Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Qupperneq 6
6 Fréttir Vikublað 25.–27. febrúar 2014
Bílablað DV
kemur út með
helgarblaðinu
28. febrúar og
verður aðgengilegt
frítt inn á dv.is.
Hafðu samband!
Hjörtur Sveinsson hjortur@dv.is
Teitur Atlason teitur@dv.is
Þórdís Leifsdóttir thordis@dv.is
Tryggðu þér auglýsingapláss!
D
jöfullinn var í mér,“ sagði
Litháinn sem henti flösku
fullri af metafmetamín
basa í gólfið við tollskoðun
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
í október í fyrra. Aðalmeðferð í mál
inu fór fram á miðvikudag en henni
er þó ekki lokið. Maðurinn, sem
heitir Algirdas Vysnauskas, hefur
verið í gæsluvarðhaldi síðan hann
kom til landsins og gaf skýrslu fyr
ir dómi. Hann naut aðstoðar túlks
allan tímann á meðan hann var í
dómsal, en hann hlustaði á tollverði
gefa skýrslu áður en hann fór í fylgd
fangavarða.
Flaskan var gjöf
Maðurinn sagðist hafa komið hing
að til lands þar sem hann hefði feng
ið loforð um að hér myndi hann fá
vinnu. Maður, sem hann kannaðist
lítið við og verður hér nefndur Jón,
kom að máli við hann og þeir ræddu
um vinnu í útlöndum. Jón hélt því
fram að hann hefði tengsl við aðila
hér á landi, og gæti útvegað ákærða
vinnu hér. Þeir ræddu um hvern
ig hægt væri að komast til lands
ins og ákváðu að fara heim til Jóns.
Samkvæmt framburði mannsins
fóru þeir svo í búðina og keyptu vín
flöskur. „Við drukkum vín og töluð
um um vinnu hér á landi. Hann bað
mig um að fara með eina rauðvíns
flösku með mér til landsins, sem
væri gjöf til mannsins sem gæti út
vegað mér vinnu,“ sagði ákærði fyrir
dómi.
Hann sagðist ekki hafa vitað
annað en að í flöskunni væri rauð
vín, líkt og það sem hann og Jón
hefðu drukkið og keypt í búðinni.
Hann sagðist þó ekki geta munað
það nákvæmlega hvernig atburða
rásin hafi verið, fram að því að hann
tók flöskuna. Hann sagði það ekki
hafa verið sinn ásetning að flytja
fíkniefni á milli landa og að hann
hefði aldrei gert slíkt, hefði hann
vitað hvað hann væri með.
Hugsaði ekki skýrt
Tollverðirnir sem stöðvuðu mann
inn gáfu skýrslu fyrir dómi, en voru
ekki spurðir sérstaklega um ástæðu
þess að ákærði var stöðvaður. Hann
var tekinn til frekari skoðunar, þar
sem fátt vakti sérstaklega athygli
og pappírar mannsins voru í lagi.
Flaskan vakti hins vegar athygli
tollvarða, þar sem hún var mjög ólík
hefðbundnum rauðvínsflöskum.
Ákærði gaf leyfi fyrir því að flaskan
yrði opnuð og fór þá annar tollvarð
anna að sækja tappatogara.
Hinn tollvörðurinn sneri sér þá
aðeins undan og á augabragði greip
ákærði flöskuna og grýtti henni í
gólfið, þannig að efnið spýttist á
veggi og gólf. Tollverðirnir sögðu að
lyktin sem upp hafi gosið hefði ver
ið óvenjuleg og greinilega ekki rauð
vínslykt. Um ástæðu þess að ákærði
grýtti flöskunni í gólfið sagðist hann
ekki hafa hugsað rétt. „Ég var mjög
stressaður og vissi ekki hvað ég átti
að gera. Af hverju ég var hræddur,
veit ég ekki, kannski af því að ég er
öryrki. Ég hugsaði ekki skýrt og veit
ekki hvers vegna ég gerði þetta. Djöf
ullinn var í mér,“ sagði maðurinn.
Hægt að framleiða 830 grömm
Matsgerðarmaður sem greindi
efnið sagði það hafa verið 71%
að styrk, en að metamfetamín
basi í vökvaformi væri óalgeng
ur og að hann hefði ekki rannsak
að slíkt áður. Lítill munur sé þó á
amfetamínbasa og metamfetamín
basa. Að sögn hans mætti útbúa
83 grömm af metamfetamínklóríði
úr þeim 100 millílítrum sem hann
hafði til rannsökunar, en talið er
að í flöskunni hafi verið einn lítri af
basanum. Því hefði verið hægt að
framleiða 830 grömm af metam
fetamíni, en nákvæmt götuverð
er óþekkt. Þess er oft neytt í krist
allaformi og er þá frekar sterkt.
Í dómnum tókust lögfræðingar
á um styrkleika efnisins, en í flösk
unni voru leysiefni sem gufuðu
upp og eyðilögðu veggi og gólf, svo
brjóta þurfti það upp og rífa veggina
niður. Isavia er með einkaréttar
kröfu í málinu vegna skemmdanna
og krefst greiðslu skaðabóta vegna
þeirra. Lögfræðingar munu flytja
mál sitt í þessari viku og í fram
haldinu verður dómur kveðinn
upp. n
n Grýtti flösku með metamfetamínbasa í gólfið n Hélt að basinn væri rauðvín
„Djöfullinn var í mér“
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Leiddur inn í járnum
Hinn ákærði hefur verið í
haldi lögreglu frá því að
hann kastaði flösku fullri af
metamfetamínbasa í gólfið í
Leifsstöð. Mynd RögnvaLduR MáR
„Hann bað mig um
að fara með eina
rauðvínsflösku með mér.
Ók dópaður og ölvaður
K
arlmaður á fertugsaldri hefur
verið ákærður fyrir að hafa far
ið á bifreið sinni undir áhrif
um áfengis og amfetamíns
á ofsahraða á Vesturlandsvegi í
Reykjavík. Í ákæru kemur fram að
maðurinn hafi stefnt lífi samferða
manna sinna í stórfellda hættu, með
al annars með því að reyna að þvinga
sér á milli tveggja bíla og aka utan í
þær þannig að önnur þeirra endaði
utan vega eftir veltu. Í ákærunni sést
að maðurinn var mjög ölvaður auk
þess sem amfetamín mældist í þvagi
hans. Hann ók aðfaranótt sunnu
dagsins 20. maí 2012 austur Vestur
landsveg í Reykjavík. Hann var á um
150 kílómetra hraða á klukkustund.
Þar er hámarkshraði 80 kílómetrar
á klukkustund. Þegar maðurinn
kom að Vínlandsleið reyndi hann að
þröngva bifreið sinni á milli tveggja
bíla með skelfilegum afleiðingum.
Maðurinn var mjög ölvaður og
ók glæfralega og hættulega. Hann
þröngvaði sér á milli tveggja bifreiða,
með þeim afleiðingum að hann ók
fyrst utan í hægri hlið annarrar bif
reiðarinnar og svo utan í vinstri hlið
hinnar. Þær höfðu áður ekið sam
hliða í sömu akstursstefnu. Þegar
maðurinn ók utan í síðari bifreiðina
missti ökumaður hennar stjórn á
henni og fór hún í kjölfarið eina
veltu og staðnæmdist á hjólunum
utan vegar. Með þessu aksturslagi
stefndi maðurinn í hættu farþega
og ökumönnum hinna bifreiðanna,
sem og farþega í sinni eigin bif
reið, og ógnaði heilsu þeirra og lífi. Í
ákæru segir að þeim hafi verið stefnt
í hættu á á ófyrirleitinn hátt. Þess er
krafist að ákærði verði dæmdur til
refsingar, til greiðslu alls sakarkostn
aðar og verði sviptur ökurétti. n
astasigrun@dv.is
Þvingaði sér á milli bíla og hefur verið ákærður
Ofsaakstur Maðurinn keyrði glæfralega.
Vilja umboðs-
mann aldraðra
Ályktun Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni um stofn
un embættis umboðsmanns aldr
aðra hefur verið send á Kristján
Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Umboðsmaður aldraðra myndi
standa vörð um áunnin réttindi
eldri borgara og tryggja óháðan
málflutning um mál er þá varða.
Í greinargerðinni kemur fram að
lengi hafi verið rætt um mikilvægi
stofnunar þessa embættis.
„Íslendingar 60 ára og eldri
eru nú um 62.000 og mun fjölga
ört í þeim hópi næstu árin,“ seg
ir í greinargerðinni. „Aðstaða
aldraðra er víða óviðunandi og
merkjanlegt er að þar sem þjón
ustan hefur verið góð er farið að
þrengja að í rekstri hennar.“
„Axarskaft“
Vigdísar
„Vigdís Hauksdóttir gerði axar
skaftið í rökræðum í sjónvarpi á
Stöð tvö, þar sem hún bar Möltu
saman við Vestmannaeyjar, hóp
af smáum eyjum við suðurströnd
Íslands (íbúafjöldi er 4.000).“
Frá þessu greindi maltneska
fréttastofan Times of Malta á
mánudag.
Ummæli Vigdísar Hauks
dóttur, þingkonu Framsóknar
flokks, í þættinum Mín skoðun
á sunnudag, hafa vakið athygli í
maltneskum fjölmiðlum. „Hún
neitaði að skýra í hvaða landi
Malta væri sjálfstjórnarríki,“ segir
í fréttinni.
Þá segir einnig að íslenskir
fjölmiðlar hafi verið fljótir að
benda á rangfærslur Vigdísar og
segja frá því hvenær Malta öðlað
ist sjálfstæði og varð hluti af Sam
einuðu þjóðunum.
Loks er fjallað um gagnrýni
Sigríðar Víðis Jónsdóttur, upp
lýsingafulltrúa UNICEF á Ís
landi, á notkun Vigdísar á orðinu
hungursneyð. Segir að Sigríð
ur hafi gagnrýnt Vigdísi fyrir
„ósvífna notkun hennar á orðinu
hungursneyð.“