Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Blaðsíða 11
Vikublað 25.–27. febrúar 2014 Fréttir 11 n Milljarðurinn frá Pálma í Fons dregur dilk á eftir sér n Ósáttur við að þurfa að borga skattinn Krafinn um skatt Jón Ásgeir var í lok árs í fyrra krafinn um skatt upp á meira en 300 milljónir króna af millj- arði sem Fons millifærði á hann sumarið 2008. mynd sigtryggur ari HÍ segist ekki taka við skipunum n LÍÚ styrkir Lagastofnun Íslands ekki lengur n Helgi Áss Grétarsson ósáttur Þ að tekur út yfir allan þjófa- bálk hvernig umfjöllunin um þetta er og hefur verið,“ segir Maria Thejll, for- stöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands, aðspurð hvort Landssamband íslenskra útvegs- manna (LÍÚ) styrki stofnunina enn- þá eftir að Helgi Áss Grétarsson lét af störfum hjá henni árið 2012. LÍÚ styrkti Lagastofnun Háskóla Íslands um sex ára skeið, frá árinu 2006 til 2012. Styrkirnir voru notaðir til að greiða laun Helga Áss, sérfræðings í auðlindarétti, sem unnið hefur að rannsóknum á fiskveiðistjórnar- kerfinu. Helgi Áss sagði í viðtali við út- varpsþáttinn Bítið á föstudaginn að hann hefði lent í „skítabakaríi“ út af því að staða hans við Lagastofn- un var kostuð af LÍÚ. Sagðist Helgi Áss ætla að íhuga að leita réttar síns í framtíðinni vegna ummæla um tengsl hans við LÍÚ. „Ég vil beina til þeirra sem fullyrða þetta að slík- ar fullyrðingar eru rangar og fela í sér rógburð, ærumeiðingar og að- dróttanir sem eru til þess fallnar að valda mér, og vinnuveitendum mínum við Háskóla Íslands, skaða. […] Í framtíðinni, þegar slík röng og ærumeiðandi ummæli eru viðhöfð, mun ég meta hverju sinni hvort ástæða sé ti að grípa til lagalegra úr- ræða til að verja minn starfsheið- ur sem og orðspor mitt sem fræði- manns í lögum.“ Álitsgerð um rækjuveiðar Umræðan kemur upp nú vegna álitsgerðar um rækjuveiðar sem Helgi Áss gerði fyrir Lagastofnun að beiðni atvinnuveganefndar Al- þingis. Í álitsgerðinni kemst Helgi Áss að þeirri niðurstöðu að ólög- legt hefði verið af Jóni Bjarnasyni, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, að gefa rækjuveiðar frjálsar. Rækju- veiðimaðurinn Jón Guðbjartsson á Ísafirði gagnrýndi skýrslu Helga Áss til dæmis í samtali við blað- ið BB: „Helgi Áss er á launum hjá LÍÚ sem borgar stöðu hans við há- skólann. Við litlu karlarnir erum að berjast við LÍÚ veldið og þá er kall- aður fram á sjónarsviðið sérlegur lögfræðingur veldisins til að skera úr um málin.“ Þrátt fyrir að styrkurinn frá LÍÚ hafi verið notaður til að greiða laun Helga Áss við stofnunina þá var hann ekki starfsmaður samtakanna heldur starfsmaður Lagastofnunar. Helgi Áss var ráðinn til Lagastofn- unar eftir að styrkveitingin lá fyrir. Stofnunin tryggði sér því styrkinn frá LÍÚ áður en Helgi Áss var ráð- inn til stofnunarinnar til að rann- saka fiskveiðistjórnunarkerfið. Í viðtalinu við Bítið sagði Helgi Áss um þetta: „Í ljósi þeirra aðgerða sem ég hef gripið til vil ég kannski ekki endilega mikið tjá mig mik- ið um þetta málefni og stöðu mína við Háskóla Íslands og tengsl mín við hagsmunaaðila í samfélaginu. Aðalatriðið er það að ég hef aldrei verið starfsmaður Landssam- bands íslenskra útgerðarmanna. Lagastofnun Háskóla Íslands og LÍÚ hafa síðan í júlí 2012 ekki átt í samstarfi á sviði auðlindaréttar.“ Engin áhrif segir maría María Thejll segir að styrkur LÍÚ til Lagastofnunar hafi ekki falið í sér nein afskipti samtakanna af vinnu Helga Áss. „Það voru gerð- ir tveir styrktarsamningar við LÍÚ, að frumkvæði Lagastofnunar. Það var verið að hefja LLM-nám hér í auðlindarétti og við vildum styrkja rannsóknir. LÍÚ gat ekkert skipt sér af rannsóknum eða rannsóknar- niðurstöðum og þeir gátu ekki sagt samningnum upp. Við myndum aldrei taka við styrk ef það væri ein- hver minnsti möguleiki að sá sem væri að styrkja hér rannsóknirn- ar myndi skipta sér af því hvernig rannsóknirnar væru framkvæmdar. Þá stæðum við ekki undir nafni […] Það er bara af illri nauðsyn sem far- ið er til einkaaðila til að afla styrkja,“ segir María. María segir að eftir að Helgi hætti hafi ekki verið gerður nýr styrktar- samningur við LÍÚ. Sambandið styrkir því Lagastofnun Íslands ekki lengur. Hún segir að stjórnendur Háskóla Íslands beini þeim tilmæl- um til deilda og stofnana Háskóla Íslands að þær leiti eftir styrkjum frá einkaaðilum og ríkisstofnun- um. María segir að í dag séu í gildi styrktarsamningar við Fjármála- eftirlitið og Samorku auk þess sem styttri styrktarsamningar hafi verið gerðir við ýmsa aðila, til dæmis lög- mannsstofuna Lex. Styrktarsamn- ingarnir eru þá hugsaðir þannig að viðkomandi fyrirtæki eða stofnanir hafi hag af því að tiltekin svið lög- fræðinnar séu rannsökuð. Hvött til að leita styrkja Aðspurð hvort hún telji að viðhorf til styrkveitinga frá einkaaðilum hafi breyst í Háskóla Íslands eftir hrun segir María: „Það er mikið hvatt til þess innan háskólans, vegna þess að hann er svo fjárvana, að styrkja sé aflað úr samkeppnis- sjóðum og frá einkaaðilum. Alltaf hefur verið hvatt til þess, bæði fyr- ir hrun og eftir hrun. Það er ekk- ert óeðlilegt við það vegna þess að samningarnir sem við gerum eru þannig að við leggjumst yfir það sem þarf að rannsaka og svo förum við af stað og segjum: Eruð þið til í að styrkja svona rannsókn? Svo eru samningarnir gerðir þannig að þeir sem styrkja hafa enga aðkomu að rannsóknunum.“ Í skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis er bent á hversu vara- samar styrkveitingar einkaaðila til háskóla geta verið þar sem slíkar styrkveitingar geti dregið úr áhuga háskólasamfélagsins til að gagn- rýna þá einkaaðila sem veita styrk- ina: „Áhrif kostunar verða frem- ur óbein en bein og draga leynt og ljóst úr hvatanum til að gagnrýna þá aðila sem fjármagna starfsem- ina og þar með að taka þátt í þjóð- félagsumræðunni. Að því leyti geta áhrif kostunar verið varasamari en bein afskipti að ofan að erfiðara er að gera sér grein fyrir þeim og vera á varðbergi gagnvart þeim. Þess vegna er brýnt að setja almennar reglur um tilhögun kostunar í því skyni að koma í veg fyrir hagsmuna- árekstra.“ Ef marka má orð Maríu þá hafa viðhorf háskólans til styrkveitinga og kostunar ekki breyst mikið eft- ir hrunið 2008 þrátt fyrir umfjöll- un rannsóknarnefndar Alþingis um málið. n ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Það er mikið hvatt til þess innan háskólans vegna þess að hann er svo fjárvana. Ósáttur Helgi Áss er ósáttur við hvernig hann hefur verið bendlaður við LÍÚ vegna þess að samtökin styrktu stöðu hans við Lagastofnun Háskóla Íslands. mynd Fréttablaðið Dæmdir til að greiða skatt Nýleg dómsmál sem fjalla um skattgreiðslur frá því fyrir hrun Vildi losna við skatt af milljarði Þann 13. febrúar tapaði Einar Sveinsson, fjárfestir og fyrrverandi stjórnarformaður Glitnis, dómsmáli gegn íslenska ríkinu sem snerist um skatt- greiðslur af einum milljarði króna sem Einar hagnaðist um þegar hann seldi hlutabréf í Glitni í apríl 2007. Dæmt var ríkisskattstjóra í hag en hann hafði endurákvarðað 119 milljónir króna í skatt sem Einari var gert að greiða vegna söluhagnaðarins á hlutabréf- unum í Glitni. Alls hagnaðist Einar um tæplega 2.500 milljónir króna á sölunni á Glitnisbréfunum. Einar reyndi, með viðskiptafléttu sem gekk út á kaup á bresku fyrirtæki, að losna við að greiða skatt af einum milljarði króna af umræddri upp- hæð. Einari var líka gert að greiða málskostnað í málinu. Dæmdur til að greiða tæplega 40 milljónir Kristinn Þór Geirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Glitnis og fyrrverandi stjórnar- maður í bankanum, tapaði máli gegn íslenska ríkinu fyrir Hæstarétti þann 14. febrúar. Kristinn vildi að ógilt yrði ákvörðun ríkisskattstjóra um að telja 158 millj- óna króna arðgreiðslur sem hann lét einkahlutafélag sitt greiða sér árin 2006 og 2008 sem tekjuskatt. Hann var því dæmdur til að greiða alls 39,6 milljónir króna í skatt. Líkt og DV hefur fjallað um tók Kristinn Þór lán í Glitni banka til að greiða sér arðinn sem um ræðir. hjá yfirskattanefnd og geta menn einnig farið með mál beint fyrir dóm ef svo ber undir, líkt og Krist- inn Þór Geirsson og Einar Sveins- son gerðu, samkvæmt nýföllnum dómum í Hæstarétti Íslands. n „LÍÚ gat ekkert skipt sér af rann- sóknum eða rann- sóknarniðurstöðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.