Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Síða 10
N
ei, þetta er ekki algengt.
Það koma upp svona atvik
annað slagið í flugi eins og
alls staðar annars staðar.
Kannski fólk sem óhlýðnast
og kveikir sér í sígarettu eða eitthvað
slíkt. Þetta gerist endrum og sinnum
en heilt yfir hagar fólk sér ósköp vel,“
segir Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi hjá Icelandair, aðspurð-
ur hvort að atvik líkt og átti sér stað
á dögunum í vél félagsins séu algeng.
Það vakti heimsathygli þegar Guð-
mundur Karl Arnþórsson var límdur
fastur niður í sæti vélar á leið til New
York frá Keflavík. Ástæðan var sú að
Guðmundur hafði látið dólgslega
um borð svo öðrum farþegum stóð
ógn af. Guðmundur drakk ótæpilega
í fluginu og veittist bæði að farþegum
og áhöfn. Farþegar sögðu Guðmund
hafa drukkið heila flösku af Opal
snafsi ásamt öðru áfengi og útkoman
var skelfileg hegðun sem endaði
með fyrrgreindum afleiðingum. Er-
lendir farþegar í vélinni, sem voru
vægast sagt þreyttir á hegðun Guð-
mundar, tóku myndir og myndskeið
af honum og settu á internetið sem í
kjölfarið rötuðu í fjölmiðla. „Þessi at-
vik hafa nú kannski öll sinn karakter
ef við getum orðað það þannig en
þetta er nú kannski það versta. Það
hefur hlotið langmestu athyglina
og kannski tákn um nýja tíma hvað
varðar fjölmiðlun,“ segir Guðjón
sem hefur svarað ótal símtölum frá
erlendum fjölmiðlum undanfarna
daga vegna atviksins.
Ekki komið til greina að banna
áfengi um borð
Guðmundur, sem er 46 ára Ís-
lendingur búsettur í Barbados, var
handtekinn við lendingu á JFK-
flugvellinum í New York og færður
á sjúkrahús vegna áfengiseitrunar.
Icelandair mun leggja fram kæru á
hendur manninum á næstu dög-
um en lögum samkvæmt varðar
hegðun sem getur ógnað öryggi
farþega í almenningssamgöngum
allt að sex ára fangelsi.
Töluverð hætta getur skapast
um borð þegar fólk sýnir slík
dólgslæti sem þessi auk þess sem
því fylgir töluverður ami fyrir aðra
farþega. Slík hegðun orsakast yfir-
leitt af ofdrykkju en Guðjón segir
það ekki hafa komið til greina að
banna áfengisneyslu um borð.
„Nei, það vill nú svo til að þetta
tengist sjaldnast því áfengi sem
boðið er upp á um borð heldur
áfengi sem fólk tekur með sér og
laumast til að drekka.“ því fer þó
fjarri að Guðmundur sé eini Ís-
lendingurinn sem komist hefur
í fréttirnar fyrir dólgslega hegð-
un skýjum ofar en reglulega
berast fréttir af fólki sem hagar
sér ósæmilega um borð í flugvél-
um. Sjaldnast eru flugdólgarnir þó
nafngreindir en í nokkrum tilvik-
um hefur það gerst. n
Íslenskir
flugdólgar
10 Fréttir 11.–13. janúar 2013 Helgarblað
n Fleiri en Guðmundur Karl hafa komist í fréttirnar fyrir dólgshátt skýjum ofar
„Tengist
sjaldnast
því áfengi sem
boðið er upp á
um borð
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Havarí í háloftunum Dólgsleg hegðun Guðmundar hefur vakið heimsathygli og fjallað hefur verið um atvikið í fjölmiðlum víða um heim.
T
öluvert uppnám varð um borð í
vél Icelandair á leið til Minnea-
polis í ágúst 2002. Miðaldra
karlmaður sem var hluti af hópi
harmonikkuunnenda á leið í rútu-
ferðlag, var gripinn ölæði og sló með-
al annars nokkra áhafnarmeðlimi. Í
samtali við DV sagði maðurinn, sem
var dómari við Héraðsdóm Reykja-
víkur og viðurkenndi seinna að hafa
átt við áfengisvandamál að stríða, að
hann hefði verið fullur og leiðinlegur.
Maðurinn, sem var löglærður, sagð-
ist hafa skilning á aðgerðum Flug-
leiða gagnvart sér enda hafi félagið
verið að halda uppi virðingu á alþjóð-
legri flugleið. „En hitt er annað mál
að flugfreyjurnar voru óþarflega við-
kvæmar. Ég var bara leiðinlegur, full-
ur maður sem var settur í rangt sæti.
Vegna persónulegra mistaka móðgaði
ég flugfreyju. Það er fullur Íslending-
ur í hverri flugvél sem fer til útlanda
á vegum Flugleiða svo ég var engin
undantekning,“ sagði maðurinn í við-
tali við DV á þeim tíma. Hann sagðist
hafa haft það fyrir vana um árabil að
„ferðast fullur“ og hafi til þessa slopp-
ið við vandræði vegna þess. Lögreglu-
maður sem var um borð í vélinni var
látinn sitja við hlið mannsins auk
annars fíleflds karlmanns. Maðurinn
róaðist þegar um einn og hálfur tími
var eftir af fluginu en aftur rann æði á
hann þegar vélin lenti í Minnea polis.
Bandaríska alríkislögreglan kom þá í
vélina og handtók manninn. Eftir að
runnið hafði af honum og hann hafði
verið yfirheyrður þá var hann sendur
heim í fylgd þriggja fulltrúa alríkis-
lögreglunnar. Leggja þurfti fimm sæti
undir heimför mannsins því ásamt
honum og lögreglumönnunum þrem-
ur kom eiginkonan með en hún hafði
lítinn áhuga á að fara í rútuferðalagið
eftir uppákomuna. Samkvæmt frétt
DV frá þessum tíma þá var líklegt að
maðurinn þyrfti að borga kostnaðinn
sem hlaust af atvikinu auk þess sem
hann fengi ekki að fara til Bandaríkj-
anna næstu árin. n
Hafði fyrir vana
að „ferðast fullur“
Á leið í rútuferðalag Maðurinn var á leið
í rútuferðalag með harmonikkuunnendum.
Á
rið 2000 komst Ómar Kon-
ráðsson heitinn í fréttirnar
þegar honum var vísað úr vél
Flugleiða á leið til Minneapol-
is. Þá var Ómar á ferðalagi með vin-
konu sinni, Kolbrúnu Jónsdóttur,
og hjónum frá Vestmannaeyjum
en þeim Ómari og Kolbrúnu var
vísað úr vélinni ásamt manninum
frá Eyjum. Þótti framkoma þeirra
og drykkja í flugvélinni til ama
en Ómar tók fyrir það og sagði að
þetta væru ofsóknir á hendur þeim.
„Þetta eru ekkert annað en ofsóknir
af hálfu Flugleiða. Við fengum okk-
ur bara nokkra öllara í vélinni eins
og gerist og gengur og fyrir bragðið
á að banna mér að fljúga um aldur
og ævi með Flugleiðum. Ég á þetta
ekki skilið,“ sagði hann í samtali við
DV á þeim tíma og vildi ekki kann-
ast við meint ólæti. Að vísu hefði
Vestmannaeyingurinn reykt eins
og strompur í vélinni og slegið flug-
freyju en sjálfur hefði hann verið
til friðs þrátt fyrir „nokkra öllara.“
Hann sagði ferðafélaga sinn hafa
þurft að hreyfa sig í vélinni vegna
æðaþrengsla. „Hún Kolbrún mín
þjáist af æðaþrengslum og þurfti
því að hreyfa sig aðeins í vélinni.
Það þoldu farþegarnir ekki enda
voru þetta aðallega vistmenn af
elliheimilinu Grund sem hafa ama
af flestu.“ Í viðtalinu sagðist Ómar
ætla að kæra Flugleiðir því hann
hefði orðið fyrir töluverðu fjárhags-
legu tjóni vegna atviksins. Töluverð
rannsókn var framkvæmd vegna
málsins og um þrjátíu manns voru
yfirheyrðir; þar á meðal áhöfn
og einhverjir farþegar. Ómar var
settur í flugbann og í mars árið á
eftir sagði DV frá því að Ómar yrði
að fara sjóleiðina í sumarfríið og
hafði þá þegar bókað sér far með
Norrænu til þess að geta heimsótt
dóttur sína erlendis. n
„Fengum okkur
bara nokkra öllara“
Kannaðist ekki við
dólgslæti Ómar kannað-
ist ekki við ólætin og sagði
þau bara hafa verið að fá
sér nokkra „öllara.“