Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Side 50
50 Fólk 12.–14. apríl 2013 Helgarblað
Mæður á fimmtugsaldri
nStjörnur sem eiga það sameiginlegt að hafa átt börn, komnar yfir fertugt n Allt er fertugum fært
Halle Berry 46 ára
Leikkonan eignaðist sitt fyrsta barn þegar hún var 41 árs. Nýlega
staðfesti hún að hún ætti von á öðru barni sínu. Hún viðurkenndi að
þetta væri það óvæntasta í lífi sínu og hún hefði ekki búist við að
eignast annað barn komin á þennan aldur, en hún er 46 ára.
Kelly Preston 47 ára
Kelly Preston, eiginkona John Travolta, var 47 ára þegar
hún varð ólétt að þriðja barni sínu.
Nicole Kidman 40 ára
Kidman ól sitt fyrsta barn, Sunday Rose, í júlí 2008. Þá var hún fertug.
Fyrir átti hún tvö ættleidd börn með Tom Cruise. Nicole hefur sagt frá því í
viðtölum að hún myndi gjarnan vilja eignast fleiri börn.
Jane Seymour 44 ára
Leikkonan breska eignaðist tvíburana Johnny og Kris
árið 1995. Þá var hún 44 ára.
L
indsay Lohan var dæmd í
þriggja mánaða meðferð
fyrir skömmu. Hún mætti í
viðtal hjá David Letterman
á dögunum. David sagði við
Lindsay að það hefði komið hon-
um á óvart að hún mætti í viðtalið
í ljósi alls sem gengið hefur á hjá
henni í einkalífinu upp á síðkastið
og við það brotnaði hún saman og
grét. Hún segist vera að stefna á
nýja braut, en Lindsay á að hefja
meðferðina þann 2. maí næst-
komandi.
n Lindsay hefur ekki verið algjör engill
Grét hjá Letterman
Grét Lindsay sagði
Letterman allt af létta.
E
ftir margra mánaða vanga-
veltur hefur leikarinn Tom
Crusie nú viðurkennt að krafa
Katie Holmes um skilnað hafi
komið aftan að honum.
Í viðtali við þýsku sjónvarps-
stöðina ProSieben sagði Cruise að
hann hafi ekki grunað að eigin-
kona hans til fimm ára vildi skiln-
að. Hann hafi nú haft nægan tíma
til að hugsa málið og hefur sætt
sig við ákvörðun Holmes. Eins og
kunnugt er þá voru þau stödd hér á
landi í fyrra þegar Holmes bað um
skilnað.
„Lífið er alltaf áskorun,“ sagði
hann og viðurkenndi að skilnað-
urinn hefði eyðilagt veisluhöldin
sem hann hafði skipulagt í kringum
fimmtugsafmæli sitt. „Það að vera
fimmtugur og finnast þú hafa stjórn
á öllu og að fá síðan svona skell, það
er bara lífið. Lífið er blanda af sorg
og gleði.“
Síðan hjónin skildu hefur Cruise
hellt sér í vinnu og dvalið utan
Bandaríkjanna þar sem hann leikur
til dæmis í myndinni All You Need
Is Kill. Holmes býr í New York með
sjö ára dóttur þeirra, Suri.
Cruise kom af fjöllum
n Hafði ekki hugmynd um að Katie vildi skilja
Á meðan allt lék í lyndi
Holmes fór fram á skilnað
á meðan þau voru stödd á
Íslandi í fyrra.
Dívur í darraðardansi
n Carey og Minaj sitja ekki á sárs höfði
D
ómurunum í Americ-
an Idol-þáttunum, Nicki
Minaj og Mariah Carey,
semur ekki sem skyldi og
nýlega viðurknndi Nicki
að samband dívanna hefði ekki
skánað þó í það væri látið skína á
skjánum.
Ósætti drottningann var gert
opinbert þegar upptöku sem sýndi
hörkurifrildi þeirra í millum var
lekið í fjölmiðla í fyrra.
Nicki vildi í viðtali við MTV ekki
fara nánar út í málið, en staðfesti
þó að hnútukasti þeirra væri ekki
lokið. „Sjáðu, ég veit að ég sýni
mikla sjálfsstjórn á dómarabekkn-
um – mikla sjálfsstjórn. Það er það
eina sem ég vil segja. Ég einbeiti
mér að keppendunum.“
Þegar þrýst var á Nicki og hún
spurð hvort ekki væru teikn á lofti
um betra samkomulag á milli
þeirra stallsystra, svaraði hún stutt
og laggott: „Nei.“
Ólíklegt verður því að telj-
ast að þær beri klæði á vopn-
in, enda spurning hvort slíkur
gjörningur eyðilegði ekki það
sem nú til dags er nefnt „gott
sjónvarp“. n
Semur illa Þær Carey og Minaj þola ekki hvor aðra.