Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Blaðsíða 23
Vikublað 25.–27. febrúar 2014 Umræða Stjórnmál 23 Sandkorn Rammpólitísk ráðning Ekki eru allir sammála um hversu pólitísk ráðning Más Guðmunds- sonar hafi verið á sínum tíma. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra gerði, í viðtali í þættinum Sunnudagsmorgni fyrir viku, því skóna að ráðningin hafi verið pólitísk og fleiri tóku málið upp í kjölfarið. Einn þeirra er al­ mannatengillinn og samfylkingar­ maðurinn Andrés Jónsson. „Már var/er vissulega hæfur til starfans en auðvitað var ráðning hans samt rammpólitísk. Bara ekki jafn gróf og pólitískar ráðningar seðla­ bankastjóra höfðu verið fram að því,“ skrifaði hann á Facebook. Ekki leið á löngu þar til Hrannar B. Arnarson, fyrrverandi aðstoðar­ maður Jóhönnu Sigurðardóttur, var kominn vinstri stjórninni til varnar í athugasemdunum. „Ég fæ full­ yrðingu og/eða röksemdir Andr­ ésar í þessum þræði alls ekki til að ganga upp – þ.e. að ráðning Más hafi verið „rammpólitísk“ – getur þú Andrés, útskýrt fyrir mér hvern Jóhanna hefði getað skipað, annan en Má, til þess að ráðningin hefði ekki talist „rammpólitísk“ af þinni hálfu? Jafnvel BARA „pólitísk“…“ sagði hann. Lítið var hins vegar um svör og sagðist Andrés bíða spenntur eftir að lesa allt um mál­ ið í ævisögu Hrannars. Kominn tími á skýrslu Ekkert bólar á skýrslu rann­ sóknarnefndar um fall sparisjóð­ anna þrátt fyrir að eitt og hálft ár sé síðan skýrslan átti að afhendast forseta þingsins. Þingmenn, sem og aðrir, eru farn­ ir að velta fyrir sér hvenær standi eig­ inlega til að birta skýrsluna sem kostað hefur tals­ vert meira en upphaflega var gert ráð fyrir. Meðal þeirra er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem hefur krafið forseta þingsins, Einar Kristin Guðfinnsson, svara. „Hvenær mun rannsóknarnefnd, sem var falið að semja skýrslu um rannsókn á að­ draganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna, skila forseta skýrslunni?“ spyr hún í skriflegri fyrirspurn til Einars sem lögð var fram fyrir helgi. Búast má við því að ýmislegt misjafnt komi upp á yfirborðið í skýrslunni ef tekið er mið af upplýsingum sem birtust í rannsóknarskýrslu um banka­ hrunið en í þeirri skýrslu var ekki fjallað um sparisjóðina. Stendur með atvinnulífinu Svo virðist sem það sé undantekn­ ingin frekar en reglan að þing­ menn Sjálfstæðis­ flokksins standi með íslensku at­ vinnulífi. Þetta má lesa úr orðum fjár­ festisins Vilhjálms Bjarnasonar, þing­ manns flokksins. Í ræðu á þingi sagðist hann tala þvert á afstöðu flestra þingmanna Sjálfstæðisflokksins í Evrópumál­ um og að hann stæði með íslensku atvinnulífi og vinnandi fólki. „En hins vegar þá vil ég vekja athygli á því að það eru margir sjálfstæðis­ menn, sérstaklega í stétt atvinnu­ rekenda og þeirra sem bera ábyrgð á lífskjörum fólks í þessu landi, sem eru annarrar skoðunar en meginhluti þingflokks Sjálfstæð­ isflokksins,“ sagði hann. Vilhjálm­ ur er annar tveggja þingmanna flokksins sem hafa lýst þeirri af­ stöðu að kjósa eigi um viðræðurn­ ar eða halda þeim áfram. Í slenska ríkið og stofnanir eru bún­ ar að koma því svo fyrir að að­ gengi að opinberum upplýsing­ um kostar háar fjárhæðir. Það er ekki fyrir venjulegan mann (nú eða bara íslenskan fjölmiðil) að fletta upp upplýsingum sem eiga að vera opin­ berar samkvæmt lögum. Ef ég ætla að fá upplýsingar um bíla til dæmis þá þarf ég að hafa sam­ band við fyrirtæki eins og Creditinfo eða Frumherja og greiða þeim sér­ stakt gjald fyrir að fletta upp fyrir mig. Öll þessi gögn – og fleiri – eru geymd rafrænt hjá opinberum aðilum. Ef ég ætla að fá upplýsingar úr skattskrám (sem óumdeilanlega eru opinber­ ar upplýsingar) þá þarf ég að kaupa þær í stórri bók sem prentuð er af einkaaðila sem hefur gert sérstakan samning við skattstjóra um að prenta hana. Enginn efast um að gögnin eru geymd rafrænt hjá skattinum. Í upplýsingalögum er gefin heim­ ild til rukkunar gjalds vegna af­ hendingar opinberra upplýsinga. Það gjald á hins vegar að standa straum af kostnaði „fyrir ljósrit og af­ rit gagna“. Það er löngu liðin tíð að starfsmenn séu að eyða dögum í að ljósrita gögn eða prenta. Rökin fyr­ ir þessum gríðarháa kostnaði eru því ekki lengur gild. Dæmi eru líka um að ekki sé gerður greinarmunur á prent­ uðum/ljósrituðum skjölum og raf­ rænum skjölum. Hjá ríkisskattstjóra eru til dæmis rukkaðar 250 krónur á hverja síðu fyrir endurrit úr ársreikn­ ingaskrá sama hvort um sé að ræða prentað eintak eða rafrænt. Ég er meðvitaður um að það hlýst kostnaður af því að opna dyr að rafrænum upplýsingum sem rík­ ið geymir og að það þarf í einhverj­ um tilfellum að vinna upplýsingar sérstaklega. Það þarf hins vegar bara að opna dyrnar einu sinni og það eru undantekningar að það þurfi aðstoð frá ríkisstarfsmönnum við að fletta í opnum gagnasöfnum. Einkavæðing opinberra upplýsinga og gjaldtaka fyrir að fletta upp í rafrænum gögn­ um er tímaskekkja. n Einkavæðing opinberra upplýsinga Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Pistill Kostar Opinberar upplýsingar kosta í mörgum tilfellum. Mikill kostnaður getur hlotist af því að afla sér upplýsinga í gagnabönkum sem innihalda upplýsingar frá ríkisstofnunum. Ákveða eigin álagsgreiðslur Ríkið endurgreiðir þingmönnum framlög þeirra til stjórnmálaflokka F rá árinu 2006 hafa grunn­ mánaðarlaun þingmanna, eða þingfararkaup, hækk­ að um 144.455 krónur. Sam­ kvæmt upplýsingum frá Kjararáði, sem ákveður laun þing­ manna, fengu kjörnir fulltrúar á þingi 485.570 krónur en fá í dag 630.025. Þetta er hækkun upp á rétt tæplega þrjátíu prósent á átta árum. Á sama tíma hefur vísitala launa í landinu hins vegar hækkað um 59 prósent, samkvæmt Hagstofu Ís­ lands. Álag á álag Þar með er þó ekki öll sagan sögð því þingmenn njóta hinna ýmsu kjara og aukagreiðslna taki þeir að sér verkefni á þingi. Forsætisnefnd þingsins, sem skipuð er forseta og varaforsetum, ákveða sín á milli hvernig þingfararkostnaði er mætt. Í þeim reglum er meðal annars kveðið á um 15 prósenta álag á þing­ fararkaup varaforseta en forseti er á sér taxta hjá kjararáði. Formenn stjórnmálaflokka sem eiga minnst þrjá þingmenn en eru sjálfir ekki ráðherrar fá fimmtíu prósenta álag á sitt þingfararkaup. Þá fá formenn fastanefnda þings­ ins, sem eru átta talsins, líka fimmt­ án prósenta álag á sín laun. For­ menn þingflokka fá líka þetta álag auk þess sem fyrsti varaformaður fastanefnda fær tíu prósenta álag og annar varaformaður fimm prósenta álag. Að auki eru sérstakar heimildir til að greiða formanni sérnefnda allt að fimmtán prósenta álag, og vara­ formenn fastanefnda og þingflokka fá greitt fimmtán prósenta álag fyr­ ir þann tíma sem formaður þeirra er utan þings. Kostnaðurinn greiddur Þingmenn af landsbyggðinni fá svo greiddar 128.800 krónur í hverjum mánuði í húsnæðis­ og dvalar­ kostnað. Þetta er gert til að standa undir kostnaðinum sem þingmað­ urinn þarf að standa straum af til að sinna þingstörfum sínum í Reykja­ vík, fjarri heimili sínu. Ef viðkom­ andi heldur tvö heimili, annað í Reykjavík og hitt á landsbyggðinni, getur hann svo sótt um að fá greitt 40 prósenta álag á þessa upphæð og fá þannig 180.320 krónur greidd­ ar. Ferðir þingmanna eru líka alla jafnan greiddar. Þingmenn fá sér­ staka 80.600 króna greiðslu í fastan ferðakostnað. Ríkið endurgreiðir svo kostnað þingmanna við ferðir á milli heimilis eða starfsstöðvar og Reykjavíkur. Á hverju ári getur þingmaður líka fengið endurgreiddar allt að 1.045.200 króna vegna kostnaðar gegn framvísun reikninga. Hægt er að velja um að fá í staðinn greiddan fastan starfskostnað upp á 87.100 krónur á mánuði. Meðal þess sem ríkið greiðir í kostnað fyrir þing­ menn eru fundir sem hann kann að standa fyrir, fagbækur, blöð og tímarit, móttaka gesta, blóm og gjaf­ ir, þó að hámarki sex þúsund króna á hverja gjöf, auk þess sem ríkið endurgreiðir þingmönnum framlög og styrki til stjórnmálaflokka. n Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Flestir fá aukagreiðslu Minnst 39 þingmenn fá greitt eitthvert álag ofan á þingfararkaup sitt. Mest fá formenn stjórnmálaflokkanna sem ekki eru í ríkisstjórn. Ráðherrar og forseti Alþingis eru á sértaxta. MynD SIGtRyGGuR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.