Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 54
V
ið erum búnir að vera þarna í
rúm fimm ár og höfum báðir
eignast börn á þeim tíma og
stofnað fyrirtæki,“ segir Sig-
mar Vilhjálmsson, betur er
þekktur sem Simmi. Hann hefur stýrt
geysivinsælum útvarpsþætti á Bylgj-
unni ásamt félaga sínum, Jóhannesi
Ásbjörnssyni, Jóa, en þeir ljúka störf-
um um mánaðamótin.
Þáttur Simma og Jóa hefur verið á
laugardögum og hafa þeir sankað að
sér stórum hópi aðdáenda sem ef-
laust mun sakna þeirra. Bylgjan er um
þessar mundir vinsælasta útvarpsstöð
landsins, með örlítið meiri hlustun en
Rás 2.
„Það er mikið að gera“
Miklar annir hafa verið hjá Simma og
Jóa í kringum rekstur Hamborgarafa-
brikkunar og framleiðslufyrirtækis-
ins Stórveldisins ehf., og því hafa þeir
félagar ákveðið að hætta á Bylgjunni.
„Við erum búnir að vera að þessu allt of
lengi. En þetta hefur verið of skemmti-
legt þannig að við höfum ekki tímt að
hætta þessu,“ segir Simmi: „En það
er mikið að gera – við erum að opna
Fabrikkuna fyrir norðan – og við viljum
svona fara að eiga aðeins meiri tíma en
hefur verið.“
Fastur liður í þættinum hefur verið
að hringja í móður Simma – Gerði
Unndórsdóttur – og segir Simmi lík-
legt að hún sjái eftir þættinum. „Það
er kannski móðir mín sem mun helst
sakna þáttarins,“ segir hann.
„Lífinu lýkur ekki“
Það tekur Gerður undir: „Ég auðvitað
kvíði því svolítið,“ segir Gerður um
að þátturinn sé að hætta. „Mér finnst
þetta gaman. En það hefur allt sinn til-
gang – lífinu lýkur ekki,“ bætir Gerður
við og hlær.
Gerður segir að hún muni hafa
meiri tíma til þess að spá og spekúlera
í ljóðum, en Gerður hefur oft lesið ljóð
í þættinum. „Ég hef þá nægan tíma
til þess að spekúlera í ljóðunum. Svo
erum við tvö hjónin hérna heima –
erum bæði á eftirlaunum – og höfum
núna tíma til þess að hafa gaman að
hvort öðru og vera svolítið elskuleg.
En ég á eftir að sakna þess að vera í
þættinum, það er alveg satt. Ég get ekki
neitað því.“
Nokkrar sviptingar verða á Bylgj-
unni á næstunni en Hermann
Gunnarsson – betur þekktur sem
Hemmi Gunn – mun einnig hætta á
næstunni með þátt sinn Og svaraðu
nú sem verið hefur síðdegis á sunnu-
dögum á Bylgjunni. n
54 Fólk 12.–14. apríl 2013 Helgarblað
Fékk gullskó
í afmælisgjöf
E
iginmaður Þórunn-
ar Högnadóttur,
ritstýru Home
Magazine, gaf
frúnni Marc Jacobs gull
„vedge“-strigaskó í af-
mælisgjöf þann 10. apríl
síðastliðin.
„Þessi dagur var í raun
og veru ekkert mikið öðru-
vísi en aðrir dagar,ég valdi það
að fara í hádegismat á Kaffitár í
Kringlunni með fjöl-
skyldu og vinum. Svo
var ég bara í róleg-
heitum heima við
þangað til eiginmað-
urinn, Beisi, kom
með kvöldmat heim
og að sjálfsögðu blóm.
Rólegur en yndislegur
dagur, en svo verð ég með
afmæliskaffi á laugardaginn fyrir
fjölskyldu og vini,“ segir Þórunn.
Á
stríður Viðarsdóttir kveður
RÚV í dag, föstudag, eftir
að hafa starfað þar í nokk-
ur ár. Ástríður heldur á
vit nýrra ævintýra og er farin að
vinna í framleiðsludeild Lata-
bæjar. „Spennandi tímar framund-
an,“ segir Ástríður í samtali við DV.
Ásamt því að hafa unnið í Kast-
ljósinu þá hefur Ástríður komið að
ýmsum öðrum þáttum hjá RÚV,
meðal annars Dans dans dans og
Söngvakeppni sjónvarpsins.
Ástríður hefur verið afar vinsæl
meðal samstarfsmanna á RÚV sem
bera henni vel söguna. Jóhannes
Kr. Kristjánsson, samstarfsmaður
Ástríðar, birti myndir af henni á
Facebook-síðu sinni og skrifaði
undir: „Þessi elska kveður Kast-
ljósið í lok vikunnar og heldur á vit
nýrra ævintýra. Það væri hægt að
gera bíómynd um hana og hennar
sögu. Það efa ég ekki að verði gert
einn daginn.“ Fjölmargir skrifuðu
kveðju til Ástríðar en Egill Helgason
sló á létta strengi af þessu tilefni og
vildi losna við fleira ungt fólk úr af
vinnustaðnum: „Við þurfum líka
að losna við Hraðfréttastrákana
og Margréti Erlu Maack þá verður
loks vinnufriður hérna fyrir þessu
unga fólki,“ skrifaði hann í gaman-
sömum tón. Hraðfréttarstrákarnir
og Margrét Erla voru ekki par sátt
við þessi orð Egils og sagði Fannar
Sveinsson, annar hraðfréttamanna,
honum pent að halda kjafti meðan
félagi hans Benedikt Valsson skrif-
aði: „Egill spegill.“
Ástríður í Latabæ
n Hættir á RÚV og heldur á vit nýrra ævintýra
Breytir til Ástríður hefur ákveðið að
breyta um starfsvettvang og starfar
nú í framleiðsludeild Latabæjar.
n Gerður, móðir Simma, kvíðir þáttaskilunum
Vinsælir
Simmi og Jói
hafa stýrt þætti
á laugardögum
á Bylgjunni
í fimm ár og
hætta um
mánaðamótin
vegna anna.
Kvíðir þáttaskilunum „Mér finnst þetta
gaman. En það hefur allt sinn tilgang – lífinu
lýkur ekki,“ segir Gerður Unndórsdóttir,
móðir Simma, um aðild sína að þáttunum.
á eftir að
sakna þess
E
ins og DV sagði frá á dögunum
þá er fjölmiðlamaðurinn Sölvi
Tryggvason á ferðalagi um
Asíu. Hann hefur lent í hinum
ýmsu ævintýrum á ferðalaginu og
skrifaði um eina uppákomuna á
Facebook- síðu sinni. „Einhvern
tíma er allt fyrst. Fann ekki leigubíl
áðan, svo ég settist aftan á vespu hjá
Tælendingi sem getur ekki hafa ver-
ið undir sextugu. Hann hafði varla
stigið á bensíngjöfina þegar hann
var byrjaður að bjóða mér hass, því
næst kókaín og vændiskonur og
loks vændiskonur með typpi. Eftir
að hafa afþakkað allt þetta pent átti
manngarmurinn bara eitt tromp
eftir: „viltu komast í kirkju?“!!!“
Boðið kókaín
og vændiskonur