Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Page 12
12 Fréttir 12.–14. apríl 2013 Helgarblað
fyrir bankagróðann
n Bankarnir hagnast um 216 milljarða frá hruni n Mætti reisa tvo nýja Landspítala
L
andsbanki, Íslandsbanki og
Arion banki birtu á dögunum
ársuppgjör sín fyrir árið 2012
líkt og greint hefur verið frá.
Samanlagður hagnaður bank
anna þriggja eftir skatta nam 66
milljörðum króna. Á fjórum heilum
rekstrarárum sínum frá hruni nemur
samanlagður hagnaður bankanna
216 milljörðum króna. Íslendingar
eru margir orðnir ónæmir fyrir öllu
tali um milljarða, hvort heldur sem
þeir skipti tugum eða hundruðum,
og ákvað DV því að að setja hagn
aðartölur bankanna í samhengi. Til
dæmis við útgjöld ríkisins vegna
valdra stofnana eins og þau birtast í
fjárlögum ársins 2013.
Ríkið á sem kunnugt er rúm
lega 81 prósents hlut í Landsbank
anum en fyrir hagnað bankans, bara
í fyrra, mætti reka Háskóla Íslands,
lögregluna á höfuðborgarsvæðinu,
Landhelgisgæsluna, Alþingi og
Hrafnistu í Reykjavík í heilt ár auk
þess að standa straum af framlög
um íslenska ríkisins til þróunarsam
vinnu.
Samt mikill afgangur
Einn stærsti liðurinn í fjárlögum
hvers árs er rekstur Landspítalans
en vegna hans er áætlað að greiddir
verði úr ríkissjóði, að öllu frátöldu,
samtals 38,2 milljarðar króna. Fyrir
216 milljarða, sem er samanlagður
hagnaður bankanna þriggja frá
hruni, mætti reka Landspítalann í
rúmlega fimm og hálft ár miðað við
fjárlög.
Áætlanir gera ráð fyrir að kostn
aður við byggingu nýs Landspítala
verði 85 milljarðar króna með öllu.
Byggja mætti tvo slíka fyrir saman
lagðan heildarhagnað bankanna frá
hruni og eiga þar að auki 46 milljarða
í afgang.
Mætti reka HÍ í áratugi
Fyrir 216 milljarða mætti reka Há
skóla Íslands í rétt tæplega 21 ár, lög
regluna á höfuðborgarsvæðinu í 65 ár
og byggja sjö nýjar Hörpur sé miðað
við heildarkostnað við byggingu tón
listarhússins þegar allt er tekið með.
Samþykkt var í upphafi árs að selja
höfuðstöðvar Orkuveitunnar á 5,1
milljarð. 42 slíkar höfuðstöðvar mætti
kaupa fyrir 216 milljarða króna. n
2012 2011 2010 2009
Landsbanki 25,5 16,9 27,2 14,3
Íslandsbanki 23,4 1,9** 29,4 23,9
Arion banki 17,1 11,1 12,5 12,8
Hagnaður eftir skatta í milljörðum króna **Vegna væntra áhrifa gengislánadóms og niðurfærslu á viðskiptavild vegna sameiningar við Byr.
Svona hafa þeir hagnastSigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
*Greitt úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum 2013
Þetta mætti gera
216 milljarðar
53,583,9
78,6
Bygging nýs
Landspítala
85 milljarðar
Samanlagður hagnaður bankanna frá hruni
Landspítalinn
38,2 milljarðar *
Framlög Íslands til
þróunarsamvinnu í ár
4 milljarðar
Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu
3,5 milljarðar *
Landhelgisgæslan
3,3 milljarðar *
Alþingi
2,6 milljarðar *
Hrafnista, Rvk.
1,7 milljarðar *
Háskóli Íslands
10,4 milljarðar *
Heildarkostnaður
við byggingu Hörpu
27,7 milljarðar
Stefán Einar stefnir DV
n Krefst miskabóta vegna umfjöllunar um ráðningu
S
tefán Einar Stefánsson, fráfar
andi formaður VR, og unnusta
hans, Sara Lind Guðbergs
dóttir, hafa stefnt DV fyrir
meiðyrði og krefjast miskabóta vegna
umfjöllunar blaðsins um ráðningu
Söru Lindar í yfirmannsstarf hjá VR.
Í stefnunni segir að bæði sé gef
ið í skyn og fullyrt af hálfu DV að for
maður VR [Stefán Einar] hafi séð til
þess að Sara Lind Guðbergsdóttir
yrði ráðin til VR og sérstakt ráðn
ingarferli verið sýndarleikur á kostn
að félagsmanna. Gefið hafi verið í
skyn að stefnandi hafi misbeitt valdi
sínu og ráðið Söru Lind vegna ástar
sambands en ekki verðleika.
DV fjallaði ítarlega um málið fyrr
í vetur en það vakti bæði athygli og
óánægju meðal félagsmanna jafnt
sem umsækjenda um það starf sem
Sara Lind fékk að sambýliskona for
mannsins skyldi vera ráðin í eina af
æðstu stöðum félagsins.
Stefán Einar hafnar því alfarið að
hann hafi „pukrast“ með samband
sitt við Söru Lind og segir faglega hafa
verið staðið að ráðningu Söru Lindar.
Hún hafi einfaldlega þótt vera hæfust
þeirra sem um stöðu hópstjóra sóttu.
Bæði gera þau kröfu um eina
milljón króna í miskabætur auk rúm
lega sex hundruð þúsunda hvort um
sig til að greiða fyrir birtingu á dómn
um í útbreiddum fjölmiðli. n
Ósáttur Stefán Einar segir að Sara Lind hafi þótt hæfust í starfið.