Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Síða 32
Í
búar ensku hafnarborgarinnar
Hull í Jórvíkurskíri fylltust óhug
síðla árs 1924. Tíðindi höfðu
borist um væntanlega reynslu-
lausn dæmds morðingja, Bills
Burkitt, úr fangelsi þar sem hann
hafði afplánað dóm vegna morðs
í níu ár. Íbúar Hull höfðu vonað í
lengstu lög að Bill afplánaði sinn tólf
ára dóm, sem dómarinn hafði kveðið
upp, og helst gott betur.
Bill Burkitt framdi sitt fyrsta morð
27. ágúst 1915. Þá var Bill 29 ára
og fórnarlambið, sem hann stakk
nokkrum sinnum í hálsinn, var 35
ára ástkona hans, Mary Tyler. Mary
var gift sjómanni sem sökum vinnu
sinnar var langdvölum að heiman.
Þegar Bill hafði fyrirkomið Mary
og var að yfirgefa heimili hennar
rakst hann á börn Mary, sem voru að
koma heim úr kvikmyndahúsi. Bill
stöðvaði son Mary og sagði: „George,
taktu þennan lykil og fyrsta lögreglu-
mann sem þú sérð skalt þú fara með
heim til þín, þar muntu finna móður
þína dána.“
Eilíft nöldur
Bill reyndi aldrei að þræta fyr-
ir morðið á Mary og réttað var yfir
honum í nóvember 1915. Verjandi
Bills gaf þá skýringu á verknaði Bills
að hann hefði síknt og heilagt þurft
að hlusta á nöldrið í henni. Merki-
legt nokk þá þótti dómara sú ástæða
engan veginn réttlæta gjörðir Bills
og aftók með öllu að milda ákæruna
úr morði í manndráp vegna nöldurs
konunnar – slíkt byði hættunni
heim. Bill var sakfelldur fyrir morð
og dæmdur til tólf ára erfiðisvinnu,
í samræmi við það sem þá tíðkaðist.
En árið 1924 fékk Bill sem sagt
reynslulausn. Hann beið ekki boð-
anna og hóf samband við gifta konu,
sem reyndar hafði skilið við mann
sinn að borði og sæng. Sú hét Helen
Spencer og var 34 ára.
Bill tók upp fyrri iðju, en hann
hafði verið fiskimaður fyrrum.
Veiðarnar gerðu að verkum að Bill
þurfti að vinna á næturnar í stað
þess að hvíla í hlýrri dyngju ástkonu
sinnar. Innan skamms fór hann að
ímynda sér að Helen væri honum
ótrú, en þegar hann bar það upp á
hana varð hún fyrst og fremst stein-
hissa – en reyndar líka svo gott sem
dauð.
Reyndi sjálfsvíg
Raunveruleikinn hafði ekkert að gera
í ímyndunarafl Bills Burkitt og greip
hann hníf og rak í hálsinn á Helen
og datt hún dauð niður. Við sýnina
af blóðugum líkama Helenar rank-
aði Bill við sér. Hann var þess fullviss
að nú myndi hann enda í gálganum,
ekki hugnaðist honum sú framtíðar-
sýn og greip til þess ráðs að reyna að
svipta sig lífi með gasi.
Tilraun Bills mistókst því nágrann-
ar höfðu heyrt skelfingarvein Helenar
og kallað til lögreglu. Eftir að Bill hafði
jafnað sig af gaseitruninni var hon-
um enn og aftur fleygt í grjótið og síð-
an fyrir dóm. Hann var sekur fundinn
um manndráp og dæmdur til tíu ára
erfiðisvinnu – böðullinn yrði að bíða
hans enn um sinn.
í Dartmoor-fangelsinu fékk Bill
viðurnefnið Járnkarlinn og hann bað-
aði sig í ljóma þess að hafa tvisvar
sloppið við gálgann. Hann hafði tvö
húðflúr á hægri handlegg – mynd-
ir af legsteinum. „Þið sjáið ekki mörg
heiðursmerki á borð við þessi,“ gumaði
hann af. „Þetta merkir að ég hef stútað
tveimur. Ekki bara einni – tveimur!“
Þriðja konan
En Bill losnaði úr fangelsi enn og
aftur og náði sér, reglu samkvæmt, í
nýja konu, gifta tveggja barna móð-
ur sem var skilin að borði og sæng.
Sú hét Emma Brooks, var 38 ára, lag-
leg og hrifning hennar af Bill var tak-
markalaus.
En, ef eitthvað var að marka frá-
sögn Bills síðar, Emma virtist fá eitt-
hvað út úr því að espa hann upp og
í febrúar 1939, innan við ári eftir að
hann losnaði úr fangelsi reitti Emma
Bill til reiði í síðasta skipti.
Reyndar fór Bill ekki út úr húsi
í nokkra daga eftir að hann myrti
Emmu. Það var ekki fyrr lyktin af
rotnandi líki Emmu varð honum um
megn sem hann sá sitt óvænna og yf-
irgaf íbúðina.
Í kjölfar morðsins virtist sem Bill
iðraðist gjörða sinna og reyndi að
svipta sig lífi með því að innbyrða
600 aspiríntöflur, en hann hafði ekki
erindi sem erfiði.
Einhverra hluta vegna var Bill
ekki dæmdur til dauða. Hann var
aftur á móti dæmdur til að verja því
sem hann átti eftirlifað við strit inn-
an fangelsismúranna. Árið 1954
var hann settur á sjúkradeild vegna
ólæknandi krabbameins og var þar
þangað til hann geispaði golunni að
kveldi jóladags 1956. n
32 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
morð var Brasilíumaðurinn Pedro Rodrigues Filho sakfelldur fyrir. Hann var fjórtán ára þegar hann
framdi sitt fyrsta morð. Þá myrti hann aðstoðarbæjarstjóra Alfenas í Brasilíu eftir að hann rak föður hans úr
vinnu. Pedro gat ekki hætt að drepa eftir þetta og myrti meðal annars föður sinn eftir að hann réðst á móður
hans. Pedro var handtekinn árið 1973 og dæmdur í lífstíðarfangelsi, eða rúmlega 30 ár. Þar tók ekki betra við
því hann myrti 47 fanga meðan hann afplánaði. Pedro losnaði úr fangelsi árið 2007 og gengur enn laus.71
Moldríkur frum-
kvöðull í vond-
um málum
Tæknigúrúinn og frumkvöðull-
inn John McAfee er eftirlýstur af
lögreglunni í Belís vegna gruns
um að hafa orðið bandarískum
manni, Gregory Faull, að bana.
McAfee er einna þekktastur fyr-
ir að hafa stofnað vírusvarna-
fyrirtækið McAfee. Hann byrj-
aði með tvær hendur tómar en
byggði fyrirtæki sitt upp og gerði
það að sannkölluðu stórveldi.
Árið 2010 seldi hann það til In-
tel og fékk í sinn hlut um sjö
milljarða dala, eða um 900 millj-
arða íslenskra króna, á núver-
andi gengi.
McAfee hefur búið í Belís
um nokkurt skeið en um síð-
ustu helgi fannst lík Bandaríkja-
mannsins Gregory Faull. Líkið
fannst í íbúð Faull og var hann
með skotsár á höfði. Faull var
nágranni McAfee og höfðu þeir
samkvæmt bandarískum fjöl-
miðlum eldað grátt silfur saman
um nokkurt skeið. Þannig er
Faull sagður hafa tilkynnt um
afbrigðilega hegðun McAfee til
lögreglu nokkrum dögum áður
en hann dó.
Bandaríski fréttamiðillinn
ABC News fjallaði ítarlega um
málið á dögunum og þar kom
fram Faull og fleiri nágrannar
höfðu kvartað undan „grimm-
um“ hundum sem McAfee
hafði á lóð sinni. Þá höfðu þeir
kvartað undan vopnuðum og
aðgangshörðum öryggisvörð-
um sem gættu heimilis McAfee.
Faull virðist hafa verið í farar-
broddi nágrannanna sem höfðu
lagt inn formlega kvörtun til yf-
irvalda vegna þessa. Í kvörtun-
inni kom fram að íbúar væru
óttaslegnir um öryggi sitt vegna
öryggisvarðanna sem gengu
ógnandi um götur með hagla-
byssur.
Ekkert hefur spurst til
McAfee síðan um síðustu helgi
en þó er talið að hann hafi ekki
yfirgefið Belís. Samkvæmt ABC
neitar McAfee að hafa orðið
Faull að bana en í samtali við
veftímaritið Wired segir McAfee
að yfirvöld í Belís hafi horn í
síðu hans og vilji hann helst
feigan. McAfee, sem er orðinn
67 ára, segir að hann hafi gert
breytingar á útliti sínu; litað á
sér hárið, skeggið og augabrún-
irnar, til að forðast lögreglu. „Ég
lít trúlega út eins og morðingi
núna, því miður.“
Faull fannst látinn á sunnu-
dagsmorgun og var hann með
skotsár á hnakkanum. Ekkert
benti til innbrots í íbúð hans
en þó var búið að taka fartölvu
hans og farsíma. McAfee hefur
verið í samskiptum við Wired
undanfarna daga og í samtali
við vefmiðilinn segir hann að
eitrað hafi verið fyrir hundun-
um sínum og auk þess hafi fjórir
þeirra verið skotnir. Þegar hann
frétti að Faull hefði verið skot-
inn til bana hafi hann flúið af
ótta við að verða sjálfur drepinn.
Hann telur að um samsæri gegn
sér sé að ræða. Á næstu dög-
um muni hans hins vegar tjá sig
nánar um málið en þangað til
ætli hann að vera áfram í felum.
n Bill Burkitt myrti þrjár konur n Þær nöldruðu of mikið, að hans sögn
JÁRNKARLINN
„Þetta
merkir
að ég hef stút-
að tveimur. Ekki
bara einni –
tveimur!
FRÁ HULL
Bill Burkitt Slapp við gálgann þrátt fyrir þrjú morð.