Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.11.2015, Side 34

Fréttatíminn - 20.11.2015, Side 34
3.250.000 kr. Kia cee’d SW 1.6 Árgerð 2013, ekinn 34 þús. km, dísil, 128 hö, beinskiptur. 3.890.000 kr. Kia Carens EX 1.7 Árgerð 2014, ekinn 67 þús. km, dísil, 136 hö, sjálfskiptur. 5.990.000 kr.3.950.000 kr. Kia Sorento ClassicKia cee’d EX 1.6 Árgerð 2014, ekinn 43 þús. km, dísil, 198 hö, sjálfskiptur. Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km, dísil, 128 hö, sjálfskiptur.4.490.000 kr. Kia Sportage EX Árgerð 2014, ekinn 105 þús. km, dísil, 136 hö, sjálfskiptur. 42.777 kr. á mánuði* 51.777 kr. á mánuði* 50.777 kr. á mánuði* 78.777 kr. á mánuði* Afbo rgun aðe ins: 58.7 77 k r./mán .* *Mánaðargreiðsla m.v. 70% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 11%. **Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar. ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir NOTAÐIR BÍLAR www.notadir.is Kletthálsi 2 110 Reykjavík 590 2160 Opnunartími: Virka daga 10–18 Laugardaga 12–16 Allt að 7 ára ábyrgð fylgir notuðum Kia**Ábyrgð fylgir! út glæsilega bók með yfirliti um hönnun Rutar í máli og myndum. Hvernig kom það til? „Þau verk sem ég hanna fá oft ekki að standa lengi því það er eðli húsnæðis að það gengur kaupum og sölum og þá vilja nýir eigendur oft breyta því og laga að eigin smekk og þörfum. Upp- haflega hugsaði ég þetta bara þannig að ég væri að safna heimildum um það sem ég hef gert og svo vildi ég eiga myndir til að setja inn á heimasíðuna. Ég fékk því góða vin minn, Gunnar Sverrisson ljós- myndara, til þess að byrja að mynda fyrir mig ýmis heimili sem ég hafði hannað. Eftir því sem myndun- um fjölgaði þróað- ist hugmyndin um að gera úr þessu bók, enda hefur maðurinn minn unnið mikið við bókaútgáfu. Lítið hefur verið gefið út af bókum um ís- lenska innanhúss- hönnun og þótt fólk geti keypt hér fullt af flottum erlendum bókum um innanhússarkitektúr þá eru mynd- irnar kannski teknar á frönsku herrasetri eða í þakíbúð í New York og hafa litla sem enga tengingu við íslensk hús. Mér fannst því að bókin gæti bætt aðeins úr þessu og gæti líka verið innblástur fyrir fólk. Við erum búin að vera að mynda síðan 2008 en það hefur bara aldrei verið tími til að ganga almennilega í þetta verk. Þegar kreppan skall á sá ég mér leik á borði því þá hélt ég að hefði ekkert að gera og gæti notað tíma til að mynda meira og undir- búa bókina. Ég varð hins vegar svo lánsöm að hafa fljótt nóg að gera aftur, þótt verkefnin væru kannski minni í sniðum fyrstu misserin. Loksins er þó bók- in komin út og mér finnst þetta mjög spennandi, hún er næstum því eins og barnið mitt. Ég fékk alveg frábært fólk með mér, maðurinn minn sá um að ritstýra bókinni og Gerður Harðardóttir blaðamaður sá um að skrifa texta bókarinnar. Ragn- heiður Ragnars- dóttir hjá Hunangi hannaði bókina og svo er Gunnar algjör snillingur í að mynda heimili en það er alveg sér- stök kúnst. Bókin er til- einkuð minn- ingu móðursystur minnar, Ingu Pálmadóttur, sem dó aðeins 49 ára gömul frá börnum og eiginmanni, og dóttur hennar Hrefnu Fannar sem lést aðeins 22 ára gömul. Þær voru mér einstaklega kærar. Ég er óskaplega ánægð með þessa bók, hún er alveg eins og ég vildi hafa hana og ég vona að fólk njóti þess að skoða hana og lesa.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is Rut KáRadóttiR Fædd 8. nóvember 1965 Foreldrar: Brynja Pálmadóttir Kári Sigurðsson Maki: Kristinn Arnarson Dóttir: Brynja Nám: Grunnskólinn á Húsavík Menntaskólinn á Akureyri Istituto Europeo di Design í Róm, útskrifuð 1993. Ferill: Rekur innanhússarkitektastofu undir eigin nafni og hefur frá útskrift starfað sem innanhúss- arkitekt á Ítalíu og Íslandi og sinnt smáum sem stórum verkefnum á því sviði bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. „Ég hef unnið bæði fyrir svokallaða útrásar- víkinga, en einnig fyrir fólk sem hefur lítið milli handanna og verkefnið er alltaf það sama, að reyna að búa til falleg heimili eða vinnustað þar sem fólk getur látið sér líða vel.“ 34 viðtal Helgin 20.-22. nóvember 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.