Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 35
frábært að tala við sálfræðing og ekk-
ert nema gott eitt um það að segja.
Þegar ég var búin að vera í fimm vik-
ur í þjálfun þarna þá átti ég að hitta
hana aftur til að útskrást en þá byrjaði
hún aftur að segja að þetta væri bara
í hausnum á mér. Ég ætti að hætta
hugsa um þetta og bara stíga í löpp-
ina. Það væri ekkert að mér. Ég fór og
kvartaði yfir henni og það endaði með
því að ég var send heim þegar ég átti
þrjá daga eftir þarna,“ segir Steinka.
Hún segir þolið og þrekið hafa aukist
á Reykjalaundi en hún hafi verið gjör-
samlega búin á því eftir að hafa verið
þar. Því meira sem hún æfði því verri
urðu verkirnir.
„Reyndu að taka mig
á sálfræðinni“
Í október sama ár fór Steinka að eiga
í erfiðleikum með að losa þvag. Auk
þess hafði dofinn í fætinum aukist.
„Ég fékk á endanum annað kast og
gat ekki meir. Þá var mér skutlað upp
á slysó og var svo lögð inn á tauga-
deildina daginn eftir. Þá var löpp-
in orðin tíu sinnum verri eftir kastið.
Meðan á þessu stóð þá gat ég ekki
pissað. Ég var á taugadeildinni í tvær
vikur og meðan ég var þar var tappað
af mér. Það var viðbjóður, maður fann
blöðruna fyllast og verk upp í nýra.
Þeir voru alltaf að segja mér að vera
á klósettinu þannig að ég sat á kló-
settinu meira eða minna í tvær vikur
en ekkert gerðist. Þau sögðu að þetta
væri örugglega stressblaðra og ég ætti
bara að reyna að pissa. Þau reyndu að
taka mig á sálfræðinni og biðu eftir
að ég spryngi.“ Ekkert gekk hjá henni
að losa þvag en hún ákvað svo að fara
til þvagfæraskurðlæknis sem mynd-
aði blöðruna. „Hann sagði við mig að
það væri ekki skrýtið að ég gæti ekki
pissað, blaðran væri stokkbólgin og
fullt af loftbólum.“ Þegar Steina var
svo útskrifuð af taugadeildinni hafði
hún fengið þá greiningu að hún væri
með hugbrigðaröskun. Það er tauga-
fræðilegt ástand sem hefur áhrif á
viljastýrða hreyfifærni eða skynvirkni
sem virðist benda til þess að sjúk-
lingur sé haldinn taugasjúkdómi.
Að sögn Steinku lýsir sú greining sér
þannig að fólk telur sig vera með sjúk-
dóm þrátt fyrir að engar ástæður finn-
ist því til stuðnings. Steinka segir það
algengt meðal fólks sem hefur orðið
fyrir áfalli, kynferðislegu ofbeldi , er
með undirliggjandi geðsjúkdóma eða
undir mikilli streitu meðal annars.
Ekkert af þessu segir Steinka hafa
passað við sig. Hún segist ekki vita af
hverju hún hafi fengið þessa grein-
ingu. „Örugglega af því að það sást
ekkert á myndum og þeir vissu ekki
hvað var að mér.“ Þarna var líkamlegt
ástand Steinku orðið mjög slæmt og
hún átti orðið mjög erfitt með gang
og komin með ökklaspelku til þess að
styðja við hægri fótinn.
Greind með hugbrigðaröskun
Hún segir að upp frá þessu hafi við-
mótið gagnvart henni hafa orðið
slæmt uppi á spítala. Hún hafi upplifað
að fólk teldi hana ljúga og að hún hefði
ekkert þarna að gera. „Ég var ekki vel-
komin þarna.“ Steinka segist hafa rætt
það við sálfræðinginn sem hún hélt
áfram að vera hjá eftir Reykjalundar-
dvölina hvort það gæti verið að hún
ímyndaði sér þetta. Hann taldi það
ekki geta staðist. „Mér var sagt að ég
myndi læknast af þessari hugbrigða-
röskun með því að fara til sálfræðings
og í sjúkraþjálfun.“ Hún hélt því áfram
en sífellt versnaði henni. „Ég fór heim
og hélt mínu striki. Ég var enn í vand-
ræðum með blöðruna og löppin var
hundleiðinleg. Ég var líka farin að
finna fyrir dofa í hendinni og andlitinu.
Ég fór að finna fyrir taugakippum, var
endalaust þreytt og svaf í tólf tíma á
dag. Á þessum tíma var ég komin með
svokallaðan „droppfót“. Ég dró hann
bara alveg á eftir mér. Eftir því sem ég
hjakkaði meira áfram því verri varð ég.“
Hin hliðin líka
Í desember 2011 fékk hún annað stórt
kast. „Þá fór hægri hliðin í fokk. Þá
fékk ég meiri dofa í hendur og andlit
líka. En ég böðlaðist alltaf áfram,“ segir
hún. Í febrúar 2012 lamaðist hægri
hliðin líka. „Þá var ég komin á Ísafjörð
þar sem ég á heima og lá á spítalan-
um þar. Þá fékk ég stórt kast og hægri
helmingurinn fór alveg, ég gat ekki rétt
úr fingrunum og var dofin alveg frá
mitti og niður.“ Læknir á Ísafirði vildi
að tekinn yrði mænuvökvi hjá henni
á taugadeildinni. Eftir nokkurt þras,
að sögn Steinku, fékk hann það í gegn.
Það fannst ekkert óeðlilegt í mænu-
vökvanum. Hún var útskrifuð af spítal-
anum og sjúkdómsgreiningin var star-
fræn röskun. Hana átti að lækna hjá
geðlækni sem Steinka fór til en ekkert
lagaðist.
Böðlaðist áfram
„Á þessum tíma var ég orðin mjög
slæm og með mikla taugakippi allan
daginn. Ég sofnaði þreytt og vakn-
aði þreytt. Ég hjakkaði áfram því það
var búið að segja að þetta myndi lag-
ast,“ segir hún. Raunin varð önnur.
Henni versnaði sífellt. Í september
2012 var hún komin í hjólastól. Þá
fékk hún kast en taugadeildin vildi
ekki taka við henni þrátt fyrir beiðn-
ir læknis hennar á Ísafirði. „Að lok-
um pantaði ég mér flug og mamma
kom með mér á spítalann.“ Þar seg-
ir hún móttökurnar ekki hafa verið
góðar. „Þarna var löppin orðin svört
niður,“ segir hún. Læknar tóku á móti
henni á slysadeildinni og á endan-
um kom læknir frá taugadeildinni.
Steinka segir læknana hafa hreytt
ónotum í hana. „„Hvað viltu að við
gerum fyrir þig?“ spurðu læknarnir,“
segir hún. „Við getum ekki gert neitt
meira fyrir þig, við verðum bara að
kalla á geðlækni,“ segir hún læknana
hafa sagt. Hún sagðist vera til í það
enda meira en reiðubúin að fá bót
sinna meina. „Ég sagði bara: frábært,
ég er ekki í vinnu og á ekki börn og
hef nægan tíma.“
Fundað um stöðuna
Eftir þetta fór hún aftur heim á Ísa-
fjörð þar sem hún bjó með systur
seinni en þurfti að dveljast á sambýli
þar vegna þess að íbúðin sem hún
bjó í hentaði ekki fyrir hjólastóla. Á
þessum tímapunkti var hún óviss um
framhaldið. Hún fór til Hveragerðis á
heilsuhælið og þar sem engin merki
voru um bata fór fjölskylda henn-
ar að huga að því að finna íbúð sem
væri hjólastólavæn fyrir Steinku. Vin-
kona hennar og faðir héldu fund með
lækni, iðjuþjálfa og fleirum til þess
að ákveða framhaldið. Eftir fundinn
stakk faðir hennar upp á því að hún
reyndi meðferð hjá kírópraktor sem
hafði hjálpað honum sjálfum mikið.
Steinka hafði engu að tapa og var til í
að prófa allt. „Hann hafði sjálfur feng-
ið kölkun í bakið 1999 og átti að verða
óvinnufær. Hann tók það ekki í mál og
fór til Egils Þorsteinssonar kíróprakt-
ors sem hefur haldið honum gang-
andi síðan.“
Jafn ótrúlegt og það hljómar
Steinka fór í tíma til Egils. „Hann
byrjaði á að spyrja mig út í sjúkra-
sögu mína og myndaði svo bak-
ið. Um leið og hann sá myndirn-
ar sagði hann: „Steinka mín, það er
ekki skrýtið að þú sért dofin í löpp-
unum, andlitinu og mjöðminni. Það
eru klemmur á þremur stöðum.“
Klemmurnar höfðu ekki sést á
einu myndinni sem tekin var af bak-
inu á mér í upphafi. Læknarnir vildu
ekki mynda mig aftur þó við hefðum
beðið um það,“ segir Steinka. Hún
segist ekki vita um ástæður þess að
taugarnar voru klemmdar en segir
að Örn Jónsson í Sporthúsinu, sem
hafi líka hjálpað henni töluvert, hafi
sagt þær geta verið tilkomnar vegna
höggs sem hún varð fyrir í æsku, en
þegar hún var níu ára féll hún niður
tröppur. „Eftir að ég kom til Egils þá
vildi hann að ég kæmi daglega og ég
gerði það. Eftir þriðja skiptið fann ég
allt í einu að verkurinn í þvagblöðr-
unni var farinn. Eftir tímann gat ég
í fyrsta skipti í marga mánuði piss-
að eðlilega, það kom bara bunan,“
segir hún og viðurkennir að vissu-
lega sé þetta óvenjulegt. Framhaldið
er lyginni líkast. „Eftir fjórða skipt-
ið hjá honum hættu taugakippirn-
ir, bláminn á löppunum hvarf og
minnkandi bjúgur. Eftir fimmta
skiptið gat ég spennt lærvöðvann
á vinstri fæti, eftir sjöunda skiptið
gat ég spennt lærvöðvann og hreyft
tærnar á hægri fótlegg í fyrsta sinn
í þrjú ár.“ Eftir áttunda tímann gat
Steinka stigið upp úr hjólastólnum
sem hafði verið henni nauðsynleg-
ur síðustu mánuði, stutt sig við hækj-
ur og „droppfóturinn“ ekki sýnilegur
lengur.
„Eftir 10. skiptið gat ég gengið með
eina hækju og eftir 12. skiptið gat ég
sleppt hækjunum,“ segir hún. Það er
ekki að sjá á Steinku í dag að fyrir um
nokkrum mánuðum hafi hún verið
föst við hjólastól. Hún haltrar örlítið
þegar hún gengur. „Þolið var ekki
gott til að byrja með en þetta er allt að
koma, í raun er þetta bara ótrúlegt,“
segir Steinka og viðurkennir að henni
finnist þetta þetta jafn ótrúlegt og það
hljómar. „Ég er allt önnur manneskja
í dag.“
Í dag fer hún einu sinni til tvisvar
í viku til Egils kírópraktors. „Tíminn
verður svo að leiða í ljós hvernig ég
verð en eins og staðan er í dag þá er ég
tíu sinnum betri núna en áður en ég
veiktist. Þetta er eiginlega bara krafta-
verkasaga.“
Gott að eiga góða að
Hún segir það vera sér efst í huga
hversu góða hún á að. „Þegar svona
veikindi koma upp þá er alveg
ómetanlegt að eiga góða fjölskyldu
á bak við sig. Ég er svo lánsöm að
eiga frábæra foreldra og fimm
systkini og mágkonur, frábæra vini,
guðdóttur og ættingja sem hafa
stutt mig ómetanlega,“ segir hún.
„Ég vill einnig koma sérstökum
þökkum til sjúkraþjálfara á Ísafirði,
starfsfólks Fjórðungssjúkrahússins
á Ísafirði, fjölskylduskrifstofu Ísa-
fjarðarbæjar, Vesturafli á Ísafirði,
starfsfólks skammtímavistun-
ar á Ísafirði, Lionsklúbbs Ísafjarð-
ar og allra sem hafa stutt við bak
á mér í gegnum verkefnið, að Agli
ógleymdum að sjálfsögðu,“ segir
hún þakklát. n
Viðtal 35Helgarblað 12.–14. apríl 2013
Andrea Ólafsdóttir
1. sæti Suðurdæmi
Saman getum við
unnið að réttlæti,
sanngirni og
lýðræði fyrir
heimilin í landinu
læknis og fór í þeim erindagjörðum á
Selfoss. Þar fékk hún taugalyf og send
var beiðni um myndatöku. Það var
bið eftir myndatökunni en verkirnir
ágerðust hjá Steinku svo hún ákvað
í samráði við móður sína að fara á
slysadeild í bænum. „Þar var mér
sagt að ég þyrfti að fara upp á tauga-
deild en það væri svo mikið að gera og
þar sem að klukkan væri orðin fjögur
væri búið að loka og enginn gæti tekið
mynd. Ég fékk mjög sterk lyf og var
sagt að fara heim og bíða eftir mynda-
töku.“ Tveimur dögum síðar fór hún í
myndatöku þar sem mjöðmin og bak-
ið voru mynduð. Ekkert sást í þeim
myndatökum. „Þá var send beiðni
um að ég fengi tíma hjá taugalækni
en dagarnir liðu og ekkert gerðist. Ég
lá bara uppi í rúmi, át verkjatöflur og
öskraði af verkjum.“ Það var ekki fyrr
en einum og hálfum mánuði seinna
að hún komst að hjá lækni. „Þá hafði
ég fengið nóg og pabbi líka. Hann
hringdi niður á spítala og mér var
sagt að koma
á slysó. Ég fór
þangað en það
var sama sagan, of mikið að gera og
ég átti ekki að komast að.“
„Bara í hausnum á mér“
Á endanum kom þó taugalæknir og
skoðaði Steinku. Sá vildi leggja hana
inn og fá frekari rannsóknir. „Þar var
ég sett í segulómun – sem betur fer
kom ekkert út úr henni. Ég lá inni í
4–5 daga en þeir vissu ekkert hvað
amaði að mér. Niðurstaðan varð sú
að ég ætti að fara á Reykjalund og ég
myndi lagast þar með góðri þjálfun. “
Steinka beið í einn og hálf-
an mánuð eftir því að komast að
á Reykjalundi en fór í sjúkraþjálf-
un á meðan. Ástand hennar versn-
aði hins vegar, verkirnir jukust og
hún var orðin algjörlega óvinnufær.
„Ég fór svo á Reykjalund og var þar í
þjálfun. Yfirmaður taugasviðsins þar
drullaði yfir mig og sagði að þetta
væri bara í hausnum á mér. Ég ætti
bara að lyfta löppinni. Ég sagði þá við
hana að fyrst að þetta væri í hausnum
á mér væri þá ekki nær að ég færi til
sálfræðings?“ Sú varð síðar raunin og
að sögn Steinku markaði það upphaf
þess tímabils þegar læknar héldu að
hún ímyndaði sér veikindin. „Það var
Gat gengið á ný „Ég er svo þrjósk
að ég fór ekki til
læknis fyrr en verkurinn
var orðinn óbærilegur.
„Ég lá bara
uppi í rúmi, át
verkjatöflur og öskraði
af verkjum.