Björgvin G. „Menn bara taka afstöðu
til þingmála þegar þau koma inn í
þingflokkinn. Ég hef alltaf verið mik-
ill stuðningsmaður rammaferilsins.“
Samkvæmt heimildum DV ríkir
nokkur óánægja innan flokksins
vegna þessarar óvissu. Rætt var um
rammaáætlun á flokksstjórnarfundi
flokksins þann 17. nóvember og sagði
þá Mörður Árnason flokkssystkinum
sínum frá því að nokkrir þingmenn
Samfylkingarinnar hefðu ekki sagt
hug sinn. Hann nefndi engin nöfn en
hvatti þó viðkomandi þingmenn til
að gera flokksmönnum grein fyrir af-
stöðu sinni. Enginn þeirra tók til máls.
„Ég hef ekki sveiflast neitt“
Þremur dögum síðar, þann 20.
október, talaði Björgvin G. Sigurðsson
tæpitungulaust um viðhorf sín til
virkjanamála á ársþingi Samtaka
sunnlenskra sveitarfélaga á Hellu.
Lýsti hann því yfir að hann væri virkj-
anasinni og ósáttur við rammaáætl-
un ríkisstjórnarinnar. Björgvin hvatti
til þess að ráðist yrði í virkjanafram-
kvæmdir á Suðurlandi og nefndi
Hagavatnsvirkjun í Bláskógabyggð og
Hólmsárvirkjun í Skaftárhreppi auk
Hvammsvirkjunar og Holtavirkjunar
í neðri hluta Þjórsár.
Athyglisvert er að rifja upp að sum-
arið 2008 lýsti Björgvin yfir eindreg-
inni andstöðu við virkjanir í Þjórsá og
sagðist hvergi mundu hvika frá þeirri
afstöðu. „Svo sannarlega er ég á móti
þessum áformum eins og oft hefur
fram komið,“ skrifaði hann á vefsíðu
sína. „Við þessi viðhorf mín hef ég
staðið og mun standa.“
Þegar Björgvin var spurður hvort
hann hefði sveiflast í afstöðu sinni til
virkjana í Þjórsá hafnaði hann því al-
farið. „Ég hef ekki sveiflast neitt í sjálfu
sér. Ég er náttúrulega sammála því að
klárað sé að rannsaka öll álitaefni áður
en tekin verður ákvörðun um þetta, en
það liggur bara ekki fyrir nein niður-
staða í málinu,“ segir hann. „Þetta
er ekki svona svart og hvítt. Ég talaði
til dæmis fyrir því að Urriðafoss yrði
settur í nefnd en ekki nýtingu. Ég var
líka sáttur við þau rök sem komu fram
í vor, að rannsaka þyrfti betur fiski-
stofna í ánni áður en hún yrði virkjuð.“
Árni Páll krafinn svara
Árið 2007 gagnrýndi Árni Páll Árna-
son stóriðjustefnu Sjálfstæðisflokks-
ins harkalega og sagði flokkinn standa
vörð um „sovéskt efnahagskerfi í stór-
iðjusölu“. Því vekur athygli að Árni sé
á meðal þeirra fjögurra þingmanna
sem hér er rætt um. Dofri Hermanns-
son, varaborgarfulltrúi Samfylkingar-
innar og formaður Græna netsins,
skrifaði harðorðan pistil á Smuguna á
dögunum þar sem hann krafðist þess
að Árni Páll gerði grein fyrir afstöðu
sinni til rammaáætlunar. „Það sem ég
á erfitt með að þola er að menn sem
vilja leiða flokkinn skuli láta sér detta
það í hug að leggjast gegn einu helsta
stefnumáli hans,“ sagði Dofri í samtali
við DV stuttu eftir að grein hans birt-
ist.
Árni Páll svaraði Dofra á Face-
book á fimmtudaginn og sagði með-
al annars: „Ég hlakka til afgreiðslu
hennar [rammaáætlunar, innskot
blaðamanns] og bíð eftir að hún
verði afgreidd úr nefnd. Þá sjáum við
óbreyttir þingmenn hvernig okkar
fólk í nefndunum sem um málið fjall-
ar leggur málið upp, hvort gerðar
verði breytingar og hvernig rökstuðn-
ingur verður settur fram.“
Dofri virðist ekki vera eini um-
hverfisverndarsinninn innan Sam-
fylkingarinnar sem hefur efasemdir
um afstöðu Árna Páls. Einn af heim-
ildarmönnum DV innan flokksins
sem ekki vildi láta nafns síns getið
hafði þetta að segja um formanns-
frambjóðandann: „Hann er á góðum
degi alveg grænn, en maður veit
aldrei alveg hvar maður hefur hann.“
Svik við stefnu flokksins
Umsögnum átti að skila fyrir 1. nóv-
ember en að sögn Marðar Árnason-
ar hefur umsögn atvinnuveganefndar
ekki enn borist. Dofri Hermanns-
son hefur hneykslast á þessu. Á vef-
síðu sinni varar hann við hvers kyns
„tafataktík“ og veltir því fyrir sér hvort
orðið hafi meirihlutaskipti í atvinnu-
veganefnd Alþingis.
Í samtali við DV bendir Dofri á
að yfirlýst stefna Samfylkingarinn-
ar í umhverfismálum byggist á yfir-
lýsingunni Fagra Ísland sem flokk-
urinn lagði fram árið 2006. Þar er
lögð sérstök áhersla á svokallaða var-
úðarreglu í ákvarðanatöku en flokk-
urinn hvikaði að nokkru leyti frá
þessari stefnu í ríkisstjórnarsamstarf-
inu við Sjálfstæðisflokkinn. „Núna
erum við hins vegar í stjórnarsam-
starfi með Vinstri-grænum og við
getum ekki kennt þeim um neinar
málamiðlanir,“ segir Dofri. „Við eigum
að standa við stefnumál flokksins. Við
verðskuldum skort á trúverðugleika
eftir Kárahnjúka en við höfum verið
að taka okkur á. Og þegar brugðið
er fæti fyrir svona mál þá dregur það
mjög úr þeim trúverðugleika sem við
erum að reyna að byggja upp að verð-
leikum.“
Niðurstöður flokksvals Samfylk-
ingarinnar í Norðausturkjördæmi
benda til þess að þar eigi stóriðju-
stefnan fylgi að fagna. Kristján L.
Möller, einn helsti talsmaður stóriðju-
stefnu innan flokksins, leiðir listann
og í öðru sæti er Erna Indriðadóttir,
upplýsingafulltrúi Alcoa í Reyðarfirði.
Sigmundur með fyrirvara
„Ég hef verið með fyrirvara á málinu,“
segir Sigmundur Ernir og bætir við:
„Ég var óánægður með að ramma-
áætlunin skyldi tekin út úr atvinnu-
veganefnd og færð yfir í umhverfis- og
samgöngunefnd. Ég vil að sem flestir
séu ánægðir með rammaáætlun og er
þess vegna ekki sérlega ánægður með
síðari tíma inngrip.“ Eins eru þing-
menn Sjálfstæðisflokksins óánægðir
með þann farveg sem málið er í og
í samtali við Ríkisútvarpið harmaði
Birgir Ármannsson að málið færi úr
þingnefndinni í sama ágreiningi og
það hefði komið inn í þingið. Ekki
náðist í Kristján L. Möller við vinnslu
fréttarinnar. n
Þegja um afstöðu sína Þessir fjórir þingmenn Samfylkingarinnar hafa ekki lýst yfir stuðningi við rammaáætlun ríkisstjórnarinnar.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Dofri Hermannsson Formaður Græna
netsins og varaborgarfulltrúi Samfylkingar-
innar sakar þingmennina um að vinna gegn
stefnu flokksins.