Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Qupperneq 50
50 Fólk 11.–13. janúar 2013 Helgarblað
B
ritney Spears mun að öll-
um líkindum ekki mæta aft-
ur í dómarasæti í nýrri ser-
íu The X Factor. Samt sem
áður virðist poppprinsessan ætla
halda sig við sjónvarp. Heimild-
ir slúður miðilsins RadarOnline
herma að Britney sé í viðræðum
við sjónvarpsþáttaframleiðendur
varðandi nýjan sjónvarpsþátt með
henni í aðalhlutverki. RadarOn-
line hefur það eftir föður Britney,
Jamie, að eigin þáttur í sjónvarpi sé
nákvæmlega það sem söngkonuna
vanti – Britney verði að hafa mikið
að gera og hafa miklar og strangar
reglur í kringum sig til að funkera
sem best.
Á
liðnu ári hefur frægðarsól
Lenu Dunham risið hratt og
mikið hefur verið um hana
fjallað. En hún hefur ekki
alltaf siglt lygnan sjó ef marka má
viðtal við hana í V Magazine.
„Frá því ég var í leikskóla og eftir
það vissi ég ekki hvernig ég átti að
vera í kringum fólk,“ sagði Lena.
„Fyrst var ég örsmár krakki sem átti
ekki vini, síðan var ég þybbinn ung-
lingur sem átti ekki vini. Ég vissi ekki
hvernig ég átti að ná til fólks.“
Frelsuð úr fangelsi
Dunham, sem hefur orðið þekkt fyrir
sérviskulegan sjarma og hnyttni, seg-
ir að heimssýn sín hafi markast af því
hversu einangruð hún var. Í dag get-
ur þessi unga kona hins vegar kallað
sig rithöfund, leikstjóra og leikkonu
og er dáð af umheiminum.
Hún segist vera þakklát fyrir að
hafa verið frelsuð úr fangelsi fallegra
Hollywood-kvenna þar sem framinn
snýst um útlitið. „Ég borðaði köku í
morgunmatinn daginn sem Emmy-
verðlaunin voru afhent. Ég borð-
aði líka köku í kvöldmatinn og samt
finnst mér að ég hafi litið betur út en
fólk almennt bjóst við. Það var frá-
bært, mér fannst ég öfunduð.“
Enginn lætur eins og asni
Það má vera að Dunham hafi notið
þess að fanga athygli allra á Emmy-
verðlaunahátíðinni, en það var ekki
í eina sinn sem útlit hennar varð
umtalað. Henni er oft stillt fram
sem andstæðu þeirra grindhoruðu
í Hollywood og er yfir sig undrandi
yfir öllum þeim fría tískufatnaði sem
hún fær sendan vegna frægðar sinn-
ar og segist ánægð með að enginn
láti eins og asni og sendi föt í stærð
fjögur.
Krepputengd viðhorf ömmu
Lena gantast svo með það í viðtalinu
að hún gangi svo í sama fatnaðinum
í marga daga í röð. Vegna þess að
krepputengd viðhorf ömmu hennar
hafi smitast yfir á hana og þannig
hafi hver flík sem hún hafi fengið
senda til sín verið sú allra fallegasta
sem hún hafði nokkru sinni átt.
Aðdáendur þátta Lenu, Girls,
hafa beðið nýrrar þáttaraðar með
eftirvæntingu. En nú er biðin á enda.
Fyrsti þáttur annarrar þáttaraðar
verður sýndur á sunnudag.
Britney í
eigin þætti
n Britney mætir ekki aftur í The X Factor
KaKa á morgnana
og KaKa á Kvöldin
n Lena er ekki í prísund fallegra kvenna í Hollywood
Átti ekki vini Lena Dunham segist ekki hafa átt vini sem barn og unglingur og hún hafi
verið einangruð. Í dag dáist fólk að sérviskulegum sjarma hennar. Hún þótti sérlega glæsileg
á Emmy verðlaunaafhendingunni á síðasta ári.
P
úkinn í Charlie Sheen virð-
ist hafa snúið aftur því sam-
kvæmt heimildum TMZ hef-
ur leikarinn tekið upp fyrri
lífstíl sem eins og margir muna
varð til þess að hann var rekinn úr
Two and a Half Men. Nýjustu frétt-
ir af vandræðagemsanum herma
að hann sé nú kominn með nýja
kærustu, klámmyndaleikkonuna
Georgiu Jones.
Sheen, sem er 47 ára, og Jones,
sem er 24 ára, sáust fyrst opinber-
lega saman um síðustu helgi í Mexíkó
þegar leikarinn var viðstaddur opnun
nýs skemmtistaðar í hans eigu. Sam-
kvæmt heimildum TMZ hefur parið
þó búið saman í villu leikarans frá því
í október.
Sheen hefur verið iðinn við kolann
síðan hann sleit síðasta ástarsam-
bandi sínu, við klámmyndaleikkon-
una Bree Olson, sem hann hætti með
í gegnum sms-skilaboð.
Nýja kærastan
í klámmyndum
n Charlie Sheen samur við sig
Kossaflens Þessi mynd náðist af
parinu á dögunum.
Kærastan Nýja kærastan
heitir Georgia Jones og er 24
ára klámmyndaleikkona.
Kökuát á klósetti Lenu
Dunham er gjarnan stillt upp
sem andstæðu grindhoraðra
kvenna í Hollywood sem
treysta á útlitið fyrir frama
sinn. Hún treystir á hæfileika
sína og fær sér eins mikið
af kökum og hún vill. Hér er
Lena á frægri mynd þar sem
hún stillir sér upp nakin á
klósetti við kökuát.
J
ustin Bieber og Selena
Gomez eru hætt saman –
aftur. Samkvæmt heimild
um US Weekly er það nú til
frambúðar en hið unga par hef
ur átt í erfiðleikum um hríð.
Þau höfðu ætlað að eyða
áramótunum saman í Puerta
Vallarta í Mexíkó en sú samvera
fékk skjótan endi þegar Gomez
ákvað að fljúga heim til Los Ang
eles þann 30. desember. „Þau
rifust heiftarlega, eins og oft
áður, og Selena mun ekki fyrir
gefa honum,“ hefur US Weekly
eftir heimildarmanni sínum. Þá
kemur fram að svo virðist sem
þeim sé alvara með sambands
slitunum að þessu sinn. Gomez
var með vinum sínum yfir ára
mótin á meðan Bieber var með
rapparanum Lil Twist á klúbbi í
Los Angeles.
n Selena Gomez fór í kjölfar rifrildis
Hætt saman,
einu sinni enn
Stjörnuparið Á
meðan allt lék í lyndi