Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Síða 56
Gott dæmi um verðsamanburð
Íslendingar eiga ekki bara að versla heima á
Íslandi af góðmennsku við kaupmenn heldur
eiga þeir að hugsa um budduna og versla þar
sem það er hagstæðast fyrir þá.
SPORTS DIRECT Á ÍSLANDI - SMÁRATORGI 1 - KÓPAVOGI
WWW.FACEBOOK.COM/SPORTSDIRECTISLAND
Með því að vera hluti af stærstu íþróttaverslunarkeðju Bretlands
getur Sports Direct boðið samkeppnishæf verð á heimsmarkaði
– hér á Smáratorgi!
Þess vegna er Sports Direct ódýrast – gerið samanburð!
Gátu þau
ekki snúið
Illuga til
vinstri?
Mötuneyti
þingmanna
n Veitingastaðurinn Bergs
son er orðinn eins konar ann
að mötuneyti þingmanna.
Veitingastaðurinn er við hlið
þinghússins, í Templarasundi,
og eru þingmenn algengir með
al gesta staðarins í hádeginu. Á
fimmtudag voru til að mynda
þingmennirnir Magnús Orri
Schram, Margrét Tryggvadóttir
og Ragnheiður Elín Árnadóttir á
staðnum og gæddu sér á góðum
mat. Matsölustaðurinn virðist
því þverpólitískur. Reynar má
við þetta bæta að fjárfestirinn
Heiðar Már Guðjóns-
son er reglulegur
gestur á Bergs
son en þar er
boðið upp á dýr
indis rétti sem
flestir eiga það
sameiginlegt að
vera meinholl
ir.
Harpa yrði að
tollhúsi
n „Ef skemmtiferðaskipalægi
yrði fundinn staður við Skúla
götu mætti hugsa sér að
Harpa gæti nýst sem glæsilegt
aðkomu hús eða terminal,“ segir
Björn Jón Bragason í yfirlýsingu
sem send er í nafni Samtaka
kaupmanna og fasteignaeigenda
við Laugaveg, en hann er fram
kvæmdastjóri samtakanna. Lagt
er til að tollskoðun fari fram í
tónlistar og ráðstefnuhúsinu.
Björn Jón bendir á að „vart er til
svo fátækt ríki í Karabíska hafinu
að þar sé ekki skemmtiferða
skipalægi alveg við
miðbæi viðkom
andi höfuðstaða“.
Nú er bara að
bíða og sjá hvern
ig borgaryfirvöld
taka í hugmyndina
um að gera Hörpu
að tollhúsi.
Sylvía í Games
of Thrones
n Tökulið á vegum ævintýra
þáttanna vinsælu Games of
Thrones er væntanlegt til
landsins en þriðja þáttaröðin
verður tekin upp að hluta hér á
landi líkt og önnur þáttaröðin.
Fjölmargir Íslendingar munu
koma að vinnslu þáttanna að
þessu sinni, eins og raunar
síðast. Þeirra á meðal er
listakonan Sylvía Dögg Halldórs-
dóttir, einnig þekkt undir
listamannsnafninu Lovetank,
sem er að fara að vinna við
búningagerð fyrir þættina.
Þættirnir, sem eru á meðal
þeirra allra vinsælu
stu vestanhafs um
þessar mundir og
því gæti verið um
töluvert uppgrip
að ræða fyrir
Sylvíu og kollega
hennar enda er
í þáttunum mik
ið lagt upp úr
búninga
hönnun.
F
réttamaðurinn Logi Bergmann
Eiðsson þykir hinn mesti
hrekkjalómur og hafa ófá
ir orðið fyrir barðinu á hon
um. Í vikunni kom út bók eftir Loga,
Handbók hrekkjalómsins, þar sem
hann segir frá reynslu sinni og leggur
öðrum hrekkjalómum lífsreglurnar.
Meðal fórnarlamba Loga eru
þjóðþekktir einstaklingar á borð við
Gísla Martein Baldursson, Hemma
Gunn, Elínu Hirst og Sölva Tryggva
son. Þá segir frá því í bókinni hvern
ig Logi og Svanhildur kona hans um
byltu heimili vinafólks síns, þeirra
Illuga Gunnarssonar þingmanns
og Brynhildar Einarsdóttur eigin
konu hans. Eitt sinn ætluðu Logi og
frú að heimsækja þau, en enginn var
heima og íbúðin ólæst. „Og þá varð
ekki aftur snúið: Við tókum alla stof
una þeirra og snerum henni við. Við
lögðum mikið upp úr því að ná full
kominni speglun, þannig að sófa
settið, sem var vinstra megin, fór
í hinn enda stofunnar,“ segir Logi
í bókinni. „Það sama gerðist með
sófaborðið, borðstofuborðið, nokkra
stóla, sjónvarpið og allt sem var
hreinlega ekki naglfast. Svo fórum
við,“ viðurkennir hann. Seint um
kvöld sama dag hringdi Brynhildur
og var henni mikið niðri fyrir. Kom í
ljós að Illugi hafði verið í útlöndum
en Brynhildur ein heima. Hún hafði
hringt í bróður sinn sem velti því fyrir
sér hvort hér hefði ef til vill Vala Matt,
þáttastjórnandi Innlits/útlits, verið
að verki.
Í bókinni segir einnig frá hrekkj
um sem aðrir en Logi eiga heiður
inn af. Þá má nefna það þegar Helgi
Seljan fréttamaður breytti afmælis
deginum hennar Þóru Arnórs
dóttur, samstarfskonu sinnar, á Face
book og gerði stöðuuppfærsluna „er
ammalideppa“ í hennar nafni. n
Stofu þingmannsins snúið við
n Logi Bergmann og frú hrekktu Illuga Gunnarsson þingmann og eiginkonu hans
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 16.–18. nóvEMBER 2012 133. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Hrekkti þingmann Logi Bergmann og
Svanhildur eiginkona hans fífluðust inni á
heimili Illuga og Brynhildar.