Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 24
Sandkorn F ullkomin örvænting ríkir á með­ al sjálfstæðismanna eftir því sem flokkurinn sekkur dýpra í þá eymd fylgiskreppu. Um allt land berjast frambjóðendur flokksins fyrir pólitísku lífi sínu. Svo er að sjá sem sumir átti sig ekki á því að staðan nú er sjálfskaparvíti. Leiðtoginn er trausti rúinn og stefnan eins og hún birtist er út og suður. Grundvallarstefna Sjálfstæðis­ flokksins byggir á frelsi einstaklings­ ins til athafna. Eitt af efstu gildunum er að samfélagið þrífist best með sem minnstum ríkisafskiptum og að fram­ tak einstaklinganna fái að blómstra. Ríkisafskiptum skal haldið í lágmarki. En stefna er eitt en haldin stefna annað. Sjálfstæðisflokkur Bjarna Benedikts­ sonar og Davíðs Oddssonar er sekur um að segja eitt en gera annað. Saga undanfarinna áratuga er vörðuð spill­ ingarmálum og inngripum flokksins í dómskerfi og víðar í opinbera geir­ anum. Flokkurinn stýrði Ríkisútvarp­ inu í sína þágu í stað þess að minnka báknið og rýma markaðinn svo einka­ fyrirtæki fengju lífsrými. Óþarft er að rifja upp skipanir lítt hæfra dómara og annarra flokksgæðinga í ríkisbákninu. Það furðulega er að frambjóðendur og þingmenn flokksins virðast láta sem þeir séu blindir á svik eigin flokks. Stálheiðarlegur þingmaður á borð við Kristján Þór Júlíusson lét hafa sig í það á kosningafundi að halda því fram að Bjarni formaður sætti einelti. Nefndi hann þar sérstaklega DV. Það sætir furðu ef það er einelti að rifja upp sót­ svarta viðskiptasögu manns sem situr á formannsstóli stærsta stjórnmálaflokks landsins. Bjarni stýrði olíufélagi út í botnlaust skuldafen með skuggalegum afleiðingum fyrir lífeyrissjóði og fleiri. Og hann var innvinklaður í vafasama viðskiptagjörninga. Það verður að telj­ ast vafasamt að frambjóðendur skuli leyfa sér að ráðast að fjölmiðli fyrir að lýsa slíkum ferli. En Bjarni hefur sjálfur gefið tóninn. Hann hafði í hótunum við eiganda DV auk þess að halda því blákalt fram að DV sé á bandi Vinstri grænna. Það er útilokað að Bjarni Bene­ diktsson eða aðrir stjórnmálamenn geti keypt sér frið frá umræðunni með hótunum eða kjassi. Það er beinlínis skylda okkar sem störfum við fjölmiðla að varpa ljósi á verk þeirra. Tjáningar­ frelsið getur ekki endað þar sem póli­ tíkusum hentar. Kristjáni Þór til varnar er þó rétt að halda því til haga að hann baðst seinna afsökunar á ummælum sínum. Vanda Sjálfstæðisflokksins hefði mátt leysa fyrir nokkrum mánuðum með því að skipta einfaldlega út for­ manni. Ný skoðanakönnun Viðskipta­ blaðsins sýnir að stór hluti þeirra sem hafa flúið í Framsóknarflokkinn myndu snúa aftur ef Hanna Birna Kristjáns­ dóttir sæti á formannsstóli Sjálfstæðis­ flokksins. Á meðan rúmlega 48 prósent treysta henni til þess að leiða flokk­ inn eru 12,3 prósent á þeirri skoðun að Bjarni valdi hlutverki sínu. Þarna er birtingarmynd fleinsins í holdi flokks­ ins. Sjálfstæðisflokkurinn er nú á barmi klofnings og líklega komið of nálægt kosningum til að hægt verði að breyta að gagni þeirri stöðu sem komin er upp. Niðurstaðan er sú að hægriöflin í landinu eru lömuð og fátt í boði annað en miðjan eða vinstrið. n Katrín sló í gegn n Þáttur RÚV um efnahags­ mál, þar sem öll landsfram­ boð mættu til að láta ljós sitt skína, var með þeim furðu­ legri. Alltof margir þátt­ takendur gerðu að verkum að málin voru meira og minna út og suður. Á DV.is var mæling á því hver hefði staðið sig best. Þar var Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra á toppnum en Sigmund- ur Davíð Gunnlaugsson, for­ maður Framsóknar, kom fast á hæla henni. Drengskapur Árna n Árni Johnsen, alþingis maður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið óþreytandi við að verja Bjarna Bene- diktsson for­ mann í ræðu og riti. Vill Árni meina að Bjarni sé fórnar­ lamb ein­ eltis. Þessi skjaldborg vekur nokkra undrun þar sem Árni segist sjálfur vera fórnarlamb undirmála í flokknum þar sem Ragnheiður Elín Árnadóttir kom honum úr þingsæti. Talið er að Bjarni formaður hafi verið með í ráðum. Árni sýnir því mikinn drengskap. Bræðrabylta n Þeir formenn sem eru í mestum vanda í dag eru Bjarni Benediktsson og Árni Páll Árnason en undir þeim hafa flokk­ arnir tveir tapað fylgi jafnt og þétt síðustu vik­ ur. Árni Páll setti mælikvarða á sjálfan sig þegar hann sagði í formanns­ framboðinu að flokkur með 20 prósenta fylgi væri ekki til neins nýtur. Hanna Birna setti viðmiðið fyrir Bjarna með því að segja daginn sem hún var kjörin varaformaður að það væri mikill ósigur ef Sjálf­ stæðisflokkurinn fengi undir 36 prósentum. Báðir formenn eru því líklegir til að hljóta sömu örlög ef kannanir eru réttar, og verða snarlega settir af eftir kosningar. Frosti arkitekt n Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verði næsti for­ sætisráðherra. Hugmynda­ smiður að baki kosningalof­ orðum Framsóknar hlýtur að koma til greina sem markaðs­ maður ársins. Önnur eins fylgisaukning hefur ekki sést í sögu íslenskra stjórnmála. Vigdís Hauksdóttir þingmaður lét hafa eftir sér í DV á föstu­ dag að efnahagsteymi sé að baki tillögum flokksins vegna skuldavanda heimilanna. Höfuð paur þess teymis er Frosti Sigurjónsson sem virð­ ist vera mesti happafengur. Flipp sem varð óvart vinsælt Þessi mikla gleði er að verða að veruleika Doddi litli er maðurinn á bak við Love Guru. – DV Hrafn Gunnlaugsson eignast barn á sjötugsaldri – DV Sjálfskaparvíti flokksins „Stefna er eitt en haldin stefna annað U ppi er hávær krafa um endur­ skoðun eða afnám verðtryggingar húsnæðislána og annarra neyt­ endalána. Því er vert að spyrja: Hvort væri skárra eða hyggilegra, að endurmeta verðtryggingu slíkra lána eða afnema verðtrygginguna tafarlaust? Verðtrygging fjárskuldbindinga var í upphafi leidd í lög 1979 til að hemja óhóflega rýrnun sparifjár vegna langvinnrar verðbólgu. Fyrir daga verð­ tryggingarinnar báru lánveitendur alla áhættu vegna verðbólgu, og sparifé fólks fuðraði upp í bönkum og sjóðum. Lán­ takandi, sem keypti sér fjögurra her­ bergja íbúð, þurfti ekki að borga nema eitt eða tvö herbergi til baka. Við þessu ranglæti þurfti að bregðast. Það var gert með Ólafslögum 1979, sem kennd eru við Ólaf Jóhannesson forsætisráðherra. Gallar verðtryggingar Í framkvæmd hefur verðtryggingin reynzt hafa tvo megingalla: n Þegar kaupgjald hækkaði hægar en verðlag, t.d. 2008–2010, leiddi verð­ tryggingin til þess, að skuldir heimil­ anna uxu hraðar en laun og mörg heim­ ili lentu í greiðsluerfiðleikum. Þeir, sem misstu vinnuna, lentu í enn meiri vand­ ræðum. n Vegna viðmiðunar fjárskuld­ bindinga við verðlag án tillits til kaup­ gjalds hafa lántakendur borið mesta áhættu vegna lánasamninga og lánveit­ endur borið litla áhættu. Við bætast efasemdir lögfræðinga um lögmæti verðtryggingar húsnæðis­ og neytendalána eins og hún hefur verið framkvæmd. Efasemdirnar snúast m.a. um, að bankar hafi vanrækt að kynna lántakendum til fulls þá áhættu, sem felst í verðtryggðum lánum á óvissum tímum í samræmi við reglur um neyt­ endavernd innan EES, sem Ísland hefur lögleitt. Væri verðtrygging afnumin tafar­ laust, er hætt við, að ranglæti óbreyttr­ ar verðtryggingar gagnvart lántakend­ um á húsnæðismarkaði myndi snúast upp í gamalkunnugt ranglæti gagn­ vart lánveitendum, t.d. lífeyrisþegum. Sporin hræða. Lífeyrissjóðir og aðrir eigendur sparifjár eiga nú að vísu fleiri og öruggari sparnaðarkosti en fyrir daga verðtryggingarinnar, en kostunum hefur fækkað eftir hrun. Gjaldeyrishöftin girða nú fyrir gengistryggðar fjárfestingar er­ lendis. Lýðræðisvaktin vill rétta hlut lán­ takenda gagnvart lánveitendum. Lýðræðisvaktin leggur til, að hús­ næðislán og önnur neyzlulán verði miðuð við nýja vísitölu, sem er ætlað að girða fyrir áhrif misgengis kaupgjalds og verðlags á hag heimilanna. Þetta væri hægt með því að miða höfuðstól hús­ næðislána sjálfkrafa við verðlag þau ár sem kaupgjald hækkar hraðar en verð­ lag og við kaupgjald þau ár sem kaup­ gjald hækkar hægar en verðlag. Einnig væri hægt að miða húsnæðislán við blandaða vísitölu, sem tekur mið bæði af verðlagi og launum. Til álita kemur einnig að taka t.d. erlenda verðskelli og innlendar skattaálögur út úr vísitölunni. Tillagan gerir því ráð fyrir endurmati frekar en afnámi verðtryggingar. Mark­ miðið er jafnræði milli lánþega og lán­ veitenda, svo að; n Lántakendur skaðist ekki, þegar kaupmáttur launa minnkar (t.d. 1989– 1990, 1992–1994 og 2008–2010 og einnig um og eftir 1983); n Lánveitendur haldi sínu, þegar kaupmáttur launa vex, sem er algengast; n Veitt sé færi á, að höfuðstóll verð­ tryggðra lána verði endurreiknaður á grundvelli nýrrar vísitölu aftur í tímann, t.d. frá og með hruninu 2008, til að rétta hlut heimilanna; n Betra færi skapist á umskipan bankamála og fjármálamarkaðar fram í tímann til að tryggja samkeppni; n Lántakendum sé frjálst að velja milli lána, sem miðast við nýja vísitölu, og óverðtryggðra lána í skjóli nýrrar lagaverndar lántakenda gegn lánveit­ endum; n Skilyrði skapist til afnáms verð­ tryggingar húsnæðis­ og neytendalána sem almennrar reglu til samræmis við skipan mála í nálægum löndum. Aðrar leiðir eru færar að sama marki, t.d. viðmiðun húsnæðislána við verð­ bólgumarkmið Seðlabankans frekar en við núgildandi verðvísitölu. Þak á vísitöluhækkun lána kæmi einnig til álita og einnig lán með tekjuskilyrtri endurgreiðslu, þannig að höfuðstóll væri að fullu verðtryggður, en endur­ greiðsla ávallt fast hlutfall af tekjum. Kosti og galla ólíkra leiða og kostnað­ inn, sem af þeim leiðir, þarf að vega og meta. Tryggja þarf virka samkeppni á lánamarkaði vegna húsnæðiskaupa, svo að vextir og gjaldtaka lánastofnana geti orðið með svipuðum hætti og í nálægum löndum og lántakendur geti auðveld­ lega endurfjármagnað lán sín, bjóðist betri kjör. Til að auka samkeppni þarf að lækka kostnað við að flytja viðskipti á milli banka, m.a. með afnámi stimpil­ gjalda. Með lögum þarf að knýja bank­ ana til að taka sér tak, banna kaupauka bankastjórnenda (bankarnir eru aftur komnir í gamla gírinn!) og girða fyrir getu banka til að braska með innstæður. Ábyrgð beggja Miklar skuldir eru ekki aðeins á ábyrgð lántakandans, heldur einnig lánveitand­ ans. Engum verður gert að bera þyngri skuldabyrði en hann getur borið. Rétt­ lát skuldajöfnun felst í, að skuldunautar semja við lánardrottna á réttum grunni, þar sem báðir aðilar sitja við sama borð. Það vill Lýðræðisvaktin: að allir sitji við sama borð. Verðtrygging: Endurmat eða afnám? Kjallari Þorvaldur Gylfason Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 24 12.–14. apríl 2013 Helgarblað Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is „Réttlát skuldajöfn- un felst í, að skuldu- nautar semja við lánar- drottna á réttum grunni, þar sem báðir aðilar sitja við sama borð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.