Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 20
É g sagði að ég fyrirgæfi hon- um ef hann kæmi aldrei svona fram við aðra manneskju. Hann lofaði því,“ sagði Guð- ný Jóna Kristjánsdóttir þegar DV náði tali af henni, skömmu eftir að presturinn á Húsavík, séra Sig- hvatur Karlsson, hringdi í hana á miðvikudag og baðst afsökunar á framgöngu sinni þegar Guðný Jóna kærði bekkjarfélaga sinn fyrir nauð- gun árið 2000. Vitni var að málinu og drengurinn var dæmdur í hér- aðsdómi og dómurinn staðfestur í Hæstarétti. Presturinn vill læra af þessu Samfélagið klofnaði vegna máls- ins, fólk tók ýmist afstöðu með eða á móti, og stuðningsyfirlýsing við ger- andann sem þá var búið að dæma var birt í bæjarblaðinu undir yf- irskriftinni Mæður eiga líka syni. Presturinn reyndi að lægja öldurn- ar, meðal annars með því að stöðva birtingu stuðningsyfirlýsingarinnar en einnig með því að ræða við Guð- nýju Jónu sem upplifði samtalið sem þöggunartilburði; að hann teldi best að hún félli frá kærunni. Séra Sighvatur sendi frá sér yfir- lýsingu á miðvikudag þar sem hann greindi frá afsökunarbeiðninni. Þar sagði meðal annars: „Hugur minn stóð aldrei til þess að fá hana til þess að draga kæru sína til baka. Mér er nú ljóst mikilvægi þess að tala mjög skýrt í málum sem þessum.“ Í huga hans væri nauðgun mjög alvarlegur glæpur og að réttur þol- andans til þess að kæra sé skýlaus. „Í dag hika ég ekki við að hvetja þolendur til að leggja fram kæru í kynferðisbrotamálum og leita þeirr- ar aðstoðar fagaðila sem nú er í boði. Við verðum öll að draga lær- dóm af þessu máli. Mistök sem þessi mega ekki endurtaka sig.“ Fjölskyldan á Húsavík Guðný Jóna sagði sögu sína í Kast- ljósi á mánudag. Þar sagði hún með- al annars frá því hvernig það var að sitja undir svívirðingum þeirra sem sögðu „oj“ þegar þeir sáu hana eða gengu upp að henni og sögðu „þú ert ógeðsleg“. Að lokum flúði hún Húsavík og fór til Reykjavíkur þar sem hún stundaði nám og hélt svo utan. Hún býr nú í litlum smá- bæ í Noregi þar sem hún starfar sem heimilislæknir. Þar veit enginn að hún er þessi stelpa frá Húsavík sem hefur vakið þjóðina til umhugsunar með því að deila reynslu sinni með landsmönn- um. Foreldrar Guðnýjar Jónu voru hins vegar áfram á Húsavík og Guðný Jóna sagði í samtali við Kastljósið að það hafi verið erfitt að vita af þeim þar, „á þess- um vígvelli,“ eins og hún orðaði það. „Auðvitað sá ég hvað þau voru reið og frústreruð í kring- um þetta allt saman,“ sagði hún en taldi foreldra sína þó hafa hlíft henni við því versta. Móðir hennar tjáði sig sjálf um málið árið 2000 í viðtali við DV og sagði þá að stuðningsyfirlýs- ingin hefði verið eins og hnífstunga í bakið þar sem undir hana skrif- uðu meðal annars frændi, fyrrver- andi vinnuveitandi, kaupmaðurinn á horninu og vinnufélagar þeirra hjóna. Búið væri að eyðileggja mannorð dóttur hennar með lygum og það hefði verið með ólíkindum að verða vitni að þeirri mannfyrir- litningu sem birtist í þessu litla sam- félagi. Dó áður en dóttirin fékk uppreisn æru Móðir Guðnýjar Jónu lést árið 2003, áður en dóttir hennar hlaut upp- reisn æru sinnar og aðspurð sagði Guðný Jóna að hún hefði svo gjarna viljað að móðir hennar hefði upplifað þessa tíma. Þær ræddu þetta oft sín á milli og hún veit að móðir hennar var mjög reið yfir því hvernig þetta fór. „En ég veit ekki hvort henni tókst að ýta því frá sér undir lokin. Ég held að mamma og pabbi hafi ekki orðið fyrir aðdróttunum eða illu umtali á síðustu árum en ég veit að sumir tóku sveig fram hjá þeim þegar þeir mættu þeim úti á götu, kannski af því að þeir þorðu ekki að horfast í augu við þau vegna slæmrar sam- visku. En ég veit að mömmu hefði þótt vænt um að upplifa allt sem er að gerast núna. Ég vildi að hún hefði gert það. Ég held að hún hefði aldrei trúað því, eða nokkurt okkar.“ Ekkert einsdæmi Sjálf óttaðist Guðný Jóna svo að stíga fram að það tók hana þrjá mánuði að taka ákvörðun um að gera það. Það var svo maðurinn hennar sem benti henni á að hún hefði engu að tapa en allt að vinna. Frá því að þátturinn birtist hefur hún verið önnum kafin við vinnu svo hún hefur ekki haft tíma til þess að lesa allt sem um mál- ið hefur verið skrifað eða öll bréf sem henni hafa borist. Enda eru ófá bréf- in sem hún hefur fengið, frá fólki sem biðst afsökunar á framkomu sinni DÓ ÁÐUR EN DÓTTIRIN FÉKK UPPREISN ÆRU 20 Fréttir 12.–14. apríl 2013 Helgarblað n Guðný Jóna þakkar stuðninginn n Hefði viljað að móðir hennar upplifði þetta með sér Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Fjölskyldan Guðný Jóna er sjálf móðir í dag. Hún býr ásamt manni sínum og syni í litlum smábæ í Noregi þar sem hún er heimilislæknir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.