Fréttatíminn - 20.11.2015, Síða 36
B ókin Vín – Umhverfis jörðina á 110 flöskum kom út á dögunum. Höfundur
hennar er Steingrímur Sigurgeirs-
son, en hann er margreyndur höf-
undur bóka og greina um vín og
vínmenningu. Bókin er í sama stíl
og anda bókin Bjór, sem Crymogea
sendi frá sér í fyrra og naut mikilla
vinsælda.
Ein meginprýði þessara bóka er
að sérhverri tegund af veigum er
lýst með teikningu og þetta vakti
strax mikla lukku þegar Bjórbókin
kom út. Það var Rán Flygenring
sem teiknaði allar myndir í Bjórinn
og aftur er hún á ferð í Vínbókinni.
Nú fær hún með sér í lið tvo snill-
inga úr landsliði íslenskra teiknara,
þær Lóu Hjálmtýsdóttur og mynd-
listarkonuna Siggu Björgu. Hver
teiknari er með sinn stíl en til að
tryggja að samræmi sé í bókinni
var lagt upp með ákveðið svipmót
sem allir þrír teiknararnir fylgdu.
Klæjar í tunguna að smakka
smjörað Chardonnay
Rán Flygenring hefur á undan-
förnum árum skapað sér nafn
fyrir húmorískan stíl og mikinn
dugnað í teikningum fyrir bækur
og fyrirtæki, en líka sem Hirðteikn-
ari Reykjavíkur og Hirðteiknari
Íslands. Rán er sjálf mikið fyrir
vín og lifði sig inn í hvernig túlka
mætti karakter og einkenni ólíkra
víntegunda. Í túlkun hennar á
suðurafríska víninu Kanonkop
Pinotage breytir hún til að mynda
heimsálfunni Afríku í þrúguklasa,
en neðst er sjálft vínið í Suður-Afr-
íku. Einkenni pinotage þrúgunnar
eru að hún var í raun búin til í til-
raunastofu af suðurafrískum vín-
fræðingi á fyrri hluta 20. aldar. Hún
er því algerlega afrísk, er einkenn-
isþrúga suðurafrískra vína og gefur
þeim sinn sérstæða karakter.
Hvert er þitt uppáhaldsvín?
„Uppáhaldsvínin mín eru ítölsk
rauðvín, ég drekk þau öll og aldrei
neitt annað (nema í þau fáu skipti
sem í harðbakkann slær). Prinsipp-
mál, einstrengingsleg vanafesta
eða bara smekkur, líklega er ástæð-
an blanda af þessu öllu. Ég kýs
rauðvín á sömu nótum og espressó;
ekki súran og nýbylgjulegan heldur
djúpan, þungan gamaldags mið-
jarðarhafsvelling. Gjarnan Barolo,
Barbaresco, Amarone en ég er líka
alveg kát með eitthvað kasjúal chi-
anti-húsvín. Í uppáhaldi eru vínin
frá Banfi kastalanum; Cum Laude,
Brunello di Montalcino og La Lus
meðal annarra. Já og svo er ég á
sumardögum forfallinn prosecco-
aðdáandi.“
Ef þú mættir velja þér hvaða vín
sem er til að smakka – hvað yrði
fyrir valinu?
„Augljóslega langar mig hrikalega
að smakka sjálfan Château Pétrus
á bls. 163 í Vínbókinni. Það er
reyndar franskt, svo ég svík smá
lit þar. Svo verð ég að viðurkenna
að mig langar að smakka þetta við-
bjóðslega smjöraða og karamell-
aða kaliforníska Chardonnay sem
gerði næstum út af við chardonnay-
bransann þarna í Napadal – lýsing-
in í bókinni er svo grafísk að mann
klæjar alveg í tunguna.“
Þetta vín teiknar sig ekki sjálft
Þrír af okkar fremstu teiknurum tóku höndum saman við að
myndskreyta Bókina Vín – Umhverfis jörðina á 110 flöskum
sem kom út fyrir skemmstu. Þær Rán Flygenring, Sigga Björg
og Lóa Hjálmtýsdóttir skila af sér frábæru verki og ramma inn
huggulega sófaborðsbók. Við kynntum okkur myndir þeirra og
spurðum hvaða vín þær drekka sjálfar.
mt. Teiknararnir hittust
á Holtinu á dögunum og
skáluðu fyrir góðu verki.
Frá vinstri eru þær Rán
Flygenring, Sigga Björg og
Lóa Hjálmtýsdóttir. Ljós-
mynd/Hari
Gamli góði Mateusinn
Lóu Hjálmtýsdóttur þarf ekki
að kynna fyrir lesendum Frétta-
tímans. Hún hefur glatt landann
árum saman með meinfyndum
skopteikningum og bókum svo sem
Lóabóratóríum en auðvitað er hún
líka meðlimur hljómsveitarinnar
FM Belfast. Lóa skapar litlar sögur
í kringum öll vínin sem leiða þann
sem skoðar teikningarnar inn í
smáatriði í sögu vínanna og geta
verið mjög fyndnar. Túlkun hennar
á portúgalska rósavíninu Mateus
er í þeim anda. Mateus var um tíma
eitt vinsælasta vín heims. Allir
drukku rósavín úr belgmiklum
flöskunum, jafnt alþýðufólk sem
konungbornir. Þetta er eitt af ein-
kennisvínum síðhippatímans og
flöskurnar vinsælar sem kerta-
stjakar.
Lóa drekkur ekki og sleppur því
við að svara spurningum um eftir-
lætis vín sín.
Horfi alltof mikið á verðmiðann
í ríkinu
Sigga Björg er í fremstu röð mynd-
listarmanna samtímans. Segja má
að hún hafi hætt sér út á nýjar slóð-
ir með því að teikna vínkaraktera,
því alla jafna skapar hún sinn eigin
heim, sem hefur skýr höfundarein-
kenni og mátti til að mynda sjá ný-
verið á sýningu hennar í Listasafni
ASÍ. Hún notar sinn eigin stíl úr
myndlistarverkum sínum en býr til
myndir sem draga fram einkenni
vínanna, býr til einskonar persónur
fyrir hvert vín. Hún teiknar því
eðalvínið Brunello di Montalcino
frá framleiðandanum Biondi-Santi
með því að sýna eðli vínsins sem
búið er til úr brunello þrúgunni
einni og eingöngu og eru því alltaf
hrein afurð frá þessum unaðsbletti
í Toskana á Ítalíu en framleiðand-
inn, Franco, stendur og reykir pípu.
Hvert er þitt uppáhaldsvín?
„Ég er ein af þessum sorglegu ver-
um sem horfir alltof mikið á verð-
miðann í ríkinu ... gekk svo langt
að kaupa einu sinni „Don Opas“ á
990 krónur og reyndi að sannfæra
heilt matarboð um að þetta væri
fínasta vín, ég sé það núna að þetta
var mjög vandræðalegt. En annars
kaupi ég oftast Montechillo því
mér finnst miðinn svo flottur, rautt
og gyllt er svo grand og klassískt,
eins og hógvær Drakúla greifi í
sparifötum og vínið er
bara fínt.“
Ef þú mættir velja þér
hvaða vín sem er til
að smakka – hvað yrði
fyrir valinu?
„Ef verð væri ekki
fyrirstaða þá myndi
ég fara í ríkið og
velja öll vínin með
flottustu miðunum.
Miðinn skiptir öllu
máli þegar kemur
að því að kaupa vín.
Smart og artí miðar virka ekki á
mig, frekar stílhreinir, klassískir
og grand miðar. Montechillo með
svarta miðanum er eitthvað sem ég
á eftir að prófa.“
Teiknararnir hittust á Holtinu á dögunum og skáluðu fyrir góðu verki. Frá vinstri eru þær Rán Flygenring, Sigga Björg og Lóa
Hjálmtýsdóttir. Ljósmynd/Hari
Brunello di Montalcino eftir Siggu Björg. Kanonkop Pinotage eftir Rán Flygenring. Mateus eftir Lóu Hlín.
36 bækur Helgin 20.-22. nóvember 2015