Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Blaðsíða 20
20 Erlent 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
B
rotthvarf Davids Petraeus
úr stóli æðsta yfirmanns
bandarísku leyniþjónust
unnar, CIA, á dögunum vakti
undrun margra enda hafði
Petraeus átt langan og flekklausan
feril að baki fyrir bandaríska herinn.
Eins og málshátturinn segir komast
svik upp um síðir og var það framhjá
hald Petraeus með ævisagnaritara
sínum, Paulu Broadwell, sem kost
aði hann starfið og batt enda á ára
tugaferil hans hjá æðstu stofnunum
Bandaríkjanna. Málið hefur vakið
mikla athygli vestanhafs undanfarna
daga og þykir um margt sérstakt, ekki
síst í ljósi þess að það var bandaríska
alríkislögreglan, FBI, sem kom upp
um framhjáhaldið sem talið var ógn
við þjóðaröryggi Bandaríkjanna.
Framúrskarandi námsmaður
David Petraeus fæddist 7. nóvem
ber 1952 og er því nýorðinn sextug
ur. Faðir hans var sjóliði hjá hol
lenska hernum en móðir hans var
bókavörður. Petraeus ólst upp í
CornwallonHudson skammt norð
ur af New York og lauk mennta
skólagráðu árið 1970. Eftir það var
förinni heitið í West Pointskólann,
herskóla sem rekinn er af bandaríska
hernum, þar sem Petraeus var með
al annars í knattspyrnu og skíðaliði
skólans. Námsárangur Petraeus þótti
framúrskarandi og lauk hann prófi
frá skólanum árið 1974. Í árbók skól
ans voru þau orð höfð um hann að
hann gæfi ávallt allt sitt í öll verkefni
sem hann tæki sér fyrir hendur og
tæki að sér hlutverk leiðtoga. Tveim
ur mánuðum eftir útskrift kvæntist
Petraeus núverandi eiginkonu sinni,
Holly Knowlton, sem hann kynntist í
West Pointskólanum.
Kleif metorðastigann
Petraeus hélt skólagöngu sinni áfram
eftir útskrift og sótti sér fleiri gráður í
herskólum á vegum Bandaríkjahers.
Hann útskrifaðist með doktorsgráðu
í alþjóðasamskiptum frá Princeton
háskóla árið 1987 og fékk síðan
kennslustarf hjá bandaríska hernum.
Petraeus var fljótur að klifra upp
metorðastigann og fékk ýmis verk
efni hjá bandaríska hernum. Hann
sinnti meðal annars verkefnum fyrir
NATO á Haítí árið 1995 og fékk í kjöl
farið stöðu hjá bandaríska varnar
málaráðuneytinu. Óhætt er að segja
að Petraeus hafi komið víða við á ferli
sínum en stóra skrefið kom þó árið
2007 þegar hann var skipaður æðsti
hershöfðingi Bandaríkjahers í Írak.
Petraeus þótti standa sig vel í Írak og
flutti sig um set árið 2010 þegar hann
tók við sömu stöðu í Afganistan. Þar
staldraði hann stutt við því haustið
2011 tók enn stærra verkefni við
þegar Barack Obama Bandaríkja
forseti skipaði hann í stöðu yfir
manns CIA. Skipan Petraeus kom
fáum á óvart á þeim tíma, enda
báru fulltrúar stjórnmálaturnanna
tveggja, demókrata
og repúblikana, allt að
því ótakmarkað traust
til hans enda hafði
hann sýnt hæfileika
sína sem sannur leið
togi og föðurlandsvin
ur. Petraeus var með
al annars nefndur sem
hugsanlegt forsetaefni
Repúblikanaflokksins
fyrir forsetakosning
arnar 2016.
Óvenju mikið traust
Konan sem allt snýst
um í þessu stóra hneykslismáli heitir
Paula Broadwell. Hún hitti Petraeus
fyrst árið 2006 þegar hann hélt ræðu
fyrir útskriftarnema við Harvardhá
skóla. Broadwell, sem fæddist í nóv
ember 1972, var að ljúka prófi við
opin bera stjórnsýslu og gaf sig á tal
við hann eftir ræðuhöldin og lýsti yfir
miklum áhuga á störfum hans fyrir
bandaríska herinn. Svo fór að Broad
well fékk nafnspjald hans og fór þess
síðar á leit við hann að hann sam
þykkti að verða viðfangsefni doktors
ritgerðar hennar. Petraeus er sagð
ur hafa tekið vel í þá beiðni og héldu
þau nánu sambandi eftir þetta og
funduðu reglulega um verkefnið. Að
lokum fór þó svo að ritgerðin þróaðist
út í ævisögu Petraeus sem kom loks út
í janúar á þessu ári.
Framhjáhaldið er sagt hafa byrjað
í nóvember í fyrra, eða skömmu eftir
að Petraeus var gerður að æðsta yf
irmanni CIA. Margt bendir þó til
þess að það hafi byrjað mun fyrr því
Petraeus og Broadwell eyddu löngum
stundum saman meðan Petraeus
gegndi störfum sínum í Afganistan.
Þetta vakti furðu náinna samstarfs
manna Petraeus enda hafði Broad
well enga reynslu af bókaskrifum og
þótti samstarfsmönnum Petraeus
einkennilegt hversu mikið traust
hann bar til hennar.
Broadwell á tvo unga syni með
eiginmanni sínum sem er geisla
fræðingur en henni er lýst sem dæmi
gerðri fótboltamömmu sem var valin
drottning útskriftarballsins í mið
skóla.
Nafnlausar hótanir berast
Ástarsambandið virðist hafa farið
nokkuð leynt fyrst um sinn. Hjólin
fóru þó að snúast í maí þegar kona
að nafni Jill Kelley tilkynnti nafnlaus
ar hótanir sem henni höfðu borist í
tölvupósti. Kelley, sem er fjölskyldu
vinur Petraeus og eiginkonu hans,
hafði samband við ónafngreindan
vin sinn hjá FBI sem tilkynnti málið
til netglæpadeildar FBI sem hóf rann
sókn á málinu. Eftir nokkurra vikna
rannsókn kom í ljós að hótunarbréf
in komu úr tölvu Paulu Broadwell en
efni þessara hótunarbréfa hefur enn
ekki verið opinberað. Við rannsókn á
tölvu Broad well í sumar kom í ljós að
hún hafði átt í miklum samskiptum
við Petraeus – samskiptum sem voru
ekki beinlínis á faglegum nótum held
ur gáfu til kynna að þau ættu í ástar
sambandi. Í kjölfarið var æðsta yfir
manni FBI, Robert Mueller, tilkynnt
um málið og við rannsókn málsins
voru bæði Petraeus og Broadwell köll
uð til yfirheyrslu.
Síðsumars var Eric Holder, dóms
málaráðherra Bandaríkjanna, upp
lýstur um málið en rannsókn máls
ins hjá FBI var þó hvergi nærri lokið.
Upp úr miðjum október var Broadwell
aftur kölluð til yfirheyrslu hjá FBI og
þann 29. október var Petraeus einnig
kallaður í sína aðra yfirheyrslu. Þegar
þarna var komið sögu höfðu þau bæði
játað fyrir fulltrúum FBI að hafa átt í
ástarsambandi.
Vondur afmælisdagur
Það var svo þann 6. nóvember, sama
dag og forsetakosningarnar í Banda
ríkjunum fóru fram, að dómsmála
ráðuneytið tilkynnti James Clapper,
yfirmanni leyniþjónustumála hjá
bandarísku ríkisstjórninni, um
n David Petraeus er sannur föðurlandsvinur n Hélt framhjá með ævisagnaritaranum n Orðaður við forsetaframboð
Skandallinn Sem felldi
flekklauSa foringjann
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Á þessu yfirlitskorti gefur að líta aðdragandann að því að David
Petraeus ákvað að segja af sér sem æðsti yfirmaður CIA.
Aðdragandinn að afsögn Davids Petraeus
Heimild: Reuters
F. Chan, 12/11/2012
2006
Broadwell lætur verða að því að heast handa við doktorsritgerð sína og
leitar til Petraeus sem býður henni að hitta sig í Washington.
2008
Petraeus er settur í embætti æðsta yfirmanns hersins í
Afganistan. Broadwell fer þangað og hittir hann.
2010
Paula Broadwell hittir David Petraeus við útskrift sína við Harvard-háskóla.
Fulltrúar FBI kalla
Broadwell til yfirheyrslu.
Fulltrúar FBI kalla Petraeus
til yfirheyrslu.
Fréttamiðlar greina frá
því að konan sem
kvartaði upphaflega til
FBI sé Jill Kelley,
ölskylduvinur
Petraeus og eiginkonu
hans.
James Clapper,
yfirmaður
leyniþjónustu-
mála ríkis-
stjórnarinnar,
fær vitneskju
um málið.
Petraeus hittir
Obama og býður
afsögn sína.
Obama tekur sér
tíma til að taka
ákvörðun.
Obama
hringir í
Petraeus og
samþykkir
afsögn hans.
Clapper ráðleggur
Petraeus að stíga til
hliðar og lætur Hvíta
húsið vita að Petraeus
gæti sagt af sér vegna
málsins. Obama er
upplýstur um málið.
Petraeus hættir hjá
Bandaríkjaher eftir
áratuga þjónustu.
Petraeus
verður
yfirmaður CIA.
Ævisaga Petraeus eftir
Paulu Broadwell kemur
út.
FBI fær kvörtun um hótanir í
gegnum tölvupósta frá
Kelley. Þær eru raktar til
Broadwell. Í kjölfarið kemst
upp um framhjáhald
Petraeus og hennar.
Áttu í ástarsambandi
2011 2012
J F M A M J J Á S O N D J F M A M J J Á S O N D
Október Nóvember
2120 22 23 24 25 26 27 28 29 30 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13
Saman á mynd Petraeus og Broadwell sjást hér saman á mynd sem var tekin í Afganistan
13. júlí árið 2011.
Tekur við CIA Petraeus sést hér í septem-
ber 2011 sverja embættiseið í Washington.
Við hlið hans stendur Joe Biden, varaforseti
Bandaríkjanna. MyNd ReuTeRS
Hátt fall Petraeus var
orðaður við forsetaframboð
fyrir Repúblikanaflokkinn
árið 2016. Eftir flekklausan
feril hefur Petraeus neyðst
til að segja af sér embætti.
MyNd ReuTeRS