Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 33

Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 33
AFMÆLISDAGAR 45 ÁRA GJÖF FRÁ FYLGIR EF KEYPT ER FYRIR MEIRA EN 5.000 KR Laugavegi 178 - Sími 568 9955 Sama kennitala frá upphafi 19. OG 20. NÓVEMBER Swarovski -15% Postulínslampar 10-20% afsláttur Tarína m/hitara & ausu frá kr.11.595 Sósuskál m/hitara & ausu kr.7.995 Hnífaparatöskur f/12 m/fylgihlutum frá kr.24.995 -15 % Söfnunarstell -15% Söfnunarhnífapör -15% Söfnunarglös -20% Enjoy hitaföt -20% Borgarbollar -15% Lukkutröll - postulín, verð frá kr.4.850 að skrá sig í háskólann sem hann var í Róm til að stunda nám í. Hún kynntist líka syni mafíuforingja frá Reggio Calabria sem var samferða henni í skólanum, seldi honum ritgerðir og teikningar. Eitt sinn bauð hann henni heim með sér í páskafrí til að launa henni greið- ann. Þar mætti henni allt annar heimur, lyftan í sex hæða húsi fjöl- skyldunnar var sundurskotin og lífverðir á hverju strái, en hún seg- ist ekki hafa áttað sig á því hvílíkt hættusvæði þetta var. Að hlusta á hana segja frá þessum tíma í lífi sínu er eins og að detta inn í ítalska bíómynd og hún segist sjálf oft upplifa þennan tíma þannig. Eftir útskrift fór hún heim til Ís- lands og vann þar í tvö ár en ástin togaði í hana og hún flutti út aftur til að giftast ítalska greifanum, en fyrst ætluðu þau að prófa að búa saman í eitt ár. Þá fór að syrta í álinn. „Það var skelfilegur tími. Ég mátti ekki vinna úti, átti bara að vera fín og sæt og til staðar ef einhver úr fjölskyldunni þarfnaðist aðstoðar. Hann fylgdist með öllu sem ég gerði, meira að segja þegar ég var búin að ákveða að fara og fór í heimilistækjaverslun til að fá stóra kassa til að pakka í var hringt í hann úr búðinni og hann látinn vita að ég væri að undirbúa flótta. Hann kom heim úr vinnunni og hló að þeirri fávisku minni að ég skyldi halda að ég slyppi. Ég var eiginlega bara fangi og ég fæ enn martraðir á nóttunni þar sem ég endurupplifi þetta augnablik.“ „Þetta er maðurinn minn“ Á endanum tókst Rut þó að sleppa og kom alkomin heim til Íslands árið 1997. Fór fyrst að vinna á fast- eignasölu en var fljótlega komin á stofu innanhússarkitektsins Guð- bjargar Magnúsdóttur og fékk þar gott veganesti. Stuttu seinna opnaði hún eigin stofu og hefur síðan með elju og vinnusemi smátt og smátt orðið einn af vinsælustu innanhússarkitektum lands- ins. Þótt hún væri hvekkt eftir ástarævintýrið á Ítalíu hafði hún þó engan veginn útilokað það að eignast mann og dag einn í rækt- inni birtist maðurinn í lífi hennar ljóslifandi. „Ég bara sé þennan huggulega mann, hálfhaltrandi þó og dapran á svipinn og ég vissi það um leið: þetta er maðurinn minn! Þennan mann þarf ég að hugsa vel um og gera kátan! Ég hélt í fyrstu að hann væri eitthvað fatlaður en komst seinna að því að hann var bara tognaður eftir íþróttaslys, en hann var nýskilinn og það skýrði líklega hversu dapur mér fannst hann vera. Ég vissi ekkert hvernig ég ætti að nálgast hann, hélt áfram að mæta í ræktina á sama tíma, dró meira að segja systur mína með mér til að sýna henni hann. Það endaði með því að ég elti hann þegar hann kom úr ræktinni og tók niður bílnúmerið hans. Komst þá að því að hann heitir Kristinn Arnarson og var í bókaútgáfu. Ég fór því til hans í vinnuna undir því yfirskyni að kaupa bók. Þar sem hann gat ekki skipt stóra peninga- seðlinum sem ég var með varð úr að við hittumst saman á Grænum kosti í hádeginu nokkru seinna til að fá okkur að borða og gera upp bókarkaupin. Ég vandaði mig svo ofboðslega til að klúðra þessu nú ekki að ég sendi honum stöðugt þau skilaboð að ég hefði engan áhuga á honum og hann var þá heldur ekkert að ganga á eftir mér. Það endaði með því að ég hringdi í hann og spurði hvort hann vildi horfa með mér á bíómynd, fór til hans með myndina og við horfðum saman. Strax og myndin var búin kvaddi ég og fór út í bíl, en ég gat ekki farið. Bankaði aftur og spurði hvort ég mætti vera aðeins lengur og síðan hef ég ekki farið frá hon- um. Við eigum saman dótturina Brynju, sem er 13 ára og algjörlega dásamleg, og hann á yndisleg og vel gerð tvö börn frá fyrra hjóna- bandi sem bjuggu hjá okkur aðra hverja viku þegar þau voru yngri. Ég næ stundum ekki utan um það hvað ég hef verið óskaplega heppin í lífinu, það er eins og það sé ein- hver verndarengill yfir mér.“ Óskaplega ánægð með bókina Rut er frábær sögumaður, við erum nánast búnar að tala frá okkur vit og rænu og upphafleg ástæða fyrir viðtalinu hefur næst- um gleymst, en hún var sú að nú hefur útgáfan Crymogea gefið Framhald á næstu opnu Með einkadótturinni, Brynju. „Ég næ stundum ekki utan um það hvað ég hef verið óskaplega heppin í lífinu, það er eins og það sé einhver verndarengill yfir mér.“ Ljósmyndir/Hari viðtal 33 Helgin 20.-22. nóvember 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.