Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Síða 20
20 Erlent 11.–13. janúar 2013 Helgarblað
M
ikil hitabylgja er nú í Ástr
alíu og óttast yfirvöld að
hitinn á ákveðnum svæð
um geti farið í allt að 50
gráður um og eftir helgi.
Til marks um hitann sem verið hef
ur síðustu daga má geta þess að fjór
ir heitustu dagarnir frá upphafi mæl
inga í Ástralíu hafa verið á árinu 2013
sem er nýbyrjað. „Það leikur enginn
vafi á því að um mjög afbrigðilega
hitabylgju er að ræða,“ segir David
Jones, yfirmaður áströlsku veðurstof
unnar. Ekkert lát virðist vera á hita
bylgjunni og er gert ráð fyrir mikl
um hita á stórum svæðum landsins
í næstu viku.
43 stiga hiti
Á þriðjudag náði hitinn í höfuð
borginni 36 gráðum og í fjölmenn
ustu borg Ástralíu, Sydney, náði
hitinn 43 gráðum. Það er þó ekki í
stórborgum landsins sem ástandið
er verst því skógareldar hafa verið
fylgifiskur hitabylgjunnar undan
farna daga. Þeir hafa geisað á strjál
býlum svæðum landsins og á eyj
unni Tasmaníu sem er suður af
meginlandi Ástralíu hafa þeir gert
fjölskyldum lífið leitt. Heimili hjón
anna Tammy og Tims Holmes varð
eldi að bráð í vikunni en minnstu
mátti muna að mun verr færi.
Fimm barnabörn hjónanna, á
aldrinum tveggja til ellefu ára, voru í
heimsókn þegar eldhafið gleypti hús
þeirra og áttu þau fótum sínum fjör
að launa eins og sést á meðfylgjandi
mynd.
Hjónin fóru með barnabörn sín á
eina staðinn sem þau töldu öruggan
– í lítið vatn sem stendur við heimili
þeirra. Þar biðu þau í tvo tíma þar til
slökkviliðsmenn komust á staðinn
og björguðu þeim. „Við reyndum
að aðstoða börnin svo þau önduðu
ekki að sér reyk. Súrefnið var orðið af
mjög skornum skammti,“ sagði Tim
en þau héldu sér í bryggju sem liggur
út í vatnið. Eldtungurnar teygðu sig
í bryggjuna sem varð til þess að þau
urðu að færa sig lengra út í vatnið. Þó
svo að húsið sem Tim byggði sjálfur
sé nú farið segist hann ánægðastur
með að fjölskylda hans hafi sloppið
heilu og höldnu.
Hitinn langt yfir meðaltali
Þrjátíu og fimm þúsund slökkvi
liðsmenn eru í viðbragðsstöðu í
Queenslandfylki í norðaustur
hluta landsins en fylkið er það
næststærsta og þriðja fjölmenn
asta í Ástralíu. Meðalhiti í Ástralíu á
mánudag var 40,33 gráður og er það
heitasti dagurinn frá upphafi mæl
inga. Fyrra metið var 40,17 gráður
og hafði það hitamet staðið frá árinu
1972. Meðalhiti í landinu á þriðju
dag var örlítið lægri en á mánudag,
eða 40,11 gráður. Örlítið svalara var
í veðri á miðvikudag og fimmtu
dag en þrátt fyrir það verður áfram
mjög heitt í veðri. Þá gera langtíma
spár ráð fyrir að hitinn þetta sumar
ið í Ástralíu verði langt yfir meðaltali
sem aftur eykur hættuna á skógar
eldum. „Þetta verður mjög krefjandi
fyrir slökkviliðsmenn,“ segir Jones
hjá áströlsku veðurstofunni.
Misstu allt sitt
Engin dauðsföll höfðu verið staðfest
um miðja vikuna en nokkurra er þó
saknað eftir að 90 heimili urðu skógar
eldum að bráð í bænum Dunalley í
Tasmaníu í síðustu viku. Í Tasmaníu
hafa hátt í 200 heimili brunnið til
kaldra kola. „Hérna er fólk sem hefur
misst allt sitt,“ sagði Lara Giddings,
æðsti embættismaður Tasmaníu, á
hjálparstöð sem komið hefur verið
upp á eyjunni.
Bændur hafa einnig orðið fyrir
gríðarlegu tjóni og er talið að sauðfé og
nautgripir í þúsundatali hafi drepist í
skógareldunum. n
n Hitabylgja og skógareldar í Ástralíu n Fjölmargir hafa misst heimili sitt
„Hérna er fólk sem
Hefur misst allt sitt“
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Hitabylgjan í Ástralíu
Eldur allsstaðar Hér sést undan hverju
fjölskyldan flýði. Eldtungurnar teygðu anga
sína víða með tilheyrandi reyk.
Komust í skjól
Tammy sést hér með
fimm barnabörnum
sínum en þau leituðu
skjóls í litlu vatni við
heimili sitt í Tasmaníu.
Gott starf fyrir
adrenalínfíkla
Ferðaþjónustufyrirtækið First
Choice, sem rekur SplashWorld
vatnsleikjagarðana, hefur auglýst
til umsóknar starf sem líklega er
draumastarf margra. Þeir sem
sækja um þurfa að vera reiðu
búnir að ferðast um allan heim og
prófa vatnsrennibrautir fyrirtæk
isins. Ekki er um neitt sjálfboða
starf að ræða því sá sem fær starfið
fær greitt sem samsvarar rúmum
fjórum milljónum króna fyrir sex
mánaða samning. Tommy Linch
sinnti umræddu starfi í fjögur ár
og segir hann að um besta starf í
heimi sé að ræða. „Þetta gat samt
verið erfitt því stundum var kalt í
veðri en að öðru leyti var þetta frá
bært,“ segir hann. Lynch, sem er
33 ára, er frá Liverpool á Englandi
en hann ákvað að segja starfi sínu
lausu fyrir annað starf sem ekki
krefst jafn mikilla ferðalaga. Hann
segir að rennibrautarferðirnar
á undanförnum árum séu mörg
þúsund talsins.
Fær einn og
hálfan milljarð
Breskri konu Clare Scott,
móður 14 ára drengs sem hlaut
heilaskaða vegna læknamistaka í
fæðingu, hafa verið dæmdar tæp
lega 1.500 milljónir króna í bætur.
Sonur hennar, Charlie, lamaðist
vegna mistaka sem gerð voru
og hefur hann verið í hjólastól
alla ævi. „Bæturnar veita okkur
ákveðið öryggi en þær bæta ekki
upp fyrir fötlun hans,“ sagði Clare
í samtali við breska fjölmiðla eft
ir að dómurinn var kveðinn upp.
Hún segist ætla að nota bæturnar
til að kaupa nauðsynlegan hjálp
arbúnað fyrir son sinn og tryggja
að hann fái góða þjónustu það
sem eftir er.
Hættulegir
flækings-
hundar
Yfirvöld í Mexíkó rannsaka nú
hvort flækingshundar hafi ný
lega orðið fjórum einstaklingum í
Mexíkóborg, þar á meðal móður
og barni, að bana. Bitsár fundust
á líkunum og hafa 25 flækings
hundar sem höfðust við í Cerro de
la Estrellaskóglendinu í útjaðri
Mexíkóborgar verið gómaðir.
Líkin fundust skammt frá svæð
inu. Í frétt breska ríkisútvarpsins,
BBC, kemur fram að bitsár sem
fundust á líkunum gefi til kynna
að allt að tíu hundar hafi ráðist á
fólkið. Talið er að fólkið hafi látist
á tímabilinu frá 29. desember til 5.
janúar. Talið er að allt að 120 þús
und flækingshundar hafist við á
götum Mexíkóborgar.