Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Blaðsíða 10
10 Fréttir Vikublað 25.–27. febrúar 2014 J ón Ásgeir Jóhannesson, fjárfestir og eiginmaður aðaleiganda fjölmiðlafyrirtækisins 365, var krafinn um meira en 300 millj­ ónir króna í skatt vegna eins milljarðs króna sem eignarhalds­ félagið Fons millifærði inn á persónu­ legan reikning hans fyrir hrunið 2008. Þetta herma heimildir DV. Jón Ásgeir er sagður hafa greitt skattinn en jafn­ framt er tekið fram að hann hafi verið ósáttur við að þurfa að greiða hann. Atburðurinn átti sér stað í desember síðastliðinn. Embætti ríkisskattstjóra endur­ áætlaði umræddar skattgreiðslur á Jón Ásgeir og krafði hann um endur­ greiðsluna. Jón Ásgeir getur í kjölfarið kært niðurstöðu ríkisskattstjóra til yfir­ skattanefndar eða farið með málið fyrir dómstóla. Í síðustu viku féllu tveir dómar í Hæstarétti þar sem tveir fjár­ festar, Einar Sveinsson og Kristinn Þór Geirsson, voru dæmdir til að endur­ greiða íslenska ríkinu skatt vegna við­ skipta sinna á árunum fyrir hrunið 2008. DV sendi Jóni Ásgeiri Jóhannes­ syni fyrirspurn um skattgreiðsluna í tölvupósti en hann svaraði henni ekki. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segist ekki geta svarað því hvort Jón Ásgeir hafi verið krafinn um skattinn eða ekki. „Við tjáum okkur aldrei um málefni einstakra framteljenda. Al­ mennt séð get ég hins vegar sagt að menn eru bara í eftirliti hérna.“ Formúlumilljarður í júlí 2008 Fons millifærði milljarðinn inn á reikning Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í júlí 2008. Lánið var svo afskrifað í bókhaldi Fons þrátt fyrir að það væri ekki á gjalddaga fyrr en árið 2012. Tveimur vikum eftir að millifærslan á milljarðinum átti sér stað gerði Fons samkomulag við eignarhaldsfélag Jóns Ásgeirs, Þú Blásól ehf., um að milljarðurinn væri lán sem nota ætti til að borga auglýsingar bresku leikfanga­ verslunarinnar Hamleys á bílum og flutningatækjum Williams­formúlu­ liðsins. Þrotabú Fons höfðaði riftunar­ mál út af millifærslunni þar sem talið var um fjármunirnir hefðu verið gjöf. Lögmaður Jóns Ásgeirs, Sigurður G. Guðjónsson, hefur sagt í samtali við DV að ekki hafi verið um gjöf að ræða til Jóns Ásgeirs. „Þeir eru að reyna að rifta þessu sem gjafagerningi […] Ef svo ólíklega fer að þeir nái að sanna að þetta hafi verið gjöf til Jóns þá er nú gjöfum ekki rift nema hægt sé að sýna fram á að aðilinn hafi orðið ógjald­ fær vegna gjafarinnar eða hafi verið ógjaldfær fyrir. Hvorugt á við um Fons sem fékk 12–13 milljarða frá Iceland­ keðjunni inn á reikninginn sinn og var með sterka stöðu á þessum tíma.“ Þú Blásól ehf. hefur ekki skilað ársreikningi síðan árið 2007 og því er ekki hægt að sjá hvort milljarðurinn er bókfærður í honum eða ekki. Þar af leiðandi beindist riftunarmál Fons að Jóni Ásgeiri persónulega en ekki Þú Blásól ehf. Riftunarmál þrotabús Fons gegn Jóni Ásgeiri bíður meðferð­ ar í dómskerfinu og verður tekið fyrir síðar á þessu ári. Kært til sérstaks saksóknara Milljarðurinn sem fór frá Fons til Jóns Ásgeirs var hluti af fjögurra milljarða króna fjármögnun á Williams­liðinu sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Baugur stóðu fyrir árið 2008. Sumarið 2008 gaf Glitnir út fjögurra milljarða króna bankaábyrgð út af þessari fjár­ mögnun en þá hafði dregist að fjár­ magna viðskiptin frá því að samning­ ur um þau var gerður í janúar 2008. Um var að ræða breskt dótturfélag Baugs, Sports Investment, sem ætlaði að fjárfesta í Williams­liðinu fyr­ ir fjóra milljarða króna og gekkst Jón Ásgeir Jóhannesson í persónulegar ábyrgðir vegna þessara viðskipta. Fjármögnunin á viðskiptunum gekk hins vegar hægar en til stóð og því hljóp Glitnir undir bagga um sumarið 2008. Í janúar í fyrra, árið 2013, kærði slitastjórn Glitn­ is veitingu bankaábyrgðarinnar til sérstaks saksóknara vegna gruns um meint umboðssvik. Fréttablaðið greindi frá kærunni í febrúar í fyrra. Kæran beindist ekki að neinum einstaklingi persónulega heldur var því erindi beint til embættisins að það skoðaði þau sérstaklega. Málið er til meðferðar hjá sérstökum sak­ sóknara. Notað upp í yfirdráttarskuld Í ákæru sérstaks saksóknara gegn Jóni Ásgeiri í Aurum­málinu svokall­ aða kemur fram að hann hafi notað hluta af milljarðinum frá Fons til að greiða 705 milljóna króna yfirdrátt­ arskuld sína við Glitni. Samkvæmt þessu þá rann milljarðurinn frá Fons ekki til fjárfestingar í Williams­liðinu heldur til Jóns Ásgeirs persónulega. Jón Ásgeir hefur nú verið krafinn um skattgreiðslu af þessum milljarði og herma heimildir DV að hann hafi staðið skil á henni, líkt og áður segir. Lögmenn Jóns Ásgeirs komu að mál­ inu fyrir hans hönd enda var hann ekki sáttur við þá ákvörðun ríkis­ skattstjóra að krefja hann um skatt­ inn aftur í tímann. Jón Ásgeir getur nú ákveðið að fara með málið til yf­ irskattanefndar eða beint til dóm­ stóla. Þriggja mánaða kærufrestur er Yfirlýsing Jóns Ásgeirs Um fjárfestinguna í Williams-liðinu í febrúar í fyrra: „Þetta mál er algjörlega fráleitt frá hendi Slitastjórnar Glitnis; A) Verulegar fjárhæðir voru greiddar til Willams án þess að hlutur fengist afhentur og það er klárt að greiðslur færu til Willams sem átti að afhenda hluti í samræmi við það. Ef eitthvað er stendur út af þá stendur það upp á Willams. B) Á fundi með Slitastjórn í London 2011 bauðst ég til að hjálpa þeim að klára þetta mál með því að tala við Willams og fá þá til að falla frá þessari vitlausu kröfu. Slitastjórn Glitnis tók því fálega og þáði aldrei aðstoð mína í þessu máli. C) Willams hefur aldrei höfðað mál á mig persónulega út af þessu. Hvers vegna hafa þeir ekki gert það ef lýsing Slitastjórnar á málinu er rétt? D) Willams liðið er skráð í Kauphöllinni í Frankfurt og er markaðsverðmæti þess 229 milljónir EURO. Þetta er í alla staði sérkennilegt mál og lítur út fyrir að vera ómerkilega tilraun Slitastjórnar Glitnis við að beina athyglinni frá því moldviðri sem hún er nú stödd í vegna umræðu um himinn há laun sem þau hafa skammtað sér á síðustu árum. Laun sem eiga sér engin fordæmi í íslensku samfélagi í dag.“ Jón Ásgeir krafinn um skatt af millJarði n Milljarðurinn frá Pálma í Fons dregur dilk á eftir sér n Ósáttur við að þurfa að borga skattinn Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskatt- stjóra hefur embættið innheimt háar fjárhæðir á hverju ári á síðustu árum eftir endurskoðun á skattframtölum. Meðal annars er um að ræða endurákvarðanir vegna viðskipta sem áttu sér stað á árunum fyrir hrunið 2008. Samkvæmt ríkisskattstjóra hefur embættið gert breytingar á skattgreiðslum aftur í tímann upp á 5,8 milljarða árið 2010, 5,9 milljarða króna árið 2011 og 7,9 milljarða árið 2012 og árið 2013 voru það 12,4 milljarðar. Um er að ræða endurákvarðanir á skattgreiðslum þar sem einstaklingar og lögaðilar eru krafðir um skattgreiðslur sem þessir aðilar hefðu átt að standa skil á. Stundum una menn niðurstöðu ríkisskattstjóra en stundum ekki. Þá geta þeir sem endurákvarðað hefur verið hjá annaðhvort kært niðurstöðuna til yfir- skattanefndar eða farið beint til dómstóla. Í síðustu viku var til dæmis sagt frá því að Einar Sveinsson fjárfestir hefði tapað máli í Hæstarétti vegna endurákvörðunar upp 119 milljónir króna sem var tilkomin vegna tilraunar hans til að reyna að forðast að greiða skatt af söluhagnaði af hluta- bréfum í Glitni upp á 964 milljónir króna árið 2007. Þeir Einar og Kristinn fóru með mál sín beint fyrir dóm og töpuðu þeir báðir fyrir Hæstarétti Íslands. Í svari ríkisskatt- stjóra um þessi mál segir: „Það var ekki farið með þessi mál til yfirskattanefndar heldur var fjármálaráðherra stefnt til ógildingar á úrskurði Ríkisskattstjóra. En þessi mál töpuðust í Hæstarétti Íslands fyrir þá.“ Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra getur það einnig gerst að ef sakir eru miklar geta mál verið send til ríkisskattstjóra. Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra gildir heimild til endurákvörðunar á sköttum, til að mynda vegna við- skipta sem tengjast hruninu, sex ár aftur í tímann. Samkvæmt upplýsingum frá embættinu kláruðust flest þessara mála á síðasta ári. „Þannig að menn eru í öðruvísi eftirliti núna.“ Ríkis- skattstjóri hefur því verið í sínu uppgjöri við viðskipti hrunsins á liðnum árum þar sem verið er að endurskoða skattgreiðslur vegna viðskipta sem áttu sér stað á árunum fyrir hrunið. „Það eru miklar gjaldabreytingar sem hafa verið hérna á síðustu árum.“ Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskatt- stjóra skila þeir fjármunir, sem embættið reynir að sækja með endurákvörðunum, sér ekki í ríkiskassann þar sem þeir aðilar sem krafðir eru um skattinn hafi stundum gripið til aðgerða til að komast hjá skattgreiðslum. „Það er alls ekki svo að allt af þessu skili sér í kassa ríkissjóðs af því þegar kemur svona gjaldabreyting þá gera menn ýmsar ráðstafanir sem gera það að verkum að viðkomandi félög verða ógjaldfær. Menn grípa til aðgerða og félög- in eru orðin tóm. Því eru alls kyns aðgerðir í gangi því menn hafa verið að færa eignir úr félögum. En mest af þessu skilar sér hins vegar í ríkiskassann.“ Innheimta háar fjárhæðir Skúli Eggert Þórðarson Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Afskrifað Milljarðurinn frá eignarhaldsfélagi Pálma Haraldssonar, Fons, var afskrifaður í bók- um félagsins eftir að Jón Ásgeir tók við honum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.