Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Qupperneq 8
8 Fréttir Vikublað 25.–27. febrúar 2014
Hringurinn þrengist
n Sárafáir höfðu aðgang að minnisblaðinu n Nokkrir þeirra kölluðu eftir óháðri rannsókn
M
innisblað innanríkis
ráðuneytisins um hælis
leitandann Tony Omos er
til á málaskrá ráðuneyt
isins og var útbúið að
beiðni Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
innanríkisráðherra og aðstoðar
manna hennar þann 19. nóvember.
Skjalið var afhent fjölmiðlum sama
dag, en ekki skráð á málaskrá fyrr en
nokkru síðar samkvæmt heimildum
DV. Þannig höfðu aðeins örfáir að
gang að skjalinu þegar því var lekið:
starfsmennirnir sem útbjuggu það,
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan
ríkisráðherra og aðstoðarmenn ráð
herra, þau Gísli Freyr Valdórsson og
Þórey Vilhjálmsdóttir. Um óform
legt vinnuskjal var að ræða sem
engar undirstofnanir höfðu aðgang
að.
Eftir því sem DV kemst næst var
minnisblaðið útbúið á skrifstofu
réttarfars og stjórnsýslu. Heimildar
menn DV innan ráðuneytisins stað
festa að starfsmenn af þeirri skrif
stofu hafi krafist þess að gerð yrði
óháð og ítarleg rannsókn á lekanum
um leið og fréttir Mbl.is og Frétta
blaðsins birtust þann 20. nóvem
ber. Hins vegar hafi Hanna Birna,
og aðstoðarmenn hennar, ekki orðið
við þeirri kröfu. Lögreglan á höfuð
borgarsvæðinu rannsakar nú mál
ið og nýtur liðsinnis sérstaks sak
sóknara sem kemur að tæknilegri
hlið rannsóknarinnar. Eins og fram
hefur komið eru ráðuneytisstarfs
menn og fjölmiðlamenn á með
al þeirra sem kallaðir hafa verið í
skýrslu töku.
Villt um fyrir fjölmiðlum
Minnisblaðið sem skráð er á mála
skrá ráðuneytisins er að efni og inni
haldi sambærilegt við það minnis
blað sem sent var á fjölmiðla og DV
hefur undir höndum. Munurinn er
þó sá að aukasetningu hefur verið
skeytt aftast í minnisblaðið sem fór
á fjölmiðla. Þar er eftirfarandi full
yrðing sögð tilheyra rökstuðningi
innanríkisráðuneytisins: „Ekki liggur
ljóst fyrir hver er barnsfaðir hennar,
en rannsóknargögn gefa til kynna að
hún sé beitt þrýstingi um að segja að
TO [Tony Omos, innsk.blm.] sé faðir
inn þó svo að hann eigi nú í samandi
við íslenska stúlku.“
Athygli vekur að ekkert er minnst
á þennan meinta þrýsting í úrskurði
innanríkisráðuneytisins. Þá kemur
ekkert slíkt fram í rökstuðningi ráðu
neytisins fyrir synjun á endurupptöku
úrskurðarins né heldur í því minnis
blaði sem skráð er á málaskrá ráðu
neytisins. Svo virðist sem fjölmiðlar
hafi verið blekktir í þessu atriði. Fyrsta
fréttin um málið birtist á forsíðu
Fréttablaðsins þann 20. nóvember
síðastliðinn. Þar var vísað í rökstuðn
ing ráðuneytisins þar sem fram átti að
koma að „rannsóknargögn gæfu til
kynna“ að Tony hefði beitt barnsmóð
ur sína þrýstingi um að segja að hún
gengi með barn hans. Mbl.is birti
sams konar frétt þennan morgun og
vísaði einnig í rökstuðninginn. Síð
ar sama dag birti Mbl.is ítarlegri frétt
og sagði upplýsingarnar komnar úr
„óformlegu minnisblaði innanríkis
ráðuneytisins“.
Þórey svarar ekki
Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðar
maður innanríkisráðherra, sagði í
samtali við blaðamann DV þann 20.
nóvember að minnisblaðið væri ekki
til á málaskrá. Þessi fullyrðing hans
er samhljóða heimildum DV innan
úr ráðuneytinu sem herma að skjalið
hafi ekki verið skráð formlega fyrr en
nokkrum dögum síðar. Sú staðreynd
að minnisblaðið er til inni á málaskrá
gengur hins vegar í berhögg við fyrri
yfirlýsingar Hönnu Birnu sem sagði
til dæmis á Alþingi þann 27. janúar
síðastliðinn að „… minnisblaðið sem
hefur verið í gangi á ýmsum fjölmiðl
um og hér og þar er ekki sambærilegt
við nein gögn í ráðuneytinu.“
Áður hefur verið greint frá því að
Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarkona
Hönnu Birnu, átti símtöl við frétta
menn 365 og Mbl.is um málefni
hælisleitendanna Tonys Omos og
Evelyn Glory Joseph þann 19. nóv
ember, eða sama dag og fjölmiðlar
fengu það í hendur. Þórey hefur neit
að því að hafa sent minnisblaðið til
fjölmiðla en við vinnslu þessarar
fréttar fengust engin svör frá henni
varðandi aðkomu hennar að mál
inu. Ráðuneytið svarar engum fyrir
spurnum DV um lekamálið.
„Innrætt ströng trúnaðarskylda“
DV hefur rætt við á annan tug ráðu
neytisstarfsmanna á síðustu vikum.
„Ég get lofað þér því að enginn
embættismaður lekur svona skjali.
Okkur er innrætt ótrúlega ströng
trúnaðarskylda þegar kemur að
meðferð persónuupplýsinga. Enginn
óbreyttur starfsmaður tæki svona
áhættu nema það væru verulegir
hagsmunir í húfi fyrir hann sjálfan,“
sagði einn af viðmælendum blaðsins
sem starfar hjá ráðuneytinu.
Annar benti á að allt frá upphafi
hefðu starfsmenn af skrifstofu réttar
fars og stjórnsýslu krafist þess að
gerð yrði óháð rannsókn á lekanum.
„Sú krafa kom upp sama dag og frétt
ir Mbl.is og Fréttablaðsins birtust, en
ráðherrann og aðstoðarmennirnir
lögðust gegn því,“ sagði starfsmað
ur sem DV ræddi við í síðustu viku.
Af samtölunum mátti dæma að tals
verðrar reiði gætti í garð ráðherra og
aðstoðarmanna.
Fleiri viðmælendur blaðsins sem
sinnt hafa trúnaðarstörfum innan
stjórnsýslunnar taka í sama streng
og segja nær óhugsandi að óbreyttur
embættismaður hafi tekið sig til
og lekið skjalinu. „Það væri algjör
lega andstætt starfsskyldum þeirra
að senda trúnaðargögn út úr ráðu
neytinu án vilja og samþykkis ráð
herra eða yfirmanna,“ segir einn við
mælenda blaðsins og bætir því við að
það væri „algjör fífldirfska hjá emb
ættismanni að láta rekja slíkt til sín.“
Leynd yfir minnisblaði
Ekki fæst betur séð en að ásökun
um um hinn meinta þrýsting Tonys
gagnvart barnsmóður sinni hafi ver
ið bætt við skjalið eftir að það barst
ráðherra og aðstoðarmönnum hans
og áður en það var sent á fjölmiðla.
Hvorki lögmaður Tonys né lög
maður Evelyn kannast við slíkan
þrýsting og hefur ekkert komið fram
sem bendir til þess að ásökunin eigi
sér stoð í raunveruleikanum. Stefán
Karl Kristjánsson, lögmaður Tonys,
hefur kært ráðherra sem æðsta yfir
mann ráðuneytisins til lögreglu,
meðal annars fyrir ærumeiðingar
og misnotkun á aðstöðu sinni. Þetta
gerir lekamálið alvarlegra en ella sé
litið til þess að fjölmiðlar álitu skjalið
byggt á óvéfengjanlegum staðreynd
um sem finna mætti í opinberum
skjölum.
Allt frá upphafi málsins hefur
mikil þögn hvílt yfir því hvort minn
isblaðið hafi yfirleitt verið til inni hjá
innanríkisráðuneytinu. Þannig var
beiðni lögmanna um að fá aðgang
að skjalinu hafnað strax í upphafi
og ekkert staðfest um tilvist skjals
ins. Þá hefur ítrekuðum spurningum
lögmanna, blaðamanna og nú síðast
þingmannanna Marðar Árnasonar
og Valgerðar Bjarnadóttur varðandi
minnisblaðið ekki verið svarað.
Hanna Birna hefur ítrekað ýjað
að því að aðrar stofnanir gætu hafa
haft sömu upplýsingar undir hönd
um en eins og rakið hefur verið hér
á undan standast slíkar fullyrðingar
ekki skoðun. Tilhæfulaust var að
bendla Rauða krossinn, lögregluna
og Útlendingastofnun við lekann líkt
og ráðherra gerði margsinnis. Ljóst
er að minnisblaðið var útbúið í inn
anríkisráðuneytinu og einungis ör
fáir einstaklingar höfðu aðgang að
því þegar því var lekið á fjölmiðla,
þar á meðal ráðherra og aðstoðar
menn hans. n
„Það væri algjör-
lega andstætt
starfsskyldum þeirra að
senda trúnaðargögn út
úr ráðuneytinu án vilja og
samþykkis ráðherra eða
yfirmanna.
Jón Bjarki Magnússon
Jóhann Páll Jóhannsson
jonbjarki@dv.is / johannp@dv.is
Minnisblað ráðherra
Hanna Birna Kristjánsdóttir
og aðstoðarmenn hennar,
Þórey Vilhjálmsdóttir og
Gísli Freyr Valdórsson létu
útbúa minnisblaðið þann
19. nóvember, stuttu áður
en það endaði í höndum
fjölmiðla sama dag.