Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Side 14
Staða SteingrímS enn nokkuð Sterk V instri-grænir mældust með 9,1 prósents fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi Capacent Gallup nú í byrjun árs. Er það minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með í nærri áratug eða frá því í september 2003. Fylgishrun flokksins vekur óneitan- lega upp spurningar um stöðu Steingríms J. Sigfússonar, atvinnu- vega- og nýsköpunarráðherra og formann Vinstri-grænna. Bæði inn- an hans eigin flokks og hvort hann sé undir það búinn að leiða Vinstri- græna á farsælan hátt í gegnum komandi kosningabaráttu. Þá vakti sú ákvörðun flokksins í byrjun árs að fresta flokksráðsfundi Vinstri- grænna sem átti að halda dagana 11. til 12. janúar til 25. til 26. janúar einnig upp spurningar um titring innan flokksins. Líklega myndu fáir flokksmenn Vinstri-grænna verða sáttir með að ná 9,1 prósents fylgi þegar talið verður upp úr kjörkössunum eftir alþingis kosningarnar sem fram fara þann 27. apríl næstkomandi. Þeir sem DV ræddi við segja að líklega myndu flestir flokksmenn VG sætta sig við 14–15 prósenta fylgi í kom- andi kosningum sem myndi skila flokknum níu til tíu þingmönnum sem er svipað fylgi og Vinstri- grænir voru með árið 2007. Flokkurinn náði inn 14 þingmönnum eftir kosn- ingarnar vorið 2009 og var fylgið þá 22 prósent. Enginn sem DV ræddi við telur raunhæft að flokkurinn fái aftur slíka kosningu. Langflestir ánægðir með Steingrím Þeir viðmælendur sem DV ræddi við voru þó flestir sammála um að staða Steingríms innan Vinstri-grænna væri nokkuð góð. Benti einn viðmælandi á að þrátt fyrir umræðu um stöðug átök innan flokksins og viðvarandi óánægju vegna ágreinings um ýmis stór mál- efni eins og aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið væri langstærsti hluti stuðningsmanna Vinstri-grænna ánægður með störf Steingríms. Hef- ur hann mælst með á bilinu 80 til 90 prósent ánægju hjá stuðningsmönn- um flokksins samkvæmt mælingum Capacent allt frá 2009. Til samanburðar má nefna að í mars árið 2010 voru um 90 prósent af stuðningsmönnum flokksins ánægð með störf Steingríms á meðan einung- is tæplega 40 prósent stuðnings- manna voru ánægð með störf Jóns Bjarna sonar, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þegar fylgi flokksins minnkaði jókst hins vegar ánægjan með störf Jóns en sama hlut- fall var þó áfram ánægt með störf Stein- gríms. Fáir treysta sér hins vegar til þess að túlka orsakasamhengið þarna á milli. Þá hefur líka ríkt mikil ánægja með störf Katrínar Jakobsdóttur, vara- formanns Vinstri-grænna. Sagði einn viðmælandi DV að engin annar stjórn- málaflokkur á Íslandi hefði yfir að búa jafn sterkum formanni og varafor- manni og Vinstri-grænir um þessar mundir. Það gæti þó breyst á næstunni – bæði hjá Sjálfstæðisflokknum sem og Samfylkingunni. Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri-grænna, benti á það á bloggi sínu á miðvikudaginn að í lok árs 2011 hefðu 76,2 prósent af stuðningsmönn- um Vinstri-grænna vilja ljúka aðildar- viðræðunum við Evrópusambandið, samkvæmt könnun sem Fréttablað- ið gerði. Því er ekki víst að sú óánægja sem landsmenn hafa tekið eftir vegna átaka um ESB innan Vinstri-grænna risti jafn djúpt í komandi alþingiskosn- ingum. Benti Björn Valur jafnframt á að allar ákvarðanir og öll skref sem snéru að afstöðu Vinstri-grænna til aðildarviðræðnanna hafi verið teknar á flokksráðsfundum eða landsfund- um Vinstri-grænna. Erfið átök við Ögmund Líkt og Svanur Kristjánsson, pró- fessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, bendir á í viðtali sem birt er hér til hliðar hafa átökin innan flokksins reynt mjög á vinskap þeirra Ögmundar Jónassonar og Steingríms J. Sigfússonar. Segja má að staða Ög- mundar innan Vinstri-grænna standi núna á vissum tímamótum eftir að n Flestir telja að Steingrímur fari nokkuð sterkur inn í kosningarnar Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is Fylgi Vinstri-grænna 2003–2013 *Fylgi samkvæmt síðustu könnun Capacent 3.1.2013 8,8% 14,3% 21,7% 9,1% 2003 2007 2009 2013* Fylgið aldrei minna Vinstri-grænir mældust með 9,1 prósents fylgi í nýjustu skoðanakönnun Capacent. Steingríms J. Sigfússonar bíður því erfitt verkefni – að leiða flokkinn í komandi kosningabaráttu. 14 Fréttir 11.–13. janúar 2013 Helgarblað É g hygg að ágreiningur á milli Ög- mundar Jónassonar og Stein- gríms J. Sigfússonar risti mjög djúpt innan flokksins. Innan- flokksátök eru flokkum ofboðslega erfið. Þú ert með ákveðnar reglur um það hvernig slíkt á að fara fram inn- an stjórnmálaflokka. Þegar átök eru innanflokks sem eru á persónuleg- um forsendum verður þetta snúið,“ segir Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann telur að stór hópur innan Vinstri-grænna hafi þá skoðun að all- ar eðlilegar leikreglur stjórnmála hafi verið brotnar þegar ákveðið var að sækja um aðild að ESB árið 2009 sam- banber ríkisstjórnarsáttmála Sam- fylkingar og Vinstri-grænna. „Þar var verið að beita meirihlutavaldinu til að koma málinu í gegn þvert á leikreglur,“ segir Svanur. Við þetta hafi margir flokksmenn ekki sætt sig við. „Sama hversu miklu fylgi Vinstri- grænir ná þá munu þeir gera það að úrslitaatriði að aðildarviðræðum við ESB verði hætt eða að það fari að minnsta kosti fram þjóðaratkvæða- greiðsla um áframhald viðræðnanna. Ein af afleiðingum þessara innan- hússátaka hjá Vinstri-grænum og þessu fylgishruni er að Samfylkingin og Vinstri-grænir eru fyrir komandi kosningar að útiloka áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf sitt. Það eru hin stóru tíðindi,“ segir hann. Margir óákveðnir Að mati Svans ber þó að taka tölum um núverandi fylgi Vinstri-grænna upp á 9,1 prósent með fyrirvara. Spásagnir um að Sjálfstæðisflokkurinn sé að stefna í stórsigur í komandi kosning- um sé ansi brött túlkun. „Flestir töldu að stofnun Vinstri-grænna í upphafi væri feigðarflan. Það kæmi mér því ekki á óvart að ef Vinstri-grænir næðu um 15 prósenta fylgi í komandi kosn- ingum og næðu inn um níu til tíu þing- mönnum teldu margir flokksmenn það nokkuð góðan árangur,“ segir Svanur. Það sem skiptir miklu máli sé líka hópur óákveðinna kjósenda. Árið 2007 hafi um helmingur fólks verið óákveðinn fyrir alþingiskosningarnar það ár. Nú sé hlutfall óákveðinna enn hærra. Spám um dauða Vinstri- grænna beri því að taka með fyrirvara. „Í forvali Vinstri-grænna var lítil kosn- ingaþátttaka. Flokknum hefur ekki heldur tekist að kalla fram nýja fram- bjóðendur í stað þeirra sem hafa verið að hverfa í burtu. Það virðast vera afar miklir veikleikar inni í starfi flokksins, slæmt andrúmsloft og lítil þátttaka.“ Hann spyr hins vegar hvað þeir sem séu óánægðir með VG ætli að kjósa í staðinn. „Þegar allt kemur til alls munu margir úr þeirra kosninga- hópi líta svo á að Vinstri-grænir séu einfaldlega skásti kosturinn,“ segir Svanur. Þá sé komin nýr þáttur sem skipti miklu máli og það sé kosninga- þátttakan sjálf. „Sjálfstæðisflokkurinn á mikla möguleika á að vinna kosn- ingasigur ef kosningaþátttakan er til- tölulega lítil. Ef hún verður mikil þá eiga Vinstri-grænir meiri möguleika. Sjálfstæðisflokkurinn á lítið af hinu óákveðna fylgi. Í síðustu alþingiskosn- ingum árið 2009 voru Vinstri- grænir orðnir mjög sterkir á meðal ungs fólks. Ef Vinstri-grænum tekst að fá ungt fólk til að mæta á kjörstað líkt og þeir- náðu að gera árið 2009 og virkja þann hóp þá á flokkurinn að geta verið í þokkalegum málum.“ Erfitt að mæta Steingrími Það verði hins vegar ekki tekið af Steingrími að hann hafi komið inn í stjórnarsamstarf þegar fjármálakerfið og ríkissjóður hafi verið nánast gjald- þrota. Skuldatryggingarálag ríkissjóðs Svanur segir áframhaldandi stjórnarsamstarf vera útilokað Stjórnmálafræðingur Svanur segir mikilvægt fyrir VG að ná til yngri kjósenda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.