Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 40
40 Lífsstíll 11.–13. janúar 2013 Helgarblað
Níu þúsund króna
sófi er stofustássið
n Grefur upp gullmola á Bland.is og í Góða hirðinum
Þ
að er rökkur úti þegar sú
sem þetta ritar bankar upp
á í fallegu látlausu húsi í út-
hverfi Reykjavíkur.
Á móti henni tekur
glaðleg og falleg ung kona, Helga
Sæunn Árnadóttir, sem hefur inn-
réttað heimilið á undurfallegan
hátt ásamt eiginmanni sínum, Ívari
Jónssyni.
Helga Sæunn virðist hafa í það
minnsta 48 klukkustundir í sólar-
hringnum. En þau eru sjö í heimili
með nýjasta fjölskyldumeðlimnum,
átta vikna hvolpi. Helgu Sæunni er
margt til lista lagt, en hún kennir
í naglaskólanum Finally sem hún
á og rekur ásamt því að gera upp
gömul húsgögn og muni sem hún
er dugleg að grafa upp hér og þar.
Einnig hannar hún persónuleg
kerti, saumar gullfallega púða og
hjörtu með myndum af þeim sem
manni þykir vænst um fyrir einstak-
linga og fyrirtæki, hún stundar
áhugaljósmyndun, hefur málað
mörg glæsileg málverk og er einnig
menntaður förðunarfræðingur.
Hér er á ferðinni frumkvöðull og
hörkudugleg listræn kona sem hef-
ur unun af því að nostra við að gera
upp gamla muni.
Heimilisgullin
Dýrmætastasta flíkin er? Sennilega
kjóll úr Júniform sem Birta Björnsdóttir
fatahönnuður gaf mér í afmælisgjöf
þegar ég varð fertug.
Heimilisfólkið?
Ívar, Helga Sæ-
unn, Árný Sara,
Kamilla, Árni Jón,
Lísbet Sæunn
og Jökull Frosti,
tveggja mánaða
voffinn okkar.
Langar þig til að
breyta einhverju
á heimilinu? Já,
það er endalaust
hægt að breyta
og gera betur
heima hjá sér ég
geri ekki annað en
að færa hluti til.
Stíllin heima er? Rómantískur í bland
við nýtt, gaman að blanda saman
ólíkum stíl ef vel er gert.
Hvar finnur þú þessa gömlu muni sem
þú gerir upp? Ég hef grafið öll mín hús-
gögn upp á Bland.is og í Góða hirðinum,
en öll mín húsgögn hafa kostað lítinn
pening og hef ég gert þau öll upp frá
grunni sjálf.
Ef peningur væri ekki fyrirstaða?
Þá fyrsta sæti Taíland, mig langar svo
þangað en það verður að bíða betri
tíma. Ég myndi gefa til góðgerðamála,
til dæmis til Neistans, en ég gæfi þeim
nýtt tæki sem greinir hjartagalla. Svo
myndi ég kaupa sumarbústað og byggja
vinnustofu þar sem ég gæti skapað allt
mögulegt.
Næst á dagskrá? Er að byrja á fullu í
ræktinni, nýtt ár – nýir tímar, það verða
miklar og skemmtilegar breytingar á
þessu ári að mínu mati.
Eitthvað að lokum? Gleðilegt ár og
verið góð við hvert annað!
Íris Björk Jónsdóttir
blaðamaður skrifar iris@dv.is
Kertaskreyting Helga gerir kertin sjálf.
Séð inn í stofu Stílhreint og hlýlegt.
Góð kaup Helga keypti sófann, sem dóttir
hennar, Lísbet, situr hér í með heimilishund-
inum, í Góða hirðinum á 9.000 krónur.
Hlýlegt Hjörtu eftir Helgu á náttborði. Náttborðið keypti Helga á Bland.is á 2.000 krónur.
Fallegt Helga keypti arininn í Góða hirðinum á 20 þúsund krónur og gerði upp.