Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 13
VANTREYSTU BJÖRT
Fréttir 13 Helgarblað 11.–13. janúar 2013
n Stjórnarmeðlimir Geðhjálpar segist hafa verið beittir blekkingum af fyrrverandi formanni félagsins
er ítrekað búið að ýta þessu máli
til hliðar og kalla mig og fleiri sam-
særiskenningafólk. Björt afneitaði
þessu algjörlega og sagðist hvergi
hafa komið nærri svona löguðu. En
það var hún sem hringdi í mig og
bað mig að koma í félagið.“
Jón Birgir segir einkennilegt að
Björt hafi neitað þessu. „Hún bar
fyrir sig að hún héldi að frestur-
inn væri bara vika. Manneskja sem
bað um frestun á aðalfundi með
skírskotun til laga félagsins ári áður
vissi alveg að það væri mánuður.
Enda eru lög félagsins einungis 12
greinar og ekkert sérlega flókin“
segir hann.
Fékk umboð stjórnar
Annað mál sem þeim þótti vafa-
samt í stjórnartíð Bjartar var ráðn-
ing á nýjum framkvæmdastjóra
félagsins. „Samkvæmt okkar upp-
lýsingum þá hafði það verið viðr-
að við fyrri stjórn að umrædd
vinkona hennar og starfsmaður
Geðhjálpar yrði framkvæmdastjóri,
í kjölfar uppsagnar þáverandi
framkvæmdastjóra, en fyrri stjórn
hafði tekið fyrir það. Þegar loks
var ákveðið að auglýsa eftir fram-
kvæmdastjóra fékk Björt umboð
stjórnar til að fara með ráðninga-
ferlið til Capacent. Það höfðu ver-
ið uppi grunsemdir um það í stjórn
að einhver vinavæðing myndi halda
áfram. Björt sagði að vegna stöðu
sinnar hjá Capacent fengi hún þetta
á góðum afslætti, að jafnvel væri
hægt að ná kostnaðinum úr 600-700
þúsundum í 250 þúsund og samt
halda gæðastimplinum þar sem
ráðningin yrði í höndum Capacent.
Samkvæmt fyrri stjórnarmeðlimum
var umboðið, sem stjórn veitti
Björt, alfarið háð því að ráðningin
færi í faglegt ferli hjá Capacent því
sumir stjórnarmeðlima óttuðust að
annars yrði reynt að ráða vin eða
vinkonu umrædds starfsmanns eða
formanns í starfið,“ segir Jón Birgir
og tekur fram að til séu bókanir í
fundagerðum þar sem rætt var til-
boð Capacent í ráðningarferlið.
Vildu ekki ráða hana
vegna tengsla
Auglýst var eftir framkvæmdastjóra
en þau segja stjórnina ekki hafa
fengið að sjá umsóknirnar eða fá
að vita nákvæmlega hversu margir
sóttu um stöðuna. „En almennt er
talað um á bilinu 13–15 umsóknir,“
segir Jón Birgir. Að þeirra sögn hafi
stjórnarmenn ítrekað beðið um að
fá að sjá gögn allra umsækjenda en
því hafi alltaf verið vísað frá á þeirri
forsendu að hinar umsóknirnar
væru „rusl“ og því óþarfi fyrir stjórn
að sjá þær. Þau segja Björt hafa sagt
stjórninni að það væri samdóma
álit ráðgjafa Capacent að einungis
tveir umsækjendur stæðu upp úr.
Þessir tveir umsækjendur fóru síð-
an í viðtal hjá Capacent. „Þar á með-
al var framkvæmdastjórinn sem
var ráðinn inn og svo annar um-
sækjandi sem stjórninni leist ekki
á. Þrátt fyrir að hafa ekki litist vel á
síðarnefnda umsækjandann vildi
stjórnin síður ráða þann fyrri vegna
gruns um vinatengsl við Björt.“ Að
sögn Jóns Birgis er núverandi fram-
kvæmdastjóri góður starfsmaður.
„Hún er hæf, með flotta ferilskrá og
allt það en út af þessum tengslum
við Björt vildi fyrri stjórn ekki ráða
hana. Gengið var til atkvæða um
þær báðar en féll tillagan á jöfnu í
bæði skiptin. Í kjölfarið kom einn
stjórnarmanna fram með þá tillögu
að finna annan kandídat sem hafði
ekki sótt um, enda var búið að af-
skrifa allar aðrar umsóknir. Stjórn-
in fékk síðan ábendingu um ein-
hverja aðra konu,“ segir Jón Birgir.
Að þeirra sögn leist stjórn félagsins
vel á þann umsækjenda og aftur var
gengið til atkvæða sem féll einnig á
jöfnu. „Á síðasta stjórnarfundi frá-
farandi stjórnar mætti Björt með
niðurstöður úr persónuleikaprófi
beggja umsækjenda, sem Capacent
notar í sínu starfi, og vildi enn og
aftur ganga til kosninga sem féllu á
jöfnu, nú í þriðja sinn. Stuttu seinna
var hreinsað til í stjórn og með
hjálp Svandísar, sem var þá nýkjör-
in, hafðist ráðning núverandi fram-
kvæmdastjóra loks í fjórðu tilraun,
en þá hafði ráðningarferlið staðið
yfir í einhverja 7–8 mánuði,“ segir
Jón Birgir.
„Ég vissi ekkert um þetta enda
nýkomin þarna inn og var eins og
álfur út úr hól. Björt kom strax til
mín og bað mig um stuðning í þessu.
Sagði að þetta væri búið að vera
mjög erfitt fyrir sig að vera fram-
kvæmdastjóralaus og hún héldi
þetta ekki út lengur. Hvort ég vildi
gera það fyrir sig að vera með henni
í þessu, að framkvæmdastjóraefnið
sem hún var með í huga væri mjög
flott og ég var sammála því, feril-
skráin hennar var flott. Ég var mjög
til í þetta og var nánast tilbúin til að
gera þetta í gegnum síma en sem
betur fer voru aðrir í stjórn sem
vissu aðeins meira um forsöguna
og báðu fyrst um að fá að hitta um-
sækjendurna tvo aftur. Einhverra
hluta vegna var þó einungis núver-
andi framkvæmdastjóri boðaður á
fund,“ segir Svandís.
Réði úrslitum
Þegar kom að fundinum þar sem
gengið var til atkvæða um fram-
kvæmdarstjóra var Svandís veik.
„Það átti að kjósa um þetta þennan
dag og ég sagði við Björt að ég væri
veik og kæmist ekki. Hún sagði þá
við mig að það væri afar brýnt að
ég kæmi því að það þyrfti að kjósa
um framkvæmdastjóra og ekki víst
að við fengjum hana inn ef ég kæmi
ekki á fundinn. Ég spurði hana
hvort hún gæti sótt mig þar sem ég
væri ekki á bíl og hún sagði taktu
bara leigubíl og Geðhjálp borgar.
Ég tók leigubíl fram og til baka á
kostnað Geðhjálpar og mitt atkvæði
gulltryggði hennar ráðningu,“ segir
Svandís.
Eftir að efasemdir fóru að kvikna
hjá þeim um stjórnarhætti Bjartar
snemma í vetur, segja þau að beðið
hafi verið um sundurliðaðan reikn-
ing frá Capacent varðandi ráðn-
ingarferlið en þau segja fátt hafa ver-
ið um svör og Björt hafi farið undan
í flæmingi þegar gengið var á hana.
Þau segja að þegar málið hafi verið
athugað betur hafi engan reikning
verið að finna í bókhaldi félagsins.
„Ég hringdi loks í Capacent og fékk
þá upplýsingar um að þau hafi ekki
komið nærri þessu. Þá gengum við
aftur á formann og hún endurtók þá
sögu að ráðningin hafi verið unnin
í samvinnu við ráðgjafa Capacent
og við fórum að velta því fyrir okk-
ur hver hafi þá borgað fyrir þetta allt
saman,“ segir Svandís.
„Samkvæmt upplýsingum frá
Capacent virðist sem vinnufélagi
Bjartar, sem starfar ekki lengur hjá
fyrirtækinu, hafi tekið tvö viðtöl
við umsækjendur, að viðstöddum
tveimur stjórnarmeðlimum, í hús-
næði Capacent, algjörlega á eigin
forsendum, og þá væntanlega í
greiðaskyni við Björt. Þeir stjórnar-
meðlimir og umsækjendur sem
sátu viðtölin gerðu það skiljanlega
í þeirri trú að Capacent héldi utan
um ráðningarferlið. Þegar rætt var
við Capacent var ekki að finna nein
gögn um þessa ráðningu, hvorki
um viðtölin né persónuleika-
prófin. Svo virðist sem umsækj-
endur, að meðtöldum núverandi
framkvæmdastjóra, og stjórn hafi
verið blekkt í ferlinu öllu og nafn
Capacent notað í þeim tilgangi,
enda formleg aðkoma þeirra engin
að þessu ferli,“ segir Svandís.
Fengu að sjá hluta
umsóknanna
„Fyrir rúmum tveimur vikum feng-
um við loksins að sjá hluta þeirra
umsókna sem bárust á sínum tíma.
Orð formanns um að þarna væri
einungis um „rusl“ að ræða stand-
ast enga skoðun, enda sóttu nokkr-
ir mjög frambærilegir einstaklingar
um starfið sem áttu, í hið minnsta,
erindi í viðtal. Þess ber þó geta að
núverandi framkvæmdastjóri var
blekktur á sama hátt og stjórnin, en
hún réð sig í þetta starf í þeirri trú að
staðið hefði verið faglega að ráðn-
ingunni,“ segir Jón Birgir.
Þau segja að í ljósi ofangreindra
atriða og auk annarra sem ekki hef-
ur verið fjallað um hér, hafi van-
trauststillaga verið lögð fram á
fundi stjórnar þann 28. nóvember
síðastliðinn og jafnframt gerð krafa
um úttekt á starfsemi félagsins. „Í
byrjun desember kröfðumst við af-
sagnar fráfarandi formanns sem
hún varð ekki við. Vantraust var
aftur borið á formann á stjórnar-
fundi þann 12. desember og var þá
meirihluti stjórnar að baki þeirri
tillögu. Fráfarandi formaður sagði
þó ekki af sér formennsku fyrr en
15. desember en þá vegna þess að
hún væri á leiðinni í framboð fyrir
stjórnmálaflokkinn Bjarta framtíð,“
segir Svandís. Óháð úttekt á starf-
semi félagsins og stjórnarháttum
fráfarandi formanns hefur ekki far-
ið fram, en að þeirra sögn mun hún
fara fram á næstu vikum.
Vísar ásökunum á bug
Björt vísar ásökunum Jóns Birgis
og Svandísar á bug. „Það sem þeir
þrír stjórnarmenn af tíu hafa sett
fram sem ásakanir á hendur mér og
öðrum kom fram í desember síð-
astliðin. Fimm af upprunalegum
stjórnarmönnum hafa ritað svarbréf
þar sem þessum ásökunum er vísað
á bug,“ segir Björt og vísar í bréf sem
ritað var til stjórnarmannanna sem
óskuðu eftir afsögn hennar sem
formanns. Í bréfinu segir varðandi
ásakanir um smölun inn í félagið.
„Aðalfundur félagsins hafði verið
áformaður 19. mars 2011 en í kjölfar
mistaka við fundarboðun var tekin
ákvörðun um að fresta honum til
16. apríl sama ár. Kenning bréfritara
um „hallarbyltingu“ virðist ganga
út á að núverandi formaður, (Björt,
innsk. blm.) sem þá var í framboði
til þess embættis, hafi staðið á bak
við það að fundarboðun misfórst.
Ítarleg skoðun á atburðarás í að-
draganda aðalfundarins bendir til
að sú kenning fái ekki með nokkru
móti staðist.“ Björt segir það komi
fram í fundagerðarbók að það hafi
verið í höndum þáverandi for-
manns sem var í framboði á móti
henni að senda út fundarboðið
Þekkti framkvæmdastjórann
Varðandi ráðningu nýs fram-
kvæmdastjóra segir hún að farið hafi
verið eftir samþykktum stjórnar þar
sem henni hafi verið falið að hafa
yfirumsjón með ráðningarferlinu
en hún var starfsmaður Capacent á
þeim tíma. „Sérstaklega var rætt um
að fela Capacent ekki með formleg-
um hætti ráðningarferlið, því það
þótti kosta of mikið fyrir félagið. Þá-
verandi stjórnarmenn tóku því hins-
vegar fagnandi að ég sem þáverandi
starfsmaður Capacent myndi nýta
þau tæki er til eru í starfsmannavali
hjá fyrirtækinu og að við hjá Geð-
hjálp fengjum að njóta óformlegs
liðsinnis og þekkingar samstarfs-
manna minna við starfsmannavalið.
Þetta geta starfsmenn Capacent
staðfest,“ segir Björt og segist ekki
kannast við þær tölur sem þau Jón
Birgir og Svandís segja að talað hafi
verið um. Ráðningin hafi ekki átt að
kosta neitt og þess vegna sé ekki til
reikningur. „Nei ég kannast ekki við
það. Við höfum alltaf viljað halda
kostnaði í lágmarki og það var ekki
vilji fyrir því að borga fyrir ráðningu
hjá Capacent. Ráðning hjá Capacent
kostar mun meira en 200 þúsund,“
segir Björt. Hún segist vissulega hafa
þekkt framkvæmdastjórann sem var
ráðinn inn en telur það ekki hafa
haft áhrif á valið. „Við Eva Bjarna-
dóttir vorum ekki vinkonur en við
þekktumst í gegnum aðra kunn-
ingja.“ Aðspurð hvort að ráðningin
hafi þá verið fagleg segir hún svo
vera. „Hún var mjög fagleg. Í auglýs-
ingu fyrir framkvæmdastjórastöð-
una voru kríteríur settar upp sem
tilgreina hæfni sem umsækjandinn
þarf að hafa yfir að ráða. Eins og í
öllum góðum ráðningarferlum þá
vill sá sem er að ráða fylla sem best
upp í þá kríteríu. Það er hins vegar
alltaf svo að eitthvað í þeim kríterí-
um er huglægt. Þetta á til að mynda
við um samskiptahæfni og líkur á
góðu samstarfi. Það er eitthvað sem
er ekki mælanlegt nema hjá þeim
sem sér um ráðninguna. Það var
samdóma álit þeirra sem tóku við
hana viðtal, og það var ekki bara ég,
að hún kæmi vel út.“ Aðspurð hvort
hún hafi þá komið best út allra um-
sækjenda segir hún svo vera. „Já,
af þeim sem voru teknir í viðtal og
gengust undir aðra mælikvarða.“
„Ekkert óeðlilegt“
Varðandi skráningu Svandísar Nínu
inn í félagið segir Björt: „Það er ekk-
ert óeðlilegt og er gert af mörgum
öðrum en mér að hvetja fólk til þátt-
töku í stjórn. Þetta er sjálfboðastarf,
fólk bíður ekki í röðum til að bjóða
sig fram,“ segir Björt. „Ég bað Svan-
dísi Nínu um að koma í viðtal hjá
Geðhjálparblaðinu þarna á undan
og þá var hún í mjög skemmtilegu
viðtali um sínar fjölskylduaðstæður.
Mér leist vel á hana, hún var hress
og opin og ég sá um það en í fram-
haldinu var það starfsmaður hjá fé-
laginu sem bað hana um að bjóða
sig fram í stjórn, það var ekki ég. En
mér leist mjög vel á það,“ segir hún.
Svandís segir Björt hafa látið Geð-
hjálp borga undir hana leigubíl fram
og til baka á fund þar sem sem kosið
var um nýjan framkvæmdastjóra svo
hún gæti tekið þátt í kosningunni.
„Ég hvatti hana til þess að mæta eins
og ég geri við alla,“ segir hún.
Þér finnst ekkert skrýtið að Geð-
hjálp hafi borgað leigubíl undir
hana til þess að fá hana til þess að
kjósa? „Í rauninni ekki. En það má
alveg reyna draga upp þá mynd. Ég
veit ekki einu sinni hvort Geðhjálp
hafi borgað þennan leigubíl eða
ekki. Ég hef ekki hugmynd um það.“
Harmar umræðuna
Hún segist ekki hafa komið að því
að breyta skráningu Svandísar
þannig hún yrði kjörgeng á fundin-
um þar sem hún var kosin í stjórn.
„Ég hef ekki og enginn úr stjórn hef-
ur haft neinn aðgang að tölvukerfi
Geðhjálpar og allar skráningar fara
fram í gegnum tölvukerfið þannig
að nei, ég vísa því algjörlega á bug.
Það er ósatt.“ Björt tekur svo fram
að hún harmi þessa umræðu. „Ég
harma þessa umræðu um félagið
og tel hana því ekki til framdrátt-
ar, þvert á móti. Það er gott að
fólk hafi mismunandi skoðanir um
starfið hjá Geðhjálp, það er eðlilegt
í félagasamtökum sem þessum.
Ég er afskaplega stolt af þeim fjöl-
mörgu góðu verkefnum sem þar
eru unnin af því góða starfsfólki
sem félagið státar af, fjárhagur-
inn hefur rétt úr kútnum og Geð-
hjálp er að ná eyrum almennings
sem er svo mikil vægt fyrir notend-
ur og aðstandendur. En félagið er
viðkvæmt fyrir viðlíka umræðu og
þessari og ég tel þetta sýna að það
var rétt ákvörðun að hafa hætt sem
formaður félagsins þegar ég ákvað
að bjóða mig fram fyrir Bjarta
framtíð.“ n
„Upphaflegu
athugasemdirn-
ar sem ég hafði við þetta
að gera voru í raun stjórn-
arhættir formanns sem
mér fannst einhvern veg-
inn alveg út úr öllu korti.
„Það sem kom síð-
an á daginn, þegar
ég kíkti á þessar ný-
skráningar 2011, að mjög
greinileg smölun hafði
átti sér stað þegar tæpur
mánuður var í aðalfund.
Björt borin þungum sökum Svandís fékk símtal þar sem hún var beðin um að bjóða sig
fram frá starfsmanni Samhjálpar. Þegar hún fór að skoða kjörskránna þá sá hún að skráningu
sinni í félagið hafði verið breytt svo hún yrði kjörgeng á aðalfundi.