Fréttatíminn - 20.11.2015, Side 14
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Sími 555 4789
SELFOSS
Sími 482 3949
Bættu árangurinn!
Íþróttagleraugu með og án styrkleika.
V ilhjálmur ólst upp í Laugar-neshverfinu, elsti sonur Vil-hjálms H. Vilhjálmssonar
lögmanns og Fríðu S. Kristinsdótt-
ur myndlistarkonu. Móðir hans seg-
ir hann hafa verið afskaplega rólegt
barn og hvers manns hugljúfi, mik-
inn lestrarhest og góðan við yngri
bræður sína. Fjölskyldan hafi verið
samhent og mikið stundað útivist
og íþróttir.
Vilhjálmur hóf snemma að spila
fótbolta með Þrótti og varð einn
af lykilmönnum liðsins sem vann
sér sæti í úrvalsdeildinni 1997.
„Villi var vinstri bakvörður, öflugur
fótboltamaður, með ágætan leik-
skilning, kröftugur og grjótharður
varnarmaður. Hann gaf alltaf allt
í leikinn og var með fínar spyrn-
ur,“ segir þjálfari þess liðs. „Villi
er „genetískur vinstri bakvörður“,
grjótharður forystusauður, fylginn
sér, kappsamur, skemmtilegur og
rökfastur. Hann naut sín vel í því
hlutverki að sjá um að hita upp fyr-
ir leik og „koma mönnum í gírinn“.
Sumum fannst nú reyndar kannski
fullmikill kraftur og æsingur í hon-
um á stundum sérstaklega þegar
hann „lúðraði“ í andlitið á mönnum
svona rétt fyrir leik. Þessir eigin-
leikar fleyttu honum langt en hann
hefði eflaust náð lengra ef hugur
hans og skoðanir hefðu einskorð-
ast við fótbolta. Hann hafði skoðan-
ir á öllu og þurfti helst að vera alls
staðar. Pólitík og lögfræði toguðu,
oft skorti því að setja fótboltann í
1. sæti og samhliða er hann mikill
nautnabelgur, óagaður á því sviði og
því sjaldan í því keppnisformi sem
fótboltinn á hæsta gæðastigi gerir
kröfur til.“
Vilhjálmur fór í Verzlunarskól-
ann, þótt faðir hans legði mikla
áherslu á að hann færi í MR sem
væri eini skólinn sem skipti máli,
og þaðan lá leiðin í lagadeild HÍ.
Hann lét til sín taka í stúdentapóli-
tíkinni, var formaður Stúdentaráðs
fyrir Röskvu og ætlaði sér stóra
hluti í pólitík. Í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar 1999 lenti hann í 10. sæti
á lista í Reykjavík og var að sögn
sampólitíkusa ekki par ánægður
með það. „Ég man eftir honum hálf-
grátandi á kosninganótt,“ segir einn
þeirra. „Hann er ekki maður sem
sættir sig við að ná ekki árangri.“
Pólitískum ferli Vilhjálms lauk þeg-
ar upp komst að hann hafði tekið
heilu kaflana upp úr grein eftir ann-
an mann í lokaritgerð sinni við laga-
deildina án þess að geta heimilda.
„Það kom mér á óvart,“ segir fyrr-
Grjótharður
forystusauður
og óagaður
nautnabelgur
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður er án vafa einn umdeildasti
maður landsins þessa dagana eftir framgöngu sína í Hlíða-
málinu svokallaða. Femínistar kalla hann hinn ónefnanlega og
kommentakerfin loga af svívirðingum um hann. Þeir sem næstir
honum standa kannast þó ekki við það skrímsli sem þar er málað
upp. Segja hann vissulega harðan og fylginn sér, á köflum óag-
aðan, en skemmtilegan og traustan félaga í sinn hóp.
arið 2007 varð Vilhjálmur meðeig-
andi á Lögfræðistofu Reykjavíkur
og sinnti þar lögmannsstörfum
til vorsins 2013. Þann 1. júní 2013
opnaði Vilhjálmur eigin lögmanns-
stofu. Sem lögmaður hefur Vil-
hjálmur verið mjög áberandi enda
með eindæmum yfirlýsingaglaður
verjandi sem gjarna hefur tekið að
sér að verja menn sem samfélagið
hefur ekki samúð með. „Lögmenn
flestir dást að þessari elju Villa að
nenna að taka þennan slag í fjöl-
miðlum og hljóta að launum for-
dæmingu almennings,“ segir koll-
ega úr lögfræðingastétt. „Villi er
mjög fær lögmaður, nagli í sínu
starfi sem gengur mjög langt í því
að verja hagsmuni sinna skjólstæð-
inga. Sama fólk og fordæmir hann
fyrir framgöngu hans myndi flest
vilja geta leitað til hans ef það eða
einhver því nákominn lenti í því að
vera borið þungum sökum.“
„Vilhjálmur er óhræddur við að
skera sig úr,“ segir annar lögfræð-
ingur og gamall vinur. „Honum
finnst ágætt að vera miðpunktur
athyglinnar og ekkert verra að vera
umdeildur. Einu sinni sagði hann
mér að afburðamenn væru aldrei
þeim kostum gæddir að vera elsk-
aðir af öllum – á þeim væru skiptar
skoðanir. Og ég held að það sé rétt
hjá honum. Undantekningalaust
kemur Vilhjálmur þeim á óvart sem
myndað hafa sér skoðun á honum
en kynnast honum síðar. Á bak við
hrjúft og stundum dálítið hrokafullt
yfirbragðið leynist nefnilega sann-
kallað gæðablóð sem vill öllum
vel. Svo er hann bara veggtraustur
vinur vina sinna og skemmtilegur.
Hins vegar heldur hann með vit-
lausu liði í enska boltanum og þarf
að taka til í fataskápnum; hálfgerðir
larfar sem drengurinn klæðist.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Vilhjálmur
hans Vilhjálmsson
Fæddur í Reykjavík
20. október 1971.
Foreldrar:
Fríða S. Kristinsdóttir mynd-
listarmaður
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hæstaréttarlögmaður
Bræður:
Finnur Þór, fæddur 1979
Ingi Freyr, fæddur 1980
Sonur:
Vilhjálmur Hans, fæddur
2010, móðir Anna Lilja
Johansen
Nám:
Langholtsskóli, Verzlunar-
skóli Íslands, Lagadeild Há-
skóla Íslands
Ferill:
Vann sem löglærður fulltrúi
hjá sýslumanninum á
Blönduósi og sem fulltrúi
á LOGOS Lögmanns-
þjónustu, Landslögum og
Lögfræðistofu Reykja-
víkur.
Sumarið 2007 varð Vilhjálm-
ur meðeigandi á Lög-
fræðistofu Reykjavíkur
og sinnti þar lögmanns-
törfum til vorsins 2013.
Þann 1. júní 2013 opnaði Vil-
hjálmur eigin lögmanns-
stofu.
Pólitískur ferill:
Var formaður Stúdentaráðs
fyrir Röskvu 1996-1997
Var í framboði fyrir Sam-
fylkinguna í kosningum
1999, í 10. sæti á lista í
Reykjavík.
nefndur samstarfsmaður úr pólitík-
inni. „Ég vissi að hann var kannski
kappsamur um orð en sá maður
sem ég þekkti hafði aldrei virkað
óheiðarlegur.“ Málið var leyst með
því að Vilhjálmur fékk að skila inn
nýrri ritgerð og útskrifast, mörgum
til mikillar hneykslunar.
Vilhjálmur fékk réttindi til þess
að starfa sem héraðsdómslögmað-
ur árið 2005 og sem hæstaréttar-
lögmaður árið 2010. Vann sem lög-
lærður fulltrúi hjá sýslumanninum á
Blönduósi og sem fulltrúi á LOGOS
Lögmannsþjónustu, Landslögum og
Lögfræðistofu Reykjavíkur. Sum-
14 nærmynd Helgin 20.-22. nóvember 2015