Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 10
10 Fréttir 12.–14. apríl 2013 Helgarblað
Vinkonan beitti
kynferðisofbeldi
n Voru bara börn þegar þetta gerðist n „Það var ekkert saklaust við þennan leik“
É
g bjó í blokk og hún bjó á næstu
hæð fyrir neðan mig. Ég átti
ekki marga vini svo okkur var
ýtt saman. Við fífluðumst og
lékum okkur. Hún var prakkari
og ég fylgdi með, enda tveimur árum
yngri. Einu sinni, þegar við vorum úti
á leikskólavellinum, gerðist eitthvað
sem ég á enn þann dag í dag erfitt
með að skilja.
Ég man lítið eftir aðdragandanum,
ég man bara að ég var allt í einu kom
in úr að neðan og lá á bakinu inni í
litlu viðarhúsi í björtum litum í ein
hvers konar læknisleik. En það var
ekkert saklaust við þennan leik.
Hún talaði við mig en ég meðtók
ekkert sem hún sagði. Ég man bara
að ég lá og horfði upp í rjáfrið, skelf
ingu lostin á meðan hún tróð stein
um inn í leggöngin á mér. Það var
vont en sársaukinn í líkamanum var
miklu minni en sársaukinn í hjart
anu.
Ég hafði aldrei lent í neinu þessu
líku og ég vissi ekkert hvað var að
gerast, eða hvernig ég ætti að bregð
ast við, ég fraus og sagði engum frá
því hvað gerst hafði.“
Þannig lýsir kona á þrítugsaldri
því þegar hún varð fyrir kynferðis
legu ofbeldi af hálfu vinkonu sinnar
þegar hún var átta ára. Hún vill ekki
láta nafns síns getið.
„Hún var alltaf þarna“
Konan hefur unnið úr reynslu sinni
og segir tímabært að opna um
ræðuna á að konur séu einnig ger
endur í kynferðisbrotamálum. „Mér
finnst alveg kominn tími til að tala
um konur sem gerendur. Það er
alltaf verið að tala um karla í tengsl
um við kynferðisofbeldi en það er
aldrei tekið með í reikninginn að
konur geta einnig framið kynferðis
brot.
Þegar ég segi fólki frá því sem
ég lenti í þá vill það ekki trúa því,
þar sem stelpur eiga ekki að geta
nauðgað. Fólk nær þessu ekki
og spyr nánast undantekningar
laust, hvernig fór hún að því? En
auðvitað eru alls konar aðferðir
sem konur geta notað til þess að
beita kynferðisofbeldi. Stelpan
sem meiddi mig notaði steina, en
hún hefði alveg eins getað notað
hendurnar eða tunguna.“
Eftir að þetta gerðist þá breyttu
st samskipti stúlknanna. „Hún hélt
áfram að vera til staðar í mínu lífi.
Ég reyndi að forðast hana en gat
það ekki. Okkur var sagt að leika
okkur saman og henni var alltaf
boðið í afmælið mitt. Hún var alltaf
þarna og hún varð mjög skrýtin
eftir þetta. Ég var mjög hrædd við
hana og fylltist alltaf ótta þegar ég
þurfti að fara fram hjá íbúðinni
hennar til þess að komast heim til
mín og ég man að ég pissaði einu
sinni á mig vegna þess.
Hún misnotaði mig aldrei aftur
en hún stjórnaði mér alveg. Hún
sagði mér að gera eitthvað, ég neit
aði en hún ítrekaði skipunina og ég
gerði það. Ég var mjög meðvirk hvað
hana varðaði. Alltaf leið mér eins
og ég væri meiri hálfvitinn í kring
um hana, eins og það væri eitthvað
að mér. Ég hætti ekki að umgangast
hana fyrr en ég flutti burt úr blokk
inni.“
Lenti aftur í ofbeldi
Seinna varð þessi kona ítrekað fyrir
kynferðisofbeldi af hálfu mismun
andi manna. Hún var enn á barns
aldri þegar leiðbeinandi í ævintýra
námskeiði sem hún sótti gekk yfir
mörkin hennar, hún var þvinguð til
munnmaka á unglingsárunum, fyrsti
kærastinn nauðgaði henni og annar
gerði það líka, en sá notaði tækifærið
á meðan hún svaf. „Ég man að ég
grét,“ segir hún. „Ég leyfði fólki al
gjörlega að valta yfir mig. Ég þekkti
ekkert annað og var ekki tilbúin til
þess að horfast í augu við ljótleikann.
Þetta var bara svona.“
Hún segist aldrei hafa staðið sterk
fyrir. „Mamma og pabbi elskuðu
mig út af lífinu en þau voru alltaf að
vinna svo við vorum rosalega mikið
ein heima. Ég lenti líka í miklu ein
elti og í mörg ár leið mér eins og ég
væri ekki tengd sjálfri mér. Mér leið
þannig í meira en tíu ár. Þegar ég var
sextán ára sagði ég fyrst frá því sem
hafði komið fyrir mig og skömmu
síðar byrjaði ég að mæta í viðtöl hjá
Stígamótum og seinna tók ég þátt
í hópastarfinu þar. Núna er ég hjá
Drekaslóð og það hefur hjálpað mér
mjög mikið.“
Sársaukinn varð dýpri
Af öllu sem hún hefur lent í þá var
þetta atvik sem átti sér stað í litla lit
ríka viðarkofanum verst. „Af því að
ég þekkti hana svo rosalega vel. Við
vorum búnar að vera vinkonur og
hún var stelpa. Það er allt annað að
vera misnotaður af karlmanni og
kvenmanni, það er einhvern veginn
meira traust brotið og sársaukinn var
mun dýpri þegar vinkona mín gerði
þetta. Þetta var alveg ömurlegt.“ n
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
171 karlmaður
n Í rannsókn sem Svala Ísfeld Ólafsdóttir gerði á gerendum í kynferðisbrotamálum
kemur fram að frá stofnun Hæstaréttar árið 1920 hefur 171 karlmaður verið sakfelldur
fyrir kynferðisbrot en engin kona.
27 konur gerendur
n Í ársskýrslu Stígamóta kemur fram að í þeim málum sem þar voru til umfjöllunar árið
2012 voru gerendur kvenkyns í 5,6 prósentum tilfella. Það þýðir að um 27 konur hafi
beitt kynferðisofbeldi árið 2012.
129 frændur
n Ef aðeins er litið til sifjaspellsmála kemur í ljós að:
n Feður eða stjúpfeður voru gerendur í 23,8 prósentum tilvika en mæður eða stjúp-
mæður voru gerendur í fjórum prósentum tilvika.
n Bræður eða stjúpbræður voru gerendur í 13,5 prósentum tilvika en systur eða stjúp-
systur voru gerendur í 1,6 prósentum tilvika.
n Afar voru gerendur í 7,9 prósentum tilvika en engin dæmi voru um að amma væri
gerandi.
n Frá árinu 2008 hafa samtals 129 frændur beitt fjölskyldumeðlim kynferðisofbeldi
í sifjaspellsmálum en tíu frænkur. Þar af voru frændurnir fimmtán á síðasta ári og
frænkan ein.
4 gerendur í 5,3% tilvika
n Í ársskýrslu Stígamóta kemur einnig fram að í mörgum tilvikum höfðu þolendur orðið
fyrir ofbeldi af fleirum en einum geranda, eða í 39,4 prósentum tilvika.
n Í 19,3 prósentum tilvika voru ofbeldismennirnir tveir, í 8,7 prósentum tilvika voru
gerendurnir þrír og í 5,3 prósentum tilvika voru þeir fjórir.
n Í sjö tilvikum voru ofbeldismennirnir sjö eða fleiri. Einn sagðist hafa orðið fyrir
kynferðisofbeldi af hálfu tíu mismunandi manna.
n Stundum voru tveir eða fleiri að beita ofbeldi á sama tíma en stundum var um aðskil-
in atvik eða tímabil að ræða.
22 lyfjanauðganir
n Alls voru 182 nauðgunarmál til umfjöllunar á Stígamótum árið 2012. Þar af voru 22
lyfjanauðganir og 24 hópnauðganir.
n Í ellefu hópnauðgunum voru gerendur tveir, í sjö tilfellum voru þeir þrír og í tveimur
tilfellum voru þeir fjórir. Í fjórum tilfellum vantaði upplýsingar um fjölda gerenda.
n Enginn karl sagðist hafa orðið fyrir lyfjanauðgun en einum karli var hópnauðgað.
„Það var vont en sársaukinn
í líkamanum var miklu
minni en sársaukinn í hjartanu