Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Qupperneq 14
Vikublað 25.–27. febrúar 201414 Fréttir Viðskipti
„Ákvörðunin
skaðleg“
Stjórn Félags atvinnurekenda
sendi á mánudag frá sér yfirlýs
ingu þar sem ákvörðun stjórnar
flokka um að slíta aðildarvið
ræðum við ESB er harðlega
gagnrýnd. „Ákvörðunin er skað
leg fyrir íslensk fyrirtæki og lokar
augljósum valkostum í efnahags
málum á tímapunkti þar sem
engin þörf er á síkum vatnaskil
um,“ segir í tilkynningunni. FA
tekur einnig í sama streng og SA
og segir: „Engin skýr stefnumörk
un liggi fyrir um framtíðarskipan
peningamála og því lítil skynsemi
að útiloka augljósa valkosti að
svo komnu máli.“
Spurningum
ósvarað í kjölfar
viðræðuslita
„Ríkisstjórnin hefði ekki þurft að
vinna af svo miklum hraða að
því að loka þessum möguleika,“
segir Björgólfur Jóhannsson, for
maður Samtaka atvinnulífsins,
um ákvörðun ríkisstjórnarinnar
að hætta viðræðum um aðild að
ESB alfarið. „Samkvæmt skýrsl
unni sem ríkisstjórnin styðst nú
við er hægt að semja um ýmis
legt í slíkum viðræðum. Okkar
stefna hefur verið sú að ljúka eigi
viðræðunum og þjóðin ákveði
síðan hvað skal gera. Á þessu
stigi finnst mér þetta of mikill
asi, þó ekki sé nema bara vegna
þess að ný skýrsla verður tilbúin
í apríl,“ segir Björgólfur og vísar
þar í úttekt sem aðilar vinnu
markaðarins láta vinna fyrir sig í
háskólanum.
Lokar á möguleika
Ekki eru allir innan SA sam
mála um hvað skuli gera, en for
ystan hefur þó gefið það út að
ljúka eigi viðræðum um aðild
að ESB og setja málið í þjóðar
atkvæðagreiðslu. „Ég horfi mjög
til þess að við þurfum að eiga
svör við ýmsu, til dæmis hvernig
við ætlum að hátta okkar pen
ingamálastefnu í framtíðinni
með íslenska krónu. Hvað verða
raunvextir mikið hærri hjá okk
ur miðað við samkeppnislönd?
Þetta eru spurningar sem ekki
hefur verið svarað. Möguleik
unum til að finna lausn á okk
ar peningamálum fækkar með
þessari ákvörðun, það er alveg
ljóst að þessi ákvörðun lokar á
möguleikann á upptöku evru,“
segir Björgólfur en tekur jafn
framt fram að virða þurfi ákvarð
anir stjórnvalda.
Annar tölvupóstur frá lögmanni lýsir eignarhaldi Hannesar Smárasonar á skíðaskálanum
K
æri Hannes […] Lög
mannsstofan er stór og er
með mjög sterka stöðu á
svæðinu þar sem skíða
skálinn þinn er staðsettur,“
sagði lögmaðurinn Clive Godfrey í
Lúxemborg í tölvupósti á netfang
Hannesar Smárasonar þann 28.
julí 2011.
Tölvupósturinn sýnir fram á
það sem DV hefur haldið fram síð
an í nóvember að skíðaskálinn sé
í eigu Hannesar. Í tölvupóstinum
ræddi Godfrey um skíðaskálann í
franska skíðabænum Courchevel
sem Hannes átti ásamt íslenska
fjárfestinum Magnúsi Ármann í
gegnum flókið net eignarhaldsfé
laga. Bæði Hannes og Magnús eru
með lögheimili í Lúxemborg en
hafa verið búsettir á Spáni síðast
liðin ár.
Hannes neitaði því hins vegar
í yfirlýsingu eftir að blaðið birti
frétt um skálann, sem er verðmet
inn á rúmlega tvo milljarða króna,
að hann ætti skálann. „„Fréttin“ er
röng. Ég á ekkert í þessum skíða
skála, hvorki beint né „í gegnum
eignarhaldsfélög í skattaskjól
um“, eins og sagt er. Sama gildir
um Magnús. Ég og Magnús þekkj
um þessa eign og höfum komið að
rekstri hennar, en „fréttin“ snýst
ekki um það. Hvorugur okkar er
eigandi, eins og áður segir, og ég
kem ekki að rekstri þessarar fast
eignar í dag.“ Yfirlýsingin var tekin
upp á visir.is og Pressunni.
Rætt um útgöngu Hannesar
Tölvupósturinn sýnir hins vegar
fram á að Hannes átti skíðaskál
ann sannarlega þrátt fyrir það sem
hann sagði í yfirlýsingu sinni. Í
tölvupóstinum ræddi lögmaður
inn um skíðaskálann og hvernig
Hannes gæti, að því er virðist, far
ið út úr því neti eignarhaldsfélaga
sem heldur utan um skálann.
Orðrétt segir í póstinum:
„… meðfylgjandi er lögfræði
leg álit okkar (á frönsku með
þýðingu á ensku) um skatta
legar afleiðingar þess að fara út
úr eignarhaldsstrúktúrnum á
skíðaskálanum.“ Hannes virð
ist því á þessum tíma hafa ver
ið að leita leiða til að fara út úr
eignarhaldsstrúktúrnum sem
hélt utan um skíðaskálann í
Courchevel. Í yfirlýsingu sinni
sagðist Hannes hins vegar aðeins
hafa „komið að rekstri“ skálans.
Miðað við þennan tölvupóst,
sem og annan póst sem DV birti
frétt um í síðustu viku, þá er ekki
rétt að Hannes hafi ekki átt skíða
skálann. Í hinum póstinum bar
annar lögmaður í Lúxemborg
atriði sem tengdust rekstri og
eignarhaldi skálans undir Hannes.
Teygir sig til nokkurra landa
Húsið stendur við götu í
Courchevel sem heitir Rue
Copsillot, líkt og DV greindi frá í
nóvember. Eignarhaldið á skíða
skálanum teygir sig til nokkurra
landa: Byrjar í Frakklandi, teygir
sig til Sviss í gegnum bankareikn
inga í svissneskum banka sem
notaður er til að fjármagna hann,
þaðan til Lúxemborgar þar sem
lögmannsstofa Godfreys er, og
loks til Kýpur og Panama þar
sem eignarhald skálans endar í
nokkrum eignarhaldsfélögum.
Því er það vitan lega satt að Hann
es hafi ekki átt skíðaskálann
persónulega enda var því heldur
ekki haldið fram.
Síðastliðin ár hafa Hannes og
Magnús leigt skíðaskálann út að
mestu en þeir keyptu hann árið
2007. n
„Skíðaskálinn þinn“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is Einfölduð skýringarmynd
LA GRANDE
BLANCHE SARL
18 rue Robert Stumper
L-2557 Luxembourg
SEMTAN
SCA de droit Luxembourgeois
C/O Liberty center
55, avenue de la Liberté
Luxembourg
SEMTAN MANAGEMENT LIMITED
Nicosia, Cyprus, 12 Egypt Street, PC109
INTERGEM HOLDING S.A
Panama, east 53 rd Street, Marbella,
Swiss bank building
MONEGATE HOLDING S.A
Panama, east 53 rd Street, Marbella,
Swiss bank building
Magnús á meira Magnús á
tæplega 3/4 hluta í skíðaskálanum
samkvæmt gögnum sem DV hefur
undir höndum en Hannes 1/4. Mynd A33
HANNES SMáRASON MAGNúS áRMANN
*Tekið skal
fram að
eignarhald
hússins er
talsvert
flóknara,
en er hér
einfaldað
mjög til
skýringar.„Engar neikvæðar
skattalegar
afleiðingar sem koma
í veg fyrir útgöngu úr
eignarhaldsstrúktúrnum.
„Þinn“
skíðaskáli
Lögmaðurinn í
Lúxemborg vísar
til skíðaskálans í
Courchevel sem
eignar Hannesar.
„Kæri Hannes,
28 júlí 2011 17:10
meðfylgjandi er lögfræðileg álit okkar
(á frönsku með þýðingu á ensku) um
skattalegar afleiðingar þess að fara út úr
eignarhaldsstrúktúrnum á skíðaskálanum.
Ég mun senda álit okkar til samstarfsaðila
okkar í Lyon, LAMY LEXEL lögmannsstof-
una (http://www.lamy-lexel.com/ ) til
yfirlestrar. Með tilliti til þeirra fjárhæða
sem um ræðir og sökum þess að um er að
ræða atriði sem varðar frönsk lög þá er
staðfesting frá frönskum skattasérfræðingi
æskileg og óumflýjanleg. Hún kemur
einnig að góðum notum í viðræðunum við
FINIMMO. Lögmannsstofan er stór og er
með mjög sterka stöðu á svæðinu þar sem
skíðaskálinn þinn er staðsettur.
Niðurstaða okkar er sú að það séu engar
neikvæðar skattalegar afleiðingar
sem koma í veg fyrir útgöngu úr
eignarhaldsstrúktúrnum í ESTATES á
sama tíma og endalok viðskiptasambands
þíns við FINIMMO mun lækka verulega
kostnað, bæta það hvernig rekstri skálans
er stjórnað og auðvelda sölu hans.
Góðar kveðjur,
Clive Godfrey“
Tölvupósturinn til Hannesar Smárasonar