Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2012, Side 10
J
ón getur reynt að þræta fyr-
ir sína framkomu en það voru
vitni að þessum atburði. Það
var að mínu mati rétt ákvörð-
un af dómara að sekta hann
fyrir þessa ósæmilegu hegðun,“ seg-
ir Bryndís Eiríksdóttir, aðstandandi
Portúgala sem í vikunni hlaut miska-
bætur vegna líkamsárásar. Hæsta-
réttarlögmaðurinn Jón Egilsson var
verjandi annars mannsins sem kraf-
inn var um bætur vegna árásarinn-
ar. Dómurinn dæmdi Jón til greiðslu
réttarfarssektar að upphæð 100.000
krónur fyrir ósæmilega hegðun í
réttarsal.
Sýndi hvernig hræddur maður
hegðar sér
Í aðsendri grein á vefmiðlinum
Pressunni segist Jón með látbragði
sínu hafa verið að sýna hvernig
hræddur maður hegðar sér. Grein
Jóns ber yfirskriftina „Umbjóðandi
sýknaður en lögmaðurinn sektaður
– bannað að lýsa hræðslueinkenn-
um“.
Einkamál hafi verið höfðað á
hendur umbjóðanda hans vegna
áfallastreituröskunar. „Eftir að hafa
lesið um áfallastreituröskun og lagt
fram gögn fræðimanna um þessa
„ofsahræðslu“ fyrir dóminn var und-
irritaður f.h. umbjóðanda síns sann-
færður um að brotaþoli hefði ekki
orðið svona hræddur í deilunum
eða átökunum í nóvember 2006.“
Fræðileg skilgreining röskunarinn-
ar sé meðal annars að viðkomandi
hafi upplifað hræðilega ógn sem
geri honum ókleift að hugsa, tjá sig
eða hegða sér á venjulegan hátt.
Ógnin setji allt innra jafnvægi við-
komandi í uppnám. „Til að undir-
strika þessi sjónarmið umbjóðanda
síns sýndi undirritaður, þegar þessi
málsástæða var til umfjöllunar í
málflutningsræðu, hvernig hrædd-
ur maður hegðar sér og þá í þeim
tilgangi að sýna fram á að það hefði
ekki farið fram hjá lögreglumönn-
um, vitnum, læknum og hjúkrunar-
fólki enda hefðu þá allir veitt ofsa-
hræðslu brotaþola athygli,“ skrifar
Jón.
Misbauð virðingu dómsins
Þess má geta að í vottorðum lækna
og dómkvaddra matsmanna kemur
fram að fórnarlambið beri talsverð
einkenni áfallastreituröskunar.
Annar maðurinn var dæmdur til
að greiða manninum miskabætur
að upphæð 3,3 milljónir króna en
hinn maðurinn, umbjóðandi Jóns,
var sýknaður af þeirri kröfu.
Dómurinn taldi að Jón hefði
verið að leika stefnanda kjökrandi
að hringja í lögmann sinn vegna
málsins. Með því hefði hann mis-
boðið virðingu dómsins. „Í mál-
flutningsræðu sinni hermdi [...] Jón
Egilsson hrl., á niðurlægjandi hátt
eftir stefnanda, sem viðstaddur
var þinghaldið ásamt aðstandend-
um sínum, er hann lék stefnanda
kjökrandi að hringja í lögmann
sinn vegna málsins,“ segir í niður-
stöðu dómsins.
Áður dæmdur til sektar
Bryndís segir við DV að henni hafi
misboðið framganga Jóns í réttar-
salnum. Þá sé hann í grein sinni að
reyna að gera lítið úr þeim atburði
sem þolandinn varð fyrir. Dóm-
arinn hafi í nokkur skipti þurft að
biðja Jón að halda sér við efnið og
að hann hafi sýnt fórnarlambi árás-
arinnar lítilsvirðingu.
Hún segir einnig að í greininni
á Pressunni haldi hann fram hlut-
um sem dómurinn hafi hrakið, til
dæmis um það hvernig aðdragandi
árásarinnar var.
Eins og fréttamiðillinn Vís-
ir greindi frá er þetta ekki í fyrsta
sinn sem Jón Egilsson er dæmdur
til réttarfarssektar. Árið 2005 stað-
festi Hæstiréttur Íslands niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem
dæmdi hann til greiðslu sektar fyrir
óvirðingu. Í niðurstöðu Hæstarétt-
ar sagði: „Af hljóðupptöku frá aðal-
meðferð málsins í héraði er ljóst að
verjandinn hefur komið ósæmilega
fram í dómsal, eins og nánar er skýrt
í forsendum héraðsdóms, og sýnt
réttinum fádæma óvirðingu.“
„Rétt ákvöRðun
að sekta hann“
10 Fréttir 3.–5. febrúar 2012 Helgarblað
Fjögurra ára fangelsi
n Hrottafengin nauðgun við flugvöllinn
T
veir erlendir karlmenn, Arka-
diusz Zdzislaw Pawlak og
Rafal Grajewski, voru dæmd-
ir í fjögurra ára fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag
fyrir sérlega hrottafengna nauðgun í
október síðastliðnum. Að auki þurfa
mennirnir að greiða fórnarlambinu
1,2 milljónir króna í miskabætur.
Mennirnir lokkuðu konu upp í bif-
reið sína á Laugavegi þann 16. októ-
ber. „You look cold,“ sögðu þeir við
hana, buðu henni upp í bílinn og
óku með hana að Reykjavíkurflug-
velli þar sem þeir nauðguðu henni.
Mennirnir hafa setið í gæsluvarð-
haldi síðan þeir voru handteknir.
Konan reyndi að telja mönn-
unum tveimur trú um að hún væri
smituð af HIV-veirunni til þess að
fá þá til að hætta en það bar ekki
árangur. Hún mun hafa öskrað á
mennina, en þá tók ökumaðurinn
hana hálstaki og barði hana í höfuð-
ið. Þegar þessu var lokið óku menn-
irnir með konuna til baka. Hún
áttaði sig á því hvar hún var þeg-
ar hún var rétt hjá Skipholti og fór
úr bílnum og sagðist búa þar. Hún
mun hafa hlaupið í gegnum nokkra
garða og bankaði á endanum á dyr
hjá manni sem hleypti henni inn og
hringdi á lögregluna.
Mennirnir játuðu að hafa tekið
konuna upp í bílinn og ekið að flug-
vellinum. Hins vegar sögðu þeir að
eðlileg kynferðisleg samskipti hefðu
farið fram og ekki nauðgun. Fram-
burður þeirra var ekki samhljóða og
sögðust þeir við aðalmeðferð máls-
ins hvor hafa horft á konuna hafa
munnmök við hinn. Framburður
þeirra var metinn ótrúverðugur.
Það er mat lögreglunnar að fyrir
liggi skýr framburður konunnar og
að athuganir lögreglu styðji frásögn
hennar.
baldur@dv.is
„Dómurinn taldi að
Jón hefði verið að
leika stefnanda kjökrandi
að hringja í lögmann sinn
vegna málsins.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Ósátt Bryndís segir Jón hafa gert lítið úr
fórnarlambi árásarinnar.
n Vildi sýna hvernig hræddur maður hegðar sér n Misbauð dómurum
Dæmdur Jón Egilsson þarf að greiða 100 þúsund krónur fyrir hegðun sína í réttarsal.
MynD: Fréttablaðið/SteFÁn KarlSSon
allt í loft í Kópavogi:
Vilja ekki
Vinstri græna
„Það lagðist mjög þungt í sjálf-
stæðismenn,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi, um að Vinstri
grænir þyrftu að koma að meiri-
hlutaviðræðunum með Samfylk-
ingunni og Sjálfstæðismönnum.
Flokkurinn er klofinn í afstöðu
sinni til meirihlutaviðræðna í
bænum, sagði Guðríður Arnar-
dóttir, oddviti Samfylkingarinnar í
Kópavogi, í viðtali við Ríkisútvarp-
ið. Viðræðunum var slitið á mið-
vikudag eftir að Ármann Kr. mætti
einn sjálfstæðismanna til fundar.
Sagði Ármann hluta sjálfstæðis-
manna hafa viljað ganga einungis
til meirihlutaviðræðna við Sam-
fylkinguna.
„Mörgum sjálfstæðismönnum
fannst það sérstakt að ekki væri
hægt að ræða meirihluta án þess
að Vinstri grænir kæmu að við-
ræðunum. Ég óskaði eftir því á
sínum tíma að ræða við Samfylk-
inguna eina,“ segir Ármann sem
bætir við að það hafi verið mjög
skýr krafa að hálfu Samfylkingar-
innar að Vinstri grænir kæmu að
meirihlutaviðræðunum.
„Það var niðurstaðan sem þá
lá fyrir,“ segir Ármann. „Við gátum
myndað góðan meirihluta bara
með Samfylkingunni, þá hefðum
við verið með sjö manns í meiri-
hluta, og það var mjög sérstakt að
reyna það ekki fyrst.“
Ákæran kom-
in á dagskrá
Ákæra gegn fyrrverandi sund-
laugarstarfsmanni í sundlaug-
inni í Varmahlíð er komin á dag-
skrá Héraðsdóms Norðurlands
vestra. Þinghald í málinu er lokað
þar sem um kynferðisbrot er að
ræða. Það er einnig ástæða þess
að nafns mannsins sé ekki getið
í dagskránni eins og venjan er í
flestum málum. Manninum er
gefið að sök að hafa tekið myndir
í búningsklefa kvenna í sundlaug-
inni með falinni myndavél. Ákær-
an verður þingfest í héraðsdómi 7.
febrúar næstkomandi. Samkvæmt
heimildum DV hefur maðurinn
játað sök í málinu.
Öllum sagt
upp á Herjólfi
Öllu starfsfólki Herjólfs, 40
manns, hefur verið sagt upp
störfum vegna þess að núgild-
andi samningur Eimskipa og
Vegagerðarinnar um rekstur
skipsins rennur út í lok apríl.
Gunnlaugur Grettisson, rekstr-
arstjóri Herjólfs, sagði í samtali
við Eyjafréttir að einnig hefði
öllum samningum við birgja og
þjónustuaðila verið sagt upp.
„Ríkið stefnir að því að bjóða
verkefnið út á næstu vikum með
það fyrir augum að nýr samn-
ingur taki gildi 1. maí 2012 og
gildi þar til ný ferja verður tekin
í notkun árið 2015,“ sagði Gunn-
laugur. Þetta setji starfsmenn í
erfiða stöðu og skapi óöryggi.
Dæmdir „You
look cold,“
sögðu þeir við
fórnarlambið.