Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Page 42
S
igríður Kling er þekkt fyrir
litríkan persónuleika og
hattarnir hennar eru skraut
legir og vekja eftirtekt hvert
sem hún fer. Sigga er met
sölurithöfundur en bók hennar Orð
eru álög náði metsölu og seinni bók
in sem var að koma út, Töfraðu fram
lífið, virðist stefna í sömu átt.
„Ég ákvað mjög ung að skrifa já
kvæðar bækur sem myndu hjálpa
fólki að ná tökum á lífi sínu,“ segir
Sigga.
Hún heldur fyrirlestra hjá fyrir
tækjum og stofnunum við frábærar
undirtektir enda um einstaka fyrir
lestra að ræða og mikið er hlegið á
þeim. Sigga er mikill húmoristi og
gerir óspart grín að sjálfri sér sem hún
segir vera nauðsynlegt að geta gert.
Hún kallar sig Siggu Kling í dag og
segist vera búin að leggja Klingenberg
nafnið niður eftir að hún komst að því
að hún átti í raun annan föður en hún
hélt, en fyrir stuttu komst Sigga að því
að hún átti ekki bara annan föður,
heldur átti hún systkini líka.
Sigga lætur ekki margt koma sér úr
jafnvægi og að eignast heila fjölskyldu
á einum degi var ekki mikið mál fyrir
hana. Hún segist vera þakklát fyrir að
eiga svona stóra fjölskyldu og í raun
hafi það ekki komið henni á óvart að
hún ætti annan föður þar sem henni
fannst hún aldrei líkjast þeim föður
sem hún taldi vera sinn. Hún segir
hjarta sitt vera nógu stórt til að rúma
aðra fjölskyldu og allt sem henni fylgi.
DV spjallaði við Siggu um heima og
geima og fékk uppskriftina að eilífri
hamingju.
Reif niður eldhúsinnréttingu
„Það er nauðsynlegt að fara reglu
lega í fýlu. Fólk sem skiptir aldrei
skapi er leiðinlegt. Ég er með ítalskt
skap og get orðið foxill í smástund
eins og þegar ég reif niður heila eld
húsinnréttingu og braut niður hurð
eftir rifrildi við dóttur mína. Þetta tók
mig um 20 mínútur og hlógum við
mæðgurnar að þessu kasti mínu og
mér fannst innréttingin hvort sem er
ljót og sparaði kostnað við að láta rífa
hana niður í leiðinni.“
Sigga er með skap þó svo að hún
láti ekki á því bera dagsdaglega og
segir sjálfri sér að halda kjafti ef svo
ber undir. „Ef ég vakna í fýlu segi ég
við sjálfa mig: „Sigga ef þú ætlar að
vera svona leiðinleg þá ferð þú ekki
með mér á Laugaveginn í dag og
grjóthaltu kjafti og komdu þér upp úr
þessari lægð.“ Síðan tel ég upp svona
„wanna be‘s“ eins og Loga Bergmann,
Sveppa og Audda, svona týpískt fólk
sem er bara ekki að meika það og hef
ur aldrei komist að í fjölmiðlum eins
og ég, en þá verður Sigga bara nokk
uð glöð með sig og fer í gott skap. Mál
ið er að þú getur sagt skilið við vini og
jafnvel ættingja þína en þú situr uppi
með sjálfa þig það sem eftir er og þá
er best að vera dálítið skemmtilegur
til að maður drepist
ekki úr leiðindum,“
segir Sigga og hlær
sínum smitandi hlátri
sem fer ekki fram hjá
neinum á kaffihúsinu
þar sem viðtalið fer
fram.
Húmor er sexí
Hvað með ástina,
áttu kærasta? „Það
er ekkert að frétta af
ástalífinu og ég er
orðin sjálfkynhneigð
og ef ég er með
hausverk þá segi ég
bara; „nei takk Sigga
mín, ekki í kvöld“
og enginn fer í fýlu.
Ég er mjög hrif
næm og get orðið
ástfangin á augnabliki en það endist
vart út daginn nema ég hitti bara einn
aðila þann daginn. Ég átti mann í 26
ár sem ég elskaði og átti með yndis
leg börn. Þó svo að Elizabeth Taylor
sé mín fyrirmynd þá get ég ekki sagt
að fjöldi eiginmanna minna verði
sá sami hjá okkur stöllum. En ef ein
hver dytti um fótleggi mína myndi ég
skoða þann einstakling vel. Síðan er
ég með flottustu fótleggi sem ég hef
séð þó svo ég segi sjálf frá.“
Bónorð á Facebook
Eina bónorðið sem Sigga hefur fengið
var á Facebook. Hún var ekki að
springa úr hamingju með það en gerir
þó grín að því. „Ég fékk bónorð á Face
book sem er ekki í frásögur færandi
nema fyrir það að maðurinn sem bað
mín með þeim hætti hafði ekki einu
sinni fyrir því að bæta fleiri myndum í
myndasafnið sitt. Hann er frá Manche
ster og er bara með eina mynd af sér á
síðunni sinni og hún er ekki einu sinni
góð. Ég gat ekki hugsað mér að játast
svona metnaðar lausum manni. Þetta
er eina bónorðið sem ég hef fengið um
ævina sem er pínu sorglegt ef maður
pælir í því. Á hinn bóginn eru margir
sem fá ekkert bónorð um ævina svo ég
hlýt að vera einstök.“
Hræðist normið
„Einu sinni var ég stödd í sjónvarps
þætti þegar þáttarstjórnandinn spyr
mig hvort ég sé ekki bara skrítin, ég
svaraði; „jú, pottþétt“, enda hræðist ég
ekkert meira en að vera flokkuð undir
normið. Einn daginn var ég á gangi
niður Laugaveginn þegar ég heyrði
litlar stelpur hvísla; „Lady Gaga er
pottþétt að herma eftir þessari“. Mér
þótti vænt um að heyra þetta og hver
veit nema að Lady Gaga hafi séð mér
bregða fyrir á netinu og kolfallið fyrir
mér, annað eins hefur nú gerst.“
Skítsama hvað öðrum finnst
En hver skyldi uppskriftin að ham
ingju vera? „Þér verður að vera skít
sama um hvað öðrum finnst um þig
því þú getur aldrei þóknast fjöldanum
og það er mikilvægara að vera sáttur
við sjálfan sig því maður
þarf víst að hanga með
sér að eilífu. Það gengur
ekki að vera með einn
fót í fortíðinni og hinn í
framtíðinni þá mígur þú
á nútíðina. Þú þarft að
hafa þá báða í nútíðinni
og njóta líðandi stundar.
Lífið er hér og nú.“
Ekki spá heldur
sálarlestur
Sigga hefur spáð fyr
ir fólki í gegnum tíð
ina og veigrar sér ekki
við því að kalla sjálfa
sig norn. En er eitt
hvað að marka þessa
spádóma og hvernig
sérð þú framtíðina hjá viðkomandi
einstaklingi sem leitar til þín eft
ir spá? Sigga horfir á blaðamann og
spyr hvort að hann sé að efast um
hana, en skellihlær síðan þegar hún
sér skömmustuna í svip blaðamanns
sem hafði alls engar efasemdir um
hana. „Ég er byrjuð að lesa fólk aft
ur eftir um tveggja ára hlé. Ég vil
ekki kalla þetta spá, heldur kalla ég
þetta sálarlestur, svona svipað og
sálfræðingar gera. Sálfræðingar lesa
í sálina og hjálpa fólki við hin ýmsu
mál líkt og ég geri. Ég les sálina hjá
fólki og afhendi þeim skilaboð sem
eru í raun frá þeim sjálfum. Það eru
ekki allir með þann eiginleika að
geta lesið þau skilaboð sem undir
meðvitundin lumar á. Oftast eru
þetta sterk og skýr skilaboð sem ég
fæ og flestir eru á því að lesturinn
hitti í mark og hjálpi viðkomandi að
leysa úr sínum málum. Það er mikið
að marka hvað innsæið segir manni,
en það þýðir ekki að fólk eigi að gera
allt sem að spákonan segir þér, það
er mikilvægt að hafa gaman af þessu
eins og lífinu,“ segir Sigga Kling að
lokum. n
42 Lífsstíll 12.–14. apríl 2013 Helgarblað
• K. Stanislavski og M. Chekhov tækni
• Senuvinna og textagreining
• Hugleiðsla og slökun
• og margt fleira...
Leiktækniskólinn er á Facebook, þar má nálgast frekari upplýsingar.
Skráning og fyrirspurnir á leiktaekniskolinn@gmail.com. Aldurtakmark 18 ára.
"Frábært námskeið, ég lærði helling"
- Steindi jr.
Nýtt námskeið frá 16. apríl. - 21. maí. 2013.
Kennsla fer fram á þriðjudögum frá kl. 19.30 - 23.00
Magnús og Þorsteinn eru meðal reyndustu leikara
sinnar kynslóðar með áratuga reynslu af vinnu við
leikhús, kvikmyndir og sjónvarp.
Námskeið í hagnýtri og skapandi leiklist
Bónorð á Facebook
n Sigga Kling búin að skipta um nafn n „Ég er orðin sjálfkynhneigð“
Íris Björk Jónsdóttir
blaðamaður skrifar iris@dv.is
Ljóðræn Sigga
Sigga er með þrjár Facebook-síður vegna
vinafjölda sem hún á á þeim samskipta-
miðli. Hún er þekkt fyrir falleg ljóð sem
hún skrifar á síður sínar reglulega og hér
er eitt sem vakti athygli blaðamanns.
Láttu þá vita sem ást þína fanga
Hversu glaður þú ert með þeim að ganga
Vertu til staðar frá morgni til myrkurs
Því lífið er stundum ljótur sirkus
Hvíslaðu orðin fögur og hrein
Ekki setja þau bara í minningargrein
„Það er
nauð-
synlegt að fara
reglulega í fýlu
„Ég gat
ekki
hugsað mér
að játast svona
metnaðarlaus-
um manni
Skrautleg Sigga er
þekkt fyrir höfuðföt
sín sem þykja allt
annað en látlaus.
Díva Sigga spáir mikið
í útlitið og segist ávallt
bera hatt á höfði því hún
sé með óeðlilega stórt
höfuð. mynDiR SigtRygguR aRi